Hamar - 17.12.1957, Qupperneq 13
\ 17. desember 1957
HAMAR
13
Ferð Hrannprýðii ..
(Framhald af bls. 7)
spilinu og stóðum þar um stund
Á og horfðum á fólksfjöldann,
sem farinn var að dansa á dekk-
inu, eftir dillandi harmoníkku-
mússík, því góður spilari var
með í ferðinni.
Og ennþá lék undiraldan
suma grátt. Ein af okkur félags-
systrum, sem þá gekk á peysu-
fötum, hafði að þeirra tíma sið
N hárnet yfir húfunni og fram yfir
an^JiHð.
V En þar sem hún dansaði af
miklum móði, innst í þvögunni,
var sem þyrmdi yfir hana, og
þurfti hún auðsjáanlega að kom
ast út að lunningunni.
En það var enginn vegur í
fljótu bragði, svo hún varð að
vera þar sem hún var komin.
*, Yfirbuguð af ólgandi sjóveiki
hjúfraði hún sig að barmi dans-
herra síns, með hárnetið fullt
af appelsínurifum og fleira góð-
gæti, sem frúin hafði gætt sér
á áður en hún fór á sjóinn.
Þarna voru líka velþekkt
hjón hér í bænum, sem urðu
bæði fyrir barðinu á undir öld-
inni. Blessaðar manneskjurnar
studdu við enni hvors annars
eftir því sem gusurnar sögðu til
sín. En þetta var nú bara fyrir
Gróttu. Síðan var spegilsléttur
sjór alla leið. Hvítalogn og
glaðasólskin, og útsýnið dásam-
legt.
Skipið lagðist fyrir utan Akra-
nes, því þá var enginn hafnar-
garðrn-, aðeins lítil bátabryggja.
Vélbáturinn Víðir frá Akra-
nesi selflutti allt fólkið í land.
' Ólafur B. Björnsson tók á móti
okkur í samkomuhúsinu. Þar
voru fluttar ræður og sungin
nokkur ættjarðarljóð við undir-
ieik Ólafs B. Björnssonar. Aðal-
ræðumenn voru: Ól. B. Björns-
son, Einar Þorgilsson og Sig-
ríður Sæland. Ól. B. Björnsson
hafði boð inni á heimili sínu,
þennan dag fyrir Þorgilsson
hjónin og alla yfirmenn af Garð
ari.
All flesir aðrir höfðu nesti
með sér, sem aðallega var smurt
brauð, og margir voru með kaffi
á hitabrúsa.
Er við höfðum matast, var
gengið um bæinn og skoðað hið
markverðasta. Man ég aðallega
eftir kirkjunni, svo og ýmsum
myndarlegum íbúðarhúsum.
Einnig hinum víðfeðmu rauð-
\ máluðu húsum með hvítu
gluggunum og var okkur sagt
að þetta allt ætti Haraldur
Böðvarsson.
Um kvöldið héldum við danz-
leik í samkomuhúsinu og höfð-
um drjúgan skilding upp úr því.
Að dansleiknum loknum var
búizt til heimferðar og selflutn-
ingurinn hófst á ný, og nú um
borð í Garðar.
' Ólafur B. Bjömsson fylgdi
okkur um borð, þakkaði okkur
fyrir komuna og óskaði öllum
góðrar ferðar heim.
Nú var heldur betur fírað
upp í kabyssunni og hitað kaffi
og soðnar pylsur og egg.
Við hin yngri vorum látin
hjálpa til í eldhúsinu. AuglýsG
ar voru heitar pylsur og f jöregg
og var skammturinn seldur á
kr. 1,50, en kaffið var selt á
eina krónu.
Svo mikla lukku gjörði þetta,
að allt seldist upp, meira að
segja helltum við á korginn fyr-
ir rest og því er ekki að leyna,
að sú uppáhelling var hálfgert
glundur.
