Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 16

Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 16
stuttur þráðurinn í öllum. Það er ekki svona hérna. Hér bjóða allir góðan daginn, börnin eru miklu frjálsari o.s.frv. Maður þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af þeim,“ segir Hólmfríður Ósk. Sólveig á einn dreng í 7. bekk, Róbert Bergmann, og eina stúlku 17 ára, Lindu Ósk, Guðrún Linda á tvær dætur, eina sem er níu mánaða, Hólmfríði Dögg, og eina sem er í 3. bekk, Guðríði Hörpu, og Hólmfríður Ósk á eina dóttur í 4. bekk, Sólveigu Lilju, og aðra í 8. bekk, Hrefnu Re- bekku. „Stráknum mínum leið ekki vel fyrir sunnan, svo að í raun var bara kominn tími á að gera eitthvað nýtt. Og því var ákveðið að leita á heimaslóðir aftur. Börnin annars staðar vera.“ Og Sólveig bætir við: „Við vorum í gamla húsinu uppi á Hlíðarvegi, og þá var eins og við fengjum hugljómun: Flytjum bara hingað, látum verða af því. Við vorum samt ekkert að flýja úr neinum að- stæðum, heldur vildum einungis breyta til, fara í eitthvað betra.“ Allar voru þær með atvinnu fyrir sunnan og í góðum málum. Krakkarnir alsælir „Við gerðum þetta ekki síst út af börnunum,“ segir Guðrún Linda. „Þau vildu flytja.“ Og Sólveig bætir við: „Þetta er líka allt, allt annað hérna. Talsmátinn á krökkum og allt. Það er rosalegt blót á jafnöldrum þeirra í Reykjavík. Og það er borin miklu meiri virðing fyrir fullorðnu fólki hér en þar. Og kennurum líka. Ég er lærður stuðningsfulltrúi og er búin að starfa fyrir sunnan við það í sjö ár og eitt ár í viðbót sem skólaliði; munurinn á börnum og unglingum hér og þar er svaka- legur í einu orði sagt. Virðing- arleysið þar er mikið.“ – Af hverju ætli það sé? „Ég held að þetta sé mikið til foreldravandamál, því miður,“ segir Sólveig. Og Guðrún Linda vill meina að þetta sé verra eftir hrunið. „Það eru allir svo upp- trekktir fyrir sunnan, svo VIÐTAL Sigurður Ægisson sae@sae.is „Allir vilja suður“ hefur löngum verið máltæki úti í hinum dreifðu byggðum og víst er að margur hefur í gegnum tíðina leitað þangað til að freista gæf- unnar. Því er ekki laust við að maður lyfti brún og sperri eyru þegar heyr- ist að 10 manna fjölskylda hafi nú ákveðið að yfirgefa þéttbýlið og flytja út á land með allt sitt hafurtask. En það gerðist reyndar í haust. Um var að ræða þrjár systur, maka einnar þeirra og sex börn. Og áfangastaðurinn? Jú, Siglu- fjörður. Systurnar, dætur Rafns Er- lendssonar, vélstjóra og tónlistar- manns, og Guðrúnar Hrefnu Braga- dóttur, eru allar fæddar og uppaldar fyrir norðan, en árið 1985 – þegar Sólveig var 15 ára, Guðrún Linda 11 ára og Hólmfríður Ósk 4 ára – fluttu þær búferlum inn á Akureyri. Þar bjó fjölskyldan í 3 ár en svo var stefnan tekin á Reykjavík. Ástæðan fyrir flutningnum úr gamla síldarbænum hafði m.a. verið leit að betri eða hentugri vinnu. En það var ekki auðvelt að slíta böndin við heimabyggðina, enda liggja ræturnar djúpt í siglfirskum jarðvegi, bæði í móður- og föðurlegg. Hólmfríður Ósk kom t.d. aftur og var eitt eða tvö sumur á Siglufirði hjá vinafólki, meðan lögheimilið var á Akureyri. Og eftir að fjölskyldan var komin á suðurhornið bjó Hólmfríður á Siglufirði 1998-1999. Guðrún Linda fór til Keflavíkur og var þar í 7 ár, kom svo til Reykjavíkur og flutti það- an á Siglufjörð og bjó þar 1998-2000. Einungis Sólveig var um kyrrt, hún átti heima í 14 ár í Kópavogi. Fluttu allar sama daginn En svo, 26. ágúst 2010, fluttu þær heim aftur. Tveir flutningabílar komu með búslóðirnar. Áður en þetta gerðist voru íbúarnir í bænum 1.298 talsins en fóru í 1.308, eða með öðrum orðum á fjórtánda hundraðið. Fyrsta spurningin til þeirra systra er auðvitað: Hvers vegna? „Það er allt svo rólegt og gott hérna,“ var svarið. Sólveig og Guðrún Linda eru einstæðar mæður, Hólmfríður gift. „Ég var búin að vera að hugsa það síðastliðin þrjú ár að flytja hing- að aftur,“ segir Hólmfríður Ósk. „Eiginmaður minn, Fróði Brinks Pálsson, er malbiksstrákur en við komum hingað í sumar og vorum í mánuð og hann féll gjörsamlega fyrir staðnum og fólkinu og vill hvergi voru líka farin að nauða um þetta, eftir að hafa verið í fríi á Siglufirði. Þau fundu að hér var eitthvað öðru- vísi en syðra, allir svo afslappaðir og vinalegir. Og gott að láta fjöllin faðma sig á hverjum degi.