Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 33

Morgunblaðið - 04.12.2010, Síða 33
semsagt búið að stofna deild í sauma- klúbbnum okkar á himnum. Þar eru þær efalaust búnar að fitja upp á ein- hverju skemmtilegu og sauma bót á bót, þær Júlla og Kristrún sem fór á undan. Við viljum minnast Júllu fyrir lífsgleðina og gjallandi hláturinn, kímnigáfuna og síðast en ekki síst, vináttuna. Þó að við höfum á þessum árum flutt út og suður, héldum við alltaf hópinn og reyndum að hittast einu sinni eða tvisvar á ári. Gjarnan var farið í sumarbústað eða út í Breiðafjarðareyjar. Þá þurfti mikið að tala og svo var hlegið og grátið saman. Júlla og Bibba héldu uppá sextugs- afmælin sín í fyrra með okkur í bú- stað í Borgarfirði. Í haust fórum við aftur í Borgarfjörðinn og Júlla lét ekki sitt eftir liggja. Þó hún væri mik- ið veik tók hún fullan þátt í öllu með okkur og sérríið var tekið með glans. Hún gerði sér líka lítið fyrir og faldaði þrjá jóladúka í meðan við hinar gerð- um mest lítið. Þetta var yndisleg helgi og mun lifa í minningunni alla tíð. Við erum samt sem áður ákaflega ólíkar og hittumst oft ekki mikið milli „funda“ en samt þykir okkur svo vænt hverri um aðra og finnum sárt fyrir söknuði og sorg því að nú erum við bara sex eftir. Við og fjölskyldur okkar sendum Hermanni, Rúnari, Dagnýju Ósk, Sigrúnu og barnabörnunum samúð- arkveðjur, því þar er missirinn mest- ur og einnig systkinum hennar, en þar hefur komið stórt skarð í hópinn á stuttum tíma. Guð blessi minningu Júlíönu Kristínar. Bára, Dagbjört, Guðrún Anna, Guðrún Marta, Guðrún Rebekka og Nína. Elsku Júlla, þegar ég hugsa til baka um allar bútasaumsferðirnar okkar sem við fórum í, öll námskeiðin og utanlandsferðina okkar til Birm- ingham vakna margar minningar um hlátur og gleði. Litlu smáu hendurnar þínar að strjúka yfir efnin og velja saman lita- samsetningar sem þú varst snillingur í. Bútasaumsferðin þín á Löngumýri í haust mun ætíð verða mér ofarlega í minni, þrautseigja þín og barátta. Þú varst löngu búin að ákveða að fara þá ✝ Júlíana KristínGestsdóttir fædd- ist hinn 19. júní 1949 í Stykkishólmi. Hún lést á St. Franciskus- spítala í Stykkishólmi hinn 27. nóvember 2010. Foreldrar hennar voru Hólm- fríður Hildimund- ardóttir, f. 15.11. 1911, d. 8.1. 2003, og Gestur Guðmundur Bjarnason, f. 22.5. 1904, d. 15.2. 1970. Systkini Júlíönu eru 1) Kristinn Bjarni, f. 23.11. 1932, d. 8.11. 2009, maki Ingveldur Sigurðardóttir. 2) Ingibjörg, f. 9.2. 1935, d. 1.7. 2010, maki hennar Gísli Birgir Jónsson. 3) Hildimund- ur, f. 9.8. 1936, d. 2.1. 1988, maki Þórhildur Halldórsdóttir. 4) Jónas, Barn Júlíönu og Jóns Sigurðs- sonar, f. 7.4. 1947, d. 8.3. 1969, er Rúnar Örn Jónsson, f. 5.10. 1967, kona hans er Sigrún Þorgeirs- dóttir. Dætur þeirra eru: Kristín Alma og Júlíana Ósk. Fyrir á Rún- ar Guðmund Ragnar og Margeir Inga. Dóttir Júlíönu og Hermanns er Dagný Ósk, f . 26.7. 