Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 04.12.2010, Qupperneq 36
✝ Sigurður Sigurð-arson fæddist 30. maí 1944 í Hraun- gerði í Flóa, hann lést í Landspítalanum í Reykjavík 25. nóv- ember 2010. Foreldrar hans voru síra Sigurður Pálsson, sókn- arprestur þar, og húsfreyja hans, frú Stefanía Giss- urardóttir, Systkini: Páll, f. 20.8. 1934, járn- smiður á Seltjarnarnesi; Ólafur, f. 30.5. 1936, fyrrv. fréttamaður í Reykjavík; Ingibjörg, f. 8.4. 1940, hárgreiðslumeistari í North- Carolina í Bandaríkjunum; Ingv- eldur, f. 10.8. 1942, þroskaþjálfi í Reykjavík; Gissur, f. 7.12. 1947, fréttamaður í Reykjavík; Agatha Sesselja, f. 29.9. 1953, d. 15.5. 2007, ljósmóðir á Blönduósi. Sigurður fæddist í Hraungerði í Flóa og ólst þar upp til tólf ára ald- urs og síðan á Selfossi. Hann lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1965, kandídatsprófi í guðfræði frá Háskóla Íslands 1971, meistaraprófi í guðfræði við Princeton Theological Seminary í Bandaríkjunum 1981, stundaði nám í fiðluleik í Tónlistarskóla Ár- frá 1974 og var formaður menn- ingarmálanefndar Sjálfstæð- isflokksins 1991-’94. Hann var staðgengill biskups Íslands frá árinu 2003. Sigurður ritaði bókina Þorlákur helgi og samtíð hans, útg. 1993, og skrifaði fjölda greina og hugvekjur í Kirkjuritið, Morgunblaðið og hér- aðsblöð Sunnlendinga. Síra Sigurður Sigurðarson var sæmdur riddarakrossi Hinnar ís- lenzku fálkaorðu 1994 og Stórridd- arakrossi á kristnihátíðarárinu 2000. Sigurður kvæntist 30.6. 1973 eft- irlifandi eiginkonu sinni, frú Arn- dísi Jónsdóttur, f. 29.12. 1945, skólastjóra Grunnskóla Blá- skógabyggðar. Hún er dóttir Jóns M. Guðmundssonar, bílstjóra á Grund í Garðabæ, og Laufeyjar Árnadóttur húsmóður sem bæði eru látin. Börn Sigurðar og Arndísar eru: Stefanía, f. 21.5. 1974, húsmóðir og hundaræktandi á Stokkseyri, og eru börn hennar Sigurður Edgar, Dagbjört og Sigríður Pála; Jón Magnús, f. 7.11. 1977, hagfræð- ingur, leiðsögumaður og bóndi á Einarsstöðum í Vopnafirði, en eig- inkona hans er Sigurþóra Hauks- dóttir húsmóðir. Fóstursonur Sigurðar og Arndís- ar var Rúnar Kristjánsson, f. 30.10. 1955, d. 31.12. 2000, fangavörður, var kvæntur Ingunni Guðmunds- dóttur og eru börn þeirra Ágústa, Aðalheiður og Sigurður Rúnar. nessýslu og við Tón- listarskólann í Reykjavík 1956-’67 og tók þátt í Clevel- and International Program í Minnesota 1969. Sigurður var sókn- arprestur í Selfos- sprestakalli frá árs- byrjun 1971-1994 og vígslubiskup Skál- holtsstiftis frá 1994 og þar til hann lézt. Sigurður sinnti kennslustörfum um árabil og var stundakennari í kennimannlegri guðfræði við guð- fræðideild Háskóla Íslands 1983-84 og 1989. Þá kenndi hann fiðluleik um skeið. Hann var félagsforingi hjá skátafélaginu Fossbúum á Selfossi, var formaður Prestafélags Suður- lands 1972-’74, sat í stjórn Presta- félags Íslands 1984-’90 og var for- maður þess 1987-’89, sat í fjölda ráða og nefnda á vegum þjóðkirkj- unnar. Sigurður sat í skólanefnd Sand- víkurskólahverfis 1974-’86 og var formaður hennar 1982-’86, var stjórnarformaður Bæjar- og hér- aðsbókasafnsins á Selfossi frá 1986, sat í stjórn Byggða- og lista- safns, sat í yfirkjörstjórn á Selfossi „Guð blessi matinn í Jesú nafni amen“, matarveisla á heimili Sigurðar og Arndísar, „fáið ykkur endilega meira“. Já, þar kenndi ýmissa grasa, þó að lamb úr Reykhólasveit hafi oft- ast verið í aðalhlutverki með íslensk- um kartöflum þá lagði Sigurður til tómata sem hann verkaði í sérstökum legi og urðu alveg ómissandi og var sárt saknað ef framleiðslan lá niðri. Það fór vel um mann í stofunni í veislum hjá þeim hjónum. En fyrst þegar ég hitti tengdafjölskylduna í tvítugsafmæli Dóru, konu minnar og litlu systur Arndísar, sem