Morgunblaðið - 30.11.2010, Blaðsíða 32
32 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. NÓVEMBER 2010
Harry Potter, Hermione Granger, Ron Weasley
og Voldemort eru komin aftur í magnaðasta
ævintýri allra tíma
BESTA SKEMMTUNIN
HARRY POTTER kl. 5 - 6:30 - 7 - 8 - 10 10 RED kl. 8 - 10:20 12
HARRY POTTER kl. 5 - 8 VIP ÓRÓI kl. 10 10
DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10 FURRY VENGEANCE kl. 5:50 L
/ ÁLFABAKKA
HARRY POTTER kl. 5 - 6 - 8 - 9 - 10:10 10 GNARR kl. 5:40 L
DUE DATE kl. 5:50 - 8 - 10:20 10 RED kl. 8 12
/ EGILSHÖLL
SÝND Í ÁLFABAKKA, EGILSHÖLL, KRINGLUNNI, AKUREYRI, KEFLAVÍK OG SELFOSSI
- BOXOFFICE MAGAZINE
- Time Out New York
„IT’S THE BEST FILM IN
THE SERIES.“
- ORLANDO SENTINEL
„ÞETTA ER KLASSÍK
VORRA TÍMA.“
- Ó.H.T. – RÁS 2
Aðsóknarmesta
myndin á Íslandi í dag
GILDIR EKKI Á ÍSLENSKAR, VIP OG 3D MYNDIRÞRIÐJUDAGSBÍÓ Í DAG - KR. 700
700 kr.
Tilboðil
AF SNÚSI
María Ólafsdóttir
maria@mbl.is
Í slangurorðabók sem finna má ávefsíðunni slangur.is segir svoum það að snúsa; snúsa so.
fresta því að vakna með því að ýta á
takka á vekjaraklukku sem gerir
það að verkum að klukkan hringir
aftur eftir nokkrar mínútur (e.
snooze).
Nú held ég að farið sé að nálg-
ast heimsmet mitt í þessari íþrótt ef
svo má kalla. Í það minnsta er ég
örugglega ofarlega á Reykjavík-
urlistanum yfir snúsara og efst á
lista yfir íbúa í blokkinni minni.
Enda er meðalaldurinn þar ca 65 ár
og flestir sprottnir fram úr fyrir sjö
fréttir. Þá er ég hins vegar einhvers
staðar lengst inni í draumaheimi og
langar skömmu síðar í ekkert meira
en að henda símanum út um
gluggann þegar hann byrjar að spila
ofurhresst Jamaíka-lag. Já, það
hjálpar kannski ekki til en á mig
hrífur ekkert væmið gaul snemma
morguns. Helst þyrfti ég einhvern til
að vekja mig með veiðilúðri eða öðru
álíka hljóðfæri. Þá fyrst myndi ég
kannski ná að spretta fram úr rúm-
inu í takt við nágranna mína.
En meðan síminn er minn vekj-araklukka þá bara snúsa ég og
snúsa. Ég á það til að snúsa í góðan
klukkutíma en fæ að lokum svo mik-
ið ógeð á hressa laginu að ég staul-
ast fram úr. Þá gerist yfirleitt nokk-
uð athyglisvert, ég verð furðu fljótt
ágætlega hress. Eins og það er
hræðilegt að vakna þá er mesta
átakið að opna augun og koma sér
fram úr.
Eftir það er ég jafnvel farin að
syngja í bílnum hálftíma síðar á leið-
inni í vinnuna. Eða tala óvenju mikið
því það kviknar strax á málstöðv-
unum, virðist vera, og þær haldast
vel virkar það sem eftir lifir dags.
Vegna þessa hef ég fengið að heyra
frá systur minni að ég sé ótrúlega
morgunhress. Sem mér finnst fyndið
því ég er í raun algjör kvöldmann-
eskja. En talbangsinn innra með mér
á sér þó greinilega engin takmörk
og er jafnvakandi sama hvaða tími
sólarhrings er. Jafnvel nóttin fær
ekki stöðvað orðaflauminn.
En aftur að snúsinu. Áður enþú, lesandi góður, heldur að ég
sé algjör letihaugur og landeyða
langar mig að fyrirbyggja þann mis-
skilning. Snús-vandamálið er nefni-
lega fylgikvilli vetrarins og gerir
varla vart við sig á sumrin. Nema
kannski að maður hafi lent á óvæntu
fimmtudagsdjammi í góðu veðri.
