Morgunblaðið - 04.12.2010, Side 52
52 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 2010
Tilkynnt hefur
verið um styrk-
veitingar úr leik-
ritunarsjóðnum
Prologosi. Að
þessu sinni eru
veittir tveir
handritsstyrkir
og þrír styrkir
vegna leik-
smiðjuverkefna.
Alls bárust 65
umsóknir og hafa þær aldrei verið
fleiri – úthlutað er í sjötta sinn.
Leikskáldin sem hljóta styrk eru
Sigurður Pálsson, til að skrifa leik-
ritið Segulsvið, og Friðgeir Ein-
arsson til að skrifa Hreindýr.
Gísli Örn Garðarsson hlaut styrk
til að vinna leiksýningu upp úr ís-
lenskri goðafræði sem ber vinnu-
heitið Goðin. Leikhópurinn Bakaríð
hlaut styrk til að vinna að sviðs-
listaverkefninu Hlustað á efnið, þar
sem rannsakaðir eru möguleikar
myndræns leikhúss, brúðuleikhúss
og hlutaleikhúss. Hópinn skipa þau
Eva Signý Berger, Helga Arnalds,
Högni Sigurþórsson, Karolina Bo-
guslawska, Katerina Fojtikova,
Rene Baker og Sigríður Sunna
Reynisdóttir. Leifur Þór Þorvalds-
son hlaut styrk til að vinna dans-
sýninguna Ubermarionettes.
Styrkir veitt-
ir úr Prolo-
gos-sjóðnum
Sigurður
Pálsson
Á tónleikum Sin-
fóníuhljóm-
sveitar áhuga-
manna í dag,
laugardag, verð-
ur eingöngu leik-
in íslensk tónlist.
Á efnisskránni
eru tilbrigði eftir
Jón Leifs við stef
eftir Beethoven,
Blandaðir dansar
eftir Hildigunni Rúnarsdóttur,
Andante fyrir strengi selestu og
slagverk eftir Magnús Blöndal Jó-
hannssson og Íslenskir rímnad-
ansar eftir Jón Leifs.
Hildigunnur Rúnarsdóttir er með
afkastameiri tónskáldum landsins
en leikur auk þess á fiðlu með Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna og er
konsertmeistari hennar.
Þetta eru aðrir tónleikar 21.
starfsárs hljómsveitarinnar en hún
hefur starfað óslitið frá árinu 1990.
Stjórnandi er Oliver Kentish.
Tónleikarnir verða í Neskirkju
og hefjast klukkan 17.
Tónleikar
hljómsveitar
áhugamanna
Hildigunnur
Rúnarsdóttir
Á nýju starfsári Listvinafélags
Hallgrímskirkju, sem hófst um
síðustu helgi, mun félagið
standa fyrir mánaðarlegum há-
degistónleikum þar sem Björn
Steinar Sólbergsson organisti
mun meðal annars flytja Org-
elbüchlein eftir Johann Sebast-
ian Bach í heild í tengslum við
kirkjuárið.
Í dag, laugardag, klukkan 12
verða fyrstu tónleikarnir í
þessari tónleikaröð og bera þeir yfirskriftina „Að-
venta og jól.“ Þá mun Björn Steinar einnig flytja
þrjá þætti úr annarri orgelsinfóníu Charles-Marie
Widor. Aðgangur er ókeypis en tekið við frjálsum
fjárframlögum.
Tónlist
Björn Steinar með
orgeltónleika
Björn Steinar
Sólbergsson
Kór Neskirkju heldur að-
ventutónleika í kirkjunni á
morgun, sunnudag, klukk-
an 17.
Kjarninn í tónleikum
kórsins að þessu sinni er
Messa í D-dúr eftir Anton-
ín Dvorák en inn í hana er
annars vegar skotið Faðir
vor, í viðeigandi stað í röð messuliðanna, og hins
vegar aðventusálminum Kom þú, kom, vor Imm-
anúel, í mismunandi útfærslum.
Flytjendur auk Kórs Neskirkju eru þau Hall-
veig Rúnarsdóttir sópran, Hildigunnur Ein-
arsdóttir alt, Hlöðver Sigurðsson tenór, Jóhann
Smári Sævarsson bassi og á orgel leikur Kári Þor-
mar. Steingrímur Þórhallsson stjórnar.
Tónlist
Aðventutónleikar
Kórs Neskirkju
Hluti kórs Neskirkju
Stuttir flaututónleikar
verða haldnir í dag, laug-
ardag, klukkan 13, í Sölv-
hóli, húsi Listaháskóla Ís-
lands við Sölvhólsgötu og
horni Klapparstígs. Eru
þeir öllum opnir og
ókeypis inn.
Á tónleikunum koma
fram fjórir pólskir flaut-
unemendur en þeir eru gestkomandi frá tónlist-
arakademíinu í Ponzin í Póllandi. Meðleikari
þeirra er prófessor við sama skóla.
Flautuleikararnir eru nemendur Ewu Mu-
rawska, sem er íslenskum tónlistarheimi að góðu
kunn, en hún hefur starfað við flautukennslu hér
og margsinnis komið hér fram á tónleikum.
