Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2010 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir ritstjorn@mbl.is Fréttastjórar Sunna Ósk Logadóttir, sunna@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, sisi@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ívar Páll Jónsson, fréttastjóri, ivarpall@mbl.is Menning menning@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins | Minningar mbl.is/sendagrein, Arnór Ragnarsson Íþróttir sport@mbl.is Víðir Sigurðsson, vs@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Prentun Landsprent ehf. Vegna endurnýjunar á búnaði skjávélahapp- drættis Gullnámunnar er hætt að greiða út vinninga í hundraðkrónupeningum. Happ- drætti Háskóla Íslands skilar þess vegna 30 til 40 milljónum króna í mynt til Landsbankans. Happdrætti Háskóla Íslands er að endurnýja happdrættisvélar Gullnámunnar sem eru í spilasölum og á vínveitingastöðum víðsvegar um landið. Búið er að skipta út 190 elstu vél- unum en alls er Gullnáman með 470 vélar. Bryndís Hrafnkelsdóttir forstjóri segir að leigð hafi verið ný kynslóð happdrættisvéla. Hægt sé að velja um 5-6 leiki á hverri vél, suma í þrí- vídd. Vélarnar bjóða upp á lausnir sem stuðla að ábyrgri spilahegðun en Bryndís segir að ekki hafi verið ákveðið hvenær þær verði inn- leiddar. Nýtt tölukerfi hefur verið tekið í notk- un fyrir allar vélarnar, gamlar sem nýjar. Mesta breytingin fyrir þá sem sjá um spila- kassana er að losna við myntina. Nú er öllum vinningum úthlutað á miðum sem kassinn prentar út. Notandinn getur notað vinninginn til að halda áfram að spila eða fengið hann greiddan út hjá gjaldkera staðarins eða á skrif- stofu Happdrættisins. Áður skiluðu spilakassarnir stórum hluta vinninga í hundraðkrónapeningum með til- heyrandi hljóðum. Notendurnir þurftu að bera þá út í úttroðnum vösum eða plastpokum og nota í viðskiptum eða leggja inn í banka. Starfsmenn Happdrættisins voru í stöðugum förum með fötur fullar af mynt til að fylla á vélarnar. „Þetta er hagkvæmara fyrir okkur og rekstraraðila spilasala og þægilegra fyrir spilarana,“ segir Bryndís Hrafnkelsdóttir, for- stjóri HHÍ. helgi@mbl.is Allri myntinni skilað í banka  Nýjar happdrættisvélar Gullnámunnar greiða út vinninga í miðum  30 til 40 milljónir af hundraðkrónupeningum teknar úr umferð og skilað Morgunblaðið/Kristinn Happdrætti Nýir spilakassar Gullnámunnar bjóða upp á fleiri og fjölbreyttari leiki. Egill Ólafsson egol@mbl.is Ákveðið hefur verið að hið nýja innan- ríkisráðuneyti verði til húsa við Sölv- hólsgötu og að velferðarráðuneytið verði í Hafnarhúsinu. Þessi ráðuneyti taka formlega til starfa um áramót en reiknað er með að það taki nokkra mánuði að ljúka öllum flutningum sem af sameiningunni hljótast. Stefnt er að því að kostnaður við flutningana rúmist innan fjárheimilda ráðuneyt- anna og að ekki þurfi að sækja um aukafjárveitingu vegna flutninganna. Ein af forsendum þess að hægt verði að sameina ráðuneytin er að starfsmenn þessara nýju ráðuneyta starfi undir sama þaki. Innanríkisráðuneytið verður til með sameiningu samgöngu- og sveit- arstjórnarráðuneytis, sem nú er í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, og dóms- og mannréttindaráðuneytis, sem er til húsa í Skuggasundi. Gert er ráð fyrir að innanríkisráðu- neytið verði til húsa við Sölvhólsgötu 7 þar sem nú er Fjársýsla ríkisins í meginhluta hússins og efnahags- og viðskiptaráðuneytið í hluta. Þetta húsnæði er talið henta þeim fjölda starfsmanna sem verða í innanríkis- ráðuneytinu. Velferðarráðuneytið verður til með sameiningu félags- og tryggingaráðu- neytisins, sem er í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu, og heilbrigðisráðuneyt- isins, sem flutti í húsnæði við Veg- múla fyrir sex árum. Hið nýja velferð- arráðuneyti verður í Hafnarhúsinu þar sem félagsmálaráðuneytið og