Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 BETRI BUXUR! Bæjarlind 6, sími 554 7030 Eddufelli 2, sími 557 1730 www.rita.is SVARTAR • 3 SÍDDIR STR. 36-52 CELLULAR CREAM PLATINUM RARE the power of pure platinum Vertu velkomin að kynnast þessari heimsnýjung frá la prairie í Hygeu Smáralind á morgun miðvikudaginn 1. desember kl. 13-17 Bjóðum 10% kynningarafslátt og kaupauka Kringlan, sími 533 4533Smáralind, sími 554 3960 FRÉTTASKÝRING Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Fyrir Alþingi liggur frumvarp til laga um breytingu á ákvæði almennra hegningarlaga um nauðgun. Ragn- heiður Bragadóttir, prófessor við lagadeild Háskóla Íslands og formað- ur Norræna sakfræðiráðsins, segir að sér virðist að tillagan byggist á mis- skilningi, rangt sé farið með stað- reyndir og breytingin sé ótímabær, auk þess sem ástæða sé til að hugsa meira um forvarnir en refsingar. Hún vísar til þess að viðamiklar breytingar hafi verið gerðar á kynferðisbrota- kaflanum 2007 og fyrir liggi að frá 1992 til 2009 hafi dómum fjölgað og refsingar þyngst. Samkvæmt frumvarpinu er lagt til að 1. mgr. 194. gr. hegningarlaganna verði breytt og verði eftirfarandi: „Hver sem gerist sekur um nauðgun skal sæta fangelsi ekki skemur en 2 ár og allt að 16 ár- um“. Í gildandi lögum er refsivist- in frá einu ári, auk þess sem útlistað er hvað átt sé við með nauðgun. „Hver sem hefur samræði eða önn- ur kynferðismök við mann með því að beita ofbeldi, hótunum eða annars konar ólögmætri nauðung gerist sekur um nauðgun og skal sæta fangelsi ekki skemur en 1 ár og allt að 16 árum. Til ofbeldis telst svipting sjálfræðis með innilokun, lyfjum eða öðrum sambærilegum hætti.“ Ragnheiður bendir á að með breyt- ingunni sé verknaðarlýsingin afnum- in og gengið út frá því að nauðgun sé hugtak sem sé þekkt og skilgreint. Þá sé lágmarksrefsingin hækkuð. Breyt- ingunum sem voru gerðar á kaflanum um kynferðisafbrot 2007 fylgdi viða- mikil greinargerð. Ragnhildur segir að þá hafi verið farið í allsherjar end- urskoðun á kaflanum, ákvæðin endur- skoðuð, þau löguð að nútímahug- myndum og nauðgunarhugtakið rýmkað mjög frá því sem áður var. „Þá var markmiðið að bæta réttar- stöðu kvenna og barna þegar kemur að kynferðislegu ofbeldi og reynt að tryggja það með löggjöf eins og hægt er að sjálfsákvörðunarréttur fólks í kynlífi séu virtur og njóti verndar,“ segir Ragnheiður. Skref til baka Ákvæðið um nauðgun í fyrirliggj- andi frumvarpi er alltof óljóst að mati Ragnhildar. Hún bendir á að fyrir 2007 hafi ekki verið um að ræða nauðgun nema beitt hafi verið ofbeldi eða hótun um ofbeldi við brotið. Því hafi verið breytt 2007 þannig að kyn- ferðismök án samþykkis séu refsi- verð. „Mín skoðun er sú að það verði að lýsa því í hverju þau séu fólgin,“ segir hún. Ragnheiður bætir við að verði frumvarpið samþykkt eins og það liggi fyrir sé mikil hætta á því að ákærendur og dómarar túlki nauðg- unarhugtakið eins og gert var í ára- tugi – að það þurfi að vera ofbeldi eða hótun um ofbeldi. „Það væri þá skref afturábak.“ Að sögn Ragnhildar misskilja höf- undar frumvarpsins málið. „Þeir halda því fram að samkvæmt núgild- andi lögum þurfi að vera ofbeldi og líkamlegir áverkar en það er alrangt. Það kemur fram í greinargerð með núgildandi lögum að svo er alls ekki.