Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 38

Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 38
38 MINNINGAR Messur á morgun MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010 AÐVENTKIRKJAN: Aðventkirkjan Reykjavík | Samkoma í dag, laugardag, kl. 11 hefst með biblíufræðslu fyrir alla. Einnig er boðið upp á biblíufræðslu á ensku. Guðsþjónusta kl. 12. Manfred Lemke prédikar. Aðventkirkjan Vestmannaeyjum | Samkoma í dag, laug- ardag, kl. 11. Biblíufræðsla fyrir alla. Guðþjónusta kl. 12. Halldór Magnússon prédikar. Aðventsöfnuðurinn Suðurnesjum | Samkoma í dag, laug- ardag, kl. 11 í Reykjanesbæ hefst með biblíufræðslu. Messa kl. 12. Þóra Jónsdóttir prédikar. Aðventsöfnuðurinn Árnesi | Samkoma á Selfossi í dag, laugardag, kl. 10, hefst með biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 11. Jens Danielsen prédikar. Aðventsöfnuðurinn Hafnarfirði | Samkoma í Loftsalnum í dag, laugardag, hefst með fjölskyldusamkomu kl. 11. Stefán Rafn Stefánsson prédikar. Biblíufræðsla fyrir alla kl. 11.50. Biblíufræðslu á ensku. Samfélag Aðventista Akureyri | Samkoma í Gamla Lundi í dag, laugardag, hefst kl. 11. með biblíufræðslu fyrir alla. Guðsþjónusta kl. 12. AKUREYRARKIRKJA | Guðsþjónusta í kapellu kl. 11. Prestur er sr. Svavar Alfreð Jónsson, félagar úr messu- hópi aðstoða og félagar úr Kór Akureyrarkirkju syngja, org- anisti er Eyþór Ingi Jónsson. Kvöldmessa kl. 20. Prestur er sr. Hildur Eir Bolladóttir, dr. Arnfríður Guðmundsdóttir og listakonan Æja flytja jólahugleiðingu í máli og mynd- um. Eldri barnakór og Stúlknakór Akureyrarkirkju syngja. Jónína Björt Gunnarsdóttir syngur einsöng, Agla Arnars- dóttir, Rún Árnadóttir og Berglind Guðmundsdóttir leika á hljóðfæri. ÁSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Börnin taka þátt í upphafi messunnar, en fara svo í sunnudagaskólann í umsjá Ásdísar djákna og Ægis djáknanema. Sr. Sigurður prédikar og þjónar fyrir altari, kór Áskirkju syngur, org- anisti er Magnús Ragnarsson. Aðventusamkoma kl. 16. Ræðumaður er Ingibjörg Reynisdóttir leikkona og rithöf- undur. Kórsöngur, helgileikir, ljóðalestur. Á eftir bjóða sóknarnefnd Ássóknar og Safnaðarfélag Áskirkju upp veitingar. ÁSSÓKN í Fellum | Jóla-gospel-sveifla fyrir alla aldurs- hópa kl. 11. Tendrað á Betlehemskertinu og Gospelkór- inn syngur. Aðventukvöld kl. 20. Martial Nardeau flautu- leikari, Einar Clausen syngur og kirkjukór Árbæjarkirkju syngur. Helgileikur barna úr Selásskóla. Hátíðarræðu kvöldsins flytur Ragna Árnadóttir fyrrverandi kirkju- málaráðherra. Veitingar á eftir. BESSASTAÐAKIRKJA | Aðventumessa kl. 11. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar fyrir altari og prédikar, Álft- aneskórinn syngur undir stjórn Bjarts Loga Guðnasonar organista. BESSASTAÐASÓKN | Sunnudagaskóli kl. 11 í Brekku- skógum 1. Umsjón hefur Auður S. Arndal ásamt yngri leið- togum. BORGARNESKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11.15. Að- ventusamkoma kl. 20. Kirkjukórinn syngur undir stjórn Steinunnar Árnadóttur organista, Ester Alda Hrafnhild- ardóttir og Hrund Hilmisdóttir leika á þverflautu og klarin- ett. Maren Sól Benediktsdóttir les ljóð. Stefán Einar Stef- ánsson, guðfræðingur og framkvæmdastjóri Hins íslenska biblíufélags flytur hugvekju. Almennur söngur og bænagjörð. Prestur Þorbjörn Hlynur Árnason. BRAUTARHOLTSKIRKJA Kjalarnesi | Fjölskyldumessa kl. 11. Kristín Þórunn og Rannveig Iðunn þjóna, Páll Helga- son og Brynhildur leiða tónlist og söng. BREIÐHOLTSKIRKJA | Messa kl. 11. Prestur sr. Gísli Jón- asson, Gerðubergskórinn syngur, stjórnandi er Kári Frið- riksson. Félagar úr félagsstarfinu í Gerðubergi lesa ritn- ingarlestra og bæn. Sunnudagaskóli á sama tíma. Veitingar á eftir. BÚSTAÐAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Jónas Þór- ir við hljóðfærið ásamt ungum blásturhljóðfæraleikurum. Léttmessa kl. 14. Léttsveit Reykjavíkur syngur undir stjórn Jóhönnu V. Þórhallsdóttur, prestur er sr. Pálmi Matthíasson. Kaffi á eftir. DIGRANESKIRKJA | Messa kl 11. Prestur sr. Magnús Björn Björnsson og Þorvaldur Halldórsson leiðir söng. Sunnudagaskóli á sama tíma í kapellu. Aðventuhátíð ung- lingastarfsins kl. 20 í umsjá æskulýðfelagsins. Prestur sr. Yrsa Þórðardóttir. Kaffi og vöfflur í safnaðarsal til styrktar Hjálparstarfi kirkjunnar. DÓMKIRKJAN | Aðventumessa kl. 11. Móeiður Júníus- dóttir guðfræðingur prédikar, sr. Anna Sigríður Pálsdóttir þjónar fyrir altari. Yngri deild stúlknakórs Reykjavíkur syngur, organisti er Kári Þormar. FELLA- og Hólakirkja | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Prestur sr. Guðmundur Karl Ágústsson, Diljá Sigursveins- dóttir og Daría Rudkova leiða stundina. Meðhjálpari og kirkjuvörður er Kristín Ingólfsdóttir. FRÍKIRKJAN Hafnarfirði | Sunnudagaskóli kl. 11. Bata- messa kl. 17. Vinir í bata leiða stundina. Aðventu- kvöldvaka kl. 20. Ræðumaður sr. Bernharður Guðmunds- son, fyrrv. prestur safnaðarins. Kór og hljómsveit kirkjunnar leiða söng, stjórnandi Örn Arnarson, organisti er Skarphéðinn Þór Hjartarson og bassaleikari Guð- mundur Pálsson. Einsöngvari er Erna Blöndal. FRÍKIRKJAN Reykjavík | Guðsþjónusta og barnastarf kl. 14. Anna Sigríður Helgadóttir tónlistarstjóri og Hilmar Örn Agnarsson organisti leiða tónlistina ásamt kór Fríkirkj- unnar, Bryndís Valbjarnardóttir prédikar og þjónar fyrir alt- ari. Barnastarfið hefst í kirkjunni, en síðan í safn- aðarheimili í fylgd Margrétar Lilju og Ágústu Ebbu. Þau fá dæmisögu dagsins. GARÐAKIRKJA | Aðventumessa kl. 14. Sr. Hans Guðberg Alfreðsson þjónar fyrir altari og prédikar, kór Vídal- ínskirkju syngur undir stjórn Jóhanns Baldvinssonar org- anista. Rúta fer frá Vídalínskirkju kl. 13.30, frá Jónshúsi 13.35, og frá Hleinum 13.40 og til baka að lokinni at- höfn. GLERÁRKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Arna