Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Morgunblaðið birtir fram til jóla upplýsingar um einhverja þeirra
viðburða sem eru á dagskrá vítt og breitt um landið.
20 dagar til jóla
Árlegt jólakaffi Hringsins verður
haldið í Broadway á morgun,
sunnudag kl. 13.30. Miðasala hefst
kl. 13.00. Boðið er upp á girnilegt
kaffihlaðborð að hætti Hrings-
kvenna og er dagskráin glæsileg að
vanda. Margir frábærir listamenn
koma fram með hljóðfæraleik,
söng, danssýningu og glens fyrir
unga sem aldna. Allir gefa þeir
vinnu sína. Þá verður happdrætti
með góðum vinningum sem ýmis
fyrirtæki hafa gefið. Allur ágóðinn
rennur til veikra barna á Íslandi.
Jólakaffi Hringsins í Broadway
Jólasýning Árbæjarsafns verður haldin næstu þrjá
sunnudaga milli kl. 13 og 17. Þar fær fólk að rölta á
milli húsanna og fylgjast með undirbúningi jólanna
eins og hann var í gamla daga.
Í Árbænum fær fólk að sitja með vasahnífa og
skera út laufabrauð en uppi á baðstofulofti verður
spunnið og prjónað. Þar verður einnig jólatré vafið
lyngi. Í Kornhúsinu fá börn og fullorðnir að föndra,
búa til músastiga, jólapoka og sitthvað fleira. Í
Hábæ verður hangikjöt í potti og gestum boðið að
bragða á nýsoðnu keti en í stofunni verður sýndur
útskurður. Í hesthúsinu frá Garðastræti er sýnt
hvernig fólk bjó til tólgarkerti og kóngakerti í
gamla daga. Jólahald heldra fólks á 19. öld er sýnt í Suðurgötu 7 og í Lækj-
argötu 4 verður sögustund fyrir börn. Kl. 15.00 hefst svo jólatrésskemmtun á
torginu þar sem sungin verða jólalög og dansað í kringum jólatréð.
Aðgangseyrir er 600 krónur fyrir fullorðna en ókeypis er fyrir börn, ellilíf-
eyrisþega og öryrkja.
Gamlir jólasiðir fá líf í Árbæjarsafni
Siður Ketkrókur að leik.
Á morgun, sunnudag, kl. 14 hefst
jóladagskrá Þjóðminjasafnsins með
fjölskyldudagskrá. Grýla, Leppa-
lúði og jólakötturinn munu kíkja í
heimsókn og Pollapönkararnir
munu spila fyrir krakkana. Einnig
verður opnuð sýningin „Sérkenni
sveinanna“, en þar má sjá jólahús
með gripum sem tengjast jólasvein-
unum. Þá koma jólasveinarnir dag-
lega í safnið frá og með 12. desem-
ber líkt og fyrri ár. Í forsal á 3. hæð
er líka hægt að skoða gömul jólatré
frá ýmsum tímum og fjölskyldur
geta farið í ratleikinn „Hvar er
jólakötturinn?“ og snýst um að
finna litlu jólakettina sem hafa ver-
ið faldir innan um safngripina.
Ókeypis er að hitta jólasveinana
og að skoða sýninguna en að auki
er frítt inn á safnið á mið-
vikudögum og ókeypis aðgangur
fyrir börn undir 18 ára aldri alla
daga.
Morgunblaðið/Golli
Skemmtilegt Stekkjastaur mætir á að-
ventunni í Þjóðminjasafnið.
Jóladagskrá í
Þjóðminjasafninu
Á morgun, sunnudag, kl. 13.30-
16.00 verður jólasýning í Gamla
bænum Laufási við utanverðan Eyj-
arfjörð þar sem hægt verður að
fylgjast með undirbúningi jólanna
eins og hann var í gamla sveit-
arsamfélaginu. Dagskráin hefst
með jólastund í Laufáskirkju. Í
Gamla bænum verður m.a. boðið
upp á varðeld, kveðskap, hangi-
kjötssmökkun, laufabrauðsgerð og
gamaldags jólaföndur fyrir börnin.
Aðgangseyrir er 600 kr. en
ókeypis er fyrir 15 ára og yngri.
Jólasýning í Gamla
bænum í Laufási
Í dag, laugardag kl. 13-17 verður
basar og flóamarkaður á Hrafnistu
í Hafnarfirði í Menningarsal heim-
ilisins á 1. hæð. Basarinn er á veg-
um starfsfólks heimilisins.
Basar og flóamark-
aður á Hrafnistu
Aðventan í Laugardalnum býður
upp á eitthvað fyrir alla. Í Grasa-
garðinum verður Café Flóra opin
allar aðventuhelgar í desember. Á
torginu fyrir framan garðinn selur
Flugbjörgunarsveitin í Reykjavík
jólatré um helgar. Grýla heldur
jólaveislu í Fjölskyldu- og hús-
dýragarðinum, boðið er upp á hest-
vagnaferðir um garðinn og litla
jólalistasmiðju á Hafrafelli.
Gaman Jólalegt verður um að litast í
Laugardalnum á aðventunni.
