Morgunblaðið - 30.11.2010, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010
•
SÍA
•
102996
Upplýsingar um umsóknar−
ferli og eyðublöð eru á
www.landsvirkjun.is.
Styrkir til náms
og rannsókna
í umhverfis−
og orkumálum
Orkurannsóknasjóður Landsvirkjunar auglýsir
eftir umsóknum um náms− og verkefnastyrki:
Styrkir til nemenda í meistara− eða doktorsnámi
Styrkir til efnilegra nemenda sem áforma eða stunda meistara− eða
doktorsnám á sviði umhverfis− eða orkumála.
Styrkir til rannsókna á sviði umhverfis− og orkumála
Almenn rannsóknarverkefni á sviði umhverfis og orkumála.
Fyrirspurnir má senda á netfangið orkurannsoknasjodur@lv.is.
Öllum umsóknum verður svarað og farið með þær sem trúnaðarmál.
Umsóknarfrestur er til 10. janúar 2011.
Markmið sjóðsins er að veita styrki til
námsmanna, rannsóknarverkefna á
vegum háskóla, stofnana, fyrirtækja og
einstaklinga. Styrkveitingar sjóðsins
miða að því að gera fjárframlög Lands−
virkjunar til rannsókna skilvirkari og
sýnilegri, og tryggja að þær rannsóknir
sem sjóðurinn styrkir samrýmist
umhverfisstefnu Landsvirkjunar.
Eitt af markmiðum Landsvirkjunar er
að styðja við rannsóknir, nýsköpun og
tækniþróun.
Núverandi ríkisstjórnarflokkarhófu sín fyrstu skref á haturs-
herferð gegn andstæðingum sínum
og jafnvel ímynduðum óvinum.
Markmiðið var augljóst. Það skyldi
tryggja að ábyrgðinni af banka-
hruninu yrði klínt
svo kirfilega á þá,
að henni yrði aldrei
þaðan náð, hvað svo
sem sannleikanum
og staðreyndunum
sýndist. Þess vegna
mátti ekki bíða eftir
að Rannsókn-
arnefnd Alþingis
lyki sínum störfum. Ófræging-
arherferð ríkisstjórnarflokkanna
og aðgerðir sem á henni byggðust
hófust á fyrsta degi, og er þá talað í
bókstaflegri merkingu. Nokkur ár-
angur náðist, en sannleikurinn er
seigari en rógberarnir héldu. Hann
fer sér hægt en hann kemst furðu
langt að lokum.
Eftir því sem ógöngur rík-isstjórnarinnar hafa aukist
hefur verið reynt að dreifa athygl-
inni frá getuleysi hennar og skað-
semi. „Þjóðfundur“ var haldinn á
einum dagsparti og kostaði hundr-
að milljónir. Nú vita menn að þar
fór ekki fram neinn fundur, heldur
spjall á hundrað tíu manna fundum
sem „umsjónarmenn“ komu síðan í
fyrirfram ákveðnar niðurstöður.
Afskræming lýðræðis.
Næst var reynt að sannfæramenn um að Stjórnarskráin
hefði gert eitthvað af sér en ekki
þeir sem rændu bankana innan frá.
Kjósa skyldi stjórnlagaþing. Sagt
var að einfalt væri að kjósa ef kjós-
andinn lærði heima. En fullyrða má
að örfáir vissu í raun hvernig at-
kvæðagreiðslukerfið virkaði.
Kannski bara tveir og þeir fóru
báðir í framboð. Þetta varð flopp og
hundruð milljóna til viðbótar í súg-
inn.
Ruglinu verður þó haldið áframmeð enn meiri eyðslu.
