Hamar - 17.12.1957, Síða 14
14
HAMAR
17. desember 1957 /
HAMAR
ÚTGEFANDI: Sjálfstæðisflokkurinn í HafnarfirðL
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: Ámi Grétar Finntson,
Sími 50228.
AFGREIÐSLA í Sjálfstæðishúsinu, Strandgötu 29.
HAMAR kemur út hálfsmánaðarlega.
Prentað í Prentsmíðfu Hafnarfjarðar hf.
' 2í
Óskum öllu safnaðarfólki
gleðilegra jóla
góðs og farsæls komandi árs með beztu
þökkum ftjrir ágætt samstarf á líðandi ári.
Prestur og stjóm Fríkirkjusafnaðarins
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nijár!
GLEÐILEG JÓL!
Farsælt nýárl
Verzlun Elísabetar Böðvarsdóttur
Bókabúð Böðvars
GLEÐILEG JOL!
Starf KFUM og KFUK
í Hafnarfirði
Sitjallaó vió Jdel Ingvamun Ittrmann
KFBM í Ilafnarlirði nm félagsstarlið
„Félagið heitir K.F.U.M. og
þeirra er k-ið stærst." hefur vit-
ur maður sagt. Það bendir á
grundvöll félagsins — Kristur —
hið kristilega starf er grunntónn
alls félagslífsins. Þetta gildir og
um K.F.U.K. — Kristilegt félag
ungra kvenna, en félögin starfa
hvert í sínu lagi en einnig, sem
ein heild. Þannig eiga félögin
sameiginlega húseignina Hverf-
isgötu 15.
Hamar leit nýlega inn til for-
manns K.F.U.M., Jóels Ingvars-
sonar, sem segja má að hafi ver-
ið framkvæmdastjóri félagsins
hér í Hafnarfirði um tugi ára.
laga hefur reist kristniboðsstöð
í Konso. Þar starfa íslenzku
kristniboðshjónin Felix Olafsson
og Kristín Guðleifsdóttir, en hún
er fædd hér í Hafnarfirði, dótt-
ir hjónanna Sigurborgar Eyjólfs-
dóttur, Stefánssonar frá Dröng-
um og Guðleifs Bjarnasonar er
lengi bjó í „Félagshúsi“ hér við
Hellisgötuna.
Þau hjónin Kristín og Felix
eru væntanleg heim í janúarlok,
en önnur ung kristniboðshjón
eru nú komin til starfs í Konso.
Innan K.F.U.M. og K. hér er
starfandi kristniboðsdeild sem
er meðliinur í Sambandi ísl.
Kaupfélag Hafnfirðinga £
Drengir í KFUM í Hafnarfirði ásamt þeim séra Friðrik Friðrikssyni og
Jóel Ingvarssyni. — Myndin er tekin fyrir rúmum 20 árum siðan.
Jóel tók því vel að gefa lesend-
um Hamars upplýsingar um fé-
lagsstarfið.
— Félögin starfa í mörgum
deidum, er það ekki Jóel?
„Jú, deildarskipting félaganna
fer eftir aldri þeirra sem starfað
er á meðal A. D. aðaldeild fé-
laganna fyrir þá sem eru 17 ára
og eldri. U. D. fyrir stúlkur og
drengi frá fermingar aldri að
17 ára. Y. D. yngsta deild fyrir
þau börn sem yngri eru. I deild-
um er svo starfað á ýmsa vegu
og ýmislegt gert til þess að kenna
og skemmta félögum. —
Starfið á meðal bama og ungl-
inga er margþætt og krefst ár-
vekni og umhyggju þeirra er við
það vinna. Sunnudagaskóla hafa
félögin sameiginlega og sækja
hann mjög mörg börn og allt upp
í rúm 300. Er það fagur'hópur
og oft sérstaklega ánægjulegt að
fræða börnin þar um Drottínn
Jesú Krist. Enda bamshuginn
opinn fyrir hinum lifandi boð-
skap frelsarans.
Þá hafa félögin sameiginlega
almennar samkomur á hverju
sunnudagskvöldi kl. 8,30. Tala
á þeim samkomum venjulega
ýmsir menn úr Reykjavík og oft
einnig prestar og leikmenn utan
af landi."
— Nú er risinn ísl. krisniboðs-
stöð í Konso í Abesseníu. Standa
félögin í nokkm sambandi við
það starf?
