Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 20
FRÉTTASKÝRING
Egill Ólafsson
egol@mbl.is
Hækkun útsvars á Seltjarnarnesi úr
12,1% í 12,98% skilar 130 milljónum
krónum í viðbótartekjur. Ein-
staklingur með 600 þúsund krónur í
laun á mánuði þarf að borga rúmlega
63 þúsund krónum meira í útsvar á
ári eftir hækkun. Hann mun eftir
sem áður greiða 16 þúsund krónum
minna í útsvar en einstaklingur sem
býr í Reykjavík. Munurinn á útsvars-
greiðslum var hins vegar um 67 þús-
und á þessu ári.
Seltjarnarnes hefur lengi verið í
hópi þeirrar sveitarfélaga sem hafa
verið með lægsta útsvarið. Aðeins
nokkrir litlir sveitahreppar eru með
lægra útsvar. Fram til 2007 var út-
svarið á Nesinu 12,45%, en lækkaði
þá niður í 12,1%. Nú hefur hins vegar
verið ákveðið að hækka það í 12,98%.
Stór sveitarfélög eins og Kópavog-
ur, Hafnarfjörður, Akureyri og
Reykjanesbær hafa undanfarin ár
verið með útsvarið í hámarki. Mun-
urinn milli þessara sveitarfélaga og
Seltjarnarness hefur því minnkað
verulega með þeirri hækkun sem nú
hefur verið gerð tillaga um.
Auk þess að hækka útsvör hækka
almenn gjöld sem íbúar greiða fyrir
leikskóla, skólamat og fleira í sam-
ræmi við hækkun verðlags. Enn-
fremur breytast fasteignagjöld
þannig að þau skila sömu krónutölu
og á síðasta ári, en fasteignamat mun
lækka sem hefði leitt til minni tekna
fyrir sveitarfélagið ef skattprósentu
væri ekki breytt.
Guðmundur Magnússon, forseti
bæjarstjórnar Seltjarnarness, var
einn um að lýsa sig andvígan svo
mikilli hækkun á útsvarsprósentu
þegar fjárhagsáætlun var tekin til
fyrstu umræðu í bæjarstjórn. „Ég
held að þjóðfélagsgerðin á Íslandi sé
svo breytt að hlutir sem við mátum
eðlilega og réttmæta þjónustu sveit-
arfélaga og ríkisins verði að breytast.
Gildismatið breyttist svo mikið á ár-
unum fyrir hrun og það var kannski
ekki innistaða fyrir því. Ég tel að við
verðum að endurmeta stöðuna og
vera hófsamari í því hvernig við skil-
greinum þessa þjónustuþætti.“
Guðmundur sagði nauðsynlegt að
horfa til sjálfbærni sveitarfélagsins
til lengri tíma. Það þyrftu önnur
sveitarfélög og ríkið líka að gera því
sá vandi sem við ættum við að glíma
yrði ekki leystur á skömmum tíma.
Guðmundur tók fram að hann vildi
vinna að fjárhagsáætluninni í góðu
samráði við alla. Hann sagðist ekki
hafa komið að vinnunni síðustu vik-
una áður en áætlunin var lögð fram.
Bæjarstjóri furðar sig á
stefnubreytingu Guðmundar
Ásgerður Halldórsdóttir bæj-
arstjóri sagðist vera undrandi á af-
stöðu Guðmundar. „Guðmundur
lagði sem formaður fjárhags- og
launanefndar bæjarins fram tillögu á
fundi á mánudagsmorgun um að
hækka útsvar í 12,98% og hún var
samþykkt samhljóða. Hann hafði þá
tekið þátt í að undirbúa fjárhags-
áætlun í heilan mánuð. Síðan á
fimmtudag talar hann um að hann
vilji fara allt aðrar leiðir. Samt veit
hann eins og allir aðrir að samkvæmt
lögum þarf að samþykkja útsvars-
hækkun fyrir 1. desember.“
Ásgerður sagði að búið væri að
skera það mikið niður í rekstri bæj-
arins að bæjarstjórnarmenn treysti
sér ekki til að ganga lengra á þeirri
braut.
Morgunblaðið/Ómar
Púttar á Nesinu Útsvar á Seltjarnarnesi hækkar á næsta ári upp í 12,98%. Ekki er full eining um hækkunina.
