Morgunblaðið - 30.11.2010, Side 20

Morgunblaðið - 30.11.2010, Side 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010 ✝ Sigurbjörg Ein-arsdóttir fæddist á Ekkjufelli í Fellum á Fljótsdalshéraði 20. ágúst 1927. Hún and- aðist á líknardeild Landspítalans í Kópavogi 16. nóv- ember síðastliðinn. Sigurbjörg flutti barnung með for- eldrum sínum að næsta bæ, Ekkjufells- seli. Foreldrar henn- ar voru þau Jóna Jónsdóttir húsfreyja, f. 21.10. 1903, d. 8.12. 1983, og Einar Sig- björnsson bóndi, f. 2.12. 1901, d. 2.2. 1995, frá Ekkjufellsseli. Systk- ini Sigurbjargar eru Margrét, f. 12.10. 1929, d. 13.8. 2009, Guðrún Aðalbjörg, f. 23.12. 1932, d. 12.12. 1967, Baldur, f. 26.8. 1938, og Bryndís, f. 23.1. 1945. Eiginmaður Sigurbjargar var Eyþór Loftur Ólafsson, f. 13.10. 1918, d. 19.9. 1964, og eignuðust þau tvo syni, Arnbjörn, f. 11.11. 1959, og Einar Jón, f. 31.5. 1961, d. 21.4. 2008. Þau hjónin eignuðust fjögur barnabörn og fimm barna- barnabörn. Eiginkona Arnbjörns er Jóhanna Gunnarsdóttir, f. 23.1. 1960, og eiga þau saman tvær dæt- ur. Eir, f. 28.4. 1990, og Elfa, f. 28 4 1990. Eldri börn Arnbjörns með Birnu Sigbjörnsdóttur, f. 28.2. 1961, eru Ester Marít, f. 27.2. 1979, og Eyþór Björn, f. 24.4. 1981. Sigurbjörg stund- aði skyldunám í heimasveit sinni af kostgæfni. Að því loknu lagði hún leið sína í alþýðuskólann á Eiðum. Næstu vet- ur nam hún listir í saumum og matreiðslu við Hús- mæðraskólann á Hallormsstað. Út- skrifaðist frá Húsmæðrakenn- araskóla Íslands í Reykjavík 1950. Lauk for- og framhaldsnámi í smurbrauði og veislumat hjá Osc- ar Davidsen í Kaupmannahöfn 1953-1955. Kenndi við Varma- landsskóla í nokkur ár. Starfaði í Reykjavík sem smurbrauðs- og matreiðslumeistari, lengst af á veitingahúsinu Röðli. Stýrði um skeið smurbrauðstofu á Hjarð- arhaga. Matráðskona í að- alstöðvum Olís við Hafnarstræti í mörg ár. Sá um sjúkrafæði á Land- spítalanum um árabil í lok starfs- ferils síns. Útför Sigurbjargar hefur farið fram í kyrrþey. Hún Sigurbjörg var ekki bara góð móðir, góð matráðskona og góð kona, heldur var hún einnig æð- isleg amma. Hún hafði alveg ótrú- legt minni og var okkar uppáhald að sitja og hlusta á hana segja okk- ur sögur um bæði æsku okkar og um líf hennar. Amma Bogga passaði okkur oft eftir leikskóla þegar við vorum yngri og eigum við margar góðar minningar frá þeim tíma, þar sem við lentum í ýmsum ævintýrum saman. Einn af þessum skemmti- legu atburðum var hvernig við runnum niður brekkurnar hver á fætur annarri þegar við löbbuðum heim í hálkunni eftir að amma sótti okkur úr leikskólanum, og ekki vorum það bara við tvær, heldur rann sú gamla einnig á rassinum niður brekkurnar með okkur. Svo fór hún oft með okkur á róluvöll sem tilheyrði reyndar blokk sem stóð við hann, og var okkur marg- oft bannað að leika okkur þarna. En hún amma neitaði nú að banna okkur það, því að hún vildi aðeins að við fengjum að leika okkur á besta róluvellinum, og lentum við oft í vandræðum fyrir þetta, en amma lét ekki undan. Við spiluðum einnig oft við hana ömmu, og var það eitt af okkar uppáhalds hlutum að gera saman. En við spiluðum ekkert venjulega, heldur spiluðum við upp á nammi. Þetta var ömmu leið að lauma í okkur sætindum þó að foreldrar okkar væru ekki hrifnir af því. Aft- ur, þá vildi amma bara að við fengjum það besta. Við munum aldrei gleyma þeim tíma sem við áttum með þér, og munum við ávallt minnast þín, elsku amma okkar. Þú munt alltaf vera í bæði hjörtum okkar og bæn- um. Megi Guð vera með þér og blessa þig með návist Eyþórs afa, Einars Jóns, Margrétar og Dúllu. Eir Arnbjarnardóttir og Elfa Arnbjarnardóttir. Ég