Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 28

Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Samfylk-ingin held-ur í dag flokksstjórn- arfund þar sem meginumfjöll- unarefni verða tillögur umbótanefndar Samfylkingarinnar og á fundurinn að marka „upp- haf að umfjöllun innan flokksins um tillögur nefndarinnar og meðferð þeirra“, eins og segir í frétt flokksins um fundinn. Segja má að tímabært hafi verið fyrir Samfylk- inguna að hefja umbóta- starf, enda ýmislegt að- finnsluvert í starfsemi flokksins á liðnum árum. Eitt stendur upp úr í því sambandi, en það eru óeðli- leg tengsl flokksins við helstu gerendur í útrásinni og hruninu, einkum for- svarsmenn Baugs og tengdra félaga. Helstu forystumenn flokksins hafa í gegnum tíðina beitt áhrifum sínum til að þessir viðskiptajöfrar gætu farið sínu fram. Al- ræmd er orðin svokölluð Borgarnesræða fyrrver- andi formanns flokksins, þar sem reynt var að gera alla þá tortryggilega sem ekki dönsuðu í takti við þessa auðmenn. Opinber rannsókn á málum þeirra, sem síðar leiddi til sakfell- ingar þrátt fyrir allan fjár- austurinn og undirróð- urinn, fékk ekki einu sinni að vera í friði fyrir forystu Samfylkingarinnar, sem með þessari auðsveipni sinni við auðvaldið tók á sig mikla ábyrgð af þeim hremmingum sem síðar hafa orðið í efnahagslífinu. Núverandi formaður Samfylkingarinnar, sem á fundinum í dag mun fjalla um ábyrgð Samfylking- arinnar í ræðu sinni, tók fullan þátt í baráttunni með Baugi gegn réttvís- inni. Í febrúar 2007 gekk hún erinda auðvaldsins með því að leggja fram fyr- irspurn á Alþingi til dóms- málaráðherra „um kostnað ríkisins við rannsókn og rekstur Baugsmálsins“, þar sem hún hafði meðal annars áhuga á kostnaði við „störf sérsaks saksókn- ara í Baugsmál- inu“. Öruggt má telja að minna væri að gera hjá þeim sérstaka saksóknara sem nú er að störfum ef Sam- fylkingin hefði getað setið á sér og leyft fyrri saka- málum gegn auðjöfrum að hafa sinn gang í dómskerf- inu. Ekki hefði verið verra ef Samfylkingin hefði í öðr- um málum sem tengdust þessari viðskiptablokk, til að mynda í fjölmiðlamálinu svo kallaða, látið vera að ganga sömu erinda. Um þennan erind- isrekstur er tæpast deilt í dag. Jafnvel Össur Skarp- héðinsson, formaður flokksins á þeim tíma sem hluti þessara átakamála gekk yfir, hefur gefið til kynna að um óeðlileg tengsl hafi verið að ræða. Þetta kom fram á Alþingi í apríl síðastliðnum, þar sem Össur svaraði fyrirspurn formanns Framsókn- arflokksins um það hvort þá hörku sem Samfylk- ingin beitti sér af gegn fjöl- miðlalögunum á sínum tíma mætti skýra með tengslum flokksins við Baugsveldið. Össur sagði að þarna væri skýringuna hugsanlega að finna og af- dráttarlausari getur játn- ingin tæpast orðið. Spurningin er hins vegar hvort Samfylkingin í heild sinni og þá ekki síst núver- andi formaður flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, ætla að gera hreint fyrir sínum dyrum í þessu efni. Verður gengist við tengsl- unum við auðvaldið og er- indisreksturinn fyrir það? Verður upplýst nánar um hverjar ástæðurnar eru fyrir því hvernig Samfylk- ingin gekk fram? Verður rætt um það hvort þessi tengsl hafa verið rofin og þá hvenær það gerðist? Þetta er það meginatriði sem hlýtur að verða til um- ræðu á umbótafundi flokksráðs Samfylking- arinnar í dag. Að öðrum kosti getur fundurinn ekki orðið neitt annað en katt- arþvottur í þeim tilgangi að slá ryki í augu almennings. Mun Samfylkingin