Skilar 130 milljónum
Eftir hækkun útsvars á Seltjarnarnesi munar aðeins
nokkur þúsund krónum á skattgreiðslum þar og í Reykjavík
Breytingar á útsvari
Kópavogur Reykjavík Seltjarnarnes Garðabær
Útsvarsgreiðslur: 2010 2011
Mán.tekjur: 300.000 kr. Mán.tekjur: 800.000 kr.Mán.tekjur: 600.000 kr.
47
8.
08
0
47
8.
08
0
46
9.
08
0
47
5.
20
0
43
5.
60
0
46
7.2
80
44
8.
56
0
44
8.
56
0
95
6.
16
0
95
6.
16
0
93
8.
16
0
95
0.
40
0
87
1.
20
0
93
4.
56
0
89
7.1
20
89
7.1
20
1.
27
4.
88
0
1.
27
4.
88
0
1.
25
0.
88
0
1.
26
7.2
00
1.
16
1.6
00
1.
24
6.
08
0
1.
19
6.
16
0
1.
19
6.
16
0
Óbreytt Óbreytt
Óbreytt
Óbreytt
Óbreytt
Óbreytt
Hækkun:
6.120 kr.
Hækkun:
31.680 kr.
Hækkun:
12.240 kr.
Hækkun:
63.360 kr.
Hækkun:
16.320 kr.
Hækkun:
84.480 kr.
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
„Vissulega er þetta minna en til stóð en kemur
misjafnlega út eftir stöðum,“ segir Jón Helgi
Björnsson, forstjóri Heilbrigðisstofnunar Þing-
eyinga á Húsavík, um endurskoðaðan niður-
skurð heilbrigðisráðuneytisins á framlögum til
stofnunarinnar. Í stað 40% niðurskurðar á
næsta ári, eins og lagt var til í fjárlagafrumvarp-
inu, er stofnuninni gert að skera niður um 12% á
næsta ári en 13% árið 2012.
Jón Helgi segir að sé litið til fjögurra ára
tímabils verði niðurskurðurinn á Húsavík um
40%. „Þetta er alltof langt gengið. Við munum
ráða við þessi 12% á næsta ári en 13% árið 2012
eru alvarlegra mál,“ segir Jón Helgi og telur lík-
legt að til einhverra uppsagna þurfi að koma hjá
stofnuninni. „Hljóðið er þungt í mínu fólki og
það er erfitt að lifa við stöðugan samdrátt.“
Í svipaðan streng tekur Hafsteinn Sæmunds-
son, forstjóri Heilbrigðisstofnunarinnar á Sauð-
árkróki, sem þarf að skera niður um sömu hlut-
föll og Húsvíkingar næstu tvö árin. Eru þeir
heldur ekki alveg sammála þeim forsendum sem
ráðuneytið gefur sér við útreikning á kostnaði
við hvert sjúkrarými.
Varðandi mögulegar uppsagnir starfsfólks
bendir Hafsteinn á að fyrir hvert prósent sem
þurfi að skera niður sé eitt stöðugildi. Hins veg-
ar sé ekki búið að ákveða hvaða leiðir verði farn-
ar í niðurskurðinum, m.a. verða komur sérfræð-
inga skoðaðar. „Ráðherra hefur talað um að
sérfræðingar komi hingað á eigin vegum, frekar
en að við stæðum undir kostnaði við þá, en það
breytir engu um útgjöld ríkisins nema að senni-
lega verður þjónustan dýrari,“ segir Hafsteinn
og bendir á að kostnaður Sjúkratrygginga gæti
aukist vegna ýmissa útgjalda.
Gunnar K. Gunnarsson, forstjóri Heilbrigð-
isstofnunarinnar í Vestmannaeyjum, segir að
áfram verði haldið úti skurðstofu og fæðingar-
hjálp. Öll grunnstarfsemi haldi áfram í Eyjum
en einhver skerðing gæri orðið á þjónustu.
Valbjörn Steingrímsson segir að Heilbrigð-
isstofnunin á Blönduósi geti ágætlega vel við un-
að, með 4,9% niðurskurð í stað 11% eins og til
stóð. Enn minna þurfi að skera niður árið eftir.
