Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 32
MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 347. DAGUR ÁRSINS 2010 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 350 ÁSKRIFT 3990 HELGARÁSKRIFT 2500 PDF Á MBL.IS 2318 1. Vopnað rán á Selfossi 2. Skemmdarvargurinn formaður 3. Með kalsár á suðurpólnum 4. Gomes tryggði Tottenham … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Hin fyndna og sérkennilega, nánast hrollvekjandi, finnska jólamynd Rare Exports er sýnd í Bíó Paradís fyrir há- tíðarnar. Myndin fjallar um uppruna jólasveinsins og hefur vakið mikla at- hygli. Sýnd er finnsk jóla- mynd í Bíó Paradís  Hljómsveitin Mukkaló fer ásamt Júníusi Meyvant í tón- leikaferð um land- ið þar sem komið verður fram í þjóðkirkjum landsins. Hefjast tónleikarnir í Sauðárkrókskirkju á miðvikudaginn klukkan 20.00. Á fimmtudaginn verða þau á Siglufirði og á föstudag- inn á Húsavík. Þjóðkirkjutúr hjá Mukkaló  Í fyrra voru haldnir 75 ára afmæl- istónleikar Ragnars Bjarnasonar í Laugardalshöll. Þeir voru teknir upp og eru nú loksins komnir út á DVD. Á mynd- disknum eru 30 lög sem öll eru fyrir löngu búin að öðlast sess í íslenskri þjóðarsál, lög eins og Kokkur á kútter frá Sandi, Ship ohoj, Óli rokkari og Vor- kvöld í Reykjavík. Afmælistónleikar Ragga Bjarna Á þriðjudag Suðvestanátt, 13-18 m/s norðvestantil, annars víða 8-13. Súld eða rigning, fyrst V-lands, en þurrt á A-landi. Hiti 3 til 10 stig. Á miðvikudag Norðvestan 10-15 og él, en léttir til á S- og V-landi. Frystir um allt land. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjartviðri fyrir norðan og austan, skýjað með köflum en úrkomulít- ið SV- og V-lands. Hiti 0 til 8 stig, en vægt frost í innsveitum á norðaustanverðu landinu. VEÐUR Ármenningar urðu Íslands- meistarar í sveitakeppni í júdó eftir harða keppni um helgina. Þeir þurftu samt að hefja allar viðureignir 0:1 undir, því einn liðsmanna var fastur í sálfræðiprófi og gat ekki mætt til leiks. „Það var smáklúður en ungu mennirnir stóðu sig vel og tryggðu okkur sigurinn,“ sagði Þorvaldur Blöndal, júdómaðurinn reyndi í liði Ármenninga. »8 Meistarar þó einn væri fastur í prófi Eygló Ósk Gústafsdóttir lét flensu ekki hindra sig í því að verða tvöfald- ur Norðurlandameistari í sundi um helgina. Hún sigraði í bæði 800 metra skriðsundi og 200 metra bak- sundi í Kaupmannahöfn. Eygló slær ekki slöku við um jólin og á þá gífurlega erfitt æfinga- prógramm fyrir höndum en hún syndir 24 kíló- metra á dag um hátíðirnar. »1 Flensan stöðvaði ekki Eygló í Kaupmannahöfn Kristinn Jakobsson, milliríkjadómari í knattspyrnu, hefur verið settur dóm- ari á leik Liverpool og Utrecht í Meistaradeild UEFA á miðvikudags- kvöldið og fimm íslenskir dómarar fylgja honum þangað til að taka þátt í verkefninu. Þar á meðal er Ólafur Ingvar Guðfinnsson sem mun enda ferilinn á því að dæma á hinum sögu- fræga velli Anfield. »1 Kristinn dæmir og Ingvar kveður á Anfield ÍÞRÓTTIR Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Í dag er ég í góðum bata enda hef ég mikilvægan stuðning víða að. Þá skiptir ekki síst máli að vera kominn út úr þrúgandi