Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 60

Morgunblaðið - 04.12.2010, Page 60
LAUGARDAGUR 4. DESEMBER 338. DAGUR ÁRSINS 2010 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í LAUSASÖLU 590 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 VEÐUR » 8 www.mbl.is »MEST LESIÐ Á mbl.is 1. 60 þúsund heimili njóta góðs af 2. Skuldir færðar niður í 110% 3. Vaxtakostnaður lækkar um 10% 4. Kitlar að fara úr  Heimildarmynd Ara Alexanders um Yoko Ono og Friðarsúluna verður sýnd í Bíó Paradís þessa einu helgi. Sýningar fara fram kl. 18.20 og 19.20 laugardag og sunnudag. Imagine Peace þessa helgi í Bíó Paradís  Karlakór Reykjavíkur held- ur ferna aðventu- tónleika í Hall- grímskirkju um helgina, tvenna hvorn daginn, kl. 17 og 20. Sveinn Dúa Hjörleifsson tenór syngur ein- söng og félagar úr Drengjakór Reykjavíkur syngja með kórnum en stjórnandi er Friðrik S. Kristinsson. Miðasala fer fram á vef kórsins, kkor.- is, og fyrir tónleika í Hallgrímskirkju. Karlakór Reykjavík- ur í Hallgrímskirkju  Hugbúnaðarhúsið Fancy Pants Global hefur gefið út tölvuleikinn Maximus Musicus fyrir iPhone, iPad og iPod Touch. Leikurinn er byggður á vinsælum barnabókum Hallfríðar Ólafsdóttur og Þórarins Más Baldurssonar um forvitnu og tón- elsku músina Max- ímús Músíkús þar sem hún fræðist um heim tónlistar- innar og hljóð- færanna. Leikjavænn Maxímús Músíkús fer víða FÓLK Í FRÉTTUM VEÐURÍÞRÓTTIR SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomulítið og fer hægt hlýnandi. Norðaustan 3-8 og él nyrðra seinni partinn. Á sunnudag og mánudag Norðlæg átt, 3-10 m/s, hvassast austast. Skýjað með köflum og dálítil él norðaustanlands, en yfirleitt bjart syðra. Hiti 0 til 5 stig á annesjum vest- anlands, en annars 0 til 12 stiga frost, kaldast inn til landsins. Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylf- ingur úr GKG, verður í eldlínunni á lokastigi úrtökumótsins fyrir Evr- ópumótaröðina næstu daga. Birgir á teig klukkan 10:25 í dag en leikið verður á tveimur völlum í Katalóníu þar sem 157 kylfingar berjast um 30 sæti á mótaröðinni. Morgunblaðið er með fréttaskýringu um hvað felst í þátttöku á úrtökumótinu. »2 Lokastig úrtökumótsins hefst hjá Birgi í dag Úrvalsdeildarliðin Haukar, Fjölnir og Grindavík tryggðu sér í gærkvöldi sæti í 8 liða úrslitum Powerade-bikar- keppninnar í körfuknattleik karla. Hamar og KR gerðu slíkt hið sama í kvenna- flokki. Auk þess verður 1. deildarliðið Laugdælir í pottinum þegar dregið verður en liðið vann Ármann í 16 liða úrslitunum í gær- kvöldi, 102:82. » 1 Fjölnir sló ÍR út úr bikarkeppninni Aron Pálmarsson hefur ekki áhyggjur af stöðu mála hjá liði sínu í þýska handboltanum, Kiel, þó að það hafi tapað þremur leikjum und- anfarið. „Ég hef engar áhyggjur af okkar stöðu og ég reikna með því við verðum komnir á toppinn fljót- lega eftir áramót,“ sagði Aron í viðtali við Morgunblaðið. »3 Verðum komnir á topp- inn fljótt eftir áramót Kristján Jónsson kjon@mbl.is Ef kettir væru trúaðir myndu þeir minnast Kattavinafélags Íslands í bænum sínum. Þeir eru ótaldir, bæði rosknir og ráðsettir en ekki síst kettlingar sem fengið hafa