„Það er alltaf erfitt að draga saman og spara en
þetta verður að teljast ásættanlegt gagnvart
okkur,“ segir Valbjörn.
Forstjórar miskátir með niðurskurðinn
Endurskoðaður niðurskurður framlaga til heilbrigðisstofnana fellur ekki alls staðar vel í kramið
Niðurskurður á sumum stofnunum allt að 40% á fjórum árum Útlit fyrir uppsagnir víða um land
Mismikill niðurskurður
» 12% niðurskurður á framlögum til
sjúkrastofnana á Sauðárkróki og Húsa-
vík á næsta ári og jafnvel 13% árið 2012.
» 6,6% niðurskurður hjá Heilbrigð-
isstofnuninni í Vestmannaeyjum árið
2011 og 2,4% árið 2012.
» 4,9% niðurskurður á Blönduósi á
næsta ári og um 2% árið 2012.
» Þessar og fleiri sjúkrastofnanir hafa
orðið að skera niður hjá sér á þessu og
síðasta ári um allt að 20%.
Svonefnd FABLAB stofa verður
formlega opnuð á Sauðárkróki í
dag í tilefni af vígslu á nýju verk-
námshúsi Fjölbrautaskóla Norður-
lands vestra, FNV. Um er að ræða
nokkurs konar hátæknismíðastofu
með einföldum stýribúnaði sem
gerir fólki á öllum aldri og með lág-
marks tækniþekkingu kleift að
hanna og smíða eigin frumgerðir.
Hugmyndafræði FABLAB er að
færa hátæknilausnir í iðnaði og
hönnun til einstaklinga og smáfyr-
irtækja þannig að þau geti á ein-
faldan hátt komið hugmyndum sín-
um um iðnframleiðslu í
framkvæmd. Verður stofan nýtt til
kennslu í FNV og grunnskólum, en
einnig opin fyrir alla þá sem vilja
nýta sér stafræna tækni við fram-
leiðslu og listsköpun. Stofan er
samstarfsverkefni FNV, Há-
tækniseturs Íslands ses, Nýsköp-
unarmiðstöðvar Íslands, Skaga-
fjarðarhraðlestarinnar og
Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Hátæknismíðastofa opnuð á Sauðárkróki
Menntaáætlun Nordplus
Norrænir styrkir til nágrannasamstarfs
Kynningarráðstefna á Hótel Sögu,
salnum Stanford, 2 hæð
(inngangur Guðbrandsgötu)
10. desember 2010, frá kl. 13:00 - 16:00
Dagskrá
12:30-13:00 Skráning, afhending ráðstefnugagna
13:00-13:05 Setning: Karitas Kvaran, forstöðumaður
Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins/
Landsskrifstofu Nordplus.
13:05-13:20 Almenn kynning á menntaáætlun Nordplus:
Guðmundur Ingi Markússon,
verkefnastjóri Nordplus.
13:20-13:35 Kynning á verkefni í Nordplus Horisontal:
Margrét Guðmundsdóttir,
verkefnisstjóri á Hugvísindastofnun H.Í.
13:35-13:45 Aðrir norrænir styrkjamöguleikar
á tengdum sviðum:
Kjartan Due Nielsen, verkefnastjóri norræns
samstarfs hjá Nýsköpunarmiðstöð Íslands.
14:00-15:30 Vinnustofur fyrir undiráætlanir Nordplus:
Junior:
Styrkir leik-, grunn- og framhaldsskólastigið
Voksen:
Styrkir fullorðinsfræðslu og símenntun
Háskólastigið:
Styrkir samvinnu og samstarf háskóla
Sprog og kultur:
Styrkir norræn mál og menningu
Horisontal:
Styrkir sem tengja saman aðrar undiráætlanir
Nordplus
15:30-16:00 Jólaglögg og piparkökur í ráðstefnulok.
Skráning fer fram á www.nordplus.is
Skráningur lýkur 9. desember
Nánari upplýsingar á skráningarsíðu og í síma 525 4311.
Umsóknarfrestur í Nordplus er í byrjun mars á hverju ári.
Alþjóðaskrifstofa Háskólastigsins/Landskrifstofa
Nordplus, Háskólatorgi, 101 Reykjavík