Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 40

Morgunblaðið - 12.11.2010, Síða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2010 SPARBÍÓ 3D 950 krkr á allar sýningar merktar með grænu STÆRSTA ÍSLENSKA 3D MYNDIN FYRR OG SÍÐAR Steve Carrell og Paul Rudd fara á kostum ásamt Zach Galifianakis sem sló eft- irminnilega í gegn í “The Hangover” SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI SÝND Í KRINGLUNNI 7 Jennifer Aniston og Jason Bateman í frábærri nýrri gamanmynd sem kemur öllum í gott skap SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI HHHH - SJÁÐU/STÖÐ 2 HHHH - T.V. - KVIKMYNDIR.IS HHHH - H.S. MBL HHHH - R.E. FBL HHHH - Ó.H.T. – RÁS2 SÝND Í ÁLFABAKKA SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL KODI SMIT-MCPHEE CHLOE GRACE MORETZ RICHARD JENKINS SÝND Í ÁLFABAKKASÝND Í ÁLFABAKKA 7 14.000 gestir SÝND MEÐ ÍSLENSKU TALI SÝND Í ÁLFABAKKA OG EGILSHÖLL SÝND Í ÁLFABAKKA „SPRENG- HLÆGILEG... FYNDNASTA MYND SÍÐAN THE HANGOVER“ - JONATHAN HEAF – GQ „DREPFYNDINN“ - TOTAL FILM ROBERT DOWNEY JR. OG ZACH GALIFIANAKIS EIGA EFTIR AÐ FÁ ÞIG TIL AÐ GRENJA ÚR HLÁTRI FRÁ TODD PHILIPS, LEIKSTJÓRA THE HANGOVER SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI BESTA SKEMMTUNIN JACKASS-3D kl.5:503D -83D -10:203D 12 ÓRÓI kl.5:50-8-10:20 10 DUEDATE kl.5:50-8-10:20 10 THETOWN kl.8 16 DUEDATE kl.3:40-5:50-8-10:20 VIP FURRYVENGEANCE kl.3:40 L RED kl.5:50-8-10:20 12 DINNERFORSCHMUCKS kl.5:50 7 ÆVINTÝRISAMMA-3D m. ísl. tali kl.43D L ALGJÖRSVEPPIOG... kl.4 L LETMEIN kl.10:30 16 HUNDAR OG KETTIR 2 kl.4 ísl. tal L KONUNGSRÍKIUGLANNA-3D m. ísl. tali kl.3:403D 7 / ÁLFABAKKA ÆVINTÝRISAMMA-3D ísl. tal kl.3:503D-63D L RED kl. 3:30 - 5:40 - 8 - 10:30 12 DUEDATE kl.4 -5:45-8-10:20 10 ÓRÓI kl.8 7 GNARR kl.4 -6:10-8-10:10 L LETMEIN kl. 10:20 16 / EGILSHÖLL Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is Heimildarmyndin Feathered Co- caine eða Fiðruð fíkn eftir Þorkel Harðarson og Örn Marinó Arnarson verður frumsýnd í dag í Bíó Paradís. Eftir rúma viku verður hún sýnd á kvikmyndahátíðinni IDFA (Inter- national Documentary Film Festival Amsterdam) sem er stærsta heimild- armyndahátíð í heimi. En þar mun hún keppa í flokknum First Appea- rences eða fyrstu myndir leikstjóra. Sú flokkun er svolítið skemmtileg fyrir kvikmyndagerðarmennina sem hafa gert margar heimildarmyndir og verið í bransanum í ein tuttugu ár. „Þessar myndir sem við höfum gert og hafa verið sýndar hér heima telja ekki með,“ segir Örn Marinó hlæj- andi. „Það að við höfum sýnt eitthvað á þessum örlitla íslenska markaði finnst þessum mönnum bara fyndið. Gamall jálkur einsog Hjálmtýr Heið- dal var að hlæja að þessu um daginn með okkur en ég sagði honum – og held að ég hafi rétt fyrir mér – að ef hann kæmist inn á hátíðina myndi hann sennilega lenda í sama flokki; nær sjötugur maðurinn, gráhærður og reyndur með margar myndir að baki.