1972, börn hennar eru Hermann Örn og Mel- korka Líf. Á yngri árum starfaði Júlíana á St. Franciskusspítala í þvottahús- inu. Mestan hluta starfsævi sinnar starfaði hún þó hjá Pósti og síma, en varð að láta af störfum þar 1999 vegna veikinda. Einnig var hún virk í fé- lagsmálum, meðal annars í Kven- félaginu Hringnum og Lions- klúbbnum Hörpu. Hannyrðir áttu hug hennar allan og var hún í hinum ýmsu hann- yrðahópum og síðustu árin var það sérstaklega bútasaumur. Útför Júlíönu fer fram frá Stykk- ishólmskirkju í dag, 4. desember 2010, og hefst athöfnin kl. 14. f. 10.6. 1940, maki El- ín Ólafsdóttir. 5) Ólafía Sigurborg, f. 29.7. 1941, maki Þórður Ársæll Þórð- arson. 6) Hulda, f. 26.9. 1943, maki Kjartan Þorgrímsson sem er látinn. 7) Brynja, f. 25.8. 1945, maki Einar Hall- dórsson sem er lát- inn. 8) Ævar, f. 14.9. 1947, maki Alma Diego. 9) Hrafnhild- ur, f. 7.2. 1952. Árið 1970 giftist Júlíana eftirlif- andi maka sínum, Hermanni Bragasyni, f. 5.9. 1943. Hann er sonur hjónanna Signýjar Þorvalds- dóttur, f. 26.12. 1916, d. 2008, og Braga Jónssonar, f. 26.1. 1914, d. 1993. Elsku Júlla Nú er þrautagöngu þinni lokið og þú búin að fá hvíldina. Eflaust eru margir úr fjölskyld- unni sem taka vel á móti þér þegar yf- ir er komið. Margar stundir höfum við átt sam- an og daglega síðustu ár, alltaf í símasambandi eða hitting hvern dag og oft rætt mikið, en stundum bara setið og hugsað um liðna tíð. Og helst vorum við alltaf með handavinnuna milli handanna, það þótti svo sjálfsagt að sitja ekki auðum höndum og ef ég var löt við það spurðir þú mig alltaf hvort ég væri ekki með eitthvað á prjónunum með mér, svo handavinnutaskan mín fylgdi mér alltaf til þín. Þú varst svo ótrúlega dugleg í bútasaumnum, sem var þitt líf og yndi og stytti þér margar stundir og eignaðist þú góðar vinkonur í gegn- um árin í þeim hópi, enda er mikil handavinna til eftir þig. Þú tókst veikindum þínum með þvílíku æðruleysi að einstakt var að fylgjast með, stóðst í þessum veikind- um um árabil með miklu umburðar- lyndi og búin að undirbúa brottför þína mjög vel. Við þökkum þér allar góðar stundir og eigum öll eftir að sakna þín mikið. Gott er ein með guði að vaka, gráta hljótt og minnast þín, þegar annar ylur dvín, – seiða liðið líf til baka, og láta huggast, systir mín! Við skulum leiðast eilífð alla, – aldrei sigur lífsins dvín. Ég sé þig, elsku systir mín. Gott er þreyttu höfði að halla að hjarta guðs – og minnast þín. (Jóhannes úr Kötlum.) Við biðjum góðan guð að styðja Hemma og börnin þín, hjá þér voru þau alltaf í fyrsta sæti. Hvíldu í friði. Minning þín lifir. Ólafía og Þórður. Við horfðum á ljósmynd sem virtist tilheyra öðrum heimi. Hún sýndi bekk, þakinn snjó og hvítur snjór yfir jörð og gróðri. Það var eins og bekk- urinn biði eftir því að einhver tyllti sér á hann. Okkur fannst bekkurinn hafa verið að bíða eftir Júllu og þegar við fengum fréttirnar um brottför hennar sáum við hana í huganum sitja á einmitt þessum bekk, aftur svo unga og fallega. Stríðið er tapað hjá henni við sjúkdóminn og komið að því að kveðja. En samt erum við vissar um að á einhvern hátt hefur hún sigr- að. Annað væri óréttlátt eftir allan hetjuskapinn undanfarna mánuði og ár. Nokkrar stöllur ákváðu að stofna saumaklúbb árið 1967 og Júlla kom inn í hann