haldið var í „stofunni“ í Brekkubyggð var ég ekki eins rólegur. Ég labbaði þó inn gólfið með kökudiskinn leitandi að lausu sæti og viti menn þar sat Sigurður, traustur maður sem bauð mér sæti og kynnti sig, fór vel á með okkur og fann ég þá strax á mér að með Grund- arfjölskyldunni myndum við eiga samleið. Sigurður sinnti öllum prests- verkum sem til féllu innan fjölskyld- unnar og í giftingu okkar Dóru lagði hann sig fram um það að hafa ræðuna langa en góða svo hjónabandið myndi endast. Sigurður var mikill fagmaður í sín- um prestsstörfum og fengum við hjónin að njóta ráða og visku sem hann hafði nóg af og fróður var hann um sögu og menningu og virtist sem hann mundi allt sem hann hafði lesið og hafði hæfileika til að skýra það út fyrir öðrum. Eins gat hann verið hug- ulsamur og kom mér t.d. í opna skjöldu er við Dóra vorum nýkomin heim af fæðingardeildinni með Ró- bert og mikið um heimsóknir, þá rétti hann mér pakka og sagði að allir væru að spá í barnið og hvernig móð- irin hefði það en enginn væri að hugsa um hvernig föðurnum liði. Undanfarin ár hafa jólasveinar lagt leið sína á jólaskemmtun í Reykholti, ómissandi þáttur í þeirri ferð var við- koma í Skálholti fyrir jólaball, þar var ýmislegt brallað og t.d. tók Sigurður mynd af þremur jólasveinum í fullum skrúða að matast við stofuborðið en Sigurður bauð okkur bræðrum og elsta syni mínum upp á súpu og fleira góðgæti fyrir átökin á jólaballinu, myndin var síðan notuð á jólakort sem var stílað á Arndísi, þar þökkuðu sveinarnir fyrir sig og báðu að heilsa húsfreyjunni. Í fyrra varð breyting á, við ókum fram hjá afleggjaranum að Skálholti, Sigurður hafði þá nýlega greinst með krabbamein og hóf þá baráttu án taf- ar og naut þess að hafa skömmu áður fest kaup á íbúð í Garðabæ sem kom sér vel í veikindunum. Veikindin tóku á en Sigurður tók þeim af miklu æðruleysi og áttum við margar góðar stundir saman í Garðabænum að koma fyrir bókum og alltaf var boðið tóbak í nefið. Ég vil þakka Sigurði samfylgdina í gegnum árin. Elsku Arndís, Stefanía og börn, Jón Magnús og Sigurþóra, megi trúin á Guð hjálpa ykkur í gegn- um sorgina. Guðbrandur Torfason. Þegar ég var sex ára fluttist ég á Selfoss með elstu systur minni, Arn- dísi og Sigurði, mági mínum, þau ný- gift og voru að hefja búskap saman. Arndís hafði áður haldið heimili með föður okkar ásamt systkinum sínum þar sem móðir okkar lést fjór- um árum áður. Hjá þeim hjónum var gott að alast upp, þar voru agi og regl- ur sem gott er að hafa í uppeldi, auk tækifæra til að stunda tómstundir. Sigurður á hrós skilið fyrir að hafa tekið mig að sér og er ég ævinlega þakklát fyrir það. Foreldrar Sigurðar áttu líka heima á Selfossi og var alltaf gott að fara til þeirra, fá hressingu og bralla ýmislegt. Ferðirnar í Reykhólasveitina eru líka ógleymanlegar. Eftir að ég stofnaði sjálf til fjöl- skyldu reyndist Sigurður okkur afar vel, það var alltaf hægt að fá ráð hjá honum sama hvað á bjátaði. Við átt- um góðar stundir saman í sumarbú- stöðum fyrir austan fjall, borðuðum saman og spjölluðum. Hann hefur verið okkur fjölskyldunni afar mikil- vægur og verður hans sárt saknað. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinirnir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Margs er að minnast, margt er hér að þakka. Guði sé lof fyrir liðna tíð. Margs er að minnast, margs er að sakna. Guð þerri tregatárin stríð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (Vald. Briem.) Elsku Arndís, Stefanía, Sigurður Edgar, Dagbjört og Sigríður Pála, Jón Magnús og Sigurþóra, ég bið al- góðan Guð að styrkja ykkur á þessum erfiðu tímum. Minning Sigurðar er sterk og lifir áfram í hjörtum okkar. Þín mágkona, Dóra. Heima hjá okkur var hann