Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 13

Morgunblaðið - 30.11.2010, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 ÚR BÆJARLÍFINU Jónas Erlendsson Fagridalur Kötlusetur var stofnað núna ný- verið í Vík í Mýrdal en með því ræt- ist draumur Mýrdælinga um þekk- ingarsetur í Vík. Mýrdalshreppur leggur til húseignirnar á Víkurbraut 17 og 21, Skaftfellingsbúð og Hall- dórsbúð, og Menningarfélagið Brydebúð leggur til húseignina á Víkurbraut 28. Háskólafélag Suður- lands er einnig aðili að setrinu. Kötlusetur nýtur þannig góðs af þeirri vinnu sem Menningarfélagið um Brydebúð hefur lagt í að endur- byggja gamla kaupfélagshúsið Brydebúð og sýningarhaldi sem þar er, og framtaki listakonunnar Sig- rúnar Jónsdóttur sem beitti sér fyrir að skipið Skaftfellingur var flutt til Víkur og komið fyrir í Skaftfell- ingabúð. Sama dag var einnig stofn- fundur Geopark (jarðvangur) en Geopark-verkefnið er sprottið úr fyrsta átaksverkefni Háskólafélags Suðurlands, Net þekkingar frá Markarfljóti að Skeiðará. Verkefnið er styrkt af Atvinnuþróunarfélagi Suðurlands auk sveitarfélaganna Rangárþings eystra, Mýrdalshrepps og Skaftárhrepps. Átaksverkefninu lauk í árslok 2009 en síðan hafa sveitarfélögin haldið áfram undir stjórn Ragnhildar Sveinbjörns- dóttur ferðamálafræðings. Stefnt er að því að jarðvangurinn sæki um að- ild að evrópsku samstarfsneti og vinnur Lovísa Ásbjörnsdóttir jarð- fræðingur að gerð jarðfræðiskýrslu um svæðið sem verður veigamikill hluti af umsókninni. Stofnaðilar jarðvangsins eru auk áðurnefndra þriggja sveitarfélaga Háskólafélag Suðurlands, Kirkjubæjarstofa, Kötlusetur, stofnun fræðasetra Há- skóla Íslands. Síðan er gert ráð fyrir að ferðaþjónustufyrirtæki á svæðinu gerist félagsaðilar að stofnuninni.    Jólin nálgast með tilheyrandi aðventusamkomum og var ein slík haldin í Víkurkirkju um síðustu helgi enda fyrsti sunnudagur í að- ventu. Samkór Mýrdælinga og Kór Víkurskóla sungu ásamt Halldóri Unnari Ómarssyni sem söng ein- söng. Síðan var farið og ljósin kveikt á jólatrénu sem mun lýsa fram yfir jól.    Á sveitabæjunum í Mýrdaln- um er svo farið að nálgast fengitíma og bændur lesa hrútaskrána sem gefin er út af bændasamtökunum á hverju ári, og reyna að finna út hvaða hrúta er heppilegast að sæða ærnar með, en hver hrútur hefur ýmsa eiginleika sem hægt er að lesa um, t.d. hvort þeir gefa vel gerð lömb, fitulítil eða hvort ærnar undan þeim eru frjósamar og hvort þær mjólka vel. Allt eru þetta eiginleikar sem skipta máli fyrir afkomu sauð- fjárbænda.    Kosningaþátttaka til stjórn- lagaþings í Suðurkjördæmi var minnst á landinu eða 29,2% en meðaltalið á landinu var 35,97% eftir því sem kemur fram í tilkynningu frá landskjörstjórn. Kötlusetur stofnað Morgunblaðið/Jónas Erlendsson Þekkingarsetur Fjölmenni var þegar Kötlusetur var stofnað. Fáskrúðsfjörður | Síldarvinnsla hófst hjá Loðnuvinnslunni á Fá- skrúðsfirði í september er skip þess Hoffell SU-80 hóf veiðar á norsk- íslensku síldinni. Í nóvember hefur skipið verið við veiðar við Suðurland og í Breiðafirði og kom með síðasta farminn nýverið, 440 tonn, sem fóru í vinnslu hjá fyrirtækinu. Saltað hef- ur verið í 11.000 tunnur sem farið hafa til Finnlands, Danmerkur og Kanada. Síldinni hefur verið afskipað jöfn- um höndum eða um leið og hún hef- ur verið komin í tunnur. Í vinnslunni starfa 15 manns og hefur vinnan gengið vel, en auðvitað vildu allir gjarnan fá að veiða meira. Morgunblaðið/Albert Kemp Silfur hafsins Síldarvinnsla er hafin hjá Loðnuvinnslunni á Fáskrúðsfirði. Síldarsöltun hjá Loðnu- vinnslunni á Fáskrúðsfirði

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.