fljótlega. Síðan eru liðin 43 ár. Allan þann tíma hefur ekki borið skugga á samheldni, vináttu og tryggð innan þessa hóps sem voru upphaflega átta ungar konur. Svo kom skarð í hópinn – ein fór inn í ei- lífðina og nú er Júlla líka farin. Það er ferð og lést engan stoppa þig af. Barátta þín við þennan illvíga sjúk- dóm er búin að koma öllum á óvart en hann sigraði þig að lokum. Megi guð styrkja Hemma, Rúnar og Dagný og fjölskyldur þeirra í sorg- inni. Ég kveð þig, elsku Júlla mín, með þessu ljóði. Grátið mig ekki, því ég er frjáls, ég fylgi veginum sem Guð lagði fyrir mig. Ég tók Hans hönd, þegar kallið kom, snéri við og yfirgaf allt. Ég gat ekki dvalið lengur, til að hlæja, elska, vinna eða gleðjast. Ókláruð verk mín verða eftir hér, ég fann þennan stað minn síðasta dag. Hafi brottför mín skilið eftir tómarúm, fyllið það með góðum minningum vináttu og gleðistunda, ó, já, ég á eftir að sakna líka. Berið ekki þungar byrðar sorgarinnar. Ég óska ykkur bjartra daga. Líf mitt var fyllt gleðistundum, í samför ástvina og annarra. Kannski virtist dvöl mín hér allt of stutt. En lengið hana ekki með djúpri sorg. Léttið á hjarta ykkar og samgleðjist mér, Guð vildi mig núna og tók móti mér. (Irvin R. Karon.) Þín vinkona, Sigríður H. Bjarkadóttir (Sísa). Þá er komið að kveðjustundinni, elsku Júlla. Aldrei heyrði maður þig kvarta undan veikindunum sem þú barðist svo hetjulega við undanfarin ár. Nokkrum dögum áður en þú kvaddir kom ég til þín og þá léstu bara þokka- lega af þér, þó að þú værir mikið veik og spurðir frétta af strákunum mín- um. Alltaf var þér umhugað um mig og mína fjölskyldu og á ég margar minn- ingar úr æsku á heimili ykkar Hemma. Með þessu fallega ljóði þakka ég þér samfylgdina og hlýjuna. Nú liðin er hin þunga þraut og þreytta brjóstið rótt, þinn andi svífur bjarta braut á bak við dauðans nótt. Ég kveð með þökk, í traustri trú um tilverunnar geim að sál þín örugg svífi nú til sigurlandsins heim. (Ingibjörg Þorbergs.) Elsku Hemmi, Rúnar, Dagný og fjölskyldur, guð styrki ykkur á þess- um erfiða tíma en minningin lifir. Sædís Björk og fjölskylda. Júlíana Kristín Gestsdóttir MINNINGAR 33 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 æsku, snjall og ráðagóður. Hann var alltaf tilbúinn að rétta hjálp- arhönd, styðja og styrkja. Ófáar gjafirnar færði hann mér þegar hann kom heim úr siglingum um heimshöfin og sögur af fjarlægum ævintýraslóðum lýstu hugskotið. Bróðir minn var ævintýraprins í hugum okkar peyjanna, sem þeysti um á mótorfákum, bauð náttúru- öflunum birginn og gerði strand- högg í fjarlægum höfnum. Ekki spillti það fyrir að hann birgði okkur gjarnan upp af skotfærum fyrir gamlárskvöld – kínverjum og sprengjum. Róbert var fagmaður fram í fingurgóma, vel lesinn og síleit- andi. Hann hafði yndi af vélbúnaði og gangverki hvers konar. Undur lífsins var mekanískt harmoní óskiljanlegustu eininga sem í sam- einingu framkölluðu sprengikraft framþróunar og hagsældar. Bróðir minn var fjölskyldumað- ur og barnavinurinn mesti. Hann elskaði að halda í litlar hendur og klappa á litla kolla. Hann naut þess