Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 11
Vetur Snjóalög eru eitt af því sem einkennir veturinn á Akureyri. þátt þannig að bókin er sannarlega fjölskylduverkefni. Lena Margrét var „tölvan“ hans Gísla eins og hann segir. Sló inn textann og hafði tölvu- samskipti við alla sem þurfti vegna útgáfunnar. Bókin er tileinkuð Lenu Margréti. Edda Sólveig, dóttir Gísla og Lenu Margrétar, markaðsstjóri Bláa lónsins, var í Háskólanum á Akureyri á sínum tíma og þekkir bæinn því vel. Hún lagði sitt af mörkum, ef svo má segja. „Edda Sólveig var grimmur gagnrýnandi; sá grimmasti reyndar!“ segir Gísli. „Hún tætti bókina í sig þegar langt var komið í ferlinu og lagði til ýmsar breytingar. Það var sársaukafullt en mjög skemmtilegt verkefni.“ Vert er að geta þess að Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Verk- menntaskólans á Akureyri, skrifar formála að bókinni og Pétur Hall- dórsson útvarpsmaður skrifar sögu- legan texta og í þeim kafla eru birt- ar myndir úr safni Hallgríms Einarssonar, hins þekkta ljósmynd- ara á árum áður, en þær eru nú varðveittar á Minjasafninu á Akur- eyri. Önnur sýn Mynd sem Anna Fjóla tók úr lofti af kirkjugarðinum á Akureyri. Skemmtilegt sjónarhorn sem Akureyringar sjá ekki oft sjálfir. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2010 Jólakötturinn er kominn á kreik. Nú eru jól að nálgast, nú á hann leik. Hann skýtur upp stórri kryppu og klærnar brýnir kötturinn sá. Þegar jólin færast nær hann nærsýnn rýnir og nefið rekur á kaf í íbúaskrá og leitar að fórnarlömbum með lúsakömbum, að fólki því sem fær ekki fötin ný að fara í. Enda er hann illa liðinn líka, hjá landsins dætrum og sonum. Þeir sem engum nýjum flíkum flíka fá það hlutskipti að lenda í honum. Jólakötturinn EFTIR ÞÓRARIN ELDJÁRN En hann er ekki allur illur, köttur téður. Nei, hann er ekki allur, ekki allur þar sem hann er séður. Fyrir því má færa rök að hann sé almennt hafður heldur betur fyrir rangri sök: Hann vinnur á kvöldin við að flokka föt, flikka upp á þau og stoppa í göt og kemur þeim í notkun á ný út um borg og bý. Hann á skrá yfir þá sem föt þurfa að fá. Hann þekkir best hvar þörfin er mest. Íslensk fjöll Kærleikskúlan fyrir jólin 2010 er eftir Katrínu Sigurðardóttur. Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra hefur gefið út Kærleikskúlu fyrir hver jól frá því árið 2003. Kúlan er aldrei eins og í hvert sinn er íslenskur lista- maður fenginn til að hanna nýja kúlu. Kærleikskúlan í ár er gerð af Katrínu Sigurðardóttur en hún er með sýn- ingu í Metropolitan safninu um þess- ar mundir. Nýja kúlan hennar Katrín- ar nefnist Fjarlægð og er sett íslenskum fjöllum en þau eru dregin upp af ljósmyndum sem Katrín tók eða safnaði af íslenskum fjöllum á árinu 2010. Kærleikskúlan er seld í 15 daga í desember og sölunni lýkur 18.desem- ber. Tilgangurinn með sölu hennar er að auðga líf fatlaðra barna og ung- menna, en ágóðinn af sölunni rennur til þess að efla starfsemi sumarbúð- anna í Reykjadal. Kærleikskúlan er afhent fyrirmynd eða fyrirmyndum á ári hverju og hlutu Bjöllukórinn og Valgerður Jóns- dóttir stjórnandi hans Kærleikskúl- una í ár. Margir af meðlimum Bjöllu- kórsins hafa verið í sumarbúðunum í Reykjadal. Segja má að Kærleikskúlan sé komin í útrás, því fyrsta kúlan kom út í Færeyjum í fyrra og gefa þeir nú út sína aðra kúlu. Jólakötturinn og ljóð um hann Félagið gefur einnig út óróa fyrir hver jól þar sem íslensk jól eru í aðal- hlutverki. Fyrri ár hafa nokkrir af ís- lensku jólasveinunum verið settir í stál en í ár varð jólakötturinn fyrir valinu hjá hönnuðunum Snæfríði Þor- steins og Hildigunni Gunnarsdóttur. Þórarinn Eldjárn hefur ort nýtt kvæði um kisa sem fylgir með óróanum. khk@mbl.is Jólaórói Íslensk jól eru í aðal- hlutverki í óróanum. Kærleikskúlan og jólakötturinn © 20 10 Ot ic on In c. Al lR ig ht sR es er ve d. Pantaðu tíma í heyrnarmælingu í síma 568 6880 og prófaðu Agil G l æ s i b æ | Á l f h e i m u m 7 4 | 1 0 4 R e y k j a v í k | Þ j ó n u s t a á l a n d s b y g g ð i n n i | S í m i 5 6 8 6 8 8 0 | w w w . h e y r n a r t æ k n i . i s Komdu út úr skelinni... ...og njóttu þess að heyra með Agil heyrnartækjum Áttu í erfiðleikum með að heyra í fjölmenni eða klið? Finnst þér aðrir tala lágt eða óskýrt? Tekur þú sjaldnar þátt í hópumræðum en áður? Allt þetta getur verið merki þess að heyrn þín sé farin að versna. Agil eru byltingarkennd ný heyrnartæki sem hjálpa þér að heyra betur með minni áreynslu. Tölvuörflagan í Agil er helmingi öflugri en áður hefur þekkst en tækin eru samt um helmingi minni en hefðbundin heyrnartæki og búa þar að auki yfir þráðlausri tækni. Ekki draga þig í hlé vegna heyrnarskerðingar. Komdu út úr skelinni og njóttu þess að heyra eins vel og mögulegt er með Agil heyrnartækjum. „Að geta heyrt tónlistina sína aftur eins og hún á að hljóma er lítið kraftaverk - ég heyri aftur söng fuglanna“ Bubbi Morthens  Útnefnt umboðsmann til að sinna sínum málum á vefnum. Þótt margir geti nýtt sér þjónustu á vefnum er ekki hugmyndin að draga úr þjónustu við þá sem ekki geta nýtt sér vefinn. Það græða allir á rafrænni þjónustu, líka þeir sem nota hana ekki. Eftir því sem fleiri afgreiða sig sjálfir því meiri tíma hefur starfsfólk til þess að aðstoða þá, sem ekki geta nýtt sér rafræna þjónustu, Ef ég er búin(n) að týna veflyklinum? Hafi veflykill glatast er auðvelt að panta nýjan á skattur.is. Best er að óska eftir að fá hann sendan í heima- banka. Eins má fá hann í pósti á lög- heimili. Prófaðu, við hjálpum Lífeyrisþegar eru hvattir til að prófa rafrænu þjónustuna. Starfsfólk Tryggingastofnunar og umboða um land allt er til taks ef með þarf. Eins eru þeir sem aðstoða lífeyris- þega hvattir til að skoða kosti þess að aðstoða þá rafrænt. Tryggingastofnun ríkisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.