Enda heyrðum við inn um
um til skipseiganda og þakkaði
honum þá miklu drenglund og
höfðingsskap, er hann hefði
sýnt Slysavarnafélaginu, með
því að lána skip sitt til þessarar
ferðar.
Einar Þorgilsson svaraði með
því að óska slysavarnastarfsem-
inni í landinu allra heilla á ó-
komnum árum.
Við félagskonur vorum mjög
glaðar og ánægðar yfir vel
heppnaðri ferð, og þar sem okk-
Dansað á þilfari botnvörpungsins Garðars.
kýraugun í eldhúsinu að tveir
menn voru að tala saman og
annar segir: „Andskoti er þetta
nú þunnt, og þetta selja þær á
krónu“. „O, jú. En það er bragð
gott og heitt“, sagði þá hinn
„Og ég held þær eigi það nú
skilið, að fá krónu fyrir sopann,
kerlingar greyin, þær eru bara
fjári duglegar“.
Sama dásamlega veðurblíðan
hélzt einnig alla leiðina heim,
og allir voru í bezta skapi, enda
lét undiraldan ekkert á sér
bæra.
Margt af þessu ferðafólki var
þarna á sjó í fyrsta sinn, og
virti fyrir sér af mikilli aðdáun
þessa fögru leið, ekki sýzt er
við nálguðumst Hafnarfjörð
Lagzt var að bryggju í Hafnar-
firði um miðnæturskeið.
Aður en stigið var af skipi
kvað sér hljóðs frú Sigríður Sæ-
land. Avarpaði hún skipstjóra
og skipshöfn og þakaði þeim
trausta og góða þjónustu. Að
síðustu beindi hún orðum sín-
ur hafði tekizt að raka saman
fé, sem að upphæð varð fast
að kr. 1200,oo, er að öðru jöfnu
myndi svara til 24 þús. krónum
í dag.
Hér í Hafnarfirði hefur slysa-
vamadeild kvenna starfað í 27
ár. Það er að vísu ekki langur
aldur, ef miðað er við sögu *
heils bæjarfélags. En á þessum
27 ámm hefur slysavarnastarf-
semin ætíð staðið traustum fót-
um, og ég óska að svo megi
verða um alla framtíð. Því er
við lítum á þessa starfsemi, þá
jafnvægishlið lífsins, þá er það
fátt sem kallar meira fram það
bezta, sem í mannssálinni býr
en einmitt stefnuskrá þessa fé-
lagsskapar, er byggist á kær-
leika, fórnfýsi og bróðurhug til
þeirra, sem í nauðum eru stadd-
Og hvað er líf án ljóss; er
við öll innst í hjarta okkar þrá-
um svo mjög.
Eg óska öllum Slysavarnafé-
lagsunnendum árs og friðar.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Fisksölur Jóngeirs
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Almennar Tryggingar h.f.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýárl
Þökkurn fyrir viðskiptin á líðandi ári.
Raftækjavinnustofa Sigurjóns Guðmundssonar
Hugheilar
ióla- og nýárskveðfur
Flugfélag íslands h.f.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Þökkum ftjrir viðskiptin á líðandi ári.
Bílaverkstæði Hafnarfjarðar h.f.
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Vélsmiðja Hafnarfjarðar h.f.
GLEÐILEG JÖL!
Iðnaðarmannafélag Hafnarfjarðar
j GLEÐILEG JÓL!
I Farsælt nýár! Ragnar Bjömsson h.t.
> Húsgagnabólstrun
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýár!
Þökkurn fyrir viSskiptin á líðandi ári.
Mánabar
Óskum öllu okkar starfsfólki og viðskiptavinum
gleðilegra jóla
og góðs komandi árs og þökkum ánægfulega
samvinnu á árinu, sem er að líða.
Skipasmíðastöðin Dröfn h.f.
Byggingafélagið Þór h.f.
*©©©©$©©©©©©©©$©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©« *©©©©©©©©©©©$©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©©$©©©©©©©©©©©©«