Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 27

Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Deilur Breta og Evrópusambandsins um hvaða ríki eigi að fara með eftirlit með lausafjárstöðu útibúa erlendra bankastofnana hafa ekki endilega áhrif á deilu Íslendinga við Breta um ábyrgð á Icesave-innstæðum í Bret- landi. Er þetta mat Stefáns Más Stefánssonar, lagaprófessors. „Reglurnar voru og eru enn þann- ig að ríkið, þar sem móðurfélag úti- búsins er til húsa, fer með eftirlit með eiginfjárstöðu þess, enda er illmögu- legt að fylgjast með eiginfjárstöðu nema þú hafir aðgang að bókum móðurfélagsins. Það þýðir hins vegar ekki að breska fjármálaeftirlitið hafi ekki haft skyldum að gegna gagnvart Icesave eða öðrum útibúum erlendra bankastofnana þar í landi,“ segir Stefán Már. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins hefur lagt til að eftirlits- skylda með lausafjárstöðu verði flutt frá því landi sem útibúin eru starf- rækt í, og til heimalandsins. Bretar hafa áhyggjur af því að þetta geri þeim ókleift að tryggja hagsmuni innstæðueigenda þegar áföll dynja á, eins og Morgunblaðið hefur áður sagt frá. Þessi afstaða Breta undirstrikar það sem Stefán Már segir um ábyrgð gestgjafaríkis útibús. „Útibú sem starfar í öðru ríki en heimaríki móðurfélags verður að starfa samkvæmt þeim lögum og reglum sem gilda í gestgjafaríkinu. Af þessu leiðir að gestgjafinn verður að hafa eftirlit með útibúinu til að ganga úr skugga um að lögum sé fylgt. Það á jafnt við um Icesave sem önnur útibú erlendra fjármálafyrir- tækja.“ Stefán Már segir einnig að gest- gjafaríki hafi heimild til að grípa inn í ef talið er að starfsemi útibús geti ógnað stöðugleika fjármálakerfis. „Bretar geta því ekki varpað allri ábyrgðinni á því hvernig fór á herðar íslenskra eftirlitsaðila.“ Bretar vilja geta fylgst með lausa- fjárstöðu og tilfærslu fjármuna í er- lendum útibúum sem starfa í landinu. Afstaða framkvæmdastjórnarinnar er aftur á móti sú að eftirlitinu sé best fyrir komið hjá viðeigandi stofn- un í heimalandi fyrirtækisins. Í yfirlýsingu frá Samtökum evr- ópskra bankastofnana segir að í meg- indráttum sé stuðningur við stefnu framkvæmdastjórnarinnar. Það, að svara þurfi til eftirlitsaðila í öllum löndum sem fjármálastofnun starfar í, leiði til óþarflega mikils álags. Hefur ekki áhrif á Icesave-deiluna Bretar og ESB deila um eftirlit með lausafjárstöðu Morgunblaðið/Ómar Icesave Bretar og ESB vilja koma í veg fyrir annað Icesave-klúður. Reginn ehf. dótturfélag Landsbankans hefur falið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans að annast sölu á öllu hlutafé í fasteignafélaginu Reginn A3 ehf. Félagið á 7 fasteignir sem eru að meginhluta leigðar undir smásölureksturá höfuðborgarsvæðinu.Félagið ermeð 24 leigusamninga við 19 leigutaka. Heildarfjöldi útleigðra fermetra er um 7.800. Söluferlið hefst formlega með þessari auglýsingu og er opið öllum áhugasömum fjárfestum sem standast hæfismat og sýnt geta fram á fjárfestingargetu umfram 350 milljónir króna. Unnt er að nálgast allar frekari upplýsingar um söluferlið, félagið og önnur gögn, þar með talið trúnaðaryfirlýsingu og eyðublað fyrir fjárfesta, á vefsíðu Landsbankans, landsbankinn.is, frá klukkan 15.00 þann 23. nóvember 2010. Frestur til að skila inn bindandi tilboðum rennur út klukkan 16.00 mánudaginn 20. desember 2010. Reginn ehf. er sértækt dótturfyrirtæki Landsbankans sem fer með eignarhald bankans á fasteignum eða hlutafé fasteignafélaga sem líklegt er að bankinn eigi um einhvern tíma. Stofnun Regins og starfsemi félagsins er einn þáttur í þeim víðtæku ráðstöfunum sem Landsbankinn beitir við fjárhagslega endurskipulagningu atvinnufyrirtækja. ENN E M M / S ÍA / N M 4 4 4 5 8 N B Ih f. (L an ds ba nk in n) ,k t. 47 10 0 8 -0 28 0 . Fasteignafélagið Reginn A3 ehf. til sölu Framtíðarreikningur — gjöf til framtíðar Þú getur gengið frá innlögn á Framtíðarreikning og nálgast jólabókina í næsta útibúi Arion banka. Þegar keypt er gjafabréf fyrir 4.000 kr. eða meira á Framtíðarreikning barns fylgir bókin Jólasveinarnir 13 með. Gjafabréf á Framtíðarreikning er tilvalin jólagjöf fyrir ættingja og aðra sem vilja gefa jólagjöf sem vex með barninu. www.arionbanki.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.