Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 28
Stuðningur til breytinga
Heilsuhótelið í Reykja-
nesbæ rær á ný mið.
Stuðningur við sykursjúka
og fólk eftir ástvinamissi.
Ásgeir R. Helgason Ragnar Sær
starfa við heilsuhótelið. Þá mun Ás-
geir R. Helgason doktor í lækna-
vísindum og dósent í sálfræði við
Karolinska Institutet í Stokkhólmi
og Háskólann í Reykjavík hafa um-
sjón með árangursmati starfsem-
innar.
Áhrifin könnuð
„Markmið heilsuhótelsins er að
styðja fólk til lífsstílsbreytinga og
því verður höfuðáhersla lögð á að
kanna áhrif dvalarinnar á lífsstíl,“
segir Ásgeir.
Á
herslum í starfseminni hef-
ur verið breytt og við vilj-
um ná til fleiri hópa en áð-
ur,“ segir Ragnar Sær
Ragnarsson, framkvæmdastjóri
Heilsuhótels Íslands á Ásbrú í
Reykjanesbæ. Hótelið var sett á
laggirnar fyrir um tveimur árum
og er best þekkt fyrir svokallaða
Detox-meðferð þar sem fólk er að-
stoðað við að taka sér tak; með
breyttu matarræði, víðtækri
fræðslu, heilbrigðri hreyfingu,
bólgueyðandi nuddi, gufuböðum,
hvíld og slökun.
Þjóna fleirum
En nú er róið á ný mið á heilsu-
hótelinu og starfsemin þar mun í
framtíðinni ná til fleiri þátta en áð-
ur. „Nú erum við í auknum mæli
að fá til liðs við okkur fólk af hin-
um ýmsu sviðum heilbrigðisgreina
og það ætti að gefa okkur kost á að
þjóna fleirum. Núna erum við til
dæmis að fara af stað með öfluga
meðferð og fræðslu fyrir fólk sem
er með áunna sykursýki. Sú aðferð
sem við byggjum á hefur ekki boð-
ist hjá öðrum hér á landi,“ segir
Ragnar Sær. Þá var milli jóla og
nýárs á hótelinu námskeið fyrir
ekkjur og ekkla, fólk sem þarf að
takast á við lífið eftir sáran ástvi-
namisi.
Sturla Johnsen heimilislæknir er
um þessar mundir að koma til
„Við munum kanna hvort einföld
eftirfylgni hafi áhrif á hlutfall
þeirra sem breyta lífsstíl til fram-
búðar. Til dæmis er stefnt að því
að kanna hvort sérhannað nám-
skeið fyrir fólk með sykursýki 2
auki lífsgæði og dragi úr einkenn-
um meðan á dvölinni stendur og
allt að ári síðar. Fyrsta skrefið
verður þó könnun á líðan fólks sem
dvaldi á hótelinu árið 2009. Hótelið
mun áfram bjóða uppá svokallað
Detox og verið er að skoða hvort
það sé vísindalega mögulegt að at-
huga sérstaklega áhrif einstakra
þátta þess á líðan fólks,“ segir Ás-
geir.
sbs@mbl.is
heilsuhotel.is
Hótel Þjónustan sem býðst á heilsuhótelinu á Ásbrú er afar fjölbreytt.
28 | MORGUNBLAÐIÐ
Fallegt Það væri nú ekki ónýtt að
hlaupa maraþon með þessa fögru
byggingu fyrir augum. Myndin er
frá Petra í Jórdaníu.
V
ið bjóðum upp á gönguferð-
ir, hjólaferðir, golfferðir,
hlaupaferðir, gönguskíða-
ferðir og svigskíðaferðir.
Einnig bjóðum við upp á há-
fjallagöngur í Ölpunum næsta sum-
ar þá er meiningin að klífa Mt. Rosa-
fjallgarðinn undir leiðsögn Einars
Stefánssonar eins af Everest-
förunum,“ segir Sævar Skaptason,
framkvæmdastjóri Bændaferða.
Á heimasíðu ferðaskrifstofunnar
má finna allar upplýsingar um hinar
fjölbreyttu ferðir sem í boði eru og
óhætt er að segja að þar sé af mörgu
að taka.
Ekki bara fyrir bændur
Golfferðir til Túnis í febrúar,
maraþonhlaup í Rotterdam í apríl og
svigskíðaferð til Saalbach – Hinterg-
lemm í lok janúar er meðal þess sem
í boði er.
Á heimasíðu Bændaferða má
einnig finna ítarupplýsingar um þá
staði sem í boði eru, gistingu, far-
arstjóra og dagskipulag í ferðunum
góðu, en allir hreyfiglaðir ættu að
geta fundið sér þar ferð við hæfi.
„Þetta eru ferðir sem eru öllum
opnar þó að nafnið á fyrirtækinu gefi
annað til kynna. Við erum einnig
með ferðir sem heita Trítlað um Ty-
rol og Trítlað og siglt þetta eru
gönguferðir fyrir 60 ára og eldri,“
segir Sævar.
birta@mbl.is
www.baendaferdir.is
Trítlað um Tyrol
Fallegt Úr gönguferð Bændaferða um fjallatinda Dólómítanna.
Svigskíðaferðir í Alpana, hjólaferðir frá Prag til Vínar og
maraþonhlaup í Jórdaníu er meðal þess sem Bændaferð-
ir bjóða hreyfiglöðum einstaklingum upp á undir for-
merkjum Hreyfiferða.
Stórhöfða 17 | Sími 577 5555 | www.veggsport.is
KETILBJÖLLUR
KARFA
GOLFHERMIR
SPINNING
LYFTINGAR
SKVASSGUF
UBAÐ
Mataræði,
handbók um
hollustu,
kom út á síð-
asta ári hjá
Sölku.
Í bókinni
eru 64 reglur
um hvernig
hægt er að
bæta mat-
arvenjur, kauphegðun og bent á
hvaða innihaldsefni eru vara-
söm. Micheal Pollan er marg-
verðlaunaður metsöluhöfundur
og þekktur fyrir hnyttinn og fá-
orðan stíl. Honum finnst óþarf-
lega flókið að borða nú til dags
og blandar hér saman almennri
skynsemi, alþýðufróðleik og nýj-
ustu rannsóknum. Dæmi um
slíkt má sjá í reglu nr. 2: „Borð-
aðu ekkert sem langamma hefði
ekki kannast við sem mat: Þið
[langamma þín] standið saman
við mjólkurkælinn. Hún tekur
upp ílát með litríkri mjólkurafurð
og hefur ekki hugmynd um hvað
plasthólkurinn með litaða eða
bragðbætta hlaupinu gæti inni-
haldið. Er þetta matur eða tann-
krem?“
Handbók um
hollustu
Borðaðu ekkert sem
langamma hefði
ekki kannast við
sem mat.