Annars er þetta vandamál eingöngu
tengt myrkri, því að vakna í myrkri,
fara í gegnum daginn í myrkri og
fara svo að sofa í myrkri. Ég held
það eigi við um marga að þetta hef-
ur mikil áhrif á lífsgleði manns á
morgnana. Það er einhvern veginn
eins og gardínan hafi verið dregin
fyrir og hún bara ætlar ekki að lyft-
ast, sama hvað maður reynir.
Þá er nú bara ágætt ef það snjó-ar smá, enda lýsir það upp
skammdegið. Jólaljósin vekja líka
von og gleði í hjörtum snúsara. Svo
og annarra. Svo eru jú jólin fram-
undan og jólafrí. Sá tími er sann-
arlega hátíð snúsara því þá má auð-
vitað snúsa að vild. Eða bara sleppa
því að stilla vekjaraklukkuna og sofa
eins lengi og maður getur. Það er
náttúrulega langbest.
Listin að snúsa vel og lengi
»Helst þyrfti ég ein-hvern til að vekja
mig með veiðilúðri eða
öðru álíka hljóðfæri. Þá
fyrst myndi ég kannski
ná að spretta fram úr.
Mmmm Það er bara svo gott að sofa þegar myrkur og kuldi er úti og snúsa aðeins lengur.
Jóladagatal Norræna hússins hefst á morgun,
1. desember. Á hverjum degi, til 23.desember,
verður boðið upp á óvænt atriði í húsinu kl.
12.34. Nú liggur fyrir hvaða listamenn koma
fram en ekki hvenær, þar sem það á að koma á
óvart. Sem fyrr er dagatalið og allar auglýs-
ingar tengdar því unnið af listamanni og í ár er
listamaðurinn Sigtryggur Berg Sigmarsson en
hann tekur einnig þátt í dagatalinu með hljóm-
sveit sinni Stilluppsteypu. Þátttakendur í
dagatalinu í ár eru þessir: Amiina, Árstíðir,
Árni Þórarinsson, Bloodgroup, Dorothea
Høgaard Dam, Eiríkur Guðmundsson, Habbý,
Hafdís Bjarnadóttir, Heyrnarlausi kórinnm,
Kviss Búmm Bang, Matti Kallio og Andrés Þór
Gunnlaugsson, Ómar Ragnarsson, Ragnheiður
Gröndal, Róbert The Roomate, Saga&Magga,
Skakkapopp, Sirkus Íslands, Stilluppsteypa,
Ugla Egilsdóttir og Saga Garðarsdóttir, Úti-
dúr, Víkingur Heiðar og Yoga og eplaskífur.
Þríeyki Listakonurnar í Kviss Búmm Bang
taka þátt í jóladagatali Norræna hússins.
Listamenn í
jóladagatali
Bandarísku tónlistarmennirnir Tom Brosseau
og Gregory & the Hawk halda tónleika á Fak-
torý, Smiðjustíg 6, á morgun, 1. desember, kl.
21.30 ásamt tónlistarkonunni Mr. Silla. Þessir
bandarísku tónlistarmenn hafa komið fram á
tónleikum með Íslendingum áður, hljómsveit-
unum múm og Amiinu og tónlistarkonunum
Ólöfu Arnalds og Lay Low.
Gregory & the Hawk er listamannsnafn tón-
listarkonunnar Meredith Godreau en ný plata
með henni kom út fyrr í mánuðinum. Tom
Brosseau er söngvari og lagasmiður og leitar í
sinni listsköpun mikið í bandarískan sagna-
brunn og amerískar bókmenntir, þjóðlagatón-
list og kántríhefð, að því er segir í tölvupósti
vegna tónleikanna. Hann hefur gefið út þrjár
breiðskífur hjá útgáfunni Fat Cat.
Aðgangseyrir á tónleikana annað kvöld er
1.000 kr. en forsala á þá fer fram í versluninni
Havarí í Austurstræti.
Skapandi Tónlistarkonan með forvitnilega
listamannsnafnið, Gregory & the Hawk.
Brosseau, God-
reau, Mr. Silla