að uppfræða og gleðja. Börn löðuðust sjálfkrafa að honum og nutu þess að hlusta á ævintýrasög- ur, spyrja spurninga og fá svör. Róbert hlífði sér aldrei. Honum féll ekki verk úr hendi og var stöð- ugt að skipuleggja nýja landvinn- inga. Hann naut þess að skoða náttúruna, sigla á báti sínum – veiða fisk eða skjóta fugl. Þá leið honum best er hann gat fært ást- vinum fisk í soðið eða fugl í ofninn. Bróðir minn var Eyjamaður og náttúrubarn sem þekkti æðaslátt úthafsins, jafnt sem stræti stór- borganna. Honum auðnaðist að halda á afabörnunum áður en hann ók inn í sólarlagið. Ég sakna stóra bróður, ævivinar og félaga. Hilmar Þór Hafsteinsson. Hafið bláa, hafið hugann dregur, hvað er bak við ystu sjónarrönd? Þangað liggur beinn og breiður vegur, bíða mín þar æskudraumalönd. Beggja skauta byr bauðst mér aldrei fyrr. Bruna þú nú bátur minn. Svífðu seglum þöndum, svífðu burt frá ströndum. Fyrir stafni haf og himinninn. (Örn Arnarson) Róbert var sjómaður í húð og hár, hafið dró hann til sín í starfi og leik. Hann starfaði sem vél- stjóri og kunni sitt fag. Þegar hann kom heim í frí, fór hann að sinna áhugamálunum sínum. Bátn- um sem hann smíðaði nánast frá grunni, siglingum, veiðum og smíðum. Róbert var uppfinningamaður og eldklár að koma hugmyndum sínum á blað. Síðan var tekið til við að smíða hlutinn og þegar einn hlutur var fullbúinn var hann kom- inn með aðra hugmynd í kollinn. Allt voru þetta nytjahlutir og flest- ir komu að góðum notum í bátnum hans. Veiðar stundaði hann í frítím- anum. Veiddi bæði fisk og fugla. Ég var svo heppin að vera tvisv- ar boðin í svartfuglsveislu heima hjá Hafsteini mínum, syni Ró- berts. Árni Gunnar eldaði fuglinn, sem pabbi hans hafði veitt. Þvílíkt lostæti, ég er ennþá að dásama matinn og hlakkaði til að komast í fleiri svona veislur. Róbert lék á als oddi í veisl- unum og sagði skemmtilegar sög- ur frá fjarlægum stöðum, enda hafði hann siglt og ferðast um víða veröld. Hann var skemmtilegur sögumaður og hafði næman húmor fyrir lífinu og tilverunni. Það er undarlegt til þess að hugsa, að maður eigi ekki eftir að hitta hann aftur, heima hjá Haf- steini, Ellu og litlu krílunum þeirra. Ég vil þakka fyrir samfylgdina og allar skemmtilegar stundir í gegnum árin. Elsku Hafsteinn, Ella, Árni Gunnar, afabörnin og aðrir sem eiga um sárt að binda, fá mínar innilegustu samúðarkveðjur. Birna Guðmundsdóttir. MOSAIK Hamarshöfða 4 - 110 Reykjavík sími 587 1960 - www.mosaik.is Legsteinar og fylgihlutir Vönduð vinna og frágangur Yfir 40 ára reynsla Sendum myndalista ✝ Ástkær faðir minn, tengdafaðir, afi og bróðir, HAUKUR KARLSSON brúarsmiður, áður til heimilis að, Marbakkabraut 9, Kópavogi, lést á hjúkrunarheimilinu Mörk, Suðurlandsbraut, fimmtudaginn 2. desember. Fyrir hönd aðstandenda, Hafdís Hauksdóttir Kjærgaard og fjölskylda hins látna. ✝ Ástkær móðir mín, SIGRÍÐUR MARÍA SIGURÐARDÓTTIR, Stigahlíð 20, Reykjavík, lést miðvikudaginn 24. nóvember. Útför hennar fer fram frá Háteigskirkju miðvikudaginn 8. desember kl. 13.00. Hanna Þórarinsdóttir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.