„Samband ísl. kristniboðsfé-
kristniboðsfélaga. Stendur deild-
in þannig að kristniboðsstöðinni
í Konso og styrkir það starf eftir
getu.“
— Hvað hefur þú verið lengi
formaður K.F.U.M.?
„Rúmlega 40 ár. Gott þykir
mér að taka það fram, hve á-
nægjulegt samstarfið hefur ver-
ið við K.F.U.K. en forstöðukona
þess er frk. Jóhanna Eiríksdóttir.
Svo er það einn þáttur félagslífs-
ins í K.F.U.M. og K.F.U.K., sem
við eigum ótalað um, en það er
sumarstarfið, sem ávallt hefur
verið einn þýðingarmesti þáttrn:
starfsins. Kaldæingar K.F.U.M
sjá um sumarstarfið í Kaldársseli.
Þar hefur K.F.U.K. einnig verið
til húsa með sína sumarstarf-
semi.“
— Hamar hefur oft orðið þess
var, að sumarstarf félaganna er
eins og annað starf fél. mikils
virt og vel þegið af foreldrum
og börnum þeirra. En hvernig
er það Jóel, þú átt náttúrlega
margar og miklar minningar frá
svona löngu starfi í þágu æsku-
lýðs bæjarins?
„Já, að sjálfsögðu á ég það og
vil þá fyrst segja það, að ég er
Guði mikið þakklátur fyrir vernd
hans og varðveizlu í félagsstarf-
inu á liðnum árum.
Þú vars að spyrja um minning-
ar. Vitaskuld á ég minningar,
menn sem komnir eru á minn
aldur eiga minningar. Man ég
það, er séra Friðrik á heilagri
bænarstund undir rústum gamla
bæjarins í Kaldárseli vígði stað-
inn í bæn. Það var heilög stund.
Margir voru hálf hræddir við
hætturnar í hinni villtu náttúru
kring um Kaldár,sel, að slys hlyt-
ust af fyrir drengina. En við báð-
um um vernd og aldrei hefur
neitt alvarlegt slys komið %rir
í Kalárseli öll þessi ár. Og nu
kem ég að minningu, sem ég
losna aldreí við. Það var 1929.
Ég var með flokk drengja upp
í Helgafelli á göngu. Ég man
það svo vel. Við sátum og ég tal-
aði við drengina. Allt í einu fer
allt af stað. Fellíð nötrar, jarð-
skjálfti. — Allir hnúkar og hæð- “
ir hyljast moldarmekkí. Dreng-
irnir urðu mjög hræddír og þustu
í allar áttir. Mig greip ótti og
kvöl vegna drengjana og fólks-
ins er heima var niðri í Seli. —
Skyldi húsið hafa hrunið.
Guð minn' góður vemdaðu
drengina. Þvílíkur ótti og kvöl.
En Guði séu þakkir; enginn
meiddist og allt gekk vel heima
í Seli.
Ekki get ég skilið svo við
þessa frásögn að ég minnist ekki
piltanna úr K.F.U.M. er voru hér
niðri í bæ við dagleg störf, en
þeir komu hver af öðrum til þess
að vita hvort nokkuð hefði orð-
ið að, en neðan úr bæ var ógn-
þrungið að sjá til Helgafells.
Við þökkuðum Guði sameig-
inlega fyrir vernd hans og varð-
veizlu. Og um kvöldið áður enn
drengirnir háttuðu var eins og
venjulega guðræknisstund. Þeirri
samkomu gleymi ég líka aldrei.
Ég talaði við drengina um náð
Jesú Krists og ég fann svo vel
hvernig að Guð hafði verndað
okkur frá stórkostlegum hættum.
Minningarnar eru margar og
sækja á hugann með árunum, en
að lokum langar mig til þess að f
segja það, að þakklátur er ég
Guði fyrir það, að ég fékk á unga
aldri að kynnast K.F.U.M. Þar
hef ég eignast marga góða og
trygga vini.
Æsku Hafnarfjarðar óska ég
þess, að hún megi í framtíðinni
meta starfsemi K.F.U.M. og K.
F.U.K. að verðleikum.
Kvenbom§ar
MEÐ LOÐKANTI
Geir Jóelsson
STRANDGÖTU 21