Jól í Laugardal
ÚR BÆJARLÍFINU
Andrés Skúlason
Djúpivogur
Jólahald er á næsta leiti og hafa
íbúar á Djúpavogi verið duglegir
eins og áður að hengja upp jólaljós
og skreyta hús sín og garða. Kveikt
var á jólatré Djúpavogshrepps að
venju með viðhöfn á fyrsta degi í
aðventu.
Menningarlífið blómstrar sem
fyrr á Djúpavogi og hafa tónlistar-
uppákomur í bland við aðra við-
burði verið áberandi að und-
anförnu. Meðal viðburða má nefna
einsöngstónleika tenórsins József
Gabrieli Kiss hinn 25 nóv. síðastlið-
inn en József er tónskólastjóri
Djúpavogshrepps. Undirleikarar á
tónleikum þessum voru kona hans
Andrea Kissné Révfalvi á fiðlu og
Guðlaug Hestnes á píanó. Kirkjan
var þéttsetin og þóttu tónleikar
þessir mikið eyrnakonfekt.
Jólamarkaður var haldinn í
menningarhúsinu Löngubúð fyrir
skemmstu þar sem handverksfólk,
félagasamtök o.fl. seldu vörur sín-
ar. Handverksfólki í Djúpavogs-
hreppi hefur vaxið ásmegin á síð-
ustu árum og má í dag víða sjá
vandaða vöru úr smiðju hagleiks-
fólks af svæðinu.
Bókin „Fólkið í plássinu“
eftir Má Karlsson, íbúa á Djúpa-
vogi, er komin út.
Í umsögn sem birt var á
heimasíðu Djúpavogshrepps segir
meðal annars að höfundi takist
einkar vel upp í riti þessu að blanda
saman almennum fróðleik, sagn-
fræði og hnyttnum svipmyndum af
atburðum sem hann hefur upplifað
gegnum tíðina á Djúpavogi. Þetta
er fyrsta bók höfundar en áður hafa
birst eftir hann ýmsir þættir og
sögur í blöðum og tímaritum.
Rjúpnaveiðar hafa sinn gang á
svæðinu og er magnveiði talin á
undanhaldi, má ætla að takmörkun
á veiðidögum eigi sinn þátt í þeirri
þróun.
Veiðimenn telja þó margir
æskilegt að rjúpnaveiðitímabilinu
verði seinkað aðeins, það yrði gert í
þágu rjúpunnar svo hún ætti þess
kost að dreifa sér, eins og rjúpan
gerir í frekara mæli þegar snjór
leggst yfir fjöll og dali þegar líður á
tímabilið.
Sveitarstjórn Djúpavogs-
hrepps er þessa dagana að vinna að
fjárhagsáætlun og þrátt fyrir krefj-
andi og erfið verkefni á komandi
vetri er sveitarstjórn bjartsýn til
lengri tíma litið á betri tíð með
blóm í haga.
Bærinn skreyttur jólaljósum
Morgunblaðið/ Andrés Skúlason
Djúpavogur Langabúð og Faktorshús speglast í Djúpavogshöfn.
Jólaþorpið í
Hafnarfirði verð-
ur opnað aftur í
dag, laugardag.
Um síðustu helgi
komu um tíu þús-
und gestir. Jóla-
þorpið verður
opið á laug-
ardögum og
sunnudögum til
jóla frá kl. 13-18 og alla þá daga
verður fjölbreyttur jólamarkaður
og fjölbreytt skemmtidagskrá á
sviði.
Jólaþorpið opið
Krakkar í Jólaþorpi
HAFNARGÖTU 90 REYKJANESBÆ S: 414 1740 • EYRARVEGI 21 SELFOSSI S: 480 3700 • GARÐARSBRAUT 18A HÚSAVÍK S: 464 1600
• GLERÁRGÖTU 36 AKUREYRI S: 460 3380 • SUÐURLANDSBRAUT 26 REYKJAVÍK S: 569 1500
Ariete 903
Da Gennaro Pizzaofn úr málmi. Bakar frosnar eða heima-
tilbúnar pizzur á steinplatta sem snýst og endurkastar hita
(svipað og í viðarbrennsluofnum). Fljótur að hitna og bakar pizzu
á 5-10 mínútum. Frábær fyrir pizzur, bökur, baguette, samlokur,
lasagne og fleira. Tímastillir og stillingar fyrir ýmsar matartegundir.
VERÐ
FRÁBÆRT VERÐ
17.995Pizzan verður eins og eldbökuð!
ÚRVALIÐ ER HJÁ
OKKUR
VERÐ
FRÁBÆRT VERÐ
21.995
Ariete 1928
1800w MÍNÚTUGRILL með hitastilli, stórum
grillfleti, sléttum og riffluðum plötum sem má
losa og þrífa. Efri hlutinn aðlagast í hæðina.
Non-Stick, auðvelt í þrifum. Fitubakki fylgir.
Ariete 1923
1200w MÍNÚTUGRILLmeð hitastilli, ljósi sem
kviknar þegar grillið er orðið heitt. Efri hlutinn
aðlagast í hæðina. Non-Stick, auðvelt í þrifum.
TILBOÐ
FULLT VERÐ 12.995
11.995