kallaður Siggi. Og seinna „Nafni“ á meðan Sig- urður Rúnar var að vaxa úr grasi. Hann tók pabba okkar í fóstur 11 ára gamlan og hefur alltaf verið hluti af okkar lífi. Pabba fannst hann seint geta þakkað nógu vel fyrir fóstrið. Siggi var lítillátur og fannst það svo sjálfsagt að ekki væri vert að tala um það og vináttan hélst eins og nokkurs- konar ábyrgðarskírteini fyrir uppeld- inu. Það var gaman að þekkja þann sem flestir sáu sem háalvarlegan embætt- ismann en birtist okkur sem góð- hjartaður maður með yndislega kímnigáfu og þægilega nærveru. Hann var skemmtilegur, góður sögu- maður, hermdi eftir og gat sannar- lega fengið okkur til að hlæja. Sjálfur hafði hann dillandi og smitandi hlát- ur. Það var svo gott að koma til þeirra Arndísar, bæði þegar þau bjuggu í Norðurbæ á Selfossi og eftir að þau fluttu upp í Skálholt. Við vorum yf- irleitt hjá þeim á gamlárskvöld á með- an þau bjuggu í Norðurbæ og í minn- ingunni voru það töfrastundir. Það mátti sjá áramótabrennuna hjá Foss- bændum út um stofugluggan og stundum fóru pabbi og Siggi með börnin sín á brennuna, en þeir voru báðir miklir áhugamenn um allt sem fylgir þessum degi. Það kom fyrir að við stelpurnar snerum til baka í sót- svörtum lakkskóm með brunalykt í hárinu, alsælar eftir útiveru með feðr- um okkar sem höfðu, ef eitthvað er, meira gaman af þessu en við. Eftir að Siggi og Arndís fluttu í Skálholt lögð- ust gamlárskvöldssamverurnar af en jólanæturheimsóknir til þeirra í sveit- ina urðu allnokkrar. Það var ekki síð- ur notalegt, heitt súkkulaði, smákök- ur og innihaldsríkar samræður. Vinátta og tryggð Sigga við okkur varð síst minni eftir að pabbi okkar dó fyrir tíu árum. Þau hjónin studdu okkur og hugguðu, verandi í djúpri sorg sjálf, og alla tíð síðan hafa þessi sérstæðu fjölskyldubönd haldist sterk. Við sendum Arndísi, Stefaníu, Jóni Magnúsi og fjölskyldunni allri okkar dýpstu samúðarkveðjur, vitnum í minningarorð Sigga um pabba okkar og „biðjum þess að við megum svo halda minningu Jesú Krists hér á jörðu að við megum neyta hinnar dýr- legu kvöldmáltíðar á himnum. Guð varðveiti okkur sem eftir stöndum í þeirri trú sem stefnir að endurfund- um í þeirri miklu máltíð Drottins.“ Ágústa, Aðalheiður og Sigurður Rúnar Rúnarsbörn Við bræðurnir eigum margar góðar minningar um Sigurð. Flestar þeirra koma úr Skálholti en fyrir unga peyja var það eins og að ganga inn í kastala. Það klikkaði hreinlega aldrei að Sig- urður opnaði fyrir okkur bræðrunum og bauð okkur velkomna inn á heimili sitt með virðulegu handabandi. Alltaf vorum við að uppgötva eitthvað nýtt enda heimilið fullt af fallegum hlutum sem ekki eru sjáanlegir á flestum heimilum. Sigurður og Arndís kunnu svo sannarlega að halda gott matarboð, Arndís sá um eldamennskuna að mestu leyti en á meðan beðið var eftir matnum sagði Sigurður okkur alltaf eitthvað merkilegt enda var hann vel lesinn og mikill viskubrunnur. Það var líka stutt í grínið hjá Sigurði og kom hann manni ávallt í gott skap með leikrænum tilburðum. Ekki verður þó tekið af Sigurði að hann þótti lúmskur kokkur og var hann frægur fyrir súpurnar sínar sem hann bjó til fyrir jólasveinana. Það var sama á hvaða aldri við vorum, hann höfðaði alltaf til okkar. Til að mynda prufaði Torfi, elsti bróðirinn, fyrst neftóbak hjá Sigurði og að sjálfsögðu fylgdi saga um uppruna tóbaksins með. Sigurður hafði einstakt lag á því að segja sögur en maður átti það til að gleyma sér algjörlega í aðstæðum, allt í einu var maður staddur á slóðum skógarbjarna í N-Ameríku en ekki í Skálholti. Við eigum eftir að sakna þess mjög að koma í heimsókn að Skálholti og að fá Sigurð í heimsókn til okkar. Það hefði verið gott að hafa Sigurð lengur hjá okkur enda kvikna alltaf nýjar spurningar með aldrinum sem hann hefði svo auðveldlega getað svarað. En eins og Róbert, yngsti bróðirinn, sagði þá er Sigurður kominn í annað land núna og hlökkum við til að hitta hann þar að nýju. Elsku Arndís og fjölskylda, við biðjum Guð að styrkja ykkur í sorg- inni. Torfi, Jón Arnar og Róbert. „Fyrir afturhvarf og rósemi munuð þér frelsast, í þolinmæði og trausti skal styrkur yðar vera.