Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 12
12 | MORGUNBLAÐIÐ
Í
slendingar eru farnir að vilja fá
svo lítinn hita í kroppinn með
suðrænni sveiflu svo Latin-
tímarnir okkar hafa verið mjög
vinsælir uppá síðkastið og verða það
eflaust líka á árinu 2011,“ segir Haf-
dís Jónsdóttir fram kvæmdastjóri
World Class þegar hún er beðin um
að spá fyrir hvað verði vinsælast hjá
líkamsræktar stöðvunum nú eftir
áramótin.
„Áður fyrr voru mjúkir þolfimi-
tímar afar vinsælir og þetta kemur í
raun í staðin fyrir þá, en við bætist
þessi mjúka sveifla, svo þátttak-
endur ná púlsinum vel upp. Þetta er
skemmtileg hreyfing fyrir alla.“
Flestir geta rifjað upp einhver lík-
amsræktaræði sem gengið hafa í
gegnum tíðina og Hafdís tekur undir
það.
„Íslendingar eru mikil delluþjóð
og það hefur verið gaman að fylgjast
með ýmsum æðum sem hafa tekið
sig upp í gegnum tíðina í heilsu
ræktinni. Oft eru þetta æfingar af
sama meiði en kallast hitt og þetta
með smávægilegum breytingum,“
segir hún og bætir við að Íslend-
ingar séu afar opnir fyrir nýjungum.
„Við tökum allt með svolitlu
trompi, ef maður skoðar til dæmis
tísku og matarmenningu þá erum
við rosalega opin fyrir nýjungum,
frá bæði austri og vestri. En það
góða við dellurnar er að það situr
alltaf eitthvað eftir og það eru alltaf
ein hverjir sem festast í reglulegri
lík amsrækt í kjölfarið.“
Fleira starfsfólk í janúar
Nú í byrjun janúar er háannatími
hjá heilsuræktarstöðvum. Margir
drífa sig af stað í upphafi nýs árs og
hyggj ast efna áramótaheitið um að
koma sér í gott form á nýju ári.
„Já við bætum alltaf við okkur
auka mannskap í janúar, í þjálf-
urum, afgreiðslu og öðru,“ segir
Hafdís.
En ekki ílengjast allir í líkams-
ræktinni og heldur fækkar iðk-
endum þegar líða tekur á vorið.
„Við erum sífellt að auka fjöl-
breytnina svo sem flestir fjölskyldu-
meðlimirnir finni einhvað sem hent-
ar þeim hjá okkur og finnist það
skemmtilegt. Það eru alltaf ein-
hverjir sem kíkja við í mánuð og síð-
an ekki söguna meir. Þeim fer samt
fjölgandi sem hafa heilsuræktina að
lífsstíl.“
Hafdís segir útgáfu frístunda-
korta um áramót einnig hafa áhrif á
aukna ásókn í janúar.
„Það lifnar yfir þátttöku í dans-
stúdíóinu okkar um áramótin því frí-
stundakortin eru gefin út um ára-
mótin. Það tók okkur smá tíma að
átta okkur á því. Við höfum velt fyrir
okkur hvort ekki væri sniðugra að
gefa kortin út á haustin og miða þau
við skólaárin í staðin fyrir almanaks-
árin.“
Hafdís segir World Class fyrst og
fremst þjónustufyrirtæki og þau
geri sér far um að taka vel á móti
fólki og leiðbeina þeim sem eru að
leita að heilsurækt við sitt hæfi.
