Morgunblaðið - 30.11.2010, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 30.11.2010, Qupperneq 15
1. desember 1918 öðlaðist Ísland fullveldi. Þá varð Ísland frjálst og fullvalda ríki. Íslenski fáninn varð fullgildur þjóðfáni og var dreginn að húni í fyrsta sinn. Á sama tíma geysaði spænska veikin þannig að minna varð úr hátíðahöldum en ætla mætti. Það var ekki fyrr en stúdentar tóku daginn upp á sína arma um þremur árum síðar að fólk tók að fagna fullveldinu. Við sjálfstæði landsins 17. júní 1944 færðust hátíðar- höldin þó yfir á nýjan dag. Fullveldisdagurinn er fánadagur og því er tilvalið að fagna deginum með því að draga fána að húni. Syngdu Þjóðsönginn, Öxar við ána eða Íslands minni og fagnaðu fullveld- isdeginum. Veltu fyrir þér fullveldinu. Njóttu þín vel á fullveldisdaginn með fullum bolla af BKI Kaffi. Njóttu sjálfstæðisins með ríkulegu BKI kaffi. Angan af kaffi kemur bragðlauk- unum af stað og ilmurinn segir til um ríkt bragðið af BKI kaffi. Helltu upp á gott BKI kaffi. BKI Classic Fullveldisdagurinn er á morgun Fagnaðu fullveldisdeginum meðBKIkaffi Fullveldisdagurinn er á morgun Kauptu BKI fyrir fullveldisdaginn Sérvaldar baunir frá þekktustu kaffisvæðum heimsins tryggja hið mjúka bragð, lokkandi ilminn og fersklegt eftirbragðið. BKI Extra Snöggristað við háan hita. Þannig næst fram ríkara kaffibragð við fyrsta sopa en léttur og mjúkur keimur fylgir á eftir. Kíktu á bki.is K uptu gott kaffi í dag á góðu verði Einnig til 250 gr á ennþá betra verð i á meðan birgðir endast Sádi-Arabía Abdullah konungur hvatti Bandaríkin ítrekað til að gera árásir á kjarnorkuáætlun Írana Efnamenn sagðir helstu styrktaraðilar vígahópa súnníta á borð við al-Qaeda Íran Grunur leikur á að stjórnvöld hafi komist yfir þróaðar eldflaugar frá Norður-Kóreu sem hafi drægni til Vestur-Evrópu Pakistan Fulltrúar Bandar- ríkjastjórnar hafa gert leynilegar og misheppnaðar til- raunir til að komast yfir auðgað úran á rannsóknarstofu Kína Framkvæmdastjórn kínverska kommúnista- flokksins er sögð hafa stjórnað tölvuárásum á Bandaríkin Norður-Kórea Bandaríkin og Suður-Kórea ræddu möguleikann á að sameina Kóreu skyldu vandræði N-Kóreu leiða til upplausnar komm- únistaríkisins Rússland Dmítrí Medvedev forseti er sakaður um að ‚leika Robin á móti Batman‘ þar sem fari Pútín forsætisráðherra Þýskaland Angelu Merkel kanslara er lýst á þann veg að hún ‚forðist áhættu og sé sjaldan skapandi‘ Líbía Muammar Gaddafi Líbíuleiðtogi kann að eiga í rómantísku sambandi við ‚lostafulla‘ úkraínska hjúkrunarkonu MEÐAL EFNIS WIKILEAKS-SKJÖLIN - FYRSTI DAGUR Heimildir: wikileaks.org, fréttaskeyti Yfir 250.000 skjöl, sem aðstandendur WikiLeaks-síðunnar afhentu fjölmiðlum, hafa að geyma opinskátt og á stundum gagnrýnið álit á erlendum leiðtogum sem og viðkvæmar upplýsingar um hryðjuverkastríðið og útbreiðslu kjarnavopna Ríkin sem koma oftast fyrir í skjölunum HELSTU TÖLUR LÝSING 15.000 skjöl 0 7.000 150.000 skjöl 0 70.000 Írak Tyrkland Íran Ísrael Kína Afganistan Samskipti við erlend ríki Innanríkismál Mannréttindi Staða efnahagsmála Hryðjuverkam. og hryðjuverk Helstu málaflokkar SKJÖLIN EFTIR FLOKKUM 15.365 145.451 15.652 leynileg 101.748 trúnaðarskjöl 133.887 óflokkuð 251.287 samtals Skjölin ná til tímabilsins frá des.1966 til feb. 2010 Eru upprunnin í 274 sendiráðum og hjá nokkrum bandarískum stofnunum Ítalía Silvio Berlusconi forsætis- ráðherra er sagður ‘ábyrgðar- laus’ glaumgosi og ‘óhæfur leiðtogi’ Ísland 290 skeyti frá sendi- ráði Bandaríkjanna í Reykjavík, flest frá árunum 2005 til 2010. Þar af eru 12 skilgreind sem leyniskjöl, að því er fram kom á vef Spiegel. Baldur Arnarson baldura@mbl.is Bandaríkjastjórn hefur fyrirskipað endurskoðun á að- gangi opinberra starfsmanna að upplýsingum sem varða hagsmuni ríkisins, þar með talin utanríkisstefnan, í kjöl- far birtingar WikiLeaks-vefsíðunnar á miklum fjölda skýrslna úr bandaríska stjórnkerfinu. Sérfræðingar bandaríska varnarmálaráðuneytisins, auk fleiri stofnana, yfirfara nú tölvukerfin til þess að tryggja