Ýrr Sigurðardóttir þjónar, félagar úr Kór Glerárkirkju leiða söng undir stjórn Valmars Väljaots. Aðventukvöld kl. 20.30. Ræðumaður Jón A. Baldvinsson vígslubiskup, kór Glerárkirkju ásamt æskulýðskór kirkjunnar syngur og leið- ir almennan söng. Ljósaathöfn fermingarbarna í lok stundarinnar. GRAFARVOGSKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11. Sr. Vigfús Þór Árnason prédikar og þjónar fyrir altari, kór Grafarvogs- kirkju syngur og nemendur úr Tónlistarskóla Grafarvogs spila, organisti er Hákon Leifsson. Sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Þór Bjarnason. Umsjón hefur Gunnar Einar Steingrímsson djákni. Borgarholtsskóli Gospelmessa kl. 17. Sr. Guðrún Karls- dóttir prédikar og þjónar fyrir altari, Vox Populi syngur og organisti er Guðlaugur Viktorsson. GRENSÁSKIRKJA | Morgunverður kl. 10. Bænastund kl. 10.15. Barnastarf kl. 11 í umsjá Erlu Rutar. Messa kl. 11. Altarisganga og samskot til Hjálparstarfs kirkjunnar. Messuhópur þjónar. Kirkjukór Grensáskirkju syngur, org- anisti Árni Arinbjarnarson, prestur er sr. Ólafur Jóhanns- son. Molasopi á eftir. Tónleikar Kirkjukórs Grensáskirkju verða sunnud. kl. 17. Flutt verður jóla- og kirkjutónlist. Að- gangur ókeypis. Sjá kirkjan.is/grensaskirkja. Hversdags- messa með Þorvaldi Halldórssyni á fimmtudag kl. 18. GRUND dvalar- og hjúkrunarheimili | Guðsþjónusta kl. 14. Sr. Sveinbjörn Bjarnason messar og söngstjóri er Kjartan Ólafsson. HAFNARFJARÐARKIRKJA | Fjölskylduhátíð kl. 11 í um- sjón eldri og yngri barnakóra kirkjunnar, kórstjóra þeirra og allra leiðtoga sunnudagaskólans. Barn borið til skírn- ar, prestur er sr. Guðbjörg Jóhannesdóttir. Á eftir er boðið upp á jólanammi. HALLGRÍMSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Sr. Petrína Mjöll Jóhannesdóttir prédikar og þjónar fyrir altari ásamt sr. Birgi Ásgeirssyni. Hópur messuþjóna aðstoðar. Kvennakór Háskóla Íslands syngur undir stjórn Margrétar Bóasdóttur, organisti er Björn Steinar Sólbergsson. HÁTEIGSKIRKJA | Messa og barnamessa kl. 11. Páll Ágúst og Anna Bergljót annast barnaguðsþjónustuna. Maríukórinn syngur undir stjórn Bergljótar Björgúlfsdóttur, organisti er Douglas A. Brotchie, prestur Tómas Sveins- son. Aðventuhátíð Bergmáls, líknar og vinafélags kl. 16. Veitingar í safnaðarheimili á eftir. HEILSUSTOFNUN NLFÍ | Guðsþjónusta kl. 20. HJALLAKIRKJA Kópavogi | Messa kl. 11. Barnakór Snæ- landsskóla syngur, stjórnandi Svava Kristín Ingólfsdóttir. Sr. Sigfús Kristjánsson þjónar, organisti er Jón Ólafur Sig- urðsson, félagar úr kór kirkjunnar leiða söng og messus- vör. Sunnudagaskóli kl. 13. Aðventutónleikar Kórs Hjalla- kirkju kl. 20. Aðgangur ókeypis. HJÁLPRÆÐISHERINN Akureyri | Bænastund kl. 16.30 og almenn samkoma kl. 17. HJÁLPRÆÐISHERINN Reykjavík | Samkoma kl. 14. Ræðumaður er Paul William Marti. HVERAGERÐISKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. ÍSLENSKA KIRKJAN í Svíþjóð | Aðventuhátíð í Gautaborg kl. 11. Íslenski kórinn í Gautaborg syngur undir stjórn Kristins Jóhannessonar, BB-kvartettinn syngur og Hljóm- sveit Ingvars, Júlíusar og Róberts leikur. Bergþóra Fanney Einarsdóttir syngur við gítarundirleik, Ann-Marí Guðna- dóttir leikur á þverflautu og orgelleik annast Tuula Jó- hannesson, prestur sr. Ágúst Einarsson. Barnastund með Birnu. Barnahorn og kaffi. ÍSLENSKA Kristskirkjan | Barnastarf kl. 11 í aldurs- skiptum hópum. Fræðsla á sama tíma fyrir fullorðna. Pat- rich, leitogi Yoth With A Mission á Íslandi kennir. Sam- koma kl. 20. Lofgjörð, fyrirbænir, heilög kvöldmáltíð. Friðrik Schram predikar. KAÞÓLSKA Kirkjan: Péturskirkja, Akureyri | Messa kl. 11 og laugardag kl. 18. Þorlákskapella, Reyðarf. | Messa kl. 11 og 19. Virka daga er messa kl. 18. Jósefskirkja, Hafnarfirði | Messa kl. 10.30 og virka daga kl. 18.30 (nema föstudaga). Karmelklaustur, Hafnarfirði | Messa kl. 8.30 og virka daga kl. 8. Barbörukapella, Keflavík | Messa kl. 14. Kristskirkja, Landakoti | Messa kl. 10.30 og á ensku kl. 18. Virka daga er messa kl. 18. Maríukirkja við Raufarsel, Rvk. | Messa kl. 11 og virka daga kl. 18.30. Laugardaga er messa á ensku kl. 18.30. Stykkishólmur | Messa kl. 10 og virka daga kl. 18.30. Ísafjörður | Messa kl. 11. Flateyri | Messa laugardag kl. 18. Bolungarvík | Messa kl. 16. Suðureyri | Messa kl. 19. Riftún í Ölfusi | Messa kl. 16. KÁLFATJARNARKIRKJA Vatnsleysuströnd | Aðventuhátíð kl. 16. Börn og fullorðnir úr sókninni lesa aðventuhugleið- ingar og kór Kálfatjarnarkirkju leiðir sönginn undir stjórn Franks Herlufsens organista, prestur er sr. Kjartan Jóns- son héraðsprestur. KEFLAVÍKURKIRKJA | Fjölskylduguðsþjónusta kl. 11. Systa, Jón Árni og Ester stýra stundinni, ásamt sr. Sigfús B. Ingvasyni og Laufeyju Gísladóttur. Aðventukvöld og minningarstund um Brunann í Skildi kl. 20. Dagný Gísla- dóttir les úr nýútkominni bók sinni um atburðinn. Ein- staklingar sem voru viðstaddir þegar bruninn varð segja frá reynslu sinni. Karlakór Keflavíkur syngur. Arnór Vil- bergsson organisti er við hljóðfærið og prestur er sr. Erla Guðmundsdóttir. KFUM og KFUK | Samkoma kl. 20. Ræðumaður er Ragn- ar Schram. Um tónlist sér hljómsveitin Tilviljun? sem er skipuð ungu fólki. Á eftir selja félagar úr KSS kaffi og sæl- gæti. KÓPAVOGSKIRKJA | Barna- og fjölskyldumessa kl. 11. Skólakór Kársness syngur undir stjórn Þórunnar Björns- dóttur. Sr. Sigurður Arnarson predikar og þjónar fyrir alt- ari. Sunnudagsskólinn verður í kirkjunni í umsjá sr. Sig- urðar og Þóru Marteinsdóttur. KVENNAKIRKJAN | Aðventumessa í Laugarneskirkju kl. 20. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir prédikar, Hildigunnur Ein- arsdóttir syngur einsöng, kór Kvennakirkjunnar leiðir söng við undirleik Aðalheiðar Þorsteinsdóttur. Á eftir verð- ur kaffi í safnaðarheimilinu. LANDSPÍTALI | Guðsþjónusta á Hringbraut kl. 10.30 á stigapalli á 3. hæð. Prestur Sigfinnur Þorleifsson og org- anisti Helgi Bragason. LANGHOLTSKIRKJA | Messa og barnastarf kl. 11. Gra- duale futuri syngur undir stjórn Rósu Jóhannesdóttur. Prestur er sr. Jón Helgi Þórarinsson og organisti Jón Stef- ánsson. Barnastarfið hefst í kirkjunni en síðan fara börn- in í safnaðarheimilið. Kaffisopi. LAUGARNESKIRKJA | Messa og sunnudagaskóli kl. 11. Sr. Bjarni Karlsson þjónar ásamt Gunnari Gunnarssyni organista, kór Laugarneskirkju, sunnudagaskólakenn- urum og hópi messuþjóna. Kaffi. LÁGAFELLSKIRKJA | Aðventukvöld kl. 20. Ræðumaður kvöldsins er Jón Kalman Stefánsson. Fram koma: Hanna Björk Guðjónsdóttir, Stefán Helgi Stefánsson, Inga J. Backman, Greta Salóme Stefánsdóttir, Sveinn Birgisson, Ágústa Dómhildur Karlsdóttir, kirkjukór Lágafellssóknar og Skólakór Varmárskóla undir stjórn Guðmundar Ómars Óskarssonar. Organisti er Arnhildur Valgarðsdóttir, prest- ar verða sr. Ragnheiður Jónsdóttir og sr. Skírnir Garð- arsson. LINDAKIRKJA Kópavogi | Sunnudagaskóli kl. 11. Brúðu- sýningin „Pönnukakan hennar Grýlu“ í flutningi Bernd Ogrodnik. Sætaferðir úr Boðaþingi kl. 10.50. Á eftir verð- ur útgáfuhóf vegna disksins Daginn í dag –sunnudaga- skólinn á dvd. Diskar seldir. Guðsþjónusta kl. 14. Samkór Kópavogs syngur undir stjórn Björns Thorarensen, sr. Guðni Már Harðarson þjónar. NESKIRKJA | Fjölskyldumessa kl. 11. Barna- og stúlkna- kór Neskirkju syngja, stjórnendur Steingrímur Þórhalls- son organisti og Hjálmar Örn Agnarsson. Félagar úr Kór Neskirkju leiða söng, Ísak Toma, framhaldsskólanemi flytur hugleiðingu og sr. Sigurður Árni Þórðarson þjónar fyrir altari. Veitingar á Torginu á eftir. ÓHÁÐI SÖFNUÐURINN | Aðventukvöld – endurkomukvöld kl. 20. Ræðumaður verður Jónína Leósdóttir, kórar Óháða safnaðarins og Orkuveitunnar syngja jólalög ásamt sópransöngkonunni Björgu Þórhallsdóttur sem einnig syngur einsöng. Á eftir býður safnaðarstjórnin upp á veitingar í safnaðarsölum Kirkjubæjar. REYNIVALLAKIRKJA Kjós | Aðventumessa kl. 14. Gunnar Kristjánsson sóknarprestur. SAFNKIRKJAN Árbæjarsafni | Aðventuguðsþjónusta kl. 14. Organisti Sigrún Steingrímsdóttir og prestur er sr. Kristinn Ágúst Friðfinnsson. Börn á öllum aldri eru sér- staklega velkomin. SALT kristið samfélag | Samkoma kl. 17 í safnaðarheim- ili Grensáskirkju. Ræðumaður Guðlaugur Gunnarsson. SELFOSSKIRKJA | Messa kl. 11. Sr. Kristinn Ágúst Frið- finnsson sóknarprestur messar, Eygló Gunnarsdóttir djákni þjónar við athöfnina og kirkjukór Selfosskirkju und- ir stjórn Jörg Sondermanns organista syngur og leiðir söng. Aðventukransinn tendraður. Vænst er þátttöku fermingarbarna og aðstandenda þeirra. SELJAKIRKJA | Barnaguðsþjónusta kl. 11. Almenn guðs- þjónusta kl. 14. Sr. Valgeir Ástráðsson prédikar og þjónar fyrir altari, kór Seljakirkju leiðir safnaðarsöng og organisti er Tómas Guðni Eggertsson. Aðventutónleikar Karlakórs- ins Fóstbræðra kl. 17, stjórnandi er Árni