var ekki orðinn hár í loftinu þegar ég man fyrst eftir Sigur- björgu móðursystur, eða Boggu eins og við ættingjar og vinir köll- uðum hana. Þrautseigja, dugnaður, heiðarleiki og ákveðnar skoðanir voru hennar aðalsmerki. Hún var mjög fylgin sér. Oft kíkti hún austur á sumrin og dvaldi hjá foreldrum sínum í Ekkjufellsseli nokkrar vikur eftir að hafa ung flutt frá æskustöðv- unum til Reykjavíkur ásamt systur sinni Margréti. Þá búin að mennta sig og koma sér vel fyrir í höf- uðborginni. Síðar kom hún austur með manni sínum og sonum í frí. Þá var kátt í höllinni, því við systrasyn- irnir vorum snjallir með ótal uppá- tæki í sveitinni. Þeir bræður dvöldu svo fyrir austan á sumrin við gott atlæti móðurforeldra sinna við bústörfin. Þótt Bogga hafi eflaust saknað heimahagana kunni hún vel við sig í Reykjavík þar sem hún bjó sér fallegt heimili, fann lífsförunaut- inn, eignaðist synina, nýja vini og samstarfsfélaga. Þegar ég sjálfur hafði slitið barnsskónum á búinu hjá afa og ömmu, flutt suður aðeins 16 ára, var gott frænku heim að sækja. Hún átti alltaf bita handa ungum svöngum frænda sínum og góðar ráðleggingar. Ég bý að þessu at- læti hennar, enn þann dag í dag. Í september 1964 þyrmdi yfir fjölskylduna er frænka missti sinn ástkæra eiginmann Eyþór frá ung- um sonum. Þá þurfti nú aldeilis að bíta á jaxlinn og standa sig sem einstæð móðir á sorgartímum. Það gerði hún vel og kom báðum drengjunum sínum til manns með vinnusemi, ósérhlífni og dugnaði. Þegar fram liðu stundir með bættum hag ferðaðist Bogga tölu- vert í sumarfríum sínum erlendis, víða um Evrópulönd. Hún bjó að því alla tíð, hafði gaman af að sýna vinum myndir og rifja upp skondn- ar sögur úr reisunum. Þá örlaði á heimsborgaranum í fari hennar. Frænka bjó lengst af í Breiðholt- inu en flutti seinast í þjónustuíbúð eldri borgara á Dalbraut eftir að hafa misst yngri son sinn Einar Jón langt fyrir aldur fram 2008. Það var henni mikið áfall því hann hafði verið hjálpsamur, búið og átt lögheimili mestalla sína tíð hjá móður sinni. Síðustu æviárin las frænka tölu- vert sem endranær, hlustaði á út- varpið, fylgdist með fréttum og uppbyggilegu efni í sjónvarpinu. Oft sló hún á þráðinn norður til mín, vildi ræða málin betur, sem efst voru á baugi í fjölmiðlum á þeim tímum. Þau samtöl okkar voru mislöng, allt upp í þrjár klukkustundir þegar best lét. Enn- fremur sagði hún mér sögur úr æsku sinni og fræddi um málefni sem ég hafði aldrei heyrt um áður. Þó kominn vel yfir fermingu og hefði átt að vita betur, enda vel að sér í ættfræði og málum þeim tengdum. Ég mun sakna þessara símastunda okkar frænku, ásamt fjölmargs annars á vegferðinni. Blessuð sé minning hennar. Við María mín og sonur, Hjálm- ar Leó, sendum Arnbirni, Jóhönnu og afkomendum þeirra, systkinum hinnar látnu og vinum, hugheilar samúðarkveðjur. Góða ferð, fóstra mín kæra, og þökk fyrir allt og allt. Einar Ólafsson. Sigurbjörg Einarsdóttir Imba fæddist í Naustvík í Árnes- hreppi á Ströndum. Imba ólst þar upp með stórum systkinahóp. Síð- an lá leiðin til Reykjavíkur og var hún þar að mestu. Imba vann lengi á Aski. Hún var fær við matreiðslu og bjó alltaf til mjög góðan mat. Það ætti engan að undra sem þekkti Imbu og Önnu systur henn- ar að þær fóru með stuttu millibili, Anna kvaddi þennan heim 2.3. 