Morgunblaðið - 30.11.2010, Qupperneq 28
28 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010
Einar Falur Ingólfsson
efi@mbl.is
Verkin á sýningu Ragnars Axels-
sonar ljósmyndara, RAX, sem sett
var upp í tengslum við heimssýn-
inguna Expo í Sjanghæ í Kína og
síðan sett upp í Peking þar sem
henni lauk í gær, verða færð Jökla-
rannsóknastofnun Kína að gjöf.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, og Ragnar
gefa verkin og
hefur sendiráð
Íslands í Kína
milligöngu um
gjöfina.
Sýning Ragn-
ars í Kína nefnist
Lón vættanna og
á henni eru stór-
ar myndir af
bráðnandi jökum
við Breiðamerkurlón. Verk úr þess-
ari myndröð má um þessar mundir
sjá á sýningu Ragnars í Gerðar-
safni.
Fulltrúar Jöklarannsóknarstofn-
unar Kína, Institute of Tibetan Pla-
teau Research, skoðuðu sýningu
Ragnars og í kjölfarið var ákveðið
að myndirnar yrðu settar upp í sýn-
ingarsal sem verið er að leggja loka-
hönd á í rannsóknarhöfuðstöðvum
stofnunarinar í Lhasa í Tíbet.
Fjölmiðlar á svæðinu
Sýning Ragnars var ein af fimm
íslenskum sýningum sem hafa verið
í Peking síðustu vikur; á svonefndu
Orkutorgi í nýja hönnunar- og sýn-
ingahverfinu í borginni sem nefnist
751 D-park.
Opnanir allra sýninganna voru
mjög vel sóttar af almenningi, fag-
aðilum og fulltrúum fjölmiðla. Til
dæmis var kínverska ríkissjón-
varpið við opnunina og birtist viðtal
við sendiherra Íslands, Kristínu A.
Árnadóttur, í China Daily, sem er
víðlesnasta dagblaðið sem gefið er
út á ensku í Kína. Þá hrifust rit-
stjórar Casa International-
tímaritsins af sýningunni á ís-
lenskri hönnun og mun henni verða
gert hátt undir höfði í næsta tölu-
blaði. Á þeirri sýningu eru verk 30
vöruhönnuða og arkitekta og er hún
samstarfsverkefni Hönnunarmið-
stöðvar, utanríkiráðuneytis og
menntamálaráðuneytisins.
Hafa vakið mikla athygli
Kristín sendiherra segir að
markmiðið með þessum sýningum í
Peking sé að hamra járn sem heitt
er.
„Hér í Kína er mikill áhugi á Ís-
landi og því sem þaðan kemur,“
segir hún.
„Á tímum eins og þeim sem við
höfum upplifað undanfarin misseri,
þar sem orðspor okkar hefur beðið
hnekki, er mikilvægt að láta ekkert
tækifæri ónotað til þess að styrkja
það. Þá kemur sér til dæmis vel að
geta teflt fram skapandi sam-
tímalist og frábærum hönnuðum og
listafólki. Þessar sýningar voru
flestar komnar yfir hálfan hnöttinn,
til Sjanghæ vegna heimssýning-
arinnar, og það lá beint við að draga
fánann að húni í höfuðborginni Pek-
ing líka. Sýningarnar hafa allar vak-
ið mikla athygli og umfjöllun um
þær og Ísland er jákvæð og upp-
byggileg.“
Kristín segist vonast til þess að
framhald verði á sýningum ís-
lenskra listamanna í Kína.
„Ég vona svo sannarlega að þetta
hafi verið upptaktur að öflugra sam-
starfi á sviði hönnunar og lista,
hinna svokölluðu skapandi greina,
sem eru í vaxandi mæli að öðlast
viðurkenningu sem útflutnings-
verðmæti fyrir Ísland,“ segir hún.
Myndir Ragnars til Lhasa
Bráðnandi jöklar Hér sjást jöklamyndir eftir RAX á sýningu hans í Gerðarsafni. Verkin sem sýnd voru í Kína voru gefin jöklarannsóknastofnun landsins.
Sýning Hönnun Steinunnar og
myndir Guðrúnar Kristjánsdóttur.
Myndir Ragnars Axelssonar af bráðnandi jöklum gefnar Jöklarannsókna-
stofnun Kína Sýningar með íslenskri myndlist og hönnun settar upp í Peking
Ragnar Axelsson
Í sendiráðinu Sýning á íslenskri
samtímamyndlist opnuð.
Bókasafnið í Hveragerði og
Listasafn Árnesinga bjóða til
samverustundar í Listasafninu
á morgun, 1. desember kl. 20.
Fjórir höfundar lesa úr bók-
um sínum. Það eru þau Þröstur
Helgason, Sigríður Péturs-
dóttir, Anton Helgi Jónsson og
Ófeigur Sigurðsson sem lesa.
Hljómsveitin Skuggabandið
leikur nokkur Shadows-lög.
Í safninu er nú sýningin
Þjóðleg fagurfræði þar sem verk 12 listamanna
tveggja tíma eru til sýnis.
Aðgangur er ókeypis og boðið verður upp á
kaffi og piparkökur.