húsaskjól í Kattholti þau 19 ár sem heimilið fyrir yfirgefna eða týnda ketti hefur starfað í Reykjavík. Einnig er þar starfrækt gæsla á heimilisköttum sem fá trausta en ódýra hótelvist á meðan eigandinn er í burtu. Jólabasar Kattholts verður um helgina í Stangarhyl 2 á milli kl. 11 og 16 í dag og á morgun verður bas- arinn opinn kl. 13-17. Í dag verður auk þess „opið hús fyrir fólk sem vill ættleiða yndislegar kisur“, eins og segir á heimasíðu heimilisins. Kaffi og vöfflur verða seldar á staðnum og allur ágóði rennur til Kattholts. Sig- ríður Heiðberg, formaður Katta- vinafélagsins, segist vona að margir mæti enda hægt að gera góð kaup á hvers kyns varningi sem velunnarar hafa gefið, merkispjöldum, skrauti, kertum, styttum, úrum og geisla- diskum svo að eitthvað sé nefnt. Hreinlæti og mikið kjass Oft eru um 100 kettir á staðnum og mikið verk að halda öllu hreinu, fóðra, kjassa og hugga. Elín Krist- jánsdóttir er eini starfsmaðurinn í fullu starfi, en fyrir hádegi koma tvær konur sem gera hreint og fóðra. Ein kemur auk þess eftir há- degið svo að ávallt er snyrtilegt á staðnum. Nokkrir áhuga- samir gestir eru í heimsókn þegar blaða- mann ber að garði, þeir velta fyrir sér hver sé heppilegastur til að verða sáttur og malandi fjölskyldu- köttur. En hvað þarf að borga? „Ekkert en fólk verður hins vegar að greiða fyrir örmerkingu og orma- hreinsun og högnar eru geltir, þetta kostar alls 13 þúsund krónur,“ segir Elín. Mikið er hringt í Kattholt og þangað berst líka fjöldi tölvupósta. Nýlega sendi þakklátur við- skiptavinur, Ugla, póst með mynd- um af sér og lýsti reynslu sinni af því að ættleiða unga konu. „Um leið og hún steig inn í her- bergið vissi ég að þarna var góð manneskja á ferð og linnti ég ekki látum fyrr en hún var komin að búrinu mínu og gaf henni stórt knús þegar búrið var opnað. Ég var sko búin að ákveða að ég vildi eiga heima hjá þessari, hún fékk engu um það ráðið!“ En má kisa ættleiða konu?  Kattholt er fyr- ir þá sem hvergi eiga höfði að halla Morgunblaðið/Árni Sæberg Krýnd Elín Kristjánsdóttir, starfsmaður Kattholts í Stangarhyl, með nafnlausa læðu sem fékk heiðurstitilinn Kisa desembermánaðar. Til greina kom að hún fengi nafnið Bangsa sem gæti gert Bangsímon gamla dálítið hissa. Silfraði skógarkötturinn Silfri átti erfiða ævi hjá eigendum sínum áð- ur en hann fékk hæli í Kattholti. Hann fékk aldrei að vera inni, í tvö ár var hann látinn vera úti, dag og nótt, oft í frosti og kulda en hafði búr til að liggja í. Eldri kona í grenndinni gaf honum að vísu að éta en eigendurnir sinntu ekkert gælu- dýrinu sínu. Silfri er sjálfstæður en ósköp blíður og mjög hreinlátur. En hann var subbulegur þegar Elín fékk hann í hendurnar, raka varð allt hár af skottinu til að fjarlægja klepra. Hann var einu sinni sendur á heimili manns sem fékk hann til reynslu. En Silfri var fljótur að sjá að þarna yrði hann aldrei ánægður og tjáði þá skoðun sína með skýr- um hætti: Hann gerði stykki sín í rúm húsbóndans! Silfra var skilað. Skilaboð á sængina SKÓGARKÖTTURINN SILFRI VEIT ALLTAF HVAÐ HANN VILL

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.