Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 2

Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. FRÉTTASKÝRING Örn Arnarson ornarnar@mbl.is Kostnaður fjármálafyrirtækja vegna þeirra aðgerða sem boðaðar voru í viljayfirlýsingunni auk kostnaðarins vegna frumvarpsins um gengis- tryggðu lánin er um 90 milljarðar króna að sögn Guðjóns Rúnarssonar, framkvæmdastjóra Samtaka fjár- málafyrirtækja. Hins vegar er það mat þeirra sérfræðinga sem blaðið hefur rætt við að þessi kostnaður bankakerfisins sé í raun óumflýjan- legur vegna óhjákvæmilegra van- skila og afskrifta. Óhjákvæmilegur kostnaður bankakerfisins Sú staðreynd að stóru viðskipta- bankarnir þrír bjóða nú þegar úrræði á borð við niðurfærslu fasteignalána og höfuðstólslækkun yfirveðsettra eigna er til marks um að bankarnir hafi verið undir það búnir að taka á sig mikinn kostnað vegna skulda- vanda heimilanna og hafi haft um- talsvert svigrúm í þeim efnum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins voru bankarnir reiðubúnir til þess að ganga lengra í niðurfærsl- unni á fasteignalánum en það hafi hins vegar strandað á Íbúðalánasjóði (ÍLS) og lífeyrissjóðum. Þá síðar- nefndu skorti hins vegar lagaheim- ildir til þess að samþykkja slíkt og það hefði væntanlega kallað á enn frekari fjárframlög frá ríkinu til ÍLS. Stjórnvöld hyggjast sem kunnugt er setja 33 milljarða í sjóðinn vegna slæmrar eiginfjárstöðu hans, en eins og fram kom í umfjöllun Morgun- blaðsins í vikunni voru 15 milljarðar af þeirri upphæð sérstaklega eyrna- merktir boðuðum aðgerðum vegna skuldavanda heimilanna. Ekki endanleg lausn Þrátt fyrir þessi úrræði er ekki hægt að tala um hina endanlegu lausn á vandamálum skuldsettra heimila. Þrátt fyrir að fasteignalán séu færð niður í 110% af markaðs- virði eigna er ekki útséð um þróun mála á fasteignamarkaði. Horfur í hagkerfinu benda sterklega til þess að fasteignaverð muni halda áfram að lækka. Þar af leiðandi er ekki hægt að útiloka að mörg heimili verði á endanum yfirveðsett enn á ný. Þó svo að fasteignaverð hafi lækk- að mikið á undanförnum árum eru miklar líkur á því að botninum sé ekki náð vegna lélegra hagvaxtar- horfa og atvinnuleysis auk þess fyr- irsjáanlega framboðs sem verður á markaðnum þegar lánastofnanir selja frá sér eignir sem þær neyðast til að taka yfir. Komast ekki hjá niðurfærslunni  Kostnaður bankakerfisins sagður um 90 milljarðar króna Aðgerðir samkvæmt viljayfirlýsingu Áður til boða? Niðurfærsla húsnæðislána í 110% af verðmæti/fasteignamati Já, hjá Arion banka og Landsbanka. Íslandsbanki bauð höfuðstólslækkun, allt upp í 30%. Ekki niðurfærsla hjá ÍLS. Sértæk skuldaaðlögun Já, en gerð hraðvirkari. Niðurfærsla aukin, úr 110% niður í 70-100% afverðmæti/fasteignamati. Sjálfskuldarábyrgðir umfram eignastöðu og/ eða greiðslugetu ábyrgðarmanns felldar niður Staða ábyrgðarmanna var styrkt í lögum frá 4. apríl 2009. Hæstiréttur taldi þau ekki standast stjórnarskrá. Ekki gengið að lánsveði á tímabili sértækrar skuldaaðlögunar Nei. Vettvangur kröfuhafa - til að einfalda úrlausn flókinna skuldamála Greiðsluvandaúrræði Íbúðalánasjóðs voru innleidd í öllum fjármála- stofnunummeð samkomulagi. Átak til að ná til heimila í vanskilum Ekkert slíkt átak áður. Hækkun vaxtabóta Já. Framlengd. Ný tegund vaxtaniðurgreiðslu Nei. Nauðungarsölur - aðgerðir miðist við að koma í veg fyrir uppboð Tímabundin frestun var veitt á nauðungarsölum til að vernda skuldara og skapa svigrúm til varanlegra ráðstafana á skuldavanda heimila.Uppboðsbeiðendum var skylt að verða við óskumskuldara um frestun uppboða kæmuþær fram. Húsnæðismál - fjölbreyttum húsnæðislausn- um komið á fót og félagsleg úrræði aukin Unnið var að mótun heildstæðrar húsnæðisstefnu hjá félags- og tryggingamálaráðuneytinu í marsmánuði sl. Framlög til húsaleigubóta Já. Ekki skert. Aðgerðir Fasteignaverð skiptir miklu máli » Samkvæmt Seðlabank- anum hafði fasteignaverð að raunvirði lækkað um 35% á höfuðborgarsvæðinu í vor miðað við hámark þess árið 2007. » Frekari lækkun leiðir til þess að þeir sem taka nið- urfærslunni lenda á ný í því að sitja uppi með yfirveðsetta eign. FRÉTTASKÝRING Agnes Bragadóttir agnes@mbl.is Þáttur lífeyrissjóðanna í viljayfirlýs- ingu ríkisstjórnarinnar um aðgerðir vegna skuldavanda heimilanna snýst um það, að útfærðar eru leiðir til þess að afskrifa kröfur, sem eru hvort eð er taldar tapaðar. Í