umhverfi stofnana í sjálfstæða búsetu þar sem ég get um frjálst höfuð strokið,“ segir Gunnar Gunnarsson, íbúi í þjónustuíbúðum við Flókagötu í Reykjavík. Algjör straumhvörf Því var fagnað sl. föstudag að átaksverkefnið Straumhvörf er komið í heila höfn, en inntak þess var að koma 160 geðfötluðum ein- staklingum sem dvalist höfuðu á stofnunum í sjálfstæða búsetu eða búsetu með stuðningi. Árið 2006 var átaki þessu ýtt úr vör. Margir hafa komið að verkefninu. Ný hug- myndafræði í málefnum fatlaðra, þar sem virk þátttaka í þjóðfélaginu er höfð að leiðarljósi, hefur rutt sér til rúms og nær allir sem upphaflega stóð til að fengju úrlausn sinna mála eru nú komnir í skjól. Umtals- verðum fjármunum hefur verið ráð- stafað til þessa. Alls 84 þeirra ein- staklinga sem verkefnið nær til búa í Reykjavík. „Ég veiktist af geðhvarfasýki um þrítugt, eða um það leyti sem ég var að ljúka námi. Þetta hafa verið erfið ár og stundum hef ég farið langt nið- ur í þunglyndi. Ég var þrjú ár á Ási í Hveragerði og ámóta langan tíma í lítilli íbúð á Kleppsspítala. Nú eru um tvö ár síðan ég komst í sjálf- stæða búsetu hér við Flókagötuna og hef verið í góðum málum síðan. Í raun hafa orðið straumhvörf í lífi mínu,“ segir Gunnar. Þekki takmörkin Í glímu við geðsjúkdóma segir Gunnar að hverjum manni sé mik- ilvægt að þekkja sín eigin takmörk og haga daglegu lífi samkvæmt þeim. „Ef ég finn til einhverra ónota finnst mér gott að fara út að ganga og þá fer ég daglega í sund. Þá finnst mér einnig ákaflega nærandi fyrir sálina að skoða þær fjölmörgu skemmtilegu sýningar sem eru hér úti á Kjarvalsstöðum enda ekki langt að fara þangað. Regla í öllu líf- erni skiptir einnig miklu máli; að hvílast vel, fá nægan svefn, borða hollan mat, láta máltíðir ekki falla úr og svo framvegis. Allt svona skiptir miklu máli og á þátt í bata mínum,“ segir Gunnar sem er rúmlega sex- tugur að aldri. Síðastliðinn vetur las hann listasögu við Háskóla Íslands en einbeitir sér nú að píanónámi á vegum Fjölmenntar. Það þykir hon- um góð dægradvöl og enginn efast um töframátt tónlistarinnar. Algjör straumhvörf í lífi mínu  160 geðfatlaðir eru komnir í sjálf- stæða búsetu Morgunblaðið/Kristinn Heima Gunnar Gunnarsson er í þjónustuíbúð við Flókagötu. Að losna úr þrúgandi umhverfi stofnana segir hann hafa gert sér afar gott. Einnig sé mikilvægt að stunda daglega hreyfingu og listsýningar séu nærandi fyrir sálina. „Með sjálfstæðri búsetu fá not- endur tækifæri til þess að eignast eigið heimili og öðlast hlutverk í lífinu,“ segir Jóna Rut Guðmunds- dóttir, verkefnisstjóri hjá velferð- arsviði Reykjavíkurborgar. Vegna nýrra áherslna í búsetumálum voru stofnaðir ellefu starfshópar sem ýmsir hagsmunaaðilar koma að og mynda hóparnir nokkurs konar bakland einstaklinga sem búsetuúrræðanna njóta. Segir Jóna Rut þessi vinnubrögð hafa gefist vel. Fyrir tveimur árum hafi að- eins um 30% notenda þjón- ustu fyrir geð- fatlaða tekið virkan þátt í samfélaginu. Nú sé hlutfallið orðið helmingi hærra. Heimili og öðlast hlutverk JÓNA RUT GUÐMUNDSDÓTTIR VERKEFNISSTJÓRI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.