Harðarson og undirleikinn annast Tómas Guðni Eggertsson. Sr. Valgeir Ástráðsson flytur hugvekju. Ókeypis aðgangur. SELTJARNARNESKIRKJA | Guðsþjónusta kl. 11 og sunnudagaskólinn á sama tíma. Ritningarlesari er Stein- unn Einarsdóttir, fv. framhaldsskólakennari. Félagar úr Kammerkór kirkjunnar leiða safnaðarsöng undir stjórn Friðriks Vignis Stefánssonar organista. Æskulýðsfélagið kl. 20. Prestur er sr. Hans Markús Hafsteinsson. Kaffi á eftir. SJÓMANNAHEIMILIÐIÐ Örkin | Samkoma er kl. 17. Veit- ingar á eftir. SKÁLHOLTSDÓMKIRKJA | Messa kl. 11. Sóknarprestur. VEGURINN kirkja fyrir þig | Fjölskyldusamkoma kl. 14. Brauðsbrotning. Aldursskipt barna- og krakkastarf, lofgjörð, prédikun og fyrirbæn. Högni Valsson prédikar. VILLINGAHOLTSKIRKJA í Flóa | Aðventukvöld kl. 20. Ræðumaður er dr. Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar. Söngkór Hraungerðis- og Villingaholts- kirkna syngur og leiðir fjöldasöng undir stjórn Ingimars Pálssonar, organista og kórstjóra, Þóra Gylfadóttir sópr- ansöngkona syngur einsöng. Sr. Kristinn Ágúst Friðfinns- son sóknarprestur flytur hugvekju. Aðventukrans tendr- aður við söng barna úr Flóaskóla. VÍDALÍNSKIRKJA | Aðventustund Hofsstaðaskóla og sunnudagaskóli kl. 11. Sunnudagaskólinn fer með leið- togum sínum, en nemendur 5. bekkjar flytja frumsamin ljóð og sögur. Nemendur skólans flytja jólatónlist og leika á hljóðfæri undir stjórn Unnar Þorgeirsdóttur tónlistar- kennara. Margrét Harðardóttir skólastjóri flytur ávarp, sr. Friðrik J. Hjartar þjónar, organisti er Jóhann Baldvinsson. VÍÐISTAÐAKIRKJA Hafnarfirði | Útvarpsmessa kl. 11. Kór Víðistaðasóknar syngur undir stjórn Arngerðar Maríu Árnadóttur og prestur er. Bragi J. Ingibergsson. Barna- guðsþjónusta kl. 11 í norðursal kirkjunnar. ORÐ DAGSINS: Tein á sólu og tungli. (Lúk. 21) Morgunblaðið/Kristinn Mosfellskirkja. Tilkynningar um messur á aðfangadag, jóladag, annan jóladag og 27. desember verða birtar í Morgunblaðinu 23. desember og þurfa þær að berast í síðasta lagi 17. des- ember.Tilkynningar um messur á gaml- ársdag, 1. og 2. janúar verða birtar 30. des- ember og þurfa þær að berast í síðasta lagi 27. desember. Messur um jól og áramót unni. Þó gerðist það tvisvar á 25 árum og enda þótt áminningin væri í bæði skiptin makleg og réttvís var hún gerð með þeim rómi og fasi að ekki særði. Með fræðibókaláni og gjöfum, gestrisni og viðmóti lét sr. Sigurður organistann ætíð njóta Selfossáranna sem og veitul frú hans, Arndís, sem nú er hugsað hlýtt til. Ráði kirkjutónlistarsmekkur ein- hverju um hversu langt eða skammt verður manna millum í „hinum mörgu híbýlum Föðurins“ eiga þeir sem hér hafa verið nefndir til sögu enn eftir að blanda geði. Glúmur Gylfason. Tign fjallanna bjó í fasi hans, bisk- up af Guðs náð, stríðsmaður kristinn- ar trúar á gæðingi Jesú Krists, svo vel grundaður og gerður gáfum að eng- inn gat att kappi við hann í sjóorust- um