Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 26
26 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
● IFS greining gerir ráð fyrir því að
Seðlabankinn lækki stýrivexti um 75
punkta í næstu viku. Ef sú spá gengur
eftir verða vextirnir 4,75%. Gangi spáin
eftir verða vextir á viðskiptareikningum
lánastofnana 3,25% og hámarksvextir
á 28 daga innstæðubréfum 4,5%.
„Ein helstu rökin fyrir stýrivaxta-
lækkun í næstu viku eru hversu hratt
verðbólgan hefur hjaðnað. Hún hefur
hjaðnað hraðar en flestir bjuggust við
og er 12 mánaða verðbólga komin niður
í 2,6% í nóvember,“ segir IFS greining.
IFS spáir 75 punkta
lækkun stýrivaxta
Morgunblaðið/Golli
IFS Segir verðbólgu hafa hjaðnað
hraðar en flestir hafi búist við.
Bjarni Ólafsson
bjarni@mbl.is
Túnfiskeldisfyrirtækið Umami
Sustainable Seafood, sem er að
stærstum hluta í eigu Íslendinga,
hefur gengið frá kaupum á mexí-
kóska túnfiskeldisfyrirtækinu Baja
Aquafarms. Kaupverð er ekki gefið
upp, en Óli Steindórsson, stjórn-
arformaður Umami, segir að
„kostnaður við sameininguna [sé]
um þrjátíu milljónir dollara, eða
um þrír og hálfur milljarður
króna“.
Morgunblaðið greindi frá því í
júlí í fyrra þegar Umami, sem þá
hét Lions Gate Lighting Corpora-
tion, hefði keypt þriðjungshlut í
Baja. Er mexíkóska fyrirtækið nú
að öllu komið í eigu Umami. Fyrr-
um eigendur Baja munu eiga um
fimmtán prósent í Umami eftir
sameininguna, en Íslendingar eiga
um 65 prósent í fyrirtækinu.
Þegar sagt var frá kaupsamn-
ingnum í júlí kom fram að Umami
legði um átta milljónir dala í Baja,
auk þess sem eigendur Baja fengju
greiddar tíu milljónir dala úr fyr-
irtækinu auk þess sem þeir fengju
áðurnefndan hlut í Umami.
Hið sameinaða fyrirtæki hefur
nú um 20 prósenta markaðshlut-
deild í sölu á norður-bláugga-
túnfiski í heiminum, en eitt af
framtíðarverkefnum fyrirtækisins
er að finna leið til að geta ræktað
fiskinn frá klaki til slátrunar. Tún-
fiskeldi er nú stundað þannig að
villtur fiskurinn er veiddur lifandi
og alinn um nokkurra ára skeið áð-
ur en honum er slátrað.
Með augun opin fyrir
hugsanlegum kauptækifærum
Óli segir að fyrirtækið sjái fyrir
sér frekari vöxt fyrirtækisins, bæði
ytri og innri vöxt. „Við erum alltaf
með augun opin fyrir hugsanlegum
kauptækifærum og eins og staðan
er núna gætu einhver slík tækifæri
leynst meðal fyrirtækja í kringum
Miðjarðarhafið. Þá erum við einnig
að lengja eldistímann til að fá sem
mest virði úr fisknum, enda er
kvótinn ekki ótakmarkaður.“
Auk Baja á Umami túnfiskeld-
isfyrirtækið Kali Tuna í Króatíu,
en þar fara rannsóknir fyrirtæk-
isins á eldisklaki fram. „Við höfum
reynt að gera þetta með eins ódýr-
um hætti og hægt er og þetta
gengur vel hjá okkur. Undanfarna
mánuði höfum við verið að viða að
okkur tækjum og öðru sem við
þurfum til að halda áfram þegar
klaktíminn byrjar næsta júlí.“
Kaup Umami á Baja frágengin
Morgunblaðið/Golli
Fiskur Túnfiskeldi er vaxandi iðnaður, en í síauknum mæli er túnfiskur
veiddur lifandi og alinn um nokkurra ára skeið í stað þess að slátra honum
strax. Með því er nytin aukin til muna.