“ Þessi orð Jesajaritsins koma mér í hug er ég minnist sr. Sigurðar Sigurðarsonar vígslubiskups. Mér finnst ég hafa þekkt sr. Sigurð Sigurðarson jafnlengi og ég man eftir mér. Náin vinátta var með foreldrum okkar og mikill samgangur milli heimilanna, prestsetursins og lækn- isheimilisins, á Selfossi á uppvaxtar- árunum þar. Fjölmenni á báðum stöð- um, átta börn í öðru heimilinu, níu í hinu. Margt af því sem mér þótti ungum dreng einkenna sr. Sigurð Pálsson vígslubiskup hefur mér þótt prýða son hans, sem svo rækilega fetaði í fótspor föður síns. Flest það sem ég tengi helgihaldi og hátíðleika er mót- að af kynnum af þeim hlutum í Sel- fosskirkju og á prestsetrinu handan Öflusárbrúar. Rósemi og trúartraust voru þar einkennandi þættir. Allt fór fram af mikilli yfirvegun og trúarlegri lotn- ingu sem sköpuðu helgi og hátíð og ekki fer hjá því að hangikjötsilmur blandist minningu af prestheimilinu. Gestrisni og góðvild voru þeir vernd- arenglar sem þar réðu húsum. Mér fannst ég alltaf njóta hins gamla vinfengis foreldra okkar er fundum okkar sr. Sigurðar bar sam- an. Í tvígang hitti ég hann í erfi- drykkju í sumar og sátum við þá hlið við hlið og áttum tal saman. Afar hlý- legt viðmót og stilling var það sem einkenndi fas hans þá sem endranær, hvort heldur sem rætt var um veik- indi hans eða kirkjunnar mál. Þá hlýt ég að þakka velvild sr. Sig- urðar í garð guðfræði- og trúar- bragðadeildar Háskóla Íslands, en þar hafði hann nokkrum sinnum með höndum stundakennslu í kennimann- legum fræðum og fórst einkar vel úr hendi. Guðfræðiþekking hans var yf- irgripsmikil og traust. Rit hans um Þorklák helga og samtíð hans (1993) ber því vitni og er augljóslega skrifað með það í huga að sem flestir geti not- ið. Í bókinni segir sr. Sigurður: „Stað- festa, trúmennska og kjarkur, um- hyggja fyrir lítilmagnanum, hógværð, sáttfýsi og vandað líferni. Allt eru þetta þættir í fari heilags Þorláks sem enn er vert að minnast og íhuga.“ Mér Sigurður Sigurðarson 36 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 ✝ Elskulegur eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir, afi og langafi, KOLBEINN INGI KRISTINSSON, Háengi 3, Selfossi, sem lést þriðjudaginn 30. nóvember, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju þriðjudaginn 7. desember kl. 13.30. Þorbjörg Sigurðardóttir, Sigurður K. Kolbeinsson, Edda D. Sigurðardóttir, Eva Katrín Sigurðardóttir, Kristján Þór Gunnarsson, Andrea Þorbjörg Sigurðardóttir, Kristín Edda Sigurðardóttir og barnabarnabörn. ✝ Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, BJÖRN E. KRISTJÁNSSON fyrrv. lögregluvarðstjóri, lést miðvikudaginn 1. desember á dvalarheimilinu Hrafnistu í Reykjavík. Jarðarförin fer fram frá Fossvogskapellu föstudaginn 10. desember kl. 15.00. Axel Björnsson, Hrefna Kristmannsdóttir, Aðalheiður Björnsdóttir Jensen, Poul Jensen, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkær móðir mín, tengdamóðir og amma, UNNUR JÓNASDÓTTIR, Sjafnargötu 7, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landakotsspítala miðviku- daginn 1. desember. Útför hennar fer fram frá Hallgrímskirkju föstu- daginn 10. desember kl. 13.00. Fríða Hermannsdóttir, Gunnar Birgisson, Valur Snær Gunnarsson, Unnur Björk Gunnarsdóttir, Elsa Lilja Gunnarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.