“ – En hvað sögðu vinirnir á höf- uðborgarsvæðinu? „Það skildu þetta allir,“ segja þær. „Fannst flott hjá okkur að gera þetta, fara í rólegheitin. Sumir bara geta það ekki, eru bundnir út af svo mörgu – húsnæði, vinnu og fleiru. Fastir í sínu. Eiga ekki kost á því. Það eina var að fólki fannst kannski skynsamlegra að við flyttum að vori, fannst óráðlegt að fara beint inn í dimman veturinn. En við vissum al- veg hvað við vorum að fara út í.“ „Það voru margir sem öfunduðu mig, að geta bara farið,“ segir Hólm- fríður Ósk. Og hinar systurnar taka undir fyrir sitt leyti. „Svo þarf mað- ur ekki að fara neitt á sumrin, það koma allir til okkar,“ segja þær og hlæja. Vaknað til að mjólka kýrnar? „Vinkonur stelpunnar minnar halda að hún þurfi að vakna klukkan sex á morgnana til að mjólka kýrnar. Þær vita ekkert hvað er verið að tala um,“ segir Hólmfríður Ósk, sem dæmi um hvað firringin er orðin mikil milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. „Og stráknum mínum fannst rosalega skrýtið, þeg- ar hann var hér í sumar, að geta far- ið niður á sparkvöll og spilað með krökkum á öllum aldri. Þetta hefði hann aldrei fengið að gera í Reykja- vík; þar hefði honum verið hent út af ef hann hefði reynt þetta. Hér eru allir svo góðir vinir. Og sjarminn við að geta farið inn í kaupfélagið og spjallað við fólkið. Það gerirðu ekki syðra, enda þekkirðu engan. Og allir eru að drífa sig, alltaf allir að flýta sér,“ segir Sólveig. Nú er ósk þeirra heitust að for- eldrarnir komi á eftir þeim. „Öll börnin og barnabörnin eru farin og því ekki eftir neinu að bíða,“ segja þær, með vonarglampa í augum. Eini gallinn er sá að það er erf- itt að fá húsnæði. „Við vorum heppn- ar, ég leigði íbúðina mína fyrir sunn- an og leigi hér,“ segir Sólveig. „Það er ekkert hentugt til sölu heldur, annað hvort allt of stórt eða þarfnast mikils viðhalds. En við erum komnar til að vera. Meðan við höfum vinnu. Það er númer eitt, tvö og þrjú.“ – Eruð þið með einhvern boð- skap til þeirra á höfuðborgarsvæð- inu sem langar að prófa eitthvað svona, eru kannski að hugsa um að flytja út á land? „Já, bara kýla á það,“ segja þær einum rómi. „Það er allt svo rólegt og gott hérna“  Þrjár systur flytja með allt sitt úr höfuðborginni og norður til Siglufjarðar  Meiri virðing borin fyrir fullorðnum úti á landi og unga fólkið blótar minna en í Reykjavík  Fengu strax vinnu Morgunblaðið/Sigurður Ægisson Fjölskyldan (F.v) Fróði Brinks, Hólmfríður Ósk, Sólveig Lilja og Hrefna Rebekka; miðja: Linda Ósk, Róbert Berg- mann (með hundinn Natan) og Sólveig; hægra megin: Guðríður Harpa, Guðrún Linda og Hólmfríður Dögg. 16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Þær systur fóru allar norður án þess að vera komnar með vinnu, en þurftu ekki lengi að bíða eft- ir að úr rættist. Sólveig fékk at- vinnu við það sem hún er lærð, Guðrún Linda í efnalauginni og Hólmfríður við kennslu í grunn- skólanum. Og allar eru þær mjög ánægðar. „Mér finnst alveg ótrúlegt að maðurinn minn skuli hafa fallist á að koma hing- að,“ segir Hólmfríður Ósk. „En svona er þetta bara. Hann er blóma- skreytir, er að jafna sig eftir aðgerð, var spengdur í baki; síðan á bara eftir að koma í ljós hvað hann fær að gera.“ Fengu allar strax vinnu ATVINNUÁSTANDIÐ Komnar heim Sólveig, Hólmfríður Ósk og Guðrún Linda . GEFÐU EINSTAKA GJÖF UM JÓLIN FJÖLBREYTT ÚRVAL AF KÍNVERSKUM VÖRUM Á FRÁBÆRU VERÐI HEILSU-TE OG TE-STELL Í MIKLU ÚRVALI Sími: 553 8282 ¦ heilsudrekinn@heilsudrekinn.is ¦ www.heilsudrekinn.is ¦ Skeifan 3j Opið sunnudaga kl. 11-16

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.