Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.01.2011, Blaðsíða 27
C andida sveppasýking, ein- kenni og lyfjalaus meðferð nefnist bók sem nú hefur verið endurútgefin hjá Sölku. Þessi bók kom upphaflega út árið1995 og er eftir Hallgrím Þ. Magnússon og Guðrúnu G. Berg- mann. Hún var svo endurprentuð 1997 og 1999. Vegna mikillar eft- irspurnar er hún nú gefin út aftur en í þetta skipti betr- umbætt og endurskrifuð í ljósi ýmissa nýrra rann- sókna um þennan algenga en leynda kvilla. Sjúk- dómseinkenni eru útskýrð, fjallað um fæðu- samsetningu og fjallað um leiðir til að vinna bug á sýkingunni. Hinn 8. janúar munu þau Hallgrímur og Guðrún halda fyrirlestur í tilefni af útgáfu bókarinnar og í kjölfarið verða haldin námskeið fyrir áhuga- sama sem verða auglýst síðar. Velsæld eða vansæld Máttur viljans er nýstárleg bók eftir Guðna Gunnarsson sem kem- ur út í febrúar. Guðni er stofnandi og upphafsmaður Rope Yoga- hugmyndafræðinnar og einn af frumkvöðlum Íslands á sviði lík- ams- og heilsuræktar. Hann hefur starfað við fagið í meira en 25 ár, hér og erlendis, og er m.a. fyrsti einkaþjálfarinn á Íslandi. Bókin fjallar um hvort við viljum setja lífið á sjálfstýringu og búa við skort og vansæld – eða taka ábyrgð og stjórna sjálf hvert við stefnum. Velsæld eða vansæld; okkar er valið því það skiptir öllu máli að hverju við beinum athygl- inni. Þú getur það! Lousie L. Hay er bandarískur rithöfundur og fyrirles- ari sem á sér stóran aðdáenda- hóp um all- an heim. Fyrir nokkrum árum kom út eftir hana á ís- lensku bókin Læknaðu sjálfan þig sem varð eins og biblía margra sem áttu við veikindi að stríða. Væntanleg er svo ný bók sem heit- ir því hvetjandi nafni: Þú getur það! Þar útskýrir höfundur mátt þess að staðfesta hið góða í lífinu til þess að gera óskir og markmið að veruleika. Bókinni er skipt í stutta kafla, og hver og einn er helgaður vissum staðfestingum um heilsu, fyrirgefningu, sköp- unargáfu, ástarsamböndum, sjálfs- virðingu og fleira. FISKUR! fyrir lífið Fyrir nokkrum árum kom út hjá Sölku bókin FISKUR! en þar er útskýrt hugmyndakerfi sem hefur bætt starfsárangur og vinnugleði fólks víða um heim. Í nýrri bók, FISKUR! fyrir lífið, er þessi magnaða lífsspeki færð inn á heimilið þar sem fólk glímir við sín persónulegu málefni. Það má segja að hugmyndafræði FISKS! felist í eftirfarandi reglum: Leikum okk- ur, gerum öðrum daginn eft- irminnilegan, verum til staðar og veljum okkur viðhorf. birta@mbl.is Rope Yoga Guðni Gunnarsson gefur út bók sem fjallar um hvort við viljum setja lífið á sjálfstýr- ingu og búa við skort og vansæld – eða taka ábyrgð og stjórna sjálf hvert við stefnum. Fiskur og máttur viljans Margir nýta sér fróðleik í bókum þegar nýtt og heilsu- samlegra líferni er á dagskránni. Því er ekki úr vegi að benda á nokkrar slíkar bækur sem fást hér á landi. MORGUNBLAÐIÐ | 27 Nicotinell nikótínlyf fást án lyfseðils og eru notuð sem hjálparefni til þess að hætta eða draga úr reykingum. Til að ná sem bestum árangri skal ávalt fylgja leiðbeiningum í fylgiseðlinum með lyfinu. Skammtar af Nicotinell lyfjatyggigúmmíi mega aldrei vera stærri en 25 stykki á dag. Þeir sem hafa fengið ofnæmi fyrir nikótíni eða öðrum innihaldsefnum lyfsins, fengið hjartaáfall nýlega, óstöðuga eða versnandi hjartaöng, að meðtöldu Prinzmetal afbrigði hjartaangar, alvarlega hjartsláttaróreglu eða heilablóðfall nýlega, eiga ekki að nota Nicotinell nikótínlyf. Sjúklingar með háþrýsting sem ekki hefur náðst stjórn á, stöðuga hjartaöng, sjúkdóm í heilaæðum, teppusjúkdóm í útlægum slagæðum, hjartabilun, sykursýki, ofstarfsemi skjaldkirtils eða krómfíklaæxli, auk alvarlega skertrar nýrna- og/eða lifrarstarfsem skulu gæta varúðar við notkun á Nicotinell. Börn undir 15 ára aldri, þungaðar konur og konur með barn á brjósti skulu ekki nota lyfið nema að læknisráði. Markaðsleyfishafi: Novartis Healthcare. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhraun 12a, 210 Garðabæ. Nicotinell er samstarfsaðili Krabbameinsfélagsins ®

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.