Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 11
verkskaffi og var að föndra. Það
var þó eitthvað og í öðru lagi
hafði mér tekist ágætlega upp
með fyrstu pappírsvafningana.
Svo vel að ég fór aðeins fram úr
sjálfri mér og ákvað að skreyta þá
með glimmerlímdoppum. Það
hefði ég átt að gera eftir að ég
heftaði vafningana saman. En
hvað, stundum bara ræður maður
ekki við sig í listrænni sköpun!
Límverkið gekk ekki alveg
jafn vel hjá vinkonunni sem hafði
komið líminu á borðið, puttana á
sér og bara smá á jólastjörnuna.
Ég glotti aðeins að henni (ókei,
hló) en skömmu síðar sannaðist
hið fornkveðna að sá hlær best
sem síðast hlær, þegar jólastjarn-
an mín var eiginlega komin í al-
gjöra köku. Það var nefnilega
ekkert grín að hefta hana saman!
En þetta endaði nú samt allt
saman vel. „Þetta er svona fusion
hjá þér bara,“ sagði vinkonan
hughreystandi og horfði á
glimmerglansandi furðuverkið
mitt með blöndu af aðdáun og
vorkunn í svipnum.
Ég ákvað að láta þar við sitja
og æfa mig betur heima.
Afraksturinn Það þýðir ekkert
nema að hafa gaman af þessu, þó
maður klippi út eins og barn.
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
„Þetta verður í tuttugusta og áttunda
skipti sem ég er með opið hús fyrstu
helgina í desember,“ segir Sigrún Ein-
arsdóttir glerlistakona en hún verður með
opið hús í glerblástursverkstæði sínu Gleri
í Bergvík í dag og á morgun. „Aðsóknin
hefur alltaf verið góð, það hafa komið
hingað mörg hundruð manns yfir þessa
opnu helgi. Mörgum finnst gaman að
byrja jólastemninguna hjá mér og hér
hittast heilu ættirnar og saumaklúbbarnir
á hverju ári. Ég hitti líka kúnnana mína
mest þessa helgi,“ bætir Sigrún við.
Opið verður í dag, laugardag, og á
morgun, sunnudag, frá kl. 10 til 15. Gesta-
blásarar eru Liz Potenza frá USA og Da-
mien Francois frá Frakklandi og munu
þau, ásamt Sigrúnu sýna glerblástur. „Já,
við ætlum að sýna glerblástur og verðum
svolítið að leika okkur þessa daga, blásum
kannski fugla fyrir litla krakka og svona,“
segir Sigrún. Einnig verður útsala á útlits-
gölluðum glermunum og afsláttur af öðru
gleri. Boðið verður upp á kaffi og pip-
arkökur og félagar úr Vinabandinu leika
jólalög á munnhörpu og gítar á laug-
ardagsmorgun. „Þetta eru tveir vinir mín-
ir sem hafa komið í nokkur ár og spilað
jólalög, annar spilar á heimagerða munn-
hörpu úr silfri og vinur hans er á gítar og
þeir eru snillingar. Svo kemur Kamm-
erkór Mosfellsbæjar og syngur á sunnu-
deginum.“
Gler í Bergvík er staðsett milli Klé-
bergsskóla og Grundarhverfis á Kjal-
arnesi. Allir eru velkomnir.
ingveldur@mbl.is
Opið hús í Gleri í Bergvík
Morgunblaðið/Golli
Bergvík Sigrún Einarsdóttir á glerverkstæði sínu ásamt Liz Potenza og Damien Francois.
Blásið Gaman er að fylgjast með glerblæstri.
Jólahelgin
á glerverk-
stæðinu
Í ofninum Kúlan fer inn í eldinn.
Sjóðheit Jólakúla í mótun.
Rjúkandi heitt súkkulaði um alla miðborgina í nafni Rauða krossins.