lífsgátunnar á því hafi Guðdóms- ins. Riddari Jesú Krists svo grafalvar- legur og glaðbeittur í senn, gat lagt þunga orðsins og alvöru með sama afli og fljótin sunnanlands ryðja klaka- bönd þá leysir, en samt svo kíminn þar sem maður var manns gaman, svo geislaði af gamansemi oft með spurn- ingu en oftar hárbeitt. Hann var fjall en átti samt svo auðvelt með að hverfa inn í landið, sitja með hverjum sem var í stöðu jafningja og sat oft utar- lega sætis svo allir mættu vel við una hvar þeir skipuðu sæti í lífsins sporða- köstum jafnt lygnri móðu. Séra Sigurður Sigurðarson vígslu- biskup í Skálholti er sigldur langt fyr- ir aldur fram. Það er skarð fyrir skildi. Hann var snjall ræðumaður, rökfastur kennimaður og aldrei lagði hann tilviljanir á borð. Hann var sannur og ljúfur sálusorgari. Hann var sagnamaður og ræktaði það bros- lega í anda íslenskrar kímni af bestu gerð. Hann var traustur vinur og trúr köllun sinni í lítillæti sínu og auðmýkt þótt hann semdi aldrei um viðhorf á útsöluprís. Hann var eins og eitt af stórfljótum Suðurlands sem landið allt naut góðs af með virkjun orku hans og atfylgi í jarðvegi kristinnar trúar, ankerisins sem hvorki öldur né eldgos fá haggað. Hávaðalaus en harðskeyttur þar sem við átti með augnaráð bjart, hlýtt og vökult fyrir lausn og létti, æðrulaus með fádæm- um eins og sýndi sig á síðustu miss- erum þegar brim eilífðarinnar skefldi á ból hans. Séra Sigurður var sjálf- stæðismaður fram í fingurgóma, þjóð- ernismaður með djúpa ást til landsins síns sem hann vildi svo vel. Kona hans, Arndís Jónsdóttir skólastjóri, var bjargið hans á langri leið samvista þeirra og fjölskyldu, hnitmiðuð og markviss í orðum til samtíðarinnar, glæsileg kona, glæsi- leg biskupsfrú og bakar þar að auki bestu jólaköku í heimi. Ég naut þeirrar gleði að vinna með séra Sigurði að byggingu Þorláksbúð- ar sem rís nú á rústum gömlu Þor- láksbúðar við kórgafl dómkirkjunnar í Skálholti. Kom einn dag sem oftar í Skálholt og bar upp við séra Sigurð hugmynd um að byggja 300 m² mót- tökusal í þjóðveldisstíl af torfi, grjóti og timbri. Séra Sigurður gekk með mér að rústum Þorláksbúðar, ættaðr- ar frá 12. öld Þorláks biskups helga og hafði á orði að það væri gamall draumur að byggja upp Þorláksbúð. Þá byrjum við á því, sagði ég. Gangan var ekki lengri en það er búið að hlaða Þorláksbúð upp á gömlu rústunum, 35 m² hús, gullmoli í ranni Skálholts og draumur séra Sigurðar og margra annarra mun rætast vonandi á næstu misserum með hjálp Guðs og góðra manna. Megi leiðtogi vígslubiskupsins vernda og styrkja eftirlifandi. Megi Skálholtsbiskup koma fagnandi í hlað Herra síns á himnum með tign ís- lenskra fjalla í fasi sínu, biskup af Guðs náð á gæðingi Jesú Krists. Árni Johnsen.  Fleiri minningargreinar um Sig- urð Sigurðarson bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. Sigurður Sigurðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.