Morgunblaðið - 30.11.2010, Side 6

Morgunblaðið - 30.11.2010, Side 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 ódýrt og gott Grillaður kjúklingur og Pepsi eða Pepsi Max, 2 l 998kr.pk. Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Nýja Hvítárbrúin við Bræðratungu verður opnuð fyrir almenna umferð á morgun, en verkinu á að vera að fullu lokið 15. júní á næsta ári. Brúin tengir saman Biskups- tungur og Hrunamannahrepp og með henni styttist vegurinn milli Flúða og Reykholts um 14,5 km, hvort sem farið er um Skeið eða Brúarhlöð, verður 20,2 km um Skeið og 24,5 km um Brúarhlöð. Kristján Kristjánsson, for- stöðumaður veghönnunardeildar Vegagerðarinnar, áætlar að 500 til 700 bílar fari um veginn á sólar- hring og vísar til þess að umferð verði til vegna styttingarinnar, fólk fari meira en það hefði ella gert. Steinn Leó Sveinsson, verkefn- isstjóri hjá Ræktunarsambandi Skeiða og Flóa, sem sér um verkið, segir að með þessu opnist í raun hringur sem komi ferðaþjónustunni til góða. „Þetta verður bylting,“ segir hann. Vegurinn frá Flúðum að Bisk- upstungnabraut rétt ofan við Reyk- holt er um 8 km. Framkvæmdir hóf- ust í júní 2009 og er verkið á áætlun. Steinn Leó segir að nú sé verið að bíða eftir sigi áður en geng- ið verði frá yfirborði vegarins. Hann verði klæddur endanlegu slitlagi í vor en verði bara grúsarvegur í vet- ur. Ræktunarsambandið hefur ver- ið með 10 til 20 manns í vinnu við verkið allan tímann.Undirverktak- inn JÁ verk hefur verið með 40 til 50 manns þegar mest hefur verið í brúarsmíðinni. Nú er Rækt- unarsambandið með um 15 manns á svæðinu og segist Steinn Leó von- ast til þess að geta haldið áfram með um 10 manna gengi í ýmsum frágangi fram yfir áramótin. Vegurinn styttist um 14,5 km  Ekið um nýja Hvítárbrú á morgun Morgunblaðið/RAX Mannvirki Nýja brúin er 270 metra löng og bætir mikið samgöngur. Una Sighvatsdóttir una@mbl.is „Það er mjög mikil þátttaka, við erum búin að tala við fullt af fólki og það vilja allir koma og hjálpa til,“ segir Lísa Rut Brynj- arsdóttir, formaður nemendaráðs Borgarskóla og einn skipuleggj- enda góðgerðarviku unglinga í Grafarvogi. Góðgerðarvikan hófst í gær, en hún er samvinnuverkefni fé- lagsmiðstöðva allra grunnskóla í Grafarvogi. Krakkarnir komu sér saman um að í ár skyldi allur ágóði sem safnast í vikunni renna til Fjölskylduhjálpar Íslands, Krabbameinsfélagsins og Barna- spítala Hringsins. Lísa segir að talsverð vinna liggi að baki skipulagningunni. „Þetta er búið að taka svolítinn tíma, við hitt- umst fyrst fyrir um tveimur mánuðum og erum búin að funda í hverri viku síðan. En það er mjög skemmti- legt að prófa eitthvað nýtt.“ Nemendur eru nú margir í þann mund að byrja í jólaprófum en Lísa segir að engu að síður vilji flestir gefa sér tíma til að leggja sitt af mörkum. Mikil stemning hafi skapast í kringum góðgerðarvikuna í Grafarvogi. Umræðan oft neikvæð „Það truflar kannski aðeins hjá sumum, en samt ætla flestir að reyna að komast allavega á ein- hverja viðburði. Það eru allir mjög jákvæðir í sambandi við þetta. Við vonumst líka til þess að sýna með þessu að það sé ým- islegt sem við getum gert, því það er svo oft neikvæð umfjöllun um unglinga og að við getum ekki hjálpað til við neitt.“ Þetta er fimmta árið í röð sem góðgerð- arvika er haldin með þessu sniði í Grafarvogi og Lísa segir að hefð- in sé komin til að vera. „Þetta verður alveg til framtíðar held ég.