“ Fálki sem fíkn Myndin var fimm ár í tökum og ein sjö ár í vinnslu ef undirbúnings- vinnan er talin með. Hún fjallar um fálka, fálkabúðir og fálkamarkaði. Fjallað er um fálkara og hvernig hryðjuverkamenn og alþjóðlegir glæpamenn hafa sterk ítök í brans- anum. Það vekur athygli hvernig orðanotkun þeirra er en þeir tala um fálkara og bera ástríðuna fyrir fugl- inum saman við dópfíkn. „Já, þetta er sambærilegt við dópfíknina,“ segir Þorkell. „Þetta er meira en ástríða hjá þessu fólki sem er dýpst sokkið. Þetta er þráhyggja á versta stigi. Það er talað um að fálkarar skilji við konurnar sínar, labbi út frá börn- unum sínum og úr vinnunni sinni til að vera með fuglunum. Þeir vilja vera fuglar. Við notuðum það reynd- ar ekki í myndinni en það var einn vísindamaður sem við tókum viðtal við sem segir að þeir slökkvi á kyn- orkunni og öll orkan fari í að dást að fálkunum, þeir verði svona „asex- ual“. Þetta er fríkaðasti heimur sem ég hef sogast inn í,“ segir Þorkell. Mikil þolinmæðisvinna Aðspurður hvað tók svona langan tíma segir Örn Marinó að það sé erf- itt fyrir þá sem ekki þekkja til að skilja hvað það sé langt ferli og flókið að fá viðtal við réttu mennina og ná réttu skotunum af fálkunum. „Þetta safnast saman,“ segir Örn Marinó. „Maður þarf að bíða eftir vegabréfs- áritun í marga mánuði til sumra landa, að finna réttu viðmælendurna getur tekið tíma en enn meiri tíma getur tekið að telja þá á að veita við- tal. Mikið er fjallað um Bandaríkja- manninn Alan Howell Parrot og bar- áttu hans gegn fálkasmygli. Bent er á hin ólöglegu viðskipti sem fara fram í þessum heimi og tengsl manna eins og Osama bin Laden við hann. En við erum til dæmis með viðtal við mann sem margoft hefur farið að veiða með foringja Al Qaida en Osama bin Laden er forfallinn fálk- ari. Þannig að eðlilega forðuðust margir fálkarar okkur. Við höfum líka í framhaldinu af því að við náðum að klára myndina fengið margar hót- anir. Fálkaheiminum í Bandaríkj- unum er mikið í nöp við myndina. Þegar við vorum í Kanada fengum við símhringingu frá manni sem hót- aði okkur málsókn. En þessi maður var með einhverjar 45 ákærur á sér út af smygli á fálkum og slæmri með- ferð á dýrum. Maður sér líka í bloggheimunum þar að þeir eru ekki ánægðir. Parrot hefur ekki aflað sér mikilla vinsælda með gagnrýni sinni,“ segir Örn Mar- inó. Talað er við þekkta menn einsog Bob Baer en sá fyrrverandi CIA- maður er fyrirmyndin að aðalhetj- unni í myndinni Syriano sem George Clooney leikur. Baer styður flestallt sem Parrot hefur að segja um fálka- heiminn og gagnrýnir harkalega tengsl Bandaríkjanna við Sameinuðu arabísku furstadæmin sem að margra mati eru afskaplega óheil- brigð. Að sögn Þorkels varð myndin svo miklu dýrari en þeir ætluðu að þeir hafa ekki þorað að telja þetta saman. Fiðrað fíkniefni  Heimildarmynd um fálkann frumsýnd í dag í Bíó Paradís  Fálkarar verða mjög háðir samvistum við fálka Bíó Fálkamyndin verður frumsýnd í Bíó Paradís í dag.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.