2010. Þær systur voru óaðskiljan- legar og ef þær gátu ekki komið saman þá var talað í símann dag- lega. Þær voru mjög félagslyndar og nutu þess að fara saman og hitta fólk, ferðast á Strandir og til Bandaríkjanna svo eitthvað sé nefnt, og tala um gamla tímann. Nú ekki má gleyma hvað þeim fannst gaman að versla, búa sig upp og punta sig til. Ekki stóð á að hafa fína tískusýningu fyrir mann þegar heim var komið, sama hvað þær voru þreyttar. Þær voru alltaf glæsilegar hvert sem þær fóru, því sælan og gleðin geislaði af þeim þegar þær voru að máta eitthvað nýtt og skrautlegt. Þær systurnar, Anna og Imba, voru sannkallaðar pjattrófur. Þess má líka geta að Ingibjörg Kristjana Guðmundsdóttir ✝ Ingibjörg Krist-jana Guðmunds- dóttir fæddist í Naustvík, Árnes- hreppi, Strandasýslu 22. júlí 1921. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 14. nóv- ember 2010. Útför Ingibjargar fór fram frá Bústaða- kirkju 22. nóvember 2010. Imba var mjög mikið fyrir rauða litinn sem hún valdi bæði í föt á sig og til að skreyta heimilið. Enginn var mér betri á Íslandi en Imba. Hún var ekki bara frænka, hún var líka mjög traustur vinur. Hún skildi vel hvernig það var að vera frá erfiðu heim- ilislífi og alast up hjá hatursfullum stjúp- föður. Seinasta árið í gagnfræðaskóla var ég í Reykjavík. Imba bauð mér að vera hjá sér og var þar gott að vera. Bilið milli heima lífs og dauða er lítið. Alla vikuna áður en Imba dó varð mér hugsað svo mikið til ömmu minnar í Naustvík og nú skil ég af hverju. Amma var að koma til að sækja Imbu dóttur sína. Enginn vafi er að amma, afi, Anna, Þórarna, Svenni, Finna og Jónas voru þar öll með útbreiddan faðm- inn til að taka á móti Imbu hinum megin. Imba skilur eftir sig tvær dætur, tólf barnabörn og barnabarnabörn. Fjölskyldan var stolt hennar og gleði og talaði hún oft um þau öll. Innilegar samúðarkveðjur til dætra hennar og fjölskyldna þeirra, sem eiga nú um sárt að binda. Elsku Imba mín, það er erfitt að trúa því að nú sértu farin frá okk- ur. Þangað til við hittumst aftur hinum megin verður söknuðurinn sár. Megi Guð blessa þig og hjálpa þér í hærri heima. Það gerist ekk- ert betra en að vera með Guði. Þín systurdóttir, Steinunn Sigurðardóttir. Maður getur orðið þunglyndur af að lesa leiðara Morgunblaðsins sem reynir að fremsta megni að þjóna ímynduðum hagsmunum út- gerðarinnar og er þess vegna al- farið á mót ESB og samninga- viðræðum við það. Það væri út af fyrir sig í lagi ef þetta væri vit- ræn umræða en því fer oft fjarri að mínu mati. Morgunblaðið (leiðarar) gleðst í hvert sinn sem koma fréttir af erf- iðleikum ESB-landa og kættist verulega þegar Grikkland og Írland lentu í vandræðum. Þetta var sem sagt dæmið um hvað það væri vont að vera í ESB og hvað evran væri nú vond og bjargaði engu. Það væri nú aldeilis munur að vera með hina íslensku krónu, hún væri nú að bjarga okkur. Ætli Álftaneshreppur eða Reykjanesbær væru miklu bet- ur staddir ef þeir væru með sér- mynt? Samkvæmt kenningum Mbl. og fyrrverandi seðlabankastjóra (sem setti Seðlabankann á hausinn) hefði það nú aldeilis verið fengur fyrir þessi sveitarfélög að hafa sér- gjaldmiðil. Málið er að einstaklingar og þjóð- ir geta sett sig á hausinn í hvaða gjaldmiðli sem er, en örgjaldmiðill eins og íslenska krónan er ekki hagstjórnartæki, heldur endalaust vandamál. Gengi íslensku krónunnar gagn- vart öðrum gjaldmiðlum hefur á undanförnum áratugum verið hand- stýrt af stjórnvöldum að undan- teknum fáeinum árum fyrir hrunið en það endaði nú eins og allir vita. Þessi handstýring var ávallt notuð til að lækka raunlaun í landinu og til að styrkja útgerðina sem aldrei hefur getað staðið á eigin fótum en alltaf verið á ríkisframfæri (og Landsbankans gamla) og skuldar nú 500 milljarða og því gjaldþrota. Svo dæmi sé nefnt þá hefur ríkið um árabil niðurgreitt laun sjó- manna og gerir enn í formi skatta- afsláttar. Það er von að útgerð- armenn geri út Morgunblaðið með ærnum tilkostnaði til að reyna að halda sínum forréttindum. Ég hef ekki hugmynd um hvort við eigum að ganga í ESB eða ekki en mér finnst algjörlega fáránlegt að vera með því eða móti án þess að vita nokkuð um hvaða samningum við getum náð. Eitt er a.m.k. víst og það er að með eigin gjaldmiðli, ís- lensku krónunni, verðum við lág- launaland og okkar unga fólk mun ekki vilja búa hér þegar það hefur aflað sér menntunar sem er nú gjaldgeng erlendis. Er það stefna LÍÚ og Mbl. að Ísland verði bara verstöð? HJÁLMTÝR GUÐMUNDSSON, kerfisfræðingur. Hjálmtýr Guðmundsson Morgunblaðið og ESB Frá Hjálmtý Guðmundssyni Nú er alveg orðið ljóst að Samfylk- ingin fer sömu leið og forverarnir, að dragast upp í eigin aulaskap. Hverjar voru aftur hinar andvana kennitölur sem að Samfylkingunni standa? Alþýðu- bandalagið, Al- þýðuflokkurinn, Bandalag jafn- aðarmanna, Þjóð- vaki, kvenna- framboðið, Kvennalistinn og guð má vita hvað. Það sjá allir að Samfylkingin er í frjálsu falli, og fer sömu leið og móðurflokkarnir. Varla er hægt að hugsa sér meira taktleysi en að knýja á um Evrópu- sambandsaðild nú, þegar stjórnvöld hér eru með allt niður um sig. Og aðeins örfáir sérvitringar vilja þangað inn. Og þar fyrir utan þá er viðvarandi fátækt og atvinnuleysi, það sem Evrópusambandslöndin eiga öll sameiginlegt, og okkar bíð- ur ef við förum þar inn. Er það kannski Draumaland Samfylking- arinnar að við göngum hér um með betlistaf? Ég hélt kannski í ein- feldni minni að Samfylkingin hefði lært eitthvað á því, að vera stjórn- málaarmur Baugs á sínum tíma. Ekki fór það vel. Það er nefnilega þannig að sjálfs er höndin hollust, það kann aldrei góðri lukku að stýra að vera leiguþý annarra. Þær voru ófáar ræðurnar, ég held þrett- án, sem Jóhanna Sigurðardóttir hélt á Alþingi þar sem hún ásakaði þáverandi stjórnvöld fyrir að leggja Baug í einelti. Og þáverandi for- maður Samfylkingarinnar hélt hina frægu Borgarnesræðu og síðar Keflavíkurræðu þar sem hún ásak- aði þáverandi stjórnvöld fyrir að leggja stein í götu Baugs, Kaup- þingsfélaga og annarra útrásarvík- inga. Þá vantaði ekki stóru orðin, og ljóst hvar hagsmunir Samfylking- arinnar lágu. Sú aðför sem Samfylkingin hefur lagst í gegn heimilunum í landinu, elli- og örorkulífeyrisþegum, kemur því ekki á óvart. Þetta fólk hefur ekki efni á að leggja flokknum til fé, eins og Baugur og aðrir útrásarvík- ingar gerðu á sínum tíma og Evr- ópusambandið gerir nú, því má það éta það sem úti frýs. Þá verður valdagræðgi Dags B. Eggertssonar ekki til að hjálpa til, að leiða hirðfífl til valda aðeins fyrir budduna sína er smánarlegt. Að vísu var ljóst fyr- ir löngu að dagar Dags B. Eggerts- sonar væru taldir í pólitík. Nú er staðan sú að flokkurinn er fylgi- slaus og forystulaus, og enginn fæst til að taka við formennsku af Jó- hönnu, því það vill enginn eiga það á „rekordinu“ að hafa verið formað- urinn sem lagði Samfylkinguna nið- ur. Það verður einhver sem fórnar sér í það. Einhver sem er hvort eð er búinn að vera í pólitík eins og Skúli eða Ólína, eða kannski Árni Páll sem er einkum þekktur fyrir að leika eitruðum peðum. Ég skora á borgara þessa lands að mæta í mótmæli fyrir utan Alþingishúsið og svæla þetta dug- lausa lið út. Það þarf flokk fyrir fólk eins og mig og þig, sem mundi spretta upp úr því. ÓMAR SIGURÐSSON, skipstjóri. Síðasti naglinn í kistu Samfylkingarinnar Frá Ómari Sigurðssyni Ómar Sigurðsson Bréf til blaðsins flísar Stórhöfða 21, við Gullinbrú, sími 545 5500. www.flis.is ● netfang: flis@flis.is Allt fyrir baðherbergið Sími 551 3010 Hárgreiðslustofan MINNINGAR

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.