“ Hækkun refsilágmarksins fellur ekki að hugmyndum Ragnhildar. Hún telur nauðsynlegt fyrir dómend- ur að hafa ákveðið svigrúm vegna þess að upp geta komið mál þar sem ekki sé ástæða til þess að dæma eins þunga refsingu og tvö ár eru, t.d. þeg- ar gerandi og þolandi eru unglingar á svipuðum aldri. Ragnheiður segir að breytingarnar 2007 hafi verið til mikilla bóta. Mis- beiting við þroskahamlaða, sofandi og ölvaða teljist nú til nauðgunar. Eins hafi verið sett inn í lögin atriði sem verka til þyngingar á refsingu eins og t.d. ef þolandi er barn yngra en 18 ára, beitt er stórfelldu ofbeldi eða um ítrekunaráhrif er að ræða. Refsimörk fyrir kynmök við barn yngra en 15 ára hafi verið þyngd og séu þau sömu og fyrir nauðgun. Fleiri dómar og harðari refsingar  Tillaga fyrir Alþingi um breytingu á ákvæði almennra hegningarlaga um nauðgun byggist á misskilningi Staðreyndir og efi » Algengustu refsingar fyrir nauðgun voru eins til tveggja ára fangelsi 1992-2002, tveggja til þriggja ára fangelsi 2003-2006 og þriggja til fimm ára fangelsi 2007-2009. » Ragnheiður telur hæpið að ákvæðið í frumvarpinu full- nægi skilyrðum Mannréttinda- dómstólsins um skýrleika refsiheimilda. 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 Nauðgun (ofbeldi og hótun um ofbeldi) Nauðgun (þroskahömlun, svefn og ölvun) Kynferðisbrot gegn börnum 18 16 14 12 10 8 6 4 2 0 2 3 3 4 2 1 3 1 1 1 4 2 3 3 6 6 3 3 1 1 2 1 2 2 2 5 1 1 3 3 7 1 1 5 4 3 3 2 1 1 3 9 7 9 4 4 4 3 13 5 5 9 10 4 5 5 6 2 4 12 16 12 8 10 13 16 17 Refsingar fyrir kynferðisbrot 1992-2009 Ragnheiður Bragadóttir Gunnar Þorsteinsson hefur ákveðið að stíga tímabundið til hliðar sem forstöðumaður trúfélagsins Kross- ins. Gunnar birti á heimasíðu fé- lagsins stutta fréttatilkynningu í fyrrakvöld þess efnis, en hann hef- ur verið ásakaður um kynferðis- afbrot gegn konum í söfnuðinum. Á samkomu Krossins í gær lýstu börn Gunnars og tengdabörn yfir stuðn- ingi við hann. Alls hafa nú fimm konur sakað hann um brot. Liðlega 600 manns eru félagar í Krossinum sem var stofnaður fyrir rúmum þrem áratugum og er al- gerlega sjálfstæður söfnuður. Dótt- ir Gunnars, Sigurbjörg Gunn- arsdóttir, er framkvæmda- stjóri safnaðar- ins og segist verða málsvari hans þar til ann- að verði ákveðið. Hún segir að um skipulega rógs- herferð sé að ræða gegn Gunn- ari. Tillögur að næstu skrefum verði lagðar fram á safnaðarfundi á næstu dögum en ljóst sé að Gunnar muni leita réttar síns fyrir dómstólum enda sé „vegið að mannorði hans“. kjon@mbl.is Segir „rógsherferð“ í gangi en Gunnar muni leita réttar síns fyrir dómstólum Gunnar Þorsteinsson Líðan Helgu Sigríðar Sigurð- ardóttur, 12 ára stúlku frá Akur- eyri, er nú stöðug en hún veiktist alvarlega á hjarta sl. mið- vikudag og gekkst síðar und- ir aðgerð á sjúkrahúsi í Gautaborg. Foreldrar stúlkunnar eru með henni í Gautaborg en þar var blóðflæði tengt fram hjá hjartanu. Amma Helgu, Herdís Júlíusdóttir, er hjúkrunarfræðingur, hún segir allt ganga eins og vonir hafi staðið til. Í raun fái Helgu sömu meðferð og hún hlaut á Landspítalanum áður en farið var með hana út. „Það er enn verið að veita henni þá meðferð og verið að bíða og sjá til með áframhaldið,“ sagði Herdís. „Hún fékk hjartaáfall með tilheyr- andi hjartadrepi en þó að það virð- ist vera stórt getur það gengið til baka.“ Hún segir meðferðina ganga út á að hvíla bæði hjarta og lungu svo að þau fái færi á að jafna sig að einhverju leyti. Líðan Helgu Sigríðar stöðug á sjúkrahús- inu í Gautaborg Helga Sigríður Sigurðardóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.