Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 13.12.2010, Blaðsíða 12
Viðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2010 Bjarni Ólafsson bjarni@mbl.is Umtalsverður fjöldi lána, sem Glitnir veitti íslenskum fyrirtækjum, eða er- lendum fyrirtækjum tengdum Ís- lendingum, var veittur án þess að veð væri fyrir honum. Þá var krafa um veðhlutfall lækkuð í öðrum tilfellum. Í skýrslu, sem unnin var fyrir sér- stakan saksóknara af franska ráð- gjafarfyrirtækinu Cofisys, eru nefnd sem dæmi 41,4 milljóna evra lán til Samskipa árið 2006 og fjögur lán sem veitt voru árið 2007. Þau voru 21 milljónar punda lán til Björgólfs Guð- mundssonar, 50 milljóna evra lána- lína til Existu, 10 milljóna dala lán til Leitars ehf. sem keypti lungann af hlutafé Atlantis Group og 34,6 millj- óna evra lán til Financiére de Kiel SAS, sem er tengt Icelandic Group. Er lögð á það áhersla í skýrslunni að veð séu sérstaklega mikilvæg þeg- ar einstaklingar eða eignarhalds- félög, eins og Exista, Financiére de Kiel eða Leitar, fá lán. Ákvæðum um veð breytt eftir á Þá eru nefnd dæmi þar sem upp- haflegum lánasamningum var breytt á þá lund að veð, sem áður var fyrir láninu, er það ekki lengur eða að veð er lækkað. Eins og gefur að skilja auka slíkar breytingar áhættu bank- ans. Exista fékk árið 2005 lán upp á tvo milljarða króna. Upphaflega hafði Glitnir veð í hlutabréfum í Bakkavör Group og Kaupþingi, en í ágúst 2007 var sú grein lánasamningsins strokuð út og í staðinn sett skilyrði um eig- infjárhlutfall. Geysir Green Energy fékk 12,5 milljarða króna lánalínu í júlí 2008, sem var stækkuð í 17,9 milljarða mánuði síðar. Ákvæði um veð í olíu- fyrirtæki var strokað út úr samn- ingnum í september 2008. Gnúpur fjárfestingarfélag fékk 18 milljarða króna lán í apríl 2007, en lágmarksvirði veðsins var lækkað með breytingu á lánasamningnum í nóvember sama ár. Sérstaka athygli vekur að í skýrsl- unni segir að í þeim tilvikum, sem skoðuð voru af skýrsluhöfundum, sé hvergi að finna dæmi þess að Glitnir hafi gert veðkall hjá skuldara þegar virði veðs var komið undir ákveðin mörk. Annað sem gagnrýnt er í skýrsl- unni er sú framkvæmd Glitnis að lengja í lánum, sem óvissa var með um endurgreiðslu. Segir í skýrslunni að þetta kunni að skýra það hvernig Glitnir gat fært í bækur sínar jafn- mikinn vaxtamun og raun bar vitni. Þetta kemur fram í skýrslu sem ráð- gjafarfyrirtækið Cofisys vann fyrir sérstakan saksóknara. Í skýrslunni segir að með því að lengja í lánum hafi banki og lántak- andi með brögðum komið í veg fyrir að greiðslufall yrði á lánunum. Við greiðslufall hefði bankinn þurft að af- skrifa lánið að hluta og lántakinn hefði lent í alvarlegum vanda sjálfur. Björgólfur Guðmundsson fékk 21 milljónar punda lán hjá Glitni í maí 2007 og átti að greiða það til baka í júlí sama ár. Ítrekað var lengt í lán- inu þar til gjalddagi var kominn á ágúst 2008. Björgólfur varð gjald- þrota árið 2009 og lánið hefur ekki verið greitt. Venjuleg vinnubrögð hjá Glitni við slíka lengingu lána voru að hækka vexti á láninu og/eða að bókfæra gjöld vegna samningagerðar. Þetta leiðir til þess að bókfærðar vaxta- og þjónustutekjur aukast en eru svo af- skrifaðar af því að lántaki getur ekki greitt. Þetta geti að hluta skýrt mik- inn vaxtamun hjá