Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 6

Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 6
BAKSVIÐ Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Hún var óstjórnlega flott og gam- an að heyra og sjá hana syngja,“ segir Guðrún Straumfjörð, 99 ára að aldri, um tónleika sem hún sá með Marlene Dietrich í Reykjavík árið 1944. Guðrún hafði samband við Morgunblaðið eftir lestur fréttar á baksíðu blaðsins sl. mið- vikudag þar sem Óttar Sveinsson rithöfundur óskaði eftir því að kom- ast í samband við þá sem hittu eða sáu Dietrich í Íslandsheimsókn hennar. Bókin Útkall - árás á Goðafoss kemur út í Þýskalandi á næsta ári og óskaði þýska forlagið eftir frek- ari upplýsingum um ferðir söng- og leikkonunnar hér landi en fram komu í íslensku útgáfu bókarinnar. Um það leyti sem Dietrich skemmti hermönnum í Reykjavík lagði Goða- foss úr höfn í Reykjavík í sína hinstu för til New York. Guðrún fór á tónleikana ásamt eiginmanni sínum en frændi henn- ar, Vestur-Íslendingur frá Edmon- ton í Kanada sem var hér á stríðs- árunum, bauð þeim með sér. „Þetta var alveg stórkostlegt. Ég man ekki til þess að hafa séð aðra Íslendinga á tónleikunum, þetta voru mest her- menn í búningum,“ segir Guðrún. Hún man þessa tónleika eins og gerst hefðu í gær. „Þarna sat hún [Dietrich] og söng og spilaði undir á sögina. Hún var fallega klædd í hvít- um jakkakjól úr þykku satíni, allan settan pallíettum. Hún var hreint út sagt stórkostleg, með ljóst og fal- legt sítt hár og heillaði hermennina ábyggilega upp úr skónum.“ Mikill fengur fyrir bókina Óttar Sveinsson fór og hitti Guð- rúnu að máli í gær og hann segir mikinn feng í frásögn hennar fyrir endurgerð bókarinnar, enda sé vitað að afar fáir Ís- lendingar komust á tón- leikana. Voru þeir fyrst og fremst hugsaðir fyrir her- menn. Guðrún á einnig teng- ingu við Goðafoss þar sem vin- kona hennar, Sigrún Briem, var meðal þeirra sem fórust og tveir aðrir Íslendingar sem hún þekkti vel. „Var óstjórnlega flott“  Guðrún Straumfjörð man tónleika með Dietrich eins og gerst hefðu í gær  Ein fárra sem sáu hana syngja hér Morgunblaðið/Kristinn Minnug Óttar Sveinsson heimsótti Guðrúnu Straumfjörð í gær og fékk að heyra frásögn hennar af Dietrich. 6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Kristján Jónsson kjon@mbl.is Slökkviliðsmenn á höfuðborgarsvæð- inu eru mjög ósáttir við að stjórn slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, SHS, neiti að framlengja sérstakt áhættulag umfram kjarasamning upp á 15.000 krónur á mánuði. Jón Viðar Matthíasson slökkviliðsstjóri ákvað, eftir að samningar tókust loks eftir verkföllin í sumar, að greiða umrætt álag út nóvember. En stjórnin, þar sem borgarstjóri er í forsæti, fram- lengir ekki þá tilhögun, þrátt fyrir ósk Jóns Viðars. Kjarasamningar Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna, LSS, eru nú lausir eins og hjá öðrum og segir Sverrir Björn Björnsson, for- maður félagsins, ákvörðun stjórnar SHS hleypa illu blóði í liðsmenn fé- lagsins. „Launanefndin hafði komist upp með að láta okkur vera samnings- lausa í 13 mánuði og okkur finnst þetta vera einhvers konar hefndar- ráðstöfun fyrir að hafa neytt hana til að gera þennan kjarasamning í haust. Það er komið í bakið á okkur með þessu,“ segir Sverrir Björn. „Þetta álag var í boði fyrir starfsmenn SHS í kjarasamningnum, þetta var ekki eitthvað nýtt en var ekki tekið fyrir í sjálfum kjarasamningunum. Mér er ekki heimilt að semja um kaup og kjör fyrir einstaka hópa, við semjum fyrir alla félagsmenn á landinu. En á hverju svæði þarf alltaf að semja um útfærslur á kjarasamningum. Ég veit ekki betur en að stjórn SHS hafi sjálf ákveðið að greiða þessar 15 þúsund krónur til okkar, síðan var þetta tekið af en boð- ið aftur til að liðka fyrir samningun- um. Við héldum að menn væru að tala af einhverjum heilindum. Kannski gerðu þeir þetta í góðri trú. En síðan kemur sendinefnd frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og launanefndinni þar og fer að skipta sér af málinu. En þá ætti launanefnd- in að fara líka í hin sveitarfélögin og tryggja að þar sé örugglega farið eftir kjarasamningum, af hálfu beggja að- ila,“ segir Sverrir Björn. Framkvæmdastjóri Sambands ís- lenskra sveitarfélaga, Karl Björns- son, segist hafa mætt á undirbúnings- fund