gera upp tengsl sín og stuðning við Baugsveldið? } Verða aðalatriðin til umræðu í dag? A ðeins eru tæpar þrjár vikur til jóla og ég á eftir að gera allt. Reyndar er flest á áætlun á heimilinu, en það sem ég á að sjá um er sem sagt allt eftir. Það þykja að vísu ekki fréttir í fjölskyldunni og enginn farinn að örvænta (því góðir hlutir gerast hægt, eins og ég tek gjarnan til orða). En ég er afbragðs víti til varnaðar og rétt að upplýsa þjóð mína um stöðu mála. Konan mín er búin að skreyta og baka og gott ef ekki kaupa flestar jólagjafirnar og oft búin að minna mig á að ég sjái einn um jóla- kortin að þessu sinni. „Mundu það!“ Í haust ákváðum við að á aðventunni skyld- um við hafa það huggulegt; sitja síðkvöldin löng við kertaljós og spjalla við dæturnar, lesa góða bók, fá okkur te eða kakó og bragða á undra- góðum smákökum, bæði hér í kotinu og í fjölda heimsókna til vina og vandamanna. Fara svo á jólatónleika og jóla- hlaðborð og labba í bænum í logni og nýfallinni mjöll. Njóta þess að vera til, heitir það á mannamáli. Allt yrði bú- ið. Svo ruddist aðventan skyndilega inn í líf mitt enn einn ganginn án þess að gera boð á undan sér. Konan mín seg- ist að vísu hafa nefnt það, en ég var víst í símanum og tók ekki eftir því. Enn hef ég varla gefið mér tíma til að fá mér tesopa, hvað þá að glugga í bók eða fara í heimsókn. Talaði að vísu við dæturnar um daginn, sem var yndislegt, og stalst í smákökubaukinn, en það má helst ekki fréttast. Árið er eins og vikan; hefst að manni finnst ofan í djúpum dal, smám saman vinnur maður sig upp brekku, er á toppnum í glampandi sól um mitt sumar, en síðan hallar á ný undan fæti. Og sem endranær gleymist hve skrið- þunginn er mikill þegar árin og kílóin færast yfir. Komið er langleiðina niður brekkuna áður en maður veit af. Oft er myrkur og kuldi neðst í dalnum. Að þessu sinni náðum við reyndar fyrr en áður í jólin niður í bílskúr og því hef ég ekki þurft að kvarta. Bros eiginkonunnar og dætranna er að vísu óvenju fallegt og lýsir upp tilveru mína alla daga ársins – og þess vegna heiti ég því á hverjum föstudegi, að taka mig á í næstu viku. En svo er hún búin áður en ég veit af og ég strengi mitt vikulega heit á ný. Hvað um það. Nú heiti ég því að byrja að skrifa jólabréfið strax um eða eftir helgi, þessa eða næstu, að íhuga hvaða mynd af stelpunum ég hafi í kortinu þessi jól, líta í kring- um mig eftir jólagjöf handa þeim öllum og finna jafnvel eina handa sjálfum mér frá Stekkjastaur. Nú skal njóta lífsins fram að hátíðinni miklu. Vinn bara frá níu til fimm og alls ekki um helgar, elda öll kvöld, ryk- suga, skúra og skreyti jólatréð sem ég hegg sjálfur úti í skógi og ber á bakinu alla leið heim. Sko mig! Þetta er allt að koma. En ég er að hugsa um að fresta því að gera efri skápana í eldhúsinu hreina þar til að ári. Ekkert okkar nær hvort sem er nógu hátt upp til að kanna hvort þar sé ryk. skapti@mbl.is Skapti Hallgrímsson Pistill Ha, eru að koma jól? STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon FRÉTTASKÝRING Kjartan Kjartansson kjartan@mbl.is Þ eir hæstaréttar- og hér- aðsdómarar sem ráðnir verða í upphafi næsta árs til þess að létta á fyr- irsjáanlegu álagi á dóms- kerfið vegna fjölda mála sem tengjast efnahagshruninu verða ráðnir á sömu forsendum og almennt gildir um ráðningu dómara hér á landi. Nýlega mælti dómsmálaráðherra fyrir frum- varpi um tímabundna fjölgun dómara en samkvæmt lögum um dómstóla eru