Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 JÓLAPRÝÐI PÓSTSINS 2010 Jólaprýði er fallegt jólaskraut fyrir heimilið og tilvalið í jólapakkann. Sveinbjörg Hallgrímsdóttir myndlistar- maður á Akureyri er höfundur jólaóróanna og jólafrímerkjanna 2010. Jólaóróarnir eru seldir 4 saman í pakka á kr. 3.100 og stakir í pakka á kr. 850. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Nú er tími jólahangiketsins genginn í garð og víða orðið matarlegt í reykkofum landsins. Nú stendur yfir reyking á jólahangikjötinu eða henni er nýlokið eins og í reykkofanum á Húsum í Fljótsdal, kof- anum sem Hákon heitinn Aðalsteinsson byggði upp þar. Nú í haust hefur Hallgrímur Þórhallsson, bóndi á Brekku, reykt kjöt í kofanum eins og undanfarin haust og haldið uppi merki Hákonar og minningu hans að þessu leyti. Hinn ungi Guðjón Ernir Hrafnkelsson tók út verk- ið og rannsakaði gæði reykingarinnar. Hvað sem öllum heimspekilegum hugleiðingum leið bragðaðist kjötið bærilega þegar menn fengu sér flís til prufu. Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson Matarlegt umhorfs í reykkofunum Tími jólahangiketsins genginn í garð FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Fimm ráðherrar ríkisstjórnarinnar hittu fulltrúa stjórnarandstöðunnar á fundi í stjórnarráðinu laust fyrir há- degi í gær. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins var boðað til fundar- ins til þess að kynna aðgerðaáætlun ríkisstjórnarinnar vegna skulda- vanda heimilanna, en samkvæmt sömu heimildum var lítið um kynn- ingu, þar sem áætlunin er engan veg- inn útfærð eða tilbúin til kynningar. Af samtölum við þingmenn í gær virðist ljóst að ríkisstjórnin hefur ekki náð neinni niðurstöðu á fundum sín- um með fjármálastofnunum og lífeyr- issjóðum. Jóhanna Sigurðardóttir forsætis- ráðherra kynnti þau áform sem rík- isstjórnin hefur á prjónunum í sam- bandi við aðgerðir vegna skulda heimilanna. Forsætisráðherra mun hafa beðið fulltrúa stjórnarandstöð- unnar á fundinum að bíða með að kynna hugmyndir ríkisstjórnarinnar í þingflokkum sínum. „Það er einkennilegt að forsætis- ráðherra skuli biðja okkur um að sýna trúnað um það sem ekkert er,“ sagði þingmaður í samtali við Morgunblað- ið í gær. „Samkomulag er ekki í höfn við bankana og því er ekki frá neinu að greina og því ekki um nokkuð að þegja,“ sagði annar þingmaður. Ráðaleysi ræður för Fulltrúar stjórnarandstöðunnar benda á að ríkisstjórnin beini augum sínum enn að einni þeirra leiða sem rýnihópur ríkisstjórnarinnar benti á fyrir hálfum öðrum mánuði, að veð- setning íbúðarhúsnæðis verði hækk- uð í 110% af markaðsvirði. Lífeyris- sjóðirnir hafi tekið afar treglega í slíka málaleitan, Íbúðalánasjóður hafi ekki burði til þess að samþykkja slíkt og bankarnir hafi ekki lýst sig sam- þykka því að taka á sig aukinn kostn- að vegna slíkra aðgerða, sem taldar eru myndu kosta nálægt 90 milljörð- um króna. „Þetta er enn eitt vandræðamálið fyrir ríkisstjórnina, nú í kjölfar þess- arar hroðalegu niðurstöðu fyrir hana í stjórnlagaþingskosningunum. Hún er búin að taka hátt í tvo mánuði í að búa til tillögur til þess að kynna í þessum efnum og hún stendur nú uppi algjör- lega ráðalaus,“ segir einn þingmaður stjórnarandstöðunnar. Engar útfærðar tillögur kynntar  Stjórnarandstaðan segir ríkisstjórnina algerlega ráðalausa Morgunblaðið/Júlíus Viðbrögð Í kjölfar mikilla mótmæla á Austurvelli 4. október kom rík- isstjórnin á fót rýnihópi til að kanna lausnir á skuldavanda heimilanna. Byrjað eftir mótmæli » Rýnihópi stjórnvalda var komið á fljótlega eftir