Morgunblaðið - 03.01.2011, Síða 26

Morgunblaðið - 03.01.2011, Síða 26
26 | MORGUNBLAÐIÐ Ekki gleyma að drekka Birkisafann frá um jólahátíðina Útsölustaðir: Heilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Hagkaup, Nóatún, Lyfjaval, Barnaverslanir og sjálfstætt starfandi apótek um allt land Velkomin að skoða www.weleda.is Safinn virkar vel á eðlilega úthreinsun líkamans Lífrænt ræktaður, án aukaefna Losar bjúg Léttir á liðamótum Losar óæskileg efni úr líkamanum Góður fyrir húð, hár og neglur Blanda má safann með vatni Má einnig drekka óblandað eilsuhúsið, Fræið Fjarðarkaupum, Maður lifandi, Blómaval, Lyfja og Apótekið, Lyf og heilsa og Apótekarinn, Sólarsport Ólafsvík, Lyfjaver, Femin.is, Náttúrulækningabúðin, Lyfjaval, Barnaverslanir, Heilsuver, Apótek Hafnarfjarðar, Akureyrarapótek, Apótek Vesturlands, Reykjavíkur apótek, Árbæjar- apótek, Á grænni grein, versl. Val Sólheimum og sjálf tætt starfandi apótek um allt land Þ etta byrjaði fyrir einum 18 árum þegar ég var að læra til kokks. Þá fékk ég heiftarlegt ofnæmi, meðal annars fyrir fiski, svo ég neyddist til að taka mataræði mitt alveg í gegn, en það var nokkuð sem ég hugsaði ekki mikið um fram að því,“ segir Auður Ingibjörg Konráðsdóttir, kokkur og bakari, sem er í forsvari fyrir fyrirtækið Heilsukokkur. „Ég hætti strax að borða fisk og tók svo mataræðið í gegn smátt og smátt. Líðan mín snarbreyttist í kjölfarið.“ Auður hefur síðan viljað hjálpa og ráðleggja fólki sem er í sömu stöðu og hún var. „Ég vildi að ég hefði haft einhvern ráðgjafa til að leita til þegar ég var að byrja á þessu. Mér finnst enn vera þörf á fræðslu af þessu tagi,“ segir Auður en hún heldur reglulega námskeið fyrir alla sem annaðhvort vilja eða þurfa að breyta mataræði sínu. Fjólublár maís Sem fyrr sagði eru hátt í tveir áratugir frá því að Auður sneri sér að hollara mataræði. Hún segir aðstæður til að iðka hollari lífsstíl hér á landi hafa batnað til muna á þeim tíma. „Þó er alltaf ýmislegt sem maður saknar, en ég hef búið bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi. Þar kynntist ég ýmiss konar hráefni sem ég myndi gjarnan vilja hafa á boðstólum hér,“ segir Auður og nefnir til að mynda fjólubláan maís, ávexti og grænmeti, t.d. alls kyns rótargrænmeti. Á heimasíðunni heilsukokkur.is og á Facebook-síðu fyrirtækis- ins má finna fjöldann allan af girnilegum uppskriftum úr smiðju Auðar. „Þetta eru alls konar uppskriftir en ég hef lagt svolitla áherslu á hvers kyns eftirmat. Ég er svo mikill sælkeri sjálf,“ segir Auður og bætir við að það sé lítið mál að sameina sælkerann og heilsu- kokkinn. Og það er ýmislegt framundan hjá Auði sem bæði ætlar að halda áfram námskeiðshaldi í janúar en er auk þess að skipu- leggja heilmikla ráðstefnu tileinkaða hollu mataræði sem áætlað er að halda hér á landi í febrúar. „Þar verða áhugaverðir fyrirlesarar og skemmtilegar uppá- komur,“ lofar Auður að lokum. birta@mbl.is Heilsukokkur og sælkeri Heilsukokkurinn Auður Ingibjörg Konráðsdóttir neyddist til að breyta mataræði sínu í kjölfar ofnæm- is. Nú ráðleggur hún öðrum í sömu sporum og skrifar afar girnlegar en heilsusamlegar uppskriftir. Morgunblaðið/Ernir Heilsukokkur „Ég vildi að ég hefði haft einhvern ráðgjafa til að leita til þegar ég var að byrja,“ segir Auður. Fylltar mexíkóskar paprikur 2 Ramiro-paprikur Fylling: 1 dl cashew-hnetur 1 hvítlauksgeiri 2 msk ólífuolía safi úr 1 lime 2 msk lífrænn appelsínusafi 2 msk næringarger eða 1 tsk laukduft 2 tsk reykt paprika ¼ tsk ferskur chilipipar, saxaður 1 tsk himalajasalt 1 meðalstór gulrót, rifin 1 meðalstór tómatur, saxaður 2 vorlaukar, saxaðir 1 msk ferskt kóríander, saxað 1 dl graskersfræ Skera Ramiro-paprikur í tvennt eftir endilöngu, halda stilkinum en skera burtu hvítu lengjurnar og fræ- in. Setja allt efni í fyllinguna nema grænmetið í blandara og mauka. Blanda saman við grænmetið og graskersfræin, smakka til með hi- malajasalti. Fylla paprikurnar og baka þær í ofni við 180°C í 15-20 mínútur. Bera fram með mole-sósu og heilsu-Mojito. Mole-sósa 1 msk hörfræ 1 rauð paprika 1 lífrænt avókadó, mjúkt 2 sólþurrkaðir tómatar, ekki í olíu 2 msk KVIK-kakó ¼-½ tsk ferskur chilipipar, fínt saxaður 1 tsk tamari 1 tsk lífrænt hunang himalajasalt Mylja hörfræ í kaffikvörn. Mauka allt í blandara, smakka til með salti. Óáfengur heilsu-Mojito 1 flaska lífrænt límonaði 2 þunnar sneiðar lime 2 tsk limekjöt ½ tsk hrásykur 8-10 myntulauf mulinn ís Steyta myntu, lime- kjöt og hrásykur í mortéli, hella yfir mul- inn ís í tveimur glös- um, hella límonaði yfir og skreyta með lime- sneið. Það er svo misjafnt sem mennirnir leita að og uppátækin eftir því ólík. Valery Rozov stekkur hér fyrst allra fram af Ul- vetanna á Antartíku, en fjallið það telur 2.931 metra. Vængjabúning- urinn bjargaði henni frá því að hrapa til bana, en eftir að hafa svifið um í 45 sekúndur lenti Rozov slysalaust með hjálp fall- hlífar. Reuters Er þetta Súper- mann?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.