Morgunblaðið - 03.01.2011, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ | 23
Í Baðhúsinu borgar þú aðeins 5.990* kr. á mánuði
og færð aðgang í alla opna og LOKAÐA tíma.
Hot jóga - innifalið
Heilsuátak - innifalið
Tabata - innifalið
Afró - innifalið
Magadans - innifalið
Bollywood - innifalið
Les Mills tímar - innifalið
Salsa -innifalið
Flamenco - innifalið
Tæbox - innifalið
o.mfl.
Og auðvitað hefurðu líka aðgang að heitri laug,
vatnsgufu, sauna og notalegu hvíldarhreiðri.
Baðhúsið - fyrir klárar konur
Vertu velkomin.
Má bjóða þér aðgang að öllum tímum, jafnt opnum sem lokuðum námskeiðum?
Í Baðhúsinu borgar þú aðeins 5.990* kr. á mánuði
og hefur aðgang að öllu þessu með þátttöku í KK klúbbnum.
Klárar konur sjá hvaða leið er hagstæðust.
5.990* á mánuði í KK áskriftarklúbbnum, lágmarkstími 12 mánuðir. Hægt er að velja um 3 leiðir,
Skólaáskrift, Grunnáskrift og Eðaláskrift. Frír aðgangur að lokuðum tímum fylgir Grunn- og Eðaláskrift.
w w w. b a d h u s i d . i s
S í m i 5 1 5 1 9 0 0
Eitt verð - fyrir klárar konur
Nánari upplýsingar á www.badhusid.is/kk
Lj
ós
m
yn
da
ri
Ve
ra
Pá
ls
d.
Komdu strax í klúbbinn og byrjaðu að æfa,
fyrsta greiðsla kemur ekki fyrr en í febrúar!
Kynntu þér úrval tíma í stundaskrá á www.badhusid.is
Það er ýmislegt hægt að gera til að
koma blóðinu á smá hreyfingu þó
svo að seta á óæðri endanum ein-
kenni daginn. Hér eru nokkur góð
ráð sem ættu að auka vellíðan á
vinnustað og auka afköst að sama
skapi.
Stattu upp á klukkutíma fresti og
hreyfðu þig aðeins. Labbaðu stuttan
hring, um vinnusvæðið eða töltu út
fyrir og andaðu að þér fersku lofti í
nokkrar mínútur.
Drekktu vatn. Það getur verið
hluti af hreyfingunni á klukkutíma
fresti að rölta að vaskinum og fá sér
glas af köldu vatni.
Ef vinnustaðurinn er á fleiri en
einni hæð er sniðugt ráð að nota kló-
sett á annarri hæð, eða bara það kló-
sett sem er hvað lengst frá vinnu-
svæðinu. Þá er hægt að teygja enn
betur úr sér á leiðinni.
Skildu eitthvað viljandi eftir í
bílnum sem þú neyðist til að sækja,
til dæmis hádegismatinn. Þá get-
urðu fengið þér smávegis ferskt loft
í leiðinni.
Fáðu þér handfrjálsan búnað á
farsímann. Símtöl má oft afgreiða
gangandi um, passið bara að trufla
ekki vinnufélagana of mikið.
Lítil handlóð komast vel fyrir í
skrifborðsskúffunni og þau geta
komið sér vel þegar gerðar eru smá-
vægilegar æfingar í sætinu.
Notaðu hádegishléið til hreyf-
ingar. Ferð í sund eða göngutúr í há-
deginu getur gert kraftaverk.
birta@mbl.is
Leikfimi Þessi stelling er kannski
ekki á allra færi, en gott er að
hver og einn finni sér viðeigandi
hreyfingu til að teygja úr sér við
skrifborðið.
Hreyfing Það getur verið gott að
grípa í lóðin við tölvuna.
Hreyfing
í vinn-
unni
Margir eyða vinnu- eða
skóladögum sitjandi í stól
við tölvu. Í því felst ekki
mikil hreyfing og því er
gott og hollt að teygja úr
sér reglulega og gera jafn-
vel smávægilegar æfingar.
M
argir kannast því við þyngdaraukn-
ingu, hækkun blóðþrýstings, bólgu-
myndum, bjúgsöfnun og mikinn þorsta
eftir jólahátíðina.
Sigríður Guðjohnsen, jógakennari hjá Nordi-
caSpa, segir mjög nauðsynlegt að hreinsa líkam-
ann af þessum óæskilegu efnum bæði með sér-
stöku mataræði sem og réttri hreyfingu, en
Sigríður hefur kennt jóga og líkamsrækt í mörg
ár.
Sigríður er að fara af stað með námskeið á
NordicaSpa sem heita 28 daga hreinsun með mat-
aræði og hreyfingu og gengur út á að hreinsa lík-
amann af þessum óæskilegu uppsöfnuðu eitur-
efnum. Með svona hreinsun aukum við getu
líkamans til að vinna rétt úr fæðunni, aukum lið-
leika og styrk og komum fólki af stað í nýjan lífs-
stíl.
„Ég leiði fólk í gegnum hreinsun líkamans á
þessum 28 dögum og það er ekki sama fólkið sem
labbar út eftir námskeiðið og kom inn, svo mikil er
breytingin. Mikið af lífsstílstengdum sjúkdómum
s.s. hár blóðþrýstingur, hátt kólesterol, offita,
gigt, maga- og ristilvandamál, sykursýki II, bólg-
ur í liðum og jafnvel þunglyndi er mjög mat-
artengt og með þessari hreinsun getur fólk snúið
til baka og lagt af stað í nýjan lífsstíl,“ segir Sig-
ríður.
Hreinsun líkamans
Hluti íslenska jólamatarins inniheldur ýmis óæskileg efni sem líkaminn á erf-
itt með að vinna úr og veldur fólki ýmsum óþægindum og kvillum eftir jólin.
Hreinsun Sigríður Guðjohnsen, jógakennari.