„Við erum með áðurnefnda latin-
tíma, Zumba og Marenge. Harðari
tímar eru svo CrossFit, Herþjálfun
og Ketilbjöllur, en það er tiltölulega
nýtt hjá okkur. Kviður og bak eru
vinsælir hálf tíma tímar hjá okkur,
það eru mjög margir landsmenn
slæmir í bakinu. Hot Yoga er vin-
sælt, og nýjung hjá okkur verður
Hot Rope Yoga. Það hefur þróast
þannig að við hitum orðið upp alla
salina fyrir jógatím ana, þátttak-
endur vilja það. Það er sami hiti og
sótt er í í suðrænu sveifl unni. Bol-
lywood-dansarnir verða svo áfram á
dagskrá hjá okkur. Í dansstúdíóinu
verða svo Michael Jackson dans-
arnir, Freestyle og Street dansarnir
áfram á dagskrá.“
Ráðleggur fólki að setja sér
markmið
Þar sem Hafdís hefur verið í þess-
um bransa í hátt í þrjá áratugi er
freistandi að spyrja hana um helstu
breytingar sem hafi átt sér stað á
líkams rækt landsmanna.
„Það eru alltaf æ fleiri sem stunda
líkamsrækt sér til heilsubótar. Sú
kynslóð sem hóf að stunda líkams-
rækt að staðaldri fyrir 25 árum síðan
er enn að og svo bætast nýjar kyn-
slóðir auðvitað við. Svo er gaman frá
því að segja að eldri borgarar eru í
auknum mæli farnir að stunda lík-
amsrækt, fjöldi rannsókna hefur
sýnt fram á það að það er aldrei of
seint að byrja að hreyfa sig,“ segir
Hafdís.
En hvaða ráðleggingar hefur hún
fyrir fólk sem langar að drífa sig af
stað og stunda reglulega líkams-
rækt?
„Það er alltaf erfitt að drífa sig af
stað og ákveðin áskorun falin í því.
Það þýðir ekkert annað en að taka
sig tak, þetta er eitthvað sem enginn
getur gert fyrir mann,“ segir Hafdís.
„Ég ráðlegg fólki að setja sér
markmið, að mæta tvisvar til þrisvar
í hverri viku og gefa sér einhverjar
sex vikur til að prófa. Ef eftir þann
tíma fólki finnst þessi tiltekna hreyf-
ing ekki beint henta sér þá er um að
gera að prófa eitthvað annað, það er
svo mikilvægt að gefast ekki upp.
Það geta allir fundið eitthvað við sitt
hæfi en það tekur mislangan tíma að
leita að því. Við rekum fyrst og
fremst þjónustufyrirtæki og við er
um bara hérna fyrir fólkið og reyn-
um að koma til móts við þarfir hvers
og eins.“
Íslendingar eru opnir fyrir nýjungum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Í tækjasalnum „Það eru alltaf æ fleiri sem stunda hreyfingu sér til heilsubótar,“ segir Hafdís í Wold Class.
Morgunblaðið/Golli
Hraust „Svo er gaman frá því að segja að eldri borgarar eru í auknum
mæli farnir að stunda líkamsrækt, fjöldi rannsókna hefur sýnt fram á
það að það er aldrei of seint að byrja að hreyfa sig.“
Janúarmánuður er há-
annatími hjá líkamsrækt-
arstöðvum enda margir
sem hafa strengt þess
áramótaheit að koma sér
í gott form.
’Íslendingar eru mikildelluþjóð og það hef-ur verið gaman að fylgjastmeð ýmsum æðum semhafa tekið sig upp í gegn-
um tíðina í líkamsræktinni
www.madurlifandi.is
Borgartúni 24
105 Reykjavík
Sími: 585 8700
Hæðarsmára 6
201 Kópavogur
Sími: 585 8710
Hafnarborg
220 Hafnarfirði
Sími: 585 8720
Hveitikím
Inniheldur 28% prótein
Ríkt af andoxunarefnum
og Omega-3 fitusýrum
Einstaklega trefjaríkt
Eykur uppbyggingu vöðva
Bætir meltinguna
990 kr.Hveitikímkjúklingaloka
með grænmeti, avókadó og wasabi kremi
Prófaðu þessa!
Nýr
próteinríkur
heilsubiti