Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 8

Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Formaður Bændasamtakannafjallar í leiðara Bændablaðsins um aðlögunarferlið að ESB og seg- ir tal um að ekki þurfi að fara fram aðlögun sé skiljanlegt í ljósi lítils stuðnings við málið. Undanbrögðin séu ætluð til heimabrúks og ekki þurfi að velkjast í vafa um að væntanleg samn- ingsniðurstaða verði kynnt með sama hætti.    Loðinn og óljós texti, sem reynd-ar er sammerkt öllum nýleg- um aðildarsamningum ESB, sem túlka má til heimabrúks til að kom- ast í gegnum þjóðaratkvæða- greiðslu. En eftir þjóðaratkvæða- greiðslu er veruleikinn aðeins túlkun ESB,“ segir formaðurinn.    Vitaskuld þarf enginn að efastum að sú spunavél sem þegar er farin í gang og smurð er ómæld- um fjármunum úr ríkissjóði Íslands og sjóðum ESB verður sett á yf- irsnúning þegar kemur að því að sannfæra íslenskan almenning um að Ísland hafi náð „hagstæðum samningum“ sem eigi engan sinn líka í sögu sambandsins.    Gangi Íslendingar í gildruna envakni svo upp við vondan draum og vilji út aftur verður það orðið um seinan. Um þetta fjallar Frosti Sigurjónsson í ágætum pistli á Evrópuvaktinni, www.evr- opuvaktin.is.    Frosti bendir á að því sé haldiðfram að úrsögn sé möguleg vegna ákvæðis í Lissabon- sáttmálanum, en sú úrsögn sé tæp- ast raunhæfur kostur.    Mikilvægt er að gera sér greinfyrir að leiðin inn í ESB er í raun einstefna, þó að aðildarsinnar haldi stundum öðru fram. Einstefna Evrópu- sambandsins STAKSTEINAR Veður víða um heim 3.12., kl. 18.00 Reykjavík -5 heiðskírt Bolungarvík -4 heiðskírt Akureyri -7 alskýjað Egilsstaðir -9 léttskýjað Kirkjubæjarkl. -4 léttskýjað Nuuk 2 skýjað Þórshöfn 0 léttskýjað Ósló -12 heiðskírt Kaupmannahöfn -2 snjóél Stokkhólmur -3 skýjað Helsinki -5 snjókoma Lúxemborg -5 skýjað Brussel -6 þoka Dublin 1 slydda Glasgow 2 skýjað London -2 léttskýjað París 0 skýjað Amsterdam -3 þoka Hamborg -2 snjókoma Berlín -5 skýjað Vín -2 snjókoma Moskva -11 alskýjað Algarve 12 heiðskírt Madríd 3 léttskýjað Barcelona 8 léttskýjað Mallorca 10 léttskýjað Róm 10 léttskýjað Aþena 18 skýjað Winnipeg -12 skýjað Montreal 2 léttskýjað New York 3 skýjað Chicago -2 skýjað Orlando 15 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 4. desember Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 10:54 15:43 ÍSAFJÖRÐUR 11:32 15:15 SIGLUFJÖRÐUR 11:16 14:57 DJÚPIVOGUR 10:31 15:05 Konurnar sem saka Gunnar Þor- steinsson, forsstöðumanns trú- félagsins Krossins, um kynferð- islega áreitni hafa nú sent dómsmála- og mannréttinda- ráðherra skriflega ósk um að hann hlutist til um rannsókn á Krossinum og að Gunnar verði sviptur rétt- indum sem forstöðumaður. Ása Knútsdóttir, sem hefur komið fram fyrir hönd kvennanna, staðfesti við Pressuna í gær að bréf þess efnis hefði verið sent ráðuneytinu. Ábyrgur samkvæmt lögum Alls hafa sjö konur borið Gunnar sökum og hefur vitnisburður sex þeirra verið birtur undir nafni. Sú sjöunda hefur ekki treyst sér til að koma fram opinberlega. Sjálfur seg- ir Gunnar að ásakanir kvennanna séu tilhæfulausar. Hann segist hafa vikið tímabundið sem forstöðumaður Krossins á meðan málið sé skoðað. Forstöðumaður skráðs trúfélags er samkvæmt lögum ábyrgur gagn- vart dómsmála- og mannréttinda- ráðuneytinu um að ákvæði laga séu virt innan félagsins. Gunnari verði vikið frá störfum Senda ráðherra bréf um Krossinn Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu stöðvaði kannabisræktun í fjölbýlis- húsi í Breiðholti í fyrradag. Við húsleit á áðurnefndum stað fundust um 120 kannabisplöntur. Karl- maður um tvítugt var handtekinn í tengslum við rannsóknina. Á dög- unum stöðvaði lögreglan aðra kannabisræktun í Breiðholti. Við húsleit á þeim stað fundust um 35 plöntur. Húsráðandi, karl á fimm- tugsaldri, játaði aðild að málinu. Karl og kona voru handtekin í Kópavogi í vikunni en í híbýlum þeirra fannst allnokkuð af munum, m.a. GPS-tæki, fartölva og flat- skjár. Talið er að um þýfi sé að ræða. Fólkið er um þrítugt og hefur áður komið við sögu hjá lögreglu. Stöðvuðu kannabis- ræktun í Breiðholti

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.