Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 22
22 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Guðni Einarsson gudni@mbl.is Foreldrar munu að öllum líkindum leita réttar síns fyrir dómstólum verði tillögur Mannréttindaráðs Reykjavíkur að reglum um sam- skipti leik- og grunnskóla og frí- stundaheimila við trúar- og lífsskoð- unarfélög samþykktar óbreyttar. Þetta er mat Gísla Jónassonar, prófasts í Reykjavíkurprófastsdæmi eystra, og kemur fram í athuga- semdum sem hann sendi borgar- fulltrúum. Hann telur tillöguna mis- muna borgarbúum og ganga gegn jafnræðisreglu stjórnarskrár og ákvæðum ýmissa mannréttindasátt- mála sem Ísland á aðild að. „Ég hef hitt bæði foreldra og skólafólk sem er mjög óánægt með þessar tilllögur,“ sagði Gísli. Hann kvaðst hafa fengið ýmsa sérfræð- inga, m.a. hæstaréttarlögmenn og mannréttindasérfræðinga, til að lesa athugasemdirnar yfir. Mannréttindahugtak misnotað „Fólk sem er mjög vel heima í mannréttindaumræðunni hefur sagt við mig að það sé verið að misnota mannréttindahugtakið í þessu plaggi Mannréttindaráðs,“ sagði Gísli. Hann kvaðst ekki vera á móti setn- ingu skýrra reglna um samskipti skóla og kirkna. „Ég vil að slíkar reglur séu sanngjarnar og eðlilegar og að þær taki tillit til allra foreldra og allra barna án tillits til trúaraf- stöðu, bæði þeirra sem vilja trú og hinna sem vilja ekki trúa en það er auðvitað líka ákveðin trúarafstaða.“ Gísli nefndi skýrslu nefndar um þessi mál sem skilaði áliti og tillög- um árið 2007. Hann telur tillögur hennar vel ásættanlegar að því und- anteknu að þar örli þar á þeirri skoð- un að allir geti verið eins. Það sé ekki mögulegt. Þessi skoðun sé svo orðin rauði þráðurinn í fyrirliggjandi til- lögum Mannréttindaráðs. „Hún virðist byggð á þeim rökum, sem eru mikið notuð af vantrúarmönnum, að ef þeir vilja ekki að börn þeirra taki þátt í einhverju þá megi önnur börn það ekki heldur. Annars sé þeirra börnum mismunað og þau höfð út- undan. Þess vegna vilja þeir ekki að börn fari í kirkju því þeir vilja ekki leyfa sínum börnum að fara. Það sem er alvarlegast í þessum tillögum að mínu mati er þöggunar- áráttan. Andinn í þeim er sá sami og Siðmennt og Vantrú hafa haldið á lofti – að ýta öllu sem er trúarlegt út úr hinu opinbera rými. Samkvæmt fyrstu tillögunnni, sem var nær orð- rétt upp úr bréfi Siðmenntar frá 2005, hefði meira að segja verið bannað að syngja þjóðsönginn og hafa þjóðfánann í skólum því þar birtast trúarleg tákn!“ Rétt foreldra ber að virða Gísli sagði að í tillögunum felist til- hneiging til að hafa af börnunum þær forsendur sem þau þurfi til að geta tekið afstöðu. „Hvernig á mað- ur að geta valið sér lífsskoðun ef maður þekkir ekkert til lífsskoð- ana?“ spurði Gísli. „Foreldrar eiga skýlausan rétt á að ala börn sín upp í þeirri lífsskoðun sem þeir aðhyllast. Hinu opinbera ber skylda til að virða rétt foreldra til að tryggja að mennt- un sé í samræmi við trúar- og lífs- skoðanir þeirra.“ Þessu til stuðnings vitnar Gísli m.a. til Mannréttinda- sáttmála Evrópu, Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna og greinar- gerðar með dómi Mannréttindadóm- stóls Evrópu nr. 7442/29. júní 2007. „Mannréttindi eru fyrir alla, þau eru ekki bara til að tryggja rétt minnihluta gagnvart meirihluta heldur að allir hafi sinn rétt,“ sagði Gísli. Hann benti t.d. á að í tillögu Mannréttindaráðs sé gerður grein- armunur á „trúar- og lífsskoðunar- hópum“ og öðrum félögum sem bjóða upp á tómstundastarf. „Þessi skipting stenst ekki. Mann- réttindaráð vill banna alla kynningu í skólum á starfi „trúar- og lífsskoð- unarfélaganna“. Verði kirkjum og trúfélögum bannað að kynna tóm- stundastarf sitt í skólunum þá hlýtur einnig að verða að banna kynningu á starfi íþróttafélaga, skátahreyfing- arinnar og annarra félaga. Einnig fé- laga á borð við Rauða krossinn, Am- nesty og Samtökin ’78. Annað væri brot á jafnræðisreglu stjórnarskrár- innar og ýmsum mannréttinda- ákvæðum – hrein mismunun. „Er það slík dauðhreinsun á sambandi skóla og samfélags sem Mannrétt- indaráð óskar eftir?“ Gísli sagði að stjórn SAMFOKs hafi einmitt gert athugasemd við þetta atriði. SAMFOK telji það ekki stríða gegn mannréttindum eða flokkast undir trúboð að trúar- og lífsskoðunarfélög fái að kynna starf- semi sína á skólatíma með svipuðum hætti og íþróttafélög, skátahreyfing- in og önnur slík félög. Ekki heldur að þessi félög afhendi bækur, bæklinga eða annað slíkt efni. Þetta geti ein- mitt leitt til umræðu um trúmál, leiddrar af foreldrum. Það hljóti að teljast til mannréttinda barna sam- kvæmt 13. og 14. grein Barnasátt- mála Sameinuðu þjóðanna. Borgin kaupi Nýja testamenti Gísli bendir einnig á að verði Gí- deonfélaginu bannað að dreifa Nýja testamentum til 10 ára nemenda í grunnskólum þurfi borgin líklega að kaupa Nýja testamenti handa börn- unum. Hann segir fleiri en einn kennara hafa bent sér á þetta. „Samkvæmt námsskrá er Nýja testamentið meðal kennslugagna. Börnin eiga t.d. að lesa Matteus- arguðspjall og kunna skil á ákveðnum textum og dæmisögum. Hvernig eiga þau að gera það ef þau hafa ekki bókina? Þarna er Mann- réttindaráð farið að blanda sér í innri mál skólans með óviðeigandi hætti. Það er menntamálaráðuneytið sem leggur línurnar um námsskrá. Kenn- ari orðaði það þannig við mig að með þessu væri ráðið að ryðjast inn í skólastofuna og hlutast til um hvern- ig hann kenndi sitt fag.“ Mannréttindaráð vill að stofnanir borgarinnar sem hafa starfandi áfallaráð „tryggi að fagaðilar óbundnir trúar- og lífsskoðunar- félögum“ komi að sálrænum áföllum en ekki prestar eða djáknar frá kirkjum og trúfélögum nema ef „sér- stakar aðstæður“ kalla á það.“ Gísli sagði erfitt að átta sig á því hvað þetta þýðir í raun. „Þýðir það að sálfræðingar megi ekki vinna við áfallahjálp í skólum ef þeir tilheyra kirkju eða trúfélagi? Ég er formaður hópslysanefndar Þjóðkirkjunnar og sem slíkur starfa ég með viðbragðsaðilum á höfuð- borgarsvæðinu og á landsvísu. Sér- fræðingar kirkjunnar á sviði sál- gæslu eru alls staðar hafðir með í ráðum um viðbrögð við áföllum en Mannréttindaráð vill útiloka þá frá skólum borgarinnar. Það horfir framhjá því að prestar og djáknar hafa sérfræðimenntun og reynslu á sviði sálgæslu sem er jafnvel langt umfram reynslu margra annarra sem starfa á þessu sviði. Ef borgin ætlar að útiloka heila starfsstétt, sem er viðurkennd og talin ómissandi á landsvísu, úr sam- starfi um viðbrögð við áföllum í skól- um borgarinnar þá vakna spurning- ar um mismunun og fordóma.“ Telur borgarbúum mismunað  Gísli Jónasson prófastur telur margt athugavert við tillögu Mannréttindaráðs Morgunblaðið/Ernir Réttur „Mannréttindi eru fyrir alla, ekki bara til að tryggja rétt minnihluta gagnvart meirihluta heldur að allir hafi sinn rétt,“ sagði Gísli Jónasson. Séra Gísli Jónasson er prófastur Reykjavíkurprófastsdæmis eystra og sóknarprestur í Breiðholts- kirkju. Reykjavíkurprófastsdæmin eru tvö og er Jón Dalbú Hróbjarts- son prófastur í Reykjavík- urprófastsdæmi vestra. Reykjavíkurprófastsdæmi var stofnað 1940 um leið og presta- köllum var fjölgað í Reykjavík. Það á því 70 ára afmæli á þessu ári. Í Reykjavíkurprófastsdæmi vestra eru 10 söfnuðir og 11 í því eystra. Kirkjurnar eru 20 talsins og eru í Reykjavík, Kópa- vogi og á Sel- tjarnarnesi. Prófastur er fulltrúi biskups og kirkjustjórn- arinnar í pró- fastsdæminu. Hann er formaður héraðsnefndar sem skipuleggur sameiginlegt starf kirkjunnar í umdæminu. Prófastur er fulltrúi biskups REYKAVÍKURPRÓFASTSDÆMI 70 ÁRA 2010 Breiðholtskirkja – Lifið heil www.lyfja.is Jólin eru tími til að gefa. Í Lyfju finnurðu úrval af gjafavöru í pakkana til þeirra sem þér þykir vænst um. Við erum aldrei langt undan. Mundu eftir jólahandbók Lyfju. Kannski er jólagjöfin í Lyfju Lágmúla - Laugavegi - Garðatorgi - Smáralind - Smáratorgi - Setbergi - Borgarnesi - Grundarfirði - Stykkishólmi - Búðardal - Patreksfirði - Ísafirði - Bolungarvík - Blönduósi - Hvammstanga Skagaströnd - Sauðárkróki - Húsavík - Kópaskeri - Raufarhöfn - Þórshöfn - Egilsstöðum - Seyðisfirði - Neskaupstað - Eskifirði - Reyðarfirði - Fáskrúðsfirði - Höfn - Laugarási - Selfossi - Grindavík - Keflavík LYFJA STYÐUR LANDSLIÐ KVENNA Í HANDBOLTA

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.