mót- mælin á Austurvelli hinn 4. október sl. » Frá því það var hefur nið- urstöðu verið lofað „um eða eftir helgi“, „á allra næstu dögum“ eða „í dag eða á morgun“. » Margir eru orðnir langeygir eftir raunverulegum úrlausn- um stjórnvalda sem komi til móts við skuldsett heimili þessa lands. Nýtt frumvarp um breytingar á Stjórnarráði Íslands, sem lagt var fram í gær, felur í sér breytingu á 259 lögum, en breyta þarf nöfnum á ráðuneytum í öllum þessum lögum. Alls staðar þar sem orðið samgönguráðuneyti kemur fyr- ir í lögum þarf að breyta í orðið innanríkisráðuneyti o.s.frv. Þetta frumvarp er svokallaður bandormur og hefð- bundið er í slíkri lagagerð að skipta frumvörpum niður í kafla þannig að sérhverjum lögum sem þarf að breyta er stillt upp í einn kafla og fær hver kafli rómverska tölu. Frumvarpið er því samtals CCLX kaflar, en í síðasta kafl- anum er fjallað um gildistöku laganna. egol@mbl.is Lagafrumvarp með CCLX köflum Ólafur Þórð- arson tónlist- armaður, sem varð fyrir lík- amsárás 14. nóv- ember sl., er ekki lengur í lífs- hættu. Hann er kominn úr gjör- gæslu, en að öðru leyti er líðan hans óbreytt. Að sögn aðstandenda Ólafs er hann ekki kominn til með- vitundar og er bati hans hægur. egol@mbl.is Ólafur Þórðarson er kominn af gjörgæsludeild Ólafur Þórðarson Kyrrstæðir og mannlausir bílar á bílastæði við Laugardalsvöll runnu af stað og lentu á öðrum bílum með tilheyrandi tjóni í gær. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu virtist að í rigningunni sem var í Reykjavík hafi væta sem rann undir dekk bílanna orðið til þess að þeir runnu af stað. Töluvert var um slys á gangandi vegfarendum á höfuðborgarsvæð- inu í gær sem rekja má til hálku og erfiðra aðstæðna vegna ísingar. Mikið álag var því á sjúkraflutn- ingamenn og slysadeild. Mannlausir bílar af stað í hálkunni Frá árinu 1978 hafa tólf flugslys orðið hér á landi þegar flugvélum eða þyrlum var flogið á rafmagns- eða símalínur. Þar af voru þrjú banaslys. Eitt árið 1979 í Borg- arfirði, annað árið 1990 í Ásbyrgi og það þriðja varð í Vopnafirði á síðasta ári. Í þessum slysum létust fjórir menn. Þetta kemur fram í lokaskýrslu Rannsóknarnefndar flugslysa um slysið í Selárdal í Vopnafirði, sem varð í júlí í fyrra. Þar lét farþegi í flugvélinni lífið og flugmaðurinn slasaðist alvarlega. Niðurstaða rannsóknarnefnd- arinnar er að orsök slyssins sé sú að flugvélinni var flogið undir lág- marksflughæð og að flugmaðurinn hafi ekki séð rafmagnslínu sem var strengd yfir Selá þvert á flug- stefnu vélarinnar. Flugvélinni var flogið á rafmagnslínuna með þeim afleiðingum að flugvélin brotlenti. Í skýrslunni kemur fram að raf- magnslínan var í um 12,5 metra hæð. Óvenjulega langt var milli rafmagnsstaura þar sem línan lá eða 378 metrar, en meðallengd milli staura hjá RARIK er 100 metrar. Rafmagnslínan slitnaði þegar flugvélin flaug á línuna. Vængur För eftir línuna sjást vel á væng flugvélarinnar sem fórst. 12 sinnum flogið á raf- magnslínur Flugmaður flaug of lágt við Vopnafjörð Gengið var frá kröfugerð Starfs- greinasambandsins vegna komandi kjaraviðræðna í gær og skv. heim- ildum Morgunblaðsins ætlar SGS að krefjast umtalsverðrar hækk- unar lágmarkslauna. Lægsti taxti núna er rúmar 157 þús. kr en kraf- ist verður að lægstu laun hækki talsvert umfram 200 þúsund kr. Flestir kjarasamningar á vinnu- markaði renna út í dag. Auk end- urnýjunar samninga á almenna vinnumarkaðnum þarf að ganga til samninga við ríki og sveitarfélög. Lágmarkslaun verði vel yfir 200 þúsund

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.