Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 29

Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ | 29 vigtarradgjafarnir.is 865-8407 Sjá nánar á www.vigtarradgjafarnir.is Hefur þú viljann, þá hef ég uppskriftina … Íslensku Vigtarráðgjafarnir Lærðu að borða hollan og góðan mat og taktu á aukakílóunum. 5 kíló á 5 vikum! M enn leggja ýmislegt á sig til að bæta árangur sinn í íþróttum og áramótin eru líka sá tími sem flestum hugkvæmist að taka upp betri lífsstíl og vinna bug á vandamálum í skrokk- num. Gísli Sigurðsson hjá Klinik í Bæjarlind segir áhugavert að skoða möguleika MTT-æfingameðferð- arinnar, bæði til að efna áramótaheit um betra líkamlegt ástand, og til að bæta frammistöðu í íþróttum. „Hjá Klinik sjúkraþjálfun notum við meðal annars MTT æfinga- meðferðina, sem byggist á að gera sérsniðnar æfingar í trissum og vinna þannig með líkamann. Notaðar eru léttar þyngdir og gerðar margar end- urtekningar, en hreyfingarnar líkjast hreyfingum líkamans í daglegu lífi. Æfingar af þessum toga nýtast bæði þeim sem vilja styrkja sig almennt og einnig þeim sem langar að búa sig vel undir ýmsar íþróttagreinar.“ segir Gísli, sem er sérfræðingur í stoðkerf- issjúkraþjálfun. „Búið er til einstaklingsmiðað þjálfunarprógram svo að hver og einn nái sem bestum árangri í samræmi við sínar þarfir og markmið.“ Eymsli á þriðju holu? Til að taka dæmi af vinsælli íþrótt nefnir Gísli golfið, og hvernig þarf að skoða hvern einstakling með tilliti til hreyfanleika, styrks og jafnvægis, en allir þessir þættir skipta miklu máli fyrir stundun golfíþróttarinnar. „Oft er það raunin að golfunnendur á öll- um aldri eiga við einhver stoðkerf- isvandamál að etja og verður til þess að þeir geta ekki stundað íþróttina sína af eins miklum krafti og þeir annars vildu,“ segir hann. „Golf er holl hreyfing en svo að vel sé þurfa bak, mjaðmir, mjaðmagrind og hné að vera í toppstandi. Ef eitthvað er í ólagi getur það