Jóhanna
Sigurðardóttir
Klúður
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.11., kl. 18.00
Reykjavík 4 rigning
Bolungarvík 5 súld
Akureyri 3 léttskýjað
Egilsstaðir -3 skýjað
Kirkjubæjarkl. -2 alskýjað
Nuuk 6 skúrir
Þórshöfn 2 skúrir
Ósló -10 heiðskírt
Kaupmannahöfn -2 skafrenningur
Stokkhólmur -7 skýjað
Helsinki -15 heiðskírt
Lúxemborg -2 snjókoma
Brussel -2 snjóél
Dublin 0 léttskýjað
Glasgow 0 skýjað
London 1 léttskýjað
París 0 skýjað
Amsterdam -1 snjókoma
Hamborg 0 skýjað
Berlín -1 skýjað
Vín 1 skýjað
Moskva -15 léttskýjað
Algarve 12 skýjað
Madríd 0 snjókoma
Barcelona 7 léttskýjað
Mallorca 8 skúrir
Róm 11 skýjað
Aþena 20 skýjað
Winnipeg -7 snjókoma
Montreal 3 léttskýjað
New York 7 heiðskírt
Chicago 6 skýjað
Orlando 23 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:43 15:51
ÍSAFJÖRÐUR 11:18 15:26
SIGLUFJÖRÐUR 11:02 15:08
DJÚPIVOGUR 10:20 15:13
Rétt um 8 millj-
ónir króna söfn-
uðust þegar
fermingarbörn
um land allt
gengu í hús í
byrjun nóvember
sl. með bauk
Hjálparstarfs
kirkjunnar.
Undanfari þess
var fræðsla sem rúmlega 3.000 ferm-
ingarbörnin fengu um aðstæður í fá-
tækum löndum Afríku, sérstaklega
um skort á hreinu vatni. Féð sem þau
söfnuðu rennur til vatnsverkefna
Hjálparstarfs kirkjunnar í Eþíópíu,
Malaví og Úganda.
Söfnuðu fyrir vatni
KRAFTUR – stuðningsfélag fyrir ungt fólk með krabbamein og
Minningarsjóður Kristjáns Eldjárn gítarleikara fengu úthlutaðan styrk að
upphæð 200.000 krónur. Styrkurinn var veittur af svokallaðri endur-
fundanefnd úr Menntaskólanum við Hamrahlíð sem stóð fyrir samkomu
nemenda sem útskrifuðust frá MH á árunum 1986-1990. Í bréfi nefndar-
innar sem lesið var upp við afhendingu segir að ákveðið hafi verið að nota
afganginn af aðgangseyrinum til að þakka fyrir sig og minnast látins
skólafélaga, en Kristján Eldjárn lést einmitt úr krabbameini í apríl 2002.
Minningarsjóður Kristjáns Eldjárns og
Kraftur stuðningsfélag fá fjárstyrk
Hringurinn, kvenfélag, gaf Vöku-
deild Barnaspítala Hringsins ný-
lega rúmar 37 milljónir til tækja-
kaupa. Fjármununum var varið til
kaupa á öndunarvélum, vöggum,
hitaborðum, súrefnismett-
unarmælum og myndavél til að
taka myndir af augnbotnum fyrir-
bura.
„Félagið hefur í gegnum tíðina stutt ötullega við starfsemi Barnaspít-
alans og með þessari gjöf sýna Hringskonur enn á ný hversu mikilvægt
starf þeirra er fyrir velferð sjúkra barna hér á landi,“ segir í tilkynningu.
Hringurinn styrkir Barnaspítalann
Matvælastofnun heldur fræðslu-
fund um transfitusýrur í dag,
þriðjudag, kl. 15-16 í umdæm-
isskrifstofu Matvælastofnunar í
Reykjavík að Stórhöfða 23. Á
fundinum verður m.a. fjallað
um áhrif transfitusýra á lýð-
heilsu, greiningu transfitusýra í
íslenskum matvælum og vænt-
anlega reglugerð um takmörk-
un á magni transfitusýra í mat-
vörum hérlendis.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um opinn. Hægt verður að fylgj-
ast með fundinum í beinni út-
sendingu á vef
Matvælastofnunar. Þar verður
einnig birt upptaka að fund-
inum loknum.
Transfitusýrur