Hamar - 17.12.1957, Qupperneq 11
17. desember 1957
HAMAR
11
PÍLL V. DANÍELSSON:
Framtíð Hafnarfjarðar
—^Hagrnýtmg? jarðhltans —
Oft hefur verið talað um það,
að Island væri harðbýlt og land
ið sjálft snautt af náttúruauð-
æfum. — Fyrr á tímum, þegar
menn urðu að vinna hörðum
höndum með frumstæðum tækj
um fyrir lífsnauðsynjum sínum,
hefur þetla verið rétt. Samgöng
ur allar, bæði til landsins og um
það voru þá erfiðar og ennþá
var í órafjarlægð að hagnýta
orku fallvatnanna og jarðhitans,
sem landið er auðugt af.
Hin fábrotnu og ófullkomnu
vinnutæki torvelduðu alla verka
skiptingu milli landshluta og
þjóða á milli. Afköst hvers
manns urðu því minni en ella
og lífskjörin miklu verri.
Með bættum samgöngum,
aukinni tækni og vélanotkun
sköpuðust möguleikar til auk-
innar verkaskiptingar, aukinna
viðskipta og bættra lífskjara.
Hér á landi gerist bylting í
þessum efnum, þegar vatnsaflið
er tekið í notkun í rnynd raf-
orku. Fólk sér nú í anda raf-
magnið tekið í þjónustu á
hverju byggðu bóli, stóriðju rísa
upp, sem hefur í för með sér
vaxandi velmegun og grózku í
þjóðlífinu.
Atvinnulíf hér á landi hefur
verið fremur fábrotið. Sjávarút-
vegur og landbúnaður hafa ver-
ið aðalatvinnuvegirnir til
skamms tíma, en nú hefur iðn-
aður risið upp og er hlutur hans
orðinn allstór og fer vaxandi.
Aðalútflutningsvara lands-
manna hefur því verið og er
sjávarafurðir og gerir það okk-
ur mjög háða aflabrögðum,
hvernig okkur vegnar. Það væri
því mjög æskilegt fyrir okkur,
að geta aukið fjölbreytnina veru
lega og treyst á þann hátt at-
vinnu- og afkomuöryggi þjóðar-
innar.
Það er því ekki óeðlilegt, að
margir mætir menn hafa hugsað
til þeirra möguleika að koma
upp stóriðju hér á landi, sem
byggðist á því, að flytja hina
unnu vöru á erlendan markað.
Kemur þá einkum til greina
framleiðsla, sem þarf á mikilli
orku að halda, raforku og hita-
orku, en hvorttveggja ætti að
geta verið fyrir hendi hér í rík-
um mæli, en til að beizla þá
orku þarf mikið fjármagn. Sala
úr landi á stóriðjuframleiðslu
yrði þá að verulegu leyti sala
á vatns- og hitaorku og gæti
slíkt orðið til mikilla hagsbóta
fyrir landsmenn alla.
Tækifærisgjafir
og fleira
Skíði og bindingar.
Skíðastafir og skíða-
áburður.
Skautar og skautaskór.
íþróttabúningar.
Bakpokar og tjöld.
Veiðitæki.
Reiðhjólavörur.
Skíðasleðar.
Vasaljós.
Batteri og perur.
Skipasmíðastöð
Hafnarfjarðar hf.
Strandgötu 8 - Sími 50329
Páll V. Daníelsson.
Hér á landi er þegar að rísa
upp stóriðja. Má þar nefna á-
burðarverksmiðjuna, sem tekin
er til starfa og sementsverk-
smiðjuna, sem er í byggingu.
Annar efnaiðnaður, sem um hef
ur verið rætt að til greina kæmi
hér á landi er saltvinnsla, klór-
og vítisódaverksmiðja, alumini-
umverksmiðja, magnesiumverk-
smiðja, brennisteinsvinnsla,
framleiðsla á þungu vatni o. fl.
Efnavinnsluverksmiðjur eru
oftast háðar hver annarri, þann-
ig að framleiðsla einnar er hrá-
efni annarrar o. s. frv. Varð-
andi sumt af framangreindri
stóriðju mundi þurfa að flytja
hráefni til landsins eins og t. d.
bauxit til aluminiumoxid- og
aluminiumvinnslu.
Að undanförnu hefur verið
rætt mikið um fríverzlun Ev-
rópu, en komist hún á og geti
Islendingar orðið raunverulegir
þátttakendur í henni hlýtur
margt að taka nokkrum breyt-
ingum í atvinnulífi okkar, en
það verður ekki rakið hér. En
verður þá ekki hagkvæmt og
nauðsynlegt fyrir okkur að
koma upp samkeppnisbærri
stóriðju með útflutning fyrir
augum? Hér er um mikið verk-
efni að ræða til úrvinnslu og
athugunar fyrir sérfræðinga
okkar. En þeir hafa þegar unn-
ið að miklum og merkum at-
hugunum á þessum sviðum,
þótt hér verði ekki nefnd nöfn
í því sambandi.