dómarar skipaðir ótímabundið í embætti sín. Þá fara nýir dómarar í gegnum sama ráðingarferli og al- mennt gengur og gerist. Í frumvarpinu er lagt til að hæstaréttardómurum, sem nú eru níu, fjölgi um þrjá í tólf frá áramótum og héraðdómurum um fimm í 48 frá 1. mars á næsta ári. Héraðsdómurum var áður fjölgað tímabundið á síðasta ári úr 38 í 43. Þá er kveðið á um að ekki skuli skipað í embætti héraðs- eða hæstaréttardómara, sem losna eftir 1. janúar 2013, fyrr en þess ger- ist þörf til að ná þeirri tölu sem kveðið er á um í núgildandi lögum. Dómarar ráðnir ótímabundið Bryndís Helgdóttir, settur skrif- stofustjóri dóms- og mannréttinda- ráðuneytisins, segir að þó að til standi að fjölgun dómara sé tímabundin þá sé ekki hægt að ráða þá tímabundið, til dæmis til fimm ára. „Þeir eru ráðn- ir eins og venjulega. Eins og ákvæðið er orðað þá verður ekki ráðið í emb- ætti sem losna eftir 1. janúar 2013. Þannig að þegar menn komast á ald- ur og hætta verður ekki ráðið í stað- inn fyrir þá þangað til tala dómara í héraði verður aftur 38 og fjöldi hæstaréttardómara níu,“ segir hún. Að sögn Bryndísar hafa bæði Hæstiréttur og dómstólaráð kallað eftir fjölgun dómara sem sé nauðsyn- leg til að bregðast við fjölgun viða- mikilla mála. Þó að minni málum hafi fækkað fyrir dómstólum þá hafi þungum málum fjölgað mjög. Aukið álag á næstu árum Eftirmál efnahagshrunsins á Ís- landi hafa það í för með sér að álag á dómskerfi landsins mun aukast um- talsvert á næstu mánuðum og árum á meðan greitt er úr fjölda gjaldþrota- skiptamála auk viðamikilla mála frá sérstökum saksóknara. Í at- hugasemdum við frumvarpið er sagt að búist sé við að síðarnefndu málin muni dreifast yfir tímabil fram til árs- ins 2013 til 2014 og væntanlega koma til afgreiðslu í Hæstarétti í lok ársins 2011 eða í byrjun árs 2012. Ágreiningsmálum vegna gjald- þrotaskipta hefur fjölgað gríðarlega á milli ára. Á fyrstu níu mánuðum árs- ins í ár kom 561 nýtt mál af þeim toga til kasta héraðsdómstóla. Á sambæri- legu tímabili árið 2009 voru slík mál 75 en það er einnig margfalt meira en árið áður. Í frumvarpinu um fjölgun dómara kemur fram að fimm hundr- uð málum frá þessu ári sé ólokið. Er talið að mál af þessum toga komi fyrir héraðsdóm af fullum þunga á árinu 2011 og meðferð þeirra standi yfir fram eftir árinu 2012. Á sama tíma hefur öllum öðrum tegundum mála fækkað hjá héraðsdómstólum á milli ára. Auk gjaldþrotaskiptamála og mála frá sérstökum saksókn- ara bætast við réttarhöldin yfir Geir H. Haarde, fyrrv. forsætisráðherra, fyrir landsdómi en fimm hæstarétt- ardómarar eiga sæti í lands- dómi sem mun væntanlega koma saman á næsta ári. Tímabundin lausn en ráðnir ótímabundið Morgunblaðið/Sverrir Nýju dómararnir átta sem ráðnir verða í byrjun næsta árs þurfa að gangast undir sama ráðningar- ferli og aðrir dómarar. Lögum um ráðningar dómara var breytt fyrr á þessu ári. Eftir breytingarnar skipar dómsmálaráðherra nú fimm manna dómnefnd til þess að fjalla um hæfni umsækjenda um embætti hæstaréttar- og héraðs- dómara. Af þeim eru tveir nefnd- armenn tilnefndir af Hæstarétti. Þá er ráðherra óheimilt að skipa mann í embættið sem dóm- nefndin hefur ekki talið hæfast- an umsækjenda. Vilji ráðherra engu að síður gera það þarf sam- þykkt Alþingis fyrir til- lögu hans innan ákveðins tíma. Annars er hann bund- inn af um- sögn nefnd- arinnar. VAL NÝRRA DÓMARA Sama ráðn- ingarferlið

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.