Hamar - 17.12.1957, Síða 18
18
HAM AR
17. desember 1957
t
Geir Jóelsson
STRANDGÖTU 21
liven- og’
barnabominr
Inóðar bækur
lianda /
ung'uni Miílkui)i
Hanna 35,00.
Hanna eignast hótel 35,00.
Hanna og hótelþjófurinn
35,00.
Lóretta 40,00.
í skugga óvissunnar 40,00.
Rósa 15,00.
Rósa og frænkur liennar
40,00.
Nóa 20,00.
Ramóna 25,00.
Yngismeyjar 15,00.
Veronika 15,00.
Fást í öllum
bókaverzlunum.
Framtíð Hafnarfjarðar
(Framhald af bls. 11)
orkan. Hún er við hendina í
Krýsuvík, að segja hitaorkan,
en raforkan ekki. í þriðja lagi
má nefna vinnuaflið, en það er
fyrir hendi í Hafnarfirði, en
þyrfti að leggja í mikinn kostn-
að í Krýsuvík til að byggja yfir
starfsfólk. Þá má sem fjórða at-
riði nefna markaðinn og þá er
bezt að framleiðslan sé sem
næst samgöngumiðstöð. Fleirj
atriði koma og til greina, þegar
tekin er ákvörðun um staðsetn-
ingu stórra . iðjuvera, en ekki
verður farið nánar út í það hér.
Hagnýting jarðhitans í Krýsu-
vík er mikið hagsmunamál
Hafnfirðinga. Það sem efst er á
baugi í þeim efnum er mögu-
leikinn á hitaveitu, en það er
þegar orðið mikið áhugamál
fjölmargra bæjarbúa. Annað
það sem er verið að gera athug-
anir á, er að nota jarðhitann
til framleiðslú á salti úr sjó.
Fyrir hitaveitu er þegar
reynsla hér á landi og hæpið
svo að á henni yrði hægt að
byggja nokkuð nákvæmlega.
Hvað saltvinnslu snertir er ekki
reynsla hér á landi og erfitt
að byggja á reynzlu annarra
þjóða, sem e. t. v. hafa all ólík-
ar aðstæður. Er því sennilegt
að það þyrfti að byrja á því að
byggja litla tilraunaverksmiðju,
eins og oft tíðkast erlendis, áð-
ur en ráðist er í stórar og fjár-
frekar framkvæmdir. Saltverk-
smiðja gæti' svo orðið undir-
staða undir klór- og vítisóda-
verksmiðju, sem aftur gæti svo
orðið undirstaða undir annarri
stóriðju og til útflutningsfram-
leiðslu í stórum stíl.
Það er gaman að láta hiugann
reika til þess tíma, að stóriðja
rísi upp hér í Hafnarfirði. Auk
þess, sem atvinna mundi auk-
ast stórlega beint við slíkan
rekstur, þá mundi hún ekki síð-
ur aukast óbeint. Mikill straum-
ur skipa yrði um höfnina, ann-
að athafnalíf mundi hnappast
að slíkri stóriðju, viðskipti öll
myndu vaxa og meira öryggi
skapast fyrir afkomu alls al-
mennings í bænum.
En mörg verkefni bíða úr-
lausnar áður en slíku marki er
náð. Höfnina þarf að byggja,
vegakerfið að batna og marg-
vísleg önnur aðstaða, sem laðar
að sér aukið athafnalíf og stað-
setningu stóriðju í bænum þarf
að komast í kring. Hér er verk-
efni að vinna, verkefni, sem
kostar mikið fé, en hægt er að
fara að vinna að nú þegar. Það
væri mjög vel til fallið að bæj-
aryfirvöldin settu á stofn nefnd
manna, sem hefði það verkefni
að athuga hvað það væri, sem
gera þyrfti til að auka athafna-
lífið í bænum og þá með tilliti
til staðsetningar stóriðju og fara
þegar að vinna skipulega og af
fullri festu að þeim verkefnum,
sem fyrst og bezt kæmu að
gagni í því að efla atvinnu- og
athafnalífið í bænum og auka
framtíðaröryggi bæjarbúa.
Þýzkalandsför FH-inga
(Framhald af bls. 9)
inn hafði beðist afsökunar á
seinaganginum, var okkur hol-
að til bráðabirgðar á gömlu
hóteli yfir nóttina. Snemma
næsta morgun, eftir að hafa
raðað í okkur 2-8 brauðsneiðum
og nokkrum bollum af te, flutt-
um við á þann stað er við
skyldum dveljast á þessa fáu
daga er eftir voru. Var það
einhvers konar „farfuglaheim-
ili“ — 30 kojur í einu herbergi
etc. Um eftirmiðdaginn fóru
flestir út að verzla, og var
margt keypt, allt frá 40 aura
súkkulaðipökkum upp í reið-
hjól.
Á miðvikudag kepptum við
svo tvo síðustu leikina. Sá fyrri
var gegn Olymípa, og unnum
við hann 9:8, og sá seinni var
við félag, sem talið er mjög
sterkt lið, HTB Hamburg, sem
við unnum 8:5. Keppnin fór
fram í stórri höll, og þar fyrst
komum við í stórt hús og á
sæmilegt gólf. Um 3000 áhörf-
endur sáu leikina, og höfum við
sjaldan heyrt önnur eins ólæti
og þá. Smásnáðar blésu í tromp-
eta, relluðu hrossabrestum og
létu öllum illum látum. Þar
var nú líf í tuskunum.
Um kvöldið var skilnaðarhóf,
og kl. 7 morguninn eftir var Iagt
af stað til Hamborgar og heim
til Islands. Var flestum farið
að lengja eftir íslenzku mjólk-
inni og íslenzka matnum, og
var það ósköp skiljanlegt, því
menn höfðu létzt frá 3—8 kg í
þessari „pílagrímsferð“.
Frá Hamborg flugum við
svo heim á fimmtudagsmorgun-
inn, og lentum á Reykjavíkur-
flugvelli kl, 4 e. h., þreyttir, en
þó ánægðir eftir þessa fróðlegu
og skemmtilegu Þýzkalandsferð
Að lokum vil ég þakka farar-
stjóra okkar, Guðmundi H.
Garðarssyni, þjálfara okkar,
stúlkunum tveim og piltunum
fyrir sérlega ánægjulegar sam-
verustundir í ferðalaginu, og
vona, að sem flestir þeirra kom-
ist á mótið fyrirheitna. þ.e.a.s.
heimsmeistaramótið í Berlín á
vori komanda.
Gleðileg Jól!
<t>
Jólagrjafli*
í miklu úrvali.
Úr, klukkur, skrautgripir,
borðbúnaður, gler og krist-
alsvörur.
Varanleg gjöf minnir ávallt
á gefandann.
Einar
Þórðarson ó- Co.
Úra- og skartgripaverzlun
Sokkamöppur
Snyrtitöskur
Tilvalin jólagjöf.
Skemman