En ekki er nóg að leysa hina
tæknilegu hlið þessara mála,
heldur verður að leysa fjárhags-
hlið þeirra og er það stórt og
vandasamt viðfangsefni, því þar
þarf að koma til margfalt meira
fé en við Islendingar höfum yf-
ir að ráða.
Þegar rætt er um stóriðju, þá
er ekki nema eðlilegt að við
Hafnfirðingar tökum til athug-
unar á hvern hátt við getum
notið góðs af slíku. Hafnarf jörð-
ur hefur fyrst og fremst verið
fiskimannabær, en síðustu ára-
tugi hefur iðnaðinum vaxið fisk-
ur um hrygg og ér hann orðinn
einn stærsti þátturinn í atvinnu-
lífi bæjarbúa. Hins vegar er það
að athuga, að stór hluti iðnað-
arins er byggður á öflun sjáv-
arafurða og verði um verulegan
aflabrest að ræða, dregst iðn-
aðurinn saman vegna hráefnis-
skorts og minnkandi kaupgetu
bæjarbúa. Afkoman er því ekki
eins trygg og skyldi og kemur
það fyrst og harðast niður á
verkafólkinu í bænum.
I sambandi við stóriðju hef-
ur Hafnarfjörður það framyfir
suma aðra staði, að hafa yfir
að ráða mikilli hitaorku, þ. e.
í Krýsuvík. Hins vegar á bær-
inn ekkert raforkuver, en mikil
og ódýr raforka er eitt undir-
stöðuatriði stóriðjureksturs.
Nýting jarðhitans hér á landi
í stórum stíl hófst með hitaveitu
Reykjavíkur, sem reynzt hefur
happadrjúgt fyrirtæki. Nú er
hugmyndin að auka það fyrir-
tæki ennþá meira og í því sam-
bandi hefur verið rætt um sam-
vinnu milli Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur um hitaveitu frá
Krýsuvík.
Eins og fólki er kunnugt, hafa
farið fram jarðhitarannsóknir í
Krýsuvík og hafði Rafveita
Hafnarfjarðar forgöngu þar um
og stóð straum af þeim hvað
kostnað snerti. Voru þar fram-
kvæmdar boranir eftir gufu
með góðum árangri og þá eink-
um haft í huga að nota jarðhit-
ann til raforkuframleiðslu, en
ekki hefur þótt hentugt að ráð-
ast í frekari framkvæmdir í
þeim efnum, að minnsta kosti
í bili. Möguleikar til að bora
eftir gufu hafa nú vaxið, þar
sem til landsins hefur verið
keyptur stórvirkur jarðbor.
Við þær athuganir, sem fram
hafa farið varðandi byggingu
sjóefnaverksmiðju hefur Krýsu-
vík mjög verið höfð í huga,
bæði vegna mikillar hitaorku
þar svo og nálægðar hennar við
Hafnarfjarðarhöfn. Hlýtur þá
mjög að koma til athugunar,
hvort slík verksmiðja yrði stað-
sett við orkuna, þ. e. í Krýsuvík,
eða orkan flutt þangað, sem
hagkvæmara yrði að staðsetja
slíka verksmiðju af öðrum ástæð
um. Þegar þarf að gera sér
grein fyrir staðsetningu verk-
smiðju, sem þarf mikið stofnfé
til að koma upp, kemur margt
til athugunar, því staðsetningin
getur ráðið úrslitum um rekst-
ur verksmiðjunnar.
Þau atriði, sem m. a. verður
að taka tillit til, er hráefnið,
sem til verksmiðjunnar þarf,
sem í þessu tilfelli gæti orðið
ennþá nærtækara í Hafnarfirði
en í Krýsuvík. í öðrulagi er það
(Framhad á bls. 18)
Blómaverzlunin SÓLEY
Strandgötu 17
Jólaborðsskraut
í miklu úrvali.
Grenikransar.
Grenikrossar.
Alls konar skrautvörur úr gleri,
postulíni og íslenzkum leir.
Blómaskreytingar
í miklu úrvali.
Tlmvötn - jSteinfivötn
allar fáanlegar tegundir.
Hafiiarfjarðar Apotek
llaliiinr tilkynnir
Nú er réfíi tíminn að mála fyrir jólin.
Alls konar málning- og lökk. Penslar at
öllum stærðum.
Til jólagjafa margs konar leikföng. Ný-
komnir fallegir kökukassar og kökubox.
Til jólagjafa málverk og myndir.
Margar tegundir af barnabílum. Einnig
skíðasleðar.
Áherzla lögð á, að myndir, sem hér eru
innrammaðar, séu sóttar fyrir jólin.
MÁLMIIR