heildina eru lífeyrissjóðir því ekki að taka á sig auknar byrðar í nokkrum mæli. Heildareignir lífeyrissjóðanna eru í kringum 1.840 milljarðar króna, og fram hefur komið að trygginga- fræðileg staða þeirra muni versna um innan við 0,5% við aðild að þeim aðgerðum sem fyrirhugaðar eru. Gróft áætlað er tryggingafræðileg staða lífeyrissjóðanna tæplega tvö- föld eignastaða þeirra, eða innan við 3.600 milljarðar og þeir sem hafa reiknað út hver kostnaðurinn geti orðið fyrir lífeyrissjóðina af aðgerð- unum, telja að hann sé á bilinu 10 til 15 milljarðar króna. Fulltrúar lífeyrissjóðanna eru sammála um að þetta komi ekki til með að hafa áhrif á lífeyrisgreiðslur í sjóðunum. „Okkur þykja þetta miklar umbúðir um heldur rýrt inni- hald,“ sagði talsmaður lífeyrissjóðs í gær. Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins var breið samstaða um það innan lífeyrissjóðakerfisins, að mönnum sem stýra þeim sjóðum væri hvorki stætt á því siðferðilega né lagalega, að taka ákvörðun um að gefa ákveðnum sjóðfélögum ákveðnar upphæðir í afskriftir á kostnað annarra sjóðfélaga. Á hinn bóginn hafi verið sjálfsagt að taka þátt í yfirlýsingu ríkisstjórn- arinnar og fjármálafyrirtækja, að því marki, sem lífeyrissjóðunum var stætt á að gera. Viðskipti – ekki skattlagning Talsmenn lífeyrissjóðanna líta þannig á að klásúlan í yfirlýsingunni um nýja tegund vaxtaniðurgreiðslu, þar sem m.a. segir: „Ríkisstjórnin mun leita leiða til að fjármálafyr- irtæki og lífeyrissjóðir fjármagni nýja tegund tímabundinnar vaxta- niðurgreiðslu,“ feli alls ekki í sér áform stjórnvalda um að skattleggja lífeyrissjóði sérstaklega. Rifjað er upp að sl. sumar áttu Seðlabankinn í Lúxemborg og Seðlabanki Íslands viðskipti með skuldabréf og þá hafi lífeyrissjóðirn- ir keypt skuldabréf af ríkinu sjálf- viljugir og greitt fyrir með gjaldeyri. Af þeim viðskiptum hafi myndast heilmikill hagnaður, sem lífeyris- sjóðirnir og ríkið hafi síðan skipt með sér. „Við sjáum fyrir okkur frekara samstarf af þessum toga, en ekki aukna skattheimtu,“ segir stjórnarmaður í lífeyrissjóði. Lífeyrissjóðirnir afskrifa aðeins tapaðar kröfur  Kostnaður 10-15 milljarðar króna Morgunblaðið/Kristinn Með penna á lofti Árni Páll Árna- son, viðskiptaráðherra, og Guðjón Rúnarsson , framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja. Lífeyrissjóðir » Lífeyrissjóðirnir telja ekki að koma þurfi til skerðingar lífeyr- isgreiðslna vegna þátttöku þeirra. » Sjóðirnir telja alls ekki að stjórnvöld áformi frekari skatt- lagningu á sjóðina til þess að fjármagna vaxtaniðurgreiðslu. » Mat lífeyrissjóðanna er að gróft áætlað þýði þátttaka þeirra 10-15 milljarða kostnað fyrir þá. Baldur Arnarson baldura@mbl.is „Sá vandi sem við er að glíma er orð- inn stærri vegna þess að á honum hefur ekki verið tekið fyrr, þrátt fyrir ítrekuð loforð,“ segir Bjarni Bene- diktsson, formaður Sjálfstæðis- flokksins, um aðgerðir stjórnvalda til handa skuldsettum heimilum. Dró skerðingar til baka „Margt af því sem er verið að kynna til sögunnar í tillögunum núna er jákvætt og í þeim anda sem við sjálfstæðismenn höfum talað fyrir á þinginu. Þegar ríkisstjórnin kynnti skerðingar á vaxtabótum í fjár- lagafrumvarpinu, þá sögðum við að styrkja þyrfti vaxtabótakerfið. Hún er nú hætt við áform sín um að skerða vaxta- bæturnar.“ Bjarni víkur einnig að húsa- leigukerfinu. „Við sögðum að það þyrfti að styrkja húsaleigubótakerfið. Stjórn- völd höfðu uppi áform um að skerða húsaleigubætur en hafa nú hætt við það líka. Vaxtabótakerfið og húsa- leigubótakerfið eru heppileg til þess að ná til fólks í greiðsluvanda.“ Úrræðin voru of flókin „Við sjálfstæðismenn höfum haldið uppi látlausri gagnrýni um að úrræðin væru of flókin og að menn þyrftu að fara gegnum nálarauga til þess að geta fengið felldar niður skuldir. Þetta höfum við bent á í heilt ár og rúmlega það og á það hefur ekki verið hlustað […] Þessi töf hefur dregið úr efnahagsbatanum í landinu vegna þess að óvissan sem hefur fylgt fjárhagslegri stöðu heimilanna hefur dregið þróttinn úr samfélaginu.“ Seinagangur við aðgerðir gerði vandann erfiðari Bjarni Benediktsson  Formaður Sjálfstæðisflokksins fagnar einföldun úrræða Nóatúni 4 · Sími 520 3000 www.sminor.is A T A R N A Jólabæklingurinn er kominn út. Girnileg jólatilboð. fyrir Jólasmákökur og huggulegheit í verslun okkar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.