Morgunblaðið - 13.12.2010, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. DESEMBER 2010
ódýrt og gott
8 lítrar af Coca- Cola
og 1 DVD mynd
1198kr.
8 lítrarCoca-Cola
og 1 DVD
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Michael Bloomberg, borgarstjóri
New York, hefur tekið af öll tvímæli
um að hann hafi í hyggju að bjóða sig
fram til embættis forseta Bandaríkj-
anna í næstu forsetakosningum sem
fram fara 2012. Fjölmargir stuðn-
ingsmenn hans höfðu hvatt hann til
þess og sögusagnir verið í gangi um
að hann íhugaði jafnvel sjálfstætt
framboð óháð stjórnmálaflokkum en
hann hefur oft gagnrýnt ráðamenn í
Washington.
Bloomberg sagði í samtali við
NBC sjónvarpsstöðina að hann væri
nú þegar í besta starfi í heimi sem
borgarstjóri New York og hann ætl-
aði sér að einbeita sér að því starfi út
yfirstandandi kjörtímabil sem lýkur
2014. Markmiðið væri að fá þau eft-
irmæli að hafa verið „mjög góður
borgarstjóri og ef til vill sá besti frá
upphafi“.
Óhagstætt kosningakerfi
Bloomberg, sem er 68 ára að aldri,
var í Demókrataflokknum banda-
ríska allar götur þar til fyrir nokkr-
um árum er hann gekk til liðs við
repúblikana. Síðan 2008 hefur hann
hins vegar verið utan flokka. Stjórn-
málaskýrendur hafa sagt að hugsan-
lega geri Bloomberg sér einfaldlega
grein fyrir því að kosningakerfið á
landsvísu sé ekki hagstætt sjálfstæð-
um frambjóðendum.
Bloomberg ekki
í forsetaframboð
Segist vera í besta starfi í heiminum
Bresk lögregluyfirvöld íhuga nú m.a. að grípa til þess
að beita öflugum vatnsdælum gegn þeim sem mótmælt
hafa hærri skólagjöldum í Lundúnum að undanförnu.
Það er gert í kjölfar þess að ráðist var á bifreið Karls
Bretaprins og eiginkonu hans Camillu fyrir helgi og að
lögreglumenn hafa orðið fyrir líkamsmeiðingum.
Reuters
Áfram mótmælt í London
Hjörtur J. Guðmundsson
hjorturjg@mbl.is
Sænska öryggislögreglan Säpo hef-
ur tekið við rannsókn sjálfsmorðs-
árásar, sem átti sér stað um helgina
við Drottningargötu í miðborg
Stokkhólms á laugardag, af sænsku
lögreglunni. Á blaðamannafundi
sem fram fór í gær var staðfest að
um sjálfsmorðsárás hefði verið að
ræða og að málið væri rannsakað
sem hryðjuverk.
Um tvær sprengingar var að
ræða, með stuttu millibili. Fyrri
sprengingin varð, að sögn lögreglu, í
kyrrstæðri bifreið sem kútum með
fljótandi gasi hafði verið komið fyrir
í, en sú seinni nokkrum mínútum síð-
ar í um tvö hundruð metra fjarlægð.
Í fyrri sprengingunni slösuðust tveir
vegfarendur og hlutu minniháttar
meiðsli. Í þeirri síðari lést maður
sem talið er að hafi verið tilræðis-
maðurinn en að sögn sjónarvotta
sprakk sprengjan við kvið mannsins.
Skömmu áður en sprengingarnar
urðu var nafnlaus tölvupóstur send-
ur til Säpo og TT fréttastofunnar.
Þar komu fram grófar ofbeldishótanir
í garð Svíþjóðar og sænsku þjóðar-
innar og þá einkum vegna veru
sænskra hermanna í Afganistan.
Einnig var skírskotað til skopmyndar
sem sænski skopteiknarinn Lars
Vilks teiknaði á sínum tíma af Mú-
hameð spámanni múslima.
Hefði getað banað mörgum
Sænsk yfirvöld hafa sagt að of
snemmt sé að tengja tölvupóstinn við
sprengingarnar og lagt áherslu á að
málið sé í rannsókn. Fredrik Rein-
feldt, forsætisráðherra Svíþjóðar,
hefur fordæmt árásina en um leið
hvatt fólk til þess að sýna stillingu
vegna málsins og fara sér hægt í að
draga ályktanir vegna þess.
Ljóst þykir að ef sprengingarnar
hefðu átt sér stað í margmenni hefðu
þær getað orðið fjölda manns að
bana.
Hryðjuverkaárás í Stokkhólmi
Sjálfsmorðsárás gerð í miðborg Stokkhólms á laugardag Tilræðismaðurinn lést og tveir slösuðust
Málið rannsakað sem hryðjuverk Árásin tengist hugsanlega veru sænskra hermanna í Afganistan
Reuters
Árás Sænskir slökkviliðsmenn reyna að slökkva í brennandi bifreiðinni.
Sjálfsmorðsárás
» Talið er að tilræðismaðurinn
hafi látið lífið í annarri spreng-
ingunni en tveir vegfarendur
slösuðust í hinni.
» Málið er rannsakað sem
hryðjuverkaárás.
» Sænsk stjórnvöld hafa hvatt
fólk til þess að sýna stillingu
og fara sér hægt í að draga
ályktanir.
Hundruð mót-
mæltu rúss-
neskum stjórn-
völdum í Moskvu
í gær í tveimur
aðskildum mót-
mælaaðgerðum. Í
annarri þeirra
mótmæltu stjórn-
arandstæðingar
og heimtuðu af-
sögn Vladimírs Pútíns, forsætisráð-
herra Rússlands. Í hinni mótmæltu
þjóðernissinnar aðgerðum lögregl-
unnar gegn mótmælum þeirra og
fótboltabullna á laugardag en þar
lentu lögreglumenn í átökum við um
fimm þúsund fótboltabullur og þjóð-
ernissinna sem leiddu til þess að 34
slösuðust og 65 voru handteknir.
Mótmæli þjóðernissinnanna og
fótboltabullnanna á laugardaginn
beindust gegn því að fólk frá ná-
grannaríkjum Rússlands í Kákasus,
sem væru flest múslímsk og byggð
fólki sem væri dekkra á hörund,
væri orðið of áberandi í landinu. Þá
hafa komið upp mál undanfarið þar
sem fólk frá þessum ríkjum er grun-
að um að hafa orðið Rússum að
bana, sem ekki hefur bætt sam-
skiptin.
Mótmælt
í Moskvu
Krafist afsagnar
Vladimírs Pútíns
Frá Moskvu.