Tónlist
Pólskir flautunem-
ar bjóða á tónleika
Flautuleikararnir
Kolbrún Bergþórsdóttir
kolbrun@mbl.is
Sigurður Svavarsson og Guðrún
Magnúsdóttir reka Bókaútgáfuna
Opnu. „Bókaforlagið er ekki orðið
þriggja ára, þannig að þetta er
nokkuð ungt fyrirtæki þótt við eig-
endurnir státum af töluverðri
reynslu,“ segir Sigurður. „Við
ákváðum strax að einbeita okkur að
verkum sem flokkast ekki undir
skáldverk því okkur fannst vera
mest þörf fyrir nýtt afl á þeim hluta
markaðarins. Markhópurinn er fróð-
leiksfúsir fagurkerar. Bækurnar
okkar hafa fengið mjög góðar við-
tökur og unnið til verðlauna og tekið
er eftir því hvað við nostrum við
þær.“
Tímalausir þjóðhættir
Ein þessara bóka er Jöklar á Ís-
landi eftir Helga Björnsson sem
kom út fyrir jólin í fyrra. „Hún hefur
sankað að sér fleiri verðlaunum og
viðurkenningum en dæmi eru um og
við gáfum hana út í nýrri útgáfu á
þessu ári,“ segir Sigurður. „Snemma
á þessu ári gáfum við út bók sem
heitir Blæbrigði vatnsins og er yf-
irlit um vatnslitamálun á Íslandi eft-
ir Aðalstein Ingólfsson. Við gefum
út Íslenska þjóðhætti eftir séra Jón-
as frá Hrafnagili, sem er tímalaus
bók sem ætti að vera til á hverju ein-
asta heimili á Íslandi. Við gefum út
þrjár bækur sem við teljum víkka
heiminn fyrir löndum okkar. Fyrst
má nefna bókina Trú – mannfólkið
andspænis guði sínum, sem byggist
á mikilli ljósmyndavinnu Norð-
mannsins Ken Opprann, en þar er
líka að finna ítarlega umfjöllun um
fimm stærstu trúarbrögð heimsins,
ekki veitir af að eyða fordómum og
efla þekkingu. Við gefum líka út bók
sem heitir Eitt þúsund tungumál og
er menningarsaga tungumálanna í
veröldinni, glæsilega myndskreytt
bók og vönduð í alla staði. Einnig
kemur út heimsreisa meist-
arakokksins Gordon Ramsey, bók
sem heitir Eldað um veröld víða þar
sem Ramsey gerir skil helstu mat-
armenningarhefðum veraldarinnar.“
Falleg afsprengi
Á þessu ári sendir Opna frá sér
bækur á erlendum tungumálum.
„Við gefum út einstaklega glæsilega
bók um Jökulsárlón með myndum
eftir Þorvarð Árnason á þremur
tungumálum auk íslenskunnar,.
Þessi bók hefur vakið mikla athygli,“
segir Sigurður. „Við gáfum líka út á
þessu ári bókartengt efni sem er
einstaklega falleg box með tuttugu
gjafakortum og umslögum sem eru
afsprengi bóka okkar. Þannig er Ice-
box afsprengi jöklabókarinnar
glæsilegu, Erróboxið er afsprengi
bókar sem við gáfum út um myndir
Errós í fyrra og svo er Horsebox
sem er innlit í hestabók sem vænt-
anleg er á næsta ári.“
Glæsilegar bækur fyrir
fróðleiksfúsa fagurkera
Morgunblaðið/Eggert
Sigurður og Guðrún Þau reka Bókaútgáfuna Opnu og einbeita sér að verkum sem flokkast ekki undir skáldverk.
Bókaútgáfan Opna einbeitir sér að útgáfu verka sem flokkast ekki til skáldverka
Selkórinn og Vox Academica sam-
einast í flutningi á hinni frægu ór-
atoríu Messías eftir Georg Friðrik
Handel í tvennum tónleikum í vik-
unni. Óratorían verður flutt í Sel-
tjarnarneskirkju á morgun, sunnu-
dag, kl. 17 og svo aftur í
Guðríðarkirkju í Grafarholti á
miðvikudaginn kemur, 8. desem-
ber, kl. 20.
Kórarnir hófu snemma í haust
æfingar á Messíasi sinn í hvoru
lagi, en þegar meðlimirnir fréttu
af hugmyndum hinna, ákváðu þeir
að sameinast um flutninginn og
flytja verkið saman.
Auk kóranna taka fjórir ein-
söngvarar þátt í flutningnum,
Ágúst Ólafsson bassi, Snorri Wium
tenór, Sesselja Kristjánsdóttir alt
og Hulda Björk Garðarsdóttir
sópran. Tuttugu manna hljómsveit
sér um undirleik og konsertmeist-
ari er Sigrún Eðvaldsdóttir.
Stjórnandi er Jón Karl Einarsson.
Óratorían Messías, eftir Georg
Friðrik Handel, er meðal frægustu
verkum kórbókmennta og eitt
allra vinsælasta verk Handels. Það
náði strax miklum vinsældum sem
það hefur haldið í nær þrjár aldir
og er í hugum marga bundið
jólahátíðinni órjúfanlegum bönd-
um.
Kórar sameinast í Messíasi Handels
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Óratorían æfð Selkórinn og Vox Academica flytja óratoríuna Messías á morgun og á miðvikudag.
Reynir á brýnt erindi
við þjóðina, hann
er svo glaður og með svo
fallega sýn á lífið 54
»
Halldór Björn Runólfsson, for-
stöðumaður Listasafns Íslands,
verður með leiðsögn um sýninguna
„Í nýju ljósi“, yfirlitssýningu á
verkum Karls Kvaran, á morgun,
sunnudag, klukkkan 14.
Karl var meðal helstu forvígis-
manna geómetrískrar abstraklistar
hér á landi og telst meðal helstu
tengiliða franskættaðrar abstrakt-
listar og mínimalískrar tjáningar í
málverkinu.
Sýningin, sem Ásdís Ólafsdóttir
setti saman, hefur hlotið afar góða
dóma.
Segir frá
Karli Kvaran