“ Taka höndum saman í söfnun til góðgerðar  Unglingar í Grafarvogi blása til góðgerðarviku í fimmta sinn  Safna styrktarfé, notuðum fötum og leikföngum Dagskrá góðgerðarvikunnar er afar fjölbreytt. Má þar nefna tónleika í félagsmiðstöðinni Græðgyn í kvöld og jólamarkað í Hlöðunni á fimmtudaginn, þar sem seldur verður afrakstur vinnu barna og unglinga, s.s. jólakort og handunninn brjóstsykur. Lokapunktur vikunnar verður góðgerðarball í Sigyn á föstudag. Alla vikuna eru svo opin þrjú styrktarsímanúmer, en með því að hringja í 908- 5005 má styrkja söfnunina um 500 kr., í síma 908- 5010 um 1.000 kr og í síma 908-5030 um 3.000 kr. Ágóðanum verður skipt jafnt milli hjálparstofnana. FJÖLBREYTT DAGSKRÁ ALLA VIKUNA Safnað í gegnum styrktarsíma Söfnun Góðgerðarvikan hófst í gær þegar tekið var á móti notuðum fötum og leikföngum í öllum félagsmiðstöðv- unum. Ætlunin er að gefa hlutum sem ekki eru í notkun lengur nýtt líf með því að gefa þá Fjölskylduhjálp Íslands. Einar Örn Gíslason einarorn@mbl.is „Þó að það sé ekki endilega æskilegt að breyta lögum í miðjum klíðum sýnist mér að þetta séu lítilvægar breytingar, og þær eru tvímælalaust sakborningi í hag,“ segir Sigurður Líndal, lagaprófessor, um frumvarp til laga um breytingu á lögum um landsdóm sem nýverið var lagt fyrir Alþingi. Gagnrýnt hefur verið að frumvarpið skuli hafa verið lagt fram eftir að þingið hafði samþykkt þings- ályktunartillögu þess efnis að höfða skyldi mál gegn Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fyrir landsdómi. Séu breytingar gerðar á málsmeðferð eftir að mál hefur verið höfðað skulu þær breytingar ekki vera sakborningi í óhag, segir Sig- urður. Því sé hins vegar ekki til að dreifa í þessu til- felli. Dómarar ljúki málsmeðferð Á meðal þess sem frumvarpið kveður á um er það að kjörnir fulltrúar í landsdómi ljúki þeim málum sem þeir hefji, en lík- legt er að máli Geirs verði ekki lokið þegar núverandi kjörtímabili lýkur á næsta ári. Jafnframt er kveðið á um að forseti landsdóms taki fullnaðar- ákvörðun um hæfi dómenda, og að ekki þurfi að kveða til alla dómara til að úrskurða um rannsóknaraðgerð- ir, og aðra þætti sem ekki ráða „beinum úrslitum,“ segir Sigurður. Ennfremur er kveðið á um það að skýrslur ákærðu og vitna skuli hljóð- ritaðar, en líklegt má telja að það hefði verið gert hvort sem er. Í anda Mannréttindasáttmála „Mér sýnist að þetta sé allt til þess að liðka fyrir málsmeðferðinni og gera hana fljótvirkari, og öruggari að vissu leyti,“ segir hann. Þetta sé í fullu samræmi við Mannréttinda- sáttmála Evrópu, en í 6. grein hans er kveðið á um að sá sem borinn er sökum eigi rétt á að fá úrlausn sinna mála innan hæfilegs tíma. Í lögum um landsdóm segir að, sé „ei mælt á annan veg“ skuli beita ákvæðum laga um meðferð saka- mála við málsmeðferð fyrir lands- dómi. Sé þessi grein túlkuð bókstaf- lega þýðir það að landsdómslögin gangi framar lögum um meðferð sakamála, segir Sigurður, en hann segist telja að „maður myndi túlka þetta rúmt og segja sem svo að mað- ur veitti lögunum um meðferð saka- mála nokkuð öruggan sess í með- ferðinni“. Lögin um meðferð sakamála séu frá 2008, og því í sam- ræmi við Mannréttindasáttmála Evrópu. Beiting þessara laga væri í anda breyttra viðhorfa til mannrétt- inda að mati Sigurðar. Breytingarnar sakborningi í hag  Segir ekki ástæðu til að gera athugasemdir við breytingar á lögum um landsdóm eftir málshöfðun  Liðkað er fyrir málsmeðferð, sem sé sakborningi í hag og í anda Mannréttindasáttmála Evrópu Mannréttindi » Í Mannréttindasáttmála Evr- ópu, sem Ísland er aðili að, er kveðið á um rétt allra til rétt- látrar málsmeðferðar: » „Þegar kveða skal á um rétt- indi og skyldur manns að einkamálarétti eða um sök, sem hann er borinn um refsi- vert brot, skal hann eiga rétt til réttlátrar og opinberrar máls- meðferðar innan hæfilegs tíma fyrir sjálfstæðum og óvilhöll- um dómstóli.“ Sigurður Líndal

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.