samgönguráðuneytið eru í dag. Fjársýsla ríkisins mun fara upp í Vegmúla í húsnæði heilbrigðisráðu- neytisins. Ákveðið hefur verið að aug- lýsa eftir nýju húsnæði undir Vinnu- málastofnun sem er nú í Hafnarhúsinu og á fleiri stöðum. Reyna að lágmarka kostnað Ragnhildur Arnljótsdóttir, ráðu- neytisstjóri í forsætisráðuneytinu, segir að stefnt sé að því að halda kostnaði við flutninga í lágmarki og húsbúnaður verði ekki fluttur á milli húsa þó að starfsmenn flytji sig. Ekki sé gert ráð fyrir því að sótt verði um aukafjárveitingu heldur eigi kostnað- urinn að rúmast innan fjárheimilda ráðuneytanna. Samkvæmt lögum um sameiningu ráðuneytanna á að bjóða öllum núver- andi starfsmönnum ráðuneytanna áfram vinnu hjá nýju ráðuneytunum. Skipulagi verður hins vegar breytt og t.d. verður skrifstofustjórum fækkað. Stórfelldir flutningar ráðuneyta  Tekur nokkra mánuði að flytja ráðuneytin milli húsa  Kostnaður við flutningana á að rúmast innan fjárheimilda Ný ráðuneyti verða til við sameiningu Vegmúli 3 Skuggasund 3 Sölvhólsgata 7 Hafnarhúsið Í dag: Samgöngu- og sveitarstjórnar- ráðuneyti Í dag: Dóms- og mannréttindaráðuneyti Nýtt: Innanríkis- ráðuneyti verður við Sölvhólsgötu (Sameinast) (Sameinast) Í dag: Heil- brigðisráðuneyti Í dag: Félags- og tryggingaráðuneyti Nýtt: Velferðar- ráðuneyti verður í Hafnarhúsinu Staðsetning í dag Flutningar og/eða sameiningar (Flytur) Í dag: Efnahags- og viðskiptaráðuneyti Í dag: Fjár- sýsla ríkisins (F ly tu r) Í dag: Vinnu- málastofnun (Verið að leita að húsnæði) Nokkrir þing- menn Vinstri grænna hafa sl. daga rætt hug- myndir um að gerðar verði enn frekari breyt- ingar á fjárlaga- frumvarpi ríkis- stjórnar. „Þetta eru skoðanaskipti og engar beinar tillögur eru komnar fram,“ segir Atli Gíslason, þingmað- ur flokksins í Suðurkjördæmi. Verulegar breytingar urðu á fjár- lagafrumvarpinu milli 1. og 2. um- ræðu. Niðurskurður fjárveitinga m.a. til heilbrigðisstofnana var mild- aður en Atla þykir þó ekki nóg að gert. Draga verði betur í land. Hann vill og auka tekjur ríkissjóðs með leigu aflaheimilda í helstu fiskteg- undum sem geti jafnframt bætt stöðu útgerða. Atli segir afstöðu sína nú ekki þurfa að koma á óvart. Hann hafi til að mynda gert skýra grein fyrir hug- myndum sínum þegar atkvæði voru greidd um hvort fjárlagafrumvarpið skyldi fara til þriðju umræðu. Hann vill ekki gefa upp hvaða þingmenn eru með honum í þessum bollalegg- ingum. Minna má þó á að Lilja Mós- esdóttir hefur lýst því yfir að hún styðji ekki fjárlagafrumvarpið eins og það lítur út núna. Stjórnarflokkarnir á Alþingi hafa 35 þingmenn; VG 15 og Samfylkingin 20. Í liði stjórnarandstöðu eru 28, svo að ef fjórir þingmenn úr stjórnarliði hlaupast undan merkjum hefur stjórnin ekki lengur meirihluta fyrir fjárlagafrumvarpinu. sbs@mbl.is Vilja breyta fjárlaga- frumvarpi Miklar bollaleggingar eru í þingflokki VG Atli Gíslason Jólaskógur Skógræktarfélags Reykjavíkur í Hjalladal í Heiðmörk var opn- aður um helgina. Borgarstjórinn Jón Gnarr mætti með fjölskyldu sinni og valdi sér tré til þess að setja upp heima hjá sér, en Jón hjó það sjálfur. Kristján Bjarnason hjá Skógræktarfélaginu segir það vera hefð hjá mörg- um fjölskyldum að velja sjálf sitt tré í Hjalladal og njóta um leið útiveru og jólastemningar í Heiðmörkinni. Morgunblaðið/Kristinn Jólaskógur opnaður í Heiðmörkinni Sýslumaðurinn í Keflavík hefur til- kynnt lokun útibús síns í Grindavík frá 1. mars nk. Íbúar þurfa að rækja erindi sín á skrifstofu sýslu- manns í Keflavík. Tveimur starfs- mönnum embættisins hefur verið sagt upp störfum, að því er fram kemur á vef Grindavíkurbæjar. Tveir starfsmenn Íslandspósts missa vinnuna í janúar þegar póst- húsinu verður lokað og afgreiðslan færð í Landsbankann. Tveimur vinnustöð- um færra í Grindavík

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.