Morgunblaðið - 12.11.2010, Blaðsíða 39
MENNING 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010
SÍMI 564 0000 FULLKOMIN GÆÐI
12
12
L
L
L
16
L
7
L
L
SÍMI 462 3500
12
L
L
L
L
JACKASS3D kl.8-10
EASYA kl.6-8-10
ARTHÚR3 kl.6
SÍMI 530 1919
L
L
L
L
16
12
UNSTOPPABLE kl.5.45-8-10.15
EASYA kl.5.50-8-10.10
ARTHÚR3 kl.5.50
YOU WILLMEET ATALLDARKSTRANGER kl.8-10.15
INHALE kl.8-10
BRIM kl.6
JACKASS 3D kl.3.40-5.50-8-10.10
JACKASS3DLÚXUS kl.3.40-5.50-8-10.10
UNSTOPPABLE kl.5.45-8-10.15
EASYA kl.5.50-8-10.10
ARTHÚR 3 kl.3.40
MACHETE kl.10.35
ÚTI ER ÆVINTÝRI 2 kl.3.40
SOCIALNETWORK kl.8
EATPRAYLOVE kl.5.20
AULINN ÉG 3D kl. 3.40
.com/smarabio
NÝTT Í BÍÓ!
Sýnd kl. 4Sýnd kl. 8 og 10:15
MAGNÞRUNGIN
SPENNA MEÐ
LYGUM OG
SVIKUM!
Sýnd kl. 4 og 6
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10:15 - Ótextuð Sýnd kl. 5:50, 8 og 10:15
Artúr er mættur aftur í sinni þriðju mynd, þar sem ævintýrið er stærra en nokkru sinni fyrr!
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
FYNDNARI OG FÁRÁNLEGRI EN NOKKURN TÍMANN ÁÐUR,
TEKIN Í FLOTTUSTU ÞRÍVÍDDARTÆKNI SEM VÖL ER Á!
SJÁÐU JACKASS EINS OG ÞÚ
HEFUR ALDREI SÉÐ ÁÐUR! -bara lúxus
Sími 553 2075
www.laugarasbio.is
Þú færð 5% endurgreitt í Laugarásbíó
ef þú greiðir með kreditkorti
tengdu Aukakrónum
Börkur Gunnarsson
borkur@mbl.is
Sölvi Tryggvason er landsfrægur sjónvarpsmaður
sem er þekktur af ljúfmennsku og það er eins og
engum geti verið illa við hann. Hann tók að sér að
skrifa ævisögu einnar umdeildustu manneskju
þessa áratugar, Jónínu Benediktsdóttur. Að-
spurður hvernig þetta kom til segir Sölvi að hann
hafi ekki þekkt hana en eftir eitt viðtalið sem hann
tók við hana þá hringdi hún í hann og bað hann um
þetta. „Ég tók strax vel í þetta en ég þurfti að
hugsa mig um. Það togaðist á í mér að ég hef aldr-
ei tengst neinni pólitík, aldrei verið í neinu liði í
samfélagsátökum. Ég óttaðist að ég yrði settur í
eitthvert lið út af þessu. En þegar ég setti mig í
blaðamannagírinn þá var þetta of spennandi til að
gera þetta ekki. Hvort sem þú ert með eða á móti
Jónínu, þá verður ekki undan því litið að sagan er
frábær,“ segir Sölvi.
Sölvi segir að hann og Jónína hafi tengst saman
frá byrjun. „Það var mjög skrítið en þetta small
saman hjá okkur. Jónína er mjög skemmtileg.
Hún segir hlutina eins og þeir eru. Hún kom bara
fram og sagði hér er ég og gerðu það sem þú vilt.
Öll framvindan var skilvirk og ég hef ekkert upp á
samstarfið að klaga. En það er vandasamt þegar
maður fer í þetta hlutverk. Manni fer að þykja
vænt um viðfangsefnið sitt. Á hinn bóginn er ég
mjög ólíkur Jónínu, veit ekki til þess að ég eigi
nokkurn óvin. Og ég er ekkert að verja það sem
hún hefur gert, ég er bara að skrásetja sögu.“
Að sögn Sölva er bókin allt önnur en Jónína
stefndi að í byrjun, því hún hafi viljað hafa tilfinn-
ingalítinn reyfara um viðskiptalífið en hann hafi
talið hana á að segja frá því hvenær henni leið
verst. Fólk vilji heyra af samskiptum hennar við
þessa menn úr viðskiptalífinu í sem mestum smá-
atriðum.
„Jónína sagði að þetta hefði verið eins og risa-
stór og þung sálfræðiþerapía en ég er einmitt sál-
fræðimenntaður,“ segir Sölvi til útskýringar.
„Hún sagði það á fésbókinni að ég hefði skrælt
hana einsog lauk, flysjað hvert lagið á fætur öðru.