sem haldinn var fyrir formlegan stjórnarfund SHS. Hann hafi bent á að álagsgreiðslur utan við kjarasamn- inga væru alls ekki heimilar, ákvæði þess efnis hefði verið sett í lög einmitt til að tryggja að farið væri vandlega eftir samningum. Karl segist aðspurður ekki vita til þess að samið hafi verið um einhverj- ar aukagreiðslur á öðrum svæðum en á höfuðborgarsvæðinu. Hiti í slökkvi- liðsmönnum  Áhættuálag hafi liðkað fyrir samningum Morgunblaðið/Júlíus Mótmæli Slökkviliðsmenn af höf- uðborgarsvæðinu í kröfugöngu. Samningar lausir » Slökkviliðsmenn í LSS beittu skæruverkföllum til að þvinga fram samninga í haust. » Liðsmennirnir bera starf sitt gjarnan saman við starf lög- reglunnar. » Tímasetningin er óheppileg. Hafinn er jólamánuður þegar mikið álag er á liðsmönnum LSS og kjarasamningar eru sagðir geta orðið mjög erfiðir. Una Sighvatsdóttir una@mbl.is Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, segir að tímabundin vaxtanið- urgreiðsla sé áhugaverðust þeirra aðgerða vegna skulda heimilanna, sem kynntar voru í gærmorgun. Enn sé óútskýrt hvernig eigi að framkvæma hana og fjármagna. „Ég átta mig ekki á því hvort ríkið er þarna að fara að fjármagna vaxtaniðurgreiðsluna um 6 milljarða á ári vegna þess að þarna segir að ríkisstjórnin muni í samstarfi við að- ila samkomulagsins leita leiða til að fjármálafyrirtæki og lífeyrissjóðir fjármagni þessi útgjöld. Það er eins og að ekki sé búið að semja um það. Það er óheppilegt ef ekki er bú- ið að semja um hvernig menn ætla að fjármagna þá aðgerð sem sætir mestum tíðindum í þessum til- lögum,“ segir hann. Flækjustigið áhyggjuefni Sigmundur Davíð bendir einnig á að menn hafi rekið sig á það aftur og aftur að það hversu flóknar lausn- irnar hafa verið fram að þessu hafi í sjálfu sér verið stór hluti vandans. „Þegar skuldavandinn er svona víð- tækur þá er erfitt að ætla að leysa það með flóknum aðgerðum því fara þarf í saumana á hverju dæmi fyrir sig og meta hverjar af þessum 50 að- gerðum sem forsætisráðherra talaði um, henti best eða hvaða blanda þeirra. Ég hef mestar áhyggjur af flækjustiginu,“ segir hann. Leikið með tölur „Ég vona að menn séu ekki að nota tækifærið núna til að láta líta út fyrir að þeir peningar sem þegar hafa tapast, óhjákvæmilegt var að afskrifa og er jafnvel búið að af- skrifa, séu einhver ný útgjöld. Menn segi þá sem svo að það sé verið að af- skrifa þetta fyrir ríkið eða m.ö.o. að bankar eða fjármálastofnanirnar noti tækifærið til þess að láta líta út fyrir að það sem þegar hefur tapast hafi ekki verið tapað en sé fært niður núna að tilstuðlan ríkisins,“ segir Sigmundur Davíð ennfremur. „Brjálæðisleg“ spilaborg Þór Saari, þingmaður Hreyf- ingarinnar, gagnrýnir aðgerðirnar vegna skuldavanda heimilanna harð- lega.„Mér sýnist þetta vera gam- aldags „Jóhönnu félagsmálaráðherraaðferð“ við að fé- lagsmálavæða flest öll skuldug heim- ili á landinu,“ segir Þór. „Það er ekk- ert verið að gera í skuldamálum heimilanna annað en að gera þau að einhverjum bótaþegum. Það er alveg brjálæðislegt að fara með allt þjóðfé- lagið inn í þetta. Þetta býr til mikið af samtengingum. Það má líkja þessu við spilaborg. Ef einn kubbur hrynur þá hrynja allir,“ segir Þór Afleiðingarnar geti orðið mjög alvarlegar ef búið sé að flækja tugi þúsunda heimila inn í eitthvert bóta- kerfi. Lánin séu verðtryggð og ef krónan fellur og verðbólgan eykst aukist skuldir heimilanna. „Þá verð- ur þetta hringavitleysa,“ segir hann. Áhættan fyrir ríkið og samfélagið í heild sé gríðarleg. Setja fyrirvara við að- gerðir ríkisstjórnarinnar  Heimili félagsmálavædd  Vaxtaniðurgreiðsla óútskýrð Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Þór Saari Þýsk-bandaríska leik- og söng- konan Marlene Dietrich skemmti hermönnum á nokkrum tón- leikum í Reykjavík í september árið 1944. Þar spilaði hún einnig á sögina sem Guðrún man svo vel eftir, en meðfylgjandi mynd er tekin í Trípólíbíói við Suð- urgötu 14. september 1944. Síð- ustu tónleikarnir voru 17. sept- ember í Andrews Field House, sem var stór braggalaga bygging, síðar íþrótta- húsið Hálogaland. Þar lék hún á sög- ina í sömu hvítu föt- unum, fyrir troðfullu húsi. Söng og spilaði á sög MARLENE DIETRICH Marlene Dietrich á söginni. Frábær tilboð alla helgina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.