Glitni. Morgunblaðið/Árni Sæberg Útlán Margt er talið aðfinnsluvert varðandi útlánaframkvæmd hjá Glitni fyrir hrun. Lán hafi verið án veða, skil- málum hafi ítrekað verið breytt eftir á og lengt hafi verið í lánum þegar útlit var fyrir greiðsluþrot. Of mörg lán án þess að veð væri fyrir  Framkvæmd útlánastefnu Glitnis er harðlega gagnrýnd Glitnir banki framfylgdi ekki ákvæðum lánasamnings, sem gerð- ur var við Baug Group, en lánið var tryggt með veði í hlutabréfum Baugs í Mosaic Fashions, að því er segir í skýrslunni. Segir þar jafn- framt að svo virðist sem Glitnir hafi tekið þátt í því að halda uppi virði hlutabréfa Mosaic til að blása upp virði veðsins og koma í veg fyrir veðkall. Í október 2005 lánaði Glitnir Baugi um 53,9 milljónir evra gegn veði í áðurnefndum hlutabréfum. Í lánasamningi segir að fari virði veðsins undir 140 prósent af virði lánsins fái Baugur tvær vikur til að auka virði veðsins eða greiða af lán- inu. Ef virði veðsins færi undir 125 prósent hefði Baugur þrjá daga til að koma virðinu aftur upp í 140 prósent. Lánsfjárhæðin hækkaði á sama tíma og hlutabréfaverð Mosa- ic lækkaði og strax árið 2006 var virði veðsins komið í 5,8 milljarða en lánið stóð í 5,3 milljörðum. Hlut- fallið, sem átti samkvæmt samn- ingnum alls ekki að fara undir 120 prósent, var því um mitt ár 2006 komið í 109 prósent. Ekkert veðkall var gert, en bankinn tók hins vegar þátt í yfirtökunni á Mosaic þegar fyrirtækið var afskráð og keypti þrjú prósent af hlutabréfum Mosaic á genginu 17,5. Segir í skýrslunni að svo virðist sem Glitnir hafi lagt sig fram um að koma í veg fyrir virð- islækkun á Mosaic og með brögð- um hjálpað Baugi að viðhalda virði veðsins. Engin veðköll þrátt fyrir tilefni LÁN GLITNIS TIL BAUGS GROUP Lánveitingar til Guðbjarts ehf. og Jakobs Valgeirs ehf., tveggja útgerðarfélaga í eigu Jakobs Valgeirs Flosasonar, eru til umfjöllunar í skýrslu, sem unnin var fyrir sérstakan saksóknara um starfsemi Glitnis fyrir hrun. Frá júlí 2004 til maí 2007 fær Guðbjartur ehf. sam- tals 989 milljónir króna að láni, meðal annars til kaupa á skipum og aflaheimildum, en einnig til að fjármagna yfirdráttarlán. Lánin hafa flest einkenni kúlulána, að því leyti að stærstur hluti lánsins greiðist ekki fyrr en á gjalddaga. Í skýrslunni segir að í ljósi skuldastöðu fyrirtækis- ins árið 2007, einkum þess að tvö yfirdráttarlán voru enn ógreidd, hafi það verið mjög áhættusamt að veita fyrirtækinu þrjú lán á því ári. Samanlögð upphæð lán- anna þriggja var 657 milljónir króna. Þá segir í skýrslunni að í ljósi áhættunnar hafi vextir á lánunum árið 2007 verið töluvert lágir. Voru vextirnir á bilinu 1,5-1,9 prósent ofan á grunnvexti. Hvað varðar Jakob Valgeir ehf. segir í skýrslunni að Glitnir hafi lánað fyrirtækinu 30 milljónir króna til vörukaupa. Lánið var veitt árið 2003 og átti að greið- ast ári síðar. Í viðauka við lánasamninginn, sem gerð- ur er árið 2006, tveimur árum eftir að greiða átti lán- ið, er það framlengt til desember 2007. Engar upplýsingar eru um greiðslu lánsins í bókum Glitnis. Lágir vextir en mikil áhætta Munið að slökkva á kertunum Slökkvilið höfuborgasvæðisins Hafið hæfilegt bil á milli kerta, almenn viðmiðun er að hafa a.m.k. 10 cm bil á milli kerta

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.