að jafn umfangsmikill leki á leyniskjölum um utanríkisstefnu landsins fari ekki framar á netið. Í skjölunum er því haldið fram að Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hafi fyrirskipað njósn- ir um hátt setta fulltrúa Sameinuðu þjóðanna. Clinton harmar lekann sem sé „árás á alþjóðasamfélagið“. Hún heiti því að slíkur „ólöglegur“ leki endurtaki sig ekki. Þeir sem beri ábyrgð á lekanum verði látnir svara til saka. Almenningur getur aðeins nálgast lítið brot Þegar þetta er ritað hafa aðstandendur WikiLeaks- síðunnar aðeins birt um 240 af alls 251.287 skjölum sem þeir segjast hafa komist yfir en fimm áhrifamiklir fjöl- miðlar, New York Times, Der Spiegel, The Guardian, Le Monde og El País, geta hins vegar nálgast þau öll. Ljóst þykir að birtingin muni ekki liðka fyrir sam- skiptum Bandaríkjastjórnar við önnur ríki, a.m.k. í bráð. Þannig sagði John Kornblum, fv. sendiherra Bandaríkj- anna í Berlín, í samtali við Der Spiegel að birtingin myndi leiða til þess að önnur ríki yrðu hikandi við að skiptast á upplýsingum við fulltrúa Bandaríkjastjórnar. Vart þarf að taka fram að málið er litið mjög alvar- legum augum vestanhafs og hefur Eric Holder, dóms- málaráðherra Bandaríkjanna, upplýst að hafin sé rann- sókn á því hver gerðist brotlegur við lög með lekanum. Sagði ráðherrann nokkra fulltrúa fjölmiðla ekki hafa hag- að sér með ábyrgum hætti og að það myndi hafa „afleið- ingar“, án þess að hann tilgreindi þær nánar. Íran er eitt þeirra ríkja sem koma oft fyrir í skjöl- unum en þau eru talin sýna að stjórn Baracks Obama Bandaríkjaforseta hafi ekki látið undan þrýstingi Ísr- aelsstjórnar og nokkurra arabaríkja um að gera árás á Ír- an vegna kjarnorkuáætlunar landsins, né undirbúið árás á múslímaríkið á bak við tjöldin. Þykja skjölin sýna að Ír- ansstjórn sé einangruð í Miðausturlöndum. Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti gerði hins veg- ar lítið úr þessum uppljóstrunum og sagði þær lið í sál- fræðihernaði Bandaríkjastjórnar, sem stæði að þeim. Óttast fólksflótta frá Ísrael Skjölin þykja bregða birtu á eindregna andstöðu hátt settra ísraelskra embættismanna við það að Íransstjórn komi sér upp kjarnavopnum. Þannig kemur fram á vef The Guardian að ísraelskir embættismenn líti svo á að slík vígstaða Íransstjórnar gæti skapað svo mikinn ótta í Írael að fjöldi Ísraela teldi sig ekki lengur óhultan í land- inu, með tilheyrandi fólksflótta og hlutfallslegri fjölgun Palestínumanna með tímanum. Bandaríkjastjórn yfirfer tölvukerfin  Aðgengi að upplýsingum skert eftir birtingu WikiLeaks Erlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 Berorðar lýsingar fulltrúa Bandaríkjastjórnar á er- lendum þjóðhöfðingjum eru á meðal þess sem hvað mestum titringi hefur valdið (sjá einnig kort). Þannig er Nicolas Sarkozy Frakklandsforseta lýst sem hörundsárum „keisara án fata“ með vísan til ævintýris H.C. Andersens um klæðlitla keisarann. Abdullah, konungur Sádi-Arabíu, er sagður van- treysta Asif Ali Zardari, forseta Pakistans, með þeim orðum að þegar „höfuðið sé rotið hafi það áhrif á allan líkamann“, og á þá við pakistönku þjóðina. Hamid Karzai, forseti Afganistans, er sagður mað- ur „taugaveiklunar“ en hann er náinn bandamaður Bandaríkjastjórnar í hryðjuverkastríðinu. Franska utanríkisráðuneytið gagnrýnir birtinguna harðlega og segir hana árás á fullveldi ríkja. Hafði utanríkisráðherra Ítalíu, Franco Frattini, áður sagt birtinguna ígildi hryðjuverkaárásanna 11. september 2001 fyrir diplómatísk samskipti ríkja heims. Vikið er að afstöðu hátt setts ráðgjafa Sarkozys sem lýsir Hugo Chavez, forseta Veneúsela, sem „sturluðum“. Þá sé Íran „fasistaríki“. Af öðrum efnivið í fyrirsagnir má nefna að í einu skjalanna lýsir bandarískur embættismaður þeirri skoðun sinni að Rússland sé „mafíuríki“ og að völd- in séu í höndum Vladímírs Pútíns, forsætisráðherra landsins, en ekki Dmítrís Medvedevs forseta. Frakklandsforseti „keisari án fata“ RÚSSLANDI LÝST SEM MAFÍURÍKI Reuters

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.