Hún segir ansi mikið frá sjálfri sér í bókinni. Hún
segir frá því að hún hafi leitað til geðlæknis, átt
við áfengisvandræði að stríða, skrifað mjög ljóta
hluti þegar hún var undir áhrifum áfengis og þess
háttar. Ég fékk hana til að ganga eins langt og
hægt var til að gera upp við sjálfa sig líka. Fólk
virðist ekki átta sig á álaginu sem hún var undir á
þessum tíma. Ári eftir að hún hættir með Jóhann-
esi þá er hún komin í mikil vandræði í rekstrinum,
hún er í brjáluðum bardaga við stærstu við-
skiptamenn landsins, hún er orðin alltof þung og
illa haldin af vefjagigt. Enginn trúir því sem hún
er að segja og hún verður því harkalegri í ummæl-
um og skrifum. Hún var mjög tætt, illa haldin
andlega og líkamlega og oft drukkin í ofanálag,“
segir Sölvi.
Sölvi fór að vinna í bókinni í maí í fyrra, var í
tvær vikur með Jónínu í Bandaríkjunum þar sem
viðtölin fóru fram og síðan lokaði hann sig af í
fimm vikur á meðan hann skrifaði fyrsta upp-
kastið að handritinu. Aðspurður hvort þetta hafi
ekki líka tekið á hann segir hann að svo hafi verið.
„Ferlið tók á mig. Vegna þess að ég er mjög sjálf-
krítískur og held að andstæðingar Jónínu muni
seint skilja það að bókin hefði getað orðið mjög
mikið öðruvísi en hún varð,“ segir hann.
Sölvi talaði við marga aðila til að athuga aðrar
heimildir fyrir því sem Jónína hafði lýst. Sölvi
segir að það hafi sjaldan verið neinn ágreiningur
um það sem Jónína lýsti. Hann hafi aftur á móti
staðið bankamenn að ósannindum í nokkrum til-
vikum þegar hann kynnti sér fleiri heimildir þótt í
flestum tilvikum hafi þetta farið saman.
„Það var athyglisvert að til mín leituðu innan-
búðarmenn frá Baugi sem sögðu mér að trúa því
að þetta tímabil hefði verið eins og í bíómynd, það
hefðu ótrúlegir hlutir verið gerðir. Það hefðu ver-
ið haldnir fundir til að leggja á ráðin um hvernig
væri hægt að gera Jónínu ómarktæka. Það voru
gerðar skoðanakannanir reglulega þar sem fólk
var spurt hverjum það trúði. Ef trúverðugleiki
hennar þótti of mikill, þá voru haldnir fundir um
það hvernig hægt væri að ná þessari tölu niður.
Persónulega tel ég að aldrei fyrr hafi fjölmiðlar
lagst jafn lágt og á þessum tíma,“ segir hann.
Aðspurð hvort hún sé ekkert hrædd um að önn-
ur eins herferð hefjist núna eftir útkomu bók-
arinnar segir Sölvi að svo sé. En að hún óttist að-
allega að ráðist verði að hennar nánustu. Þegar
hann er spurður hvort hann sé ekki hræddur,
svarar hann játandi. „Ég er líka hræddur. Ég
veit að ákveðnir menn verða á launum við að
lesa þessa bók og reyna að gera lítið úr henni
og lítið úr mér. Við þá vil ég bara segja
tvennt. Annars vegar: Þakkið fyrir að það var
ég sem skrifaði þessa bók. Hins vegar að það
er mjög margt sem ég veit sem er ekki í þess-
ari bók,“ segir Sölvi.
„Aðkoma Styrmis að málinu var
svo einfaldlega sú að ég bað
hann um að finna lögfræðing,
þar sem ég vissi að hann var vel
tengdur og ég treysti honum.
Það er þó rétt að geta þess, sem
ekki hefur komið fram áður, að
ég leitaði fyrst til Sigurðar G.
Guðjónssonar, vinar míns, og
bað hann um að taka að sér mál-
ið. Það er kannski hámark kald-
hæðninnar að núverandi lög-
fræðingur Jóns Ásgeirs hefði
getað orðið aðalmaðurinn gegn
honum í Baugsmálinu, sem lög-
fræðingur Jóns Geralds. En af
því varð ekki, þar sem hann var
þá orðinn sjónvarpsstjóri á 365
miðlum og sinnti ekki lögmanns-
störfum að neinu marki á þess-
um tíma. En það eitt að ég hafi
lagt hart að Sigurði að taka að
sér málið, sýnir að lykilmenn í
Sjálfstæðisflokknum höfðu ekk-
ert að gera með mínar
ákvarðanir. Þeir voru ekki
og verða aldrei bestu
vinir Sigurðar G., eins og
flestir ættu að vita
núna. Það var bara
mjög auðvelt að
gera samskipti
mín við Styrmi að
pólitísku sam-
særi og það
hentaði þeim sem
vildu færa um-
ræðuna þangað.“
Úr bókinni
um Jónínu
JÓNÍNA BENEDIKTSDÓTTIR
Sölvi og Jónína eru ólíkir karakterar
Í dag kemur út bókin um Jónínu Benediktsdóttur en margir hafa beðið eftir
henni N1 er þegar búið að kaupa 10.000 eintök af verkinu frá forlaginu
Morgunblaðið/RAX
Rithöfundur Sölvi Tryggvason er þekktur blaða-
maður en þetta er hans fyrsta bók.
Jónína
Benediktsdóttir