Bækur og tónlist
Samvera í Lista-
safni Árnesinga
Þröstur
Helgason
Hópur listamanna sem starfar
saman undir heitinu „Sagan og
fólkið“ sýnir leik- og söng-
dagskrá í Þjóðmenningarhús-
inu að kvöldi fullveldisdagsins,
á morgun, 1. desember.
Að þessu sinni sýnir hóp-
urinn dagskrá um vinina Jónas
Hallgrímsson og Tómas Sæ-
mundsson og kallar uppá-
komuna „Ekki skamma mig,
séra Tumi“. Farið er um víðan
völl í heimildasöfnun en mikið byggt á bréfum
þeirra félaga. Alexandra Chernishova syngur lög
við texa Jónasar. Guðrún Ásmundsdóttir er sögu-
maður og fjórir leikarar til taka þátt í sýningunni.
Leik- og tónlist
„Ekki skamma mig,
séra Tumi“
Guðrún
Ásmundsdóttir
Margt verður um að vera í
Þjóðminjasafni Íslands við
Suðurgötu nú á aðventunni.
Jólasveinar heimsækja safnið
að vanda, á sýningunni Sér-
kenni sveinanna býðst börnum
að snerta gripi tengda jóla-
sveinunum, Grýlu og Leppa-
lúða, auk þess sem þau
skötuhjú kíkja í heimsókn.
Fjölskyldum býðst að fara í
sérstakan jólaratleik og fyr-
irlestrar verða um íslenska jólasiði. Þá hefur nýtt
jólavefsvæði verið opnað á heimasíðu safnsins og
þar má finna ýmsan fróðleik, um jólasiði, vætti og
uppskriftir: www.thjodminjasafn/jol
Aðventan
Líf og fjör í
Þjóðminjasafninu
Jólasveinn í Þjóð-
minjasafninu
Tveimur skúlptúrum, „Vörðunni“
eftir Jóhann Eyfells, og „Partner-
ship“ eftir Pétur Bjarnason hefur
verið fundinn staður á strand-
stígnum við Sæbrautina í Reykjavík,
eins og vegfarendur hafa takið eftir.
Var verkunum komið fyrir í liðinni
viku; Kjartan Mogensen landslags-
arkitekt valdi þeim stað.
Skúlptúrinn „Varðan“ er eins og
áður sagði eftir
Jóhann Eyfells.
Hann fæddist í
Reykjavík árið
1923 en fór ungur
til náms í Banda-
ríkjunum þar
sem hann hefur
búið og starfað
síðan. Lengst af
bjó hann í Flórída
ásamt konu sinni
Kristínu Eyfells, en hefur síðustu
árin búið í Texas. Jóhann var fulltrúi
Íslands á Feneyjatvíeyringnum árið
1993.
Bronsverkið „Partnership“ eftir
Pétur Bjarnason stóð áður á Aust-
urbakkanum þar sem nú er verið að
byggja Hörpuna. Verkinu hefur nú
verið fundinn staður við strandstíg-
inn ekki langt frá Höfða.
„Partnership“ er önnur tveggja
höggmynda sem Pétur gerði í tilefni
þess þegar 50 ár voru síðan Ísland
og Bandaríkin höfðu tekið upp
stjórnmálasamband.
Morgunblaðið/Kristinn
Varðan Listaverk Jóhanns Eyfells
er komið upp við Sæbrautina.
Skúlptúrar
settir upp
við Sæbraut
„Varða“ Jóhanns sett
upp í fyrsta skipti
Partnership eftir
Pétur Bjarnason.
Í það minnsta er ég
örugglega ofarlega á
Reykjavíkurlistanum yfir
snúsara32
»
Fimm sýningar á íslenskri mynd-
list og hönnun voru opnaðar í
Peking 16. nóvember síðastlið-
inn, á Degi íslenskrar tungu.
Sýningarnar voru settar upp í
hverfi sem nefnist 751 en þar er
mikil áhersla á listræna sköpun.
Á sýningunum var úrval sköp-
unar íslenskra hönnuða, verk
Steinunnar Sigurðardóttur fata-
hönnuðar, ljósmyndir Ragnars
Axelssonar og verk Guðrúnar
Kristjánsdóttur myndlistarkonu.
Samtímalist í sendiráði
Á sama tíma var opnuð sýning í
sendiráði Íslands í Kína, þar sem
kynnt er íslensk samtíma-
myndlist.
Ólöf K. Sigurðardóttir, safnstjóri
í Hafnarborg, ýtti kynningunni
formlega úr vör en kynningin er
eitt átaksverkefna á sviði menn-
ingar sem utanríkisþjónustan
vinnur nú að. Listamenninrinr
eru valdir af Dorothée Kirch,
framkvæmdastjóra Kynning-
armiðstöðvar íslenskrar mynd-
listar. Allir listamenninrinr sem
eiga verk á kynningunni hafa
tengingu við Kína en þau eru
Erla Haraldsdóttir, Guðrún Ein-
arsdóttir, Guðrún Kristjáns-
dóttir, Erla Þórarinsdóttir, Hulda
Hákon, Jón Óskar, Sigurður
Guðmundsson, Guðjón Ket-
ilsson, Inga Svala Þórsdóttir og
Erró.
Myndlist og
hönnuðir
FJÖLÞÆTT LISTKYNNING