Íslenskt fyrirtæki með um fimmtung hlutdeildar á heimsmarkaði með bláuggatúnfisk Kostnaður
við sameininguna í kringum 3,5 milljarðar króna Rannsóknir á klaki halda áfram í Króatíu
Umami
» Umami er japanskt orð yfir
„fimmta bragðið“ sem tunga
mannsins finnur, en erfitt hefur
reynst að finna þýðingu aðra en
„ljúffengt“ (e. savoury).
» Á japönsku þýðir umami
„bragðgott“ og segir Óli Stein-
dórsson að nafnið hafi verið val-
ið til að styðja við markaðs-
setningu á afurðum
fyrirtækisins.
» Umami er í eigu Atlantis Gro-
up, sem á einnig þorskeld-
isfyrirtæki í Noregi og sölu-
miðstöðvar í Ástralíu og Japan.
Höfuðstöðvar Atlantis Group
eru hér á Íslandi.
● Eimskip Flytjandi og Ríkiskaup hafa
skrifað undir rammasaming til tveggja
ára með endurnýjunarákvæðum að
samningstíma loknum. Samningurinn
felur í sér innanlandsflutninga fyrir
ríkisstofnanir um land allt og nær til
allra vöruflutninga innanlands á öllum
áætlunarleiðum Eimskips Flytjanda og
samstarfsaðila Flytjanda. Landflutn-
ingar Samskip voru áður með þennan
samning. Eimskip Flytjandi rekur þjón-
ustunet í flutningum á Íslandi með
þjónustumiðstöðvar í öllum lands-
hlutum og alls 80 afgreiðslustaði. Eimskip Semur við Ríkiskaup.
Eimskip Flytjandi semur við Ríkiskaup
● Ísafoldarprentsmiðja hlaut nýverið vottun norræna umhverfismerkisins
Svansins. Því er búið að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif frá starfsemi
fyrirtækisins svo þau eru undir viðmiðunarkröfum Svansins. Ísafold-
arprentsmiðja er tíunda íslenska fyrirtækið sem hlýtur slíka vottun. Krist-
ín Linda Árnadóttir, forstjóri Umhverfisstofnunar, afhenti leyfið á dög-
unum.
„Við erum ákaflega glöð með að Ísafoldarprentsmiðja sé komin í Svans-
hópinn. Það er afar mikilvægt að fá sem flest fyrirtæki með í þessa vinnu
enda hafa fyrirtæki sem hafa undirgengist Svansvottun lágmarkað áhrif
sín á umhverfið,“ er haft eftir henni í tilkynningu.
Ísafoldarprentsmiðja fær Svaninn
● Verkfræðistofan Mannvit hefur gert
samning um að kortleggja möguleika
á nýtingu endurnýjanlegra orkugjafa í
Serbíu. Mannvit er hluti af hóp fyr-
irtækja, sem leiddur er af spænska
ráðgjafarfyrirtækinu Eptisa, sem mun
vinna verkefnið fyrir námu- og orku-
málaráðuneyti Serbíu.
Sérstök áhersla verður lögð á að
meta möguleika á nýtingu jarðhita í
landinu og einnig verða könnuð tæki-
færi til uppsetningar lífmassaorku-
vera
(CHP) í Serbíu. Verkefnið mun hefj-
ast um miðjan janúar og næstu 18
mánuðina mun Mannvit leiða starfið
við að kortleggja jarðhitasvæði í Serb-
íu og gera í framhaldinu hagkvæmn-
isathuganir fyrir þrjú ákjósanlegustu
svæðin.
Mannvit semur í Serbíu
!"# $% " &'( )* '$*
++,-.
+/0-0,
++,-12
34-,+5
+0-4+
+5-5.1
++1-55
+-2/2
+/5-20
+13-+0
++1-4/
+.4-2.
++,-./
34-,/5
+0-455
+5-/2,
++1-0.
+-2//
+/5-03
+13-53
341-/0.0
++1-2,
+.4-.3
++1-3+
34-125
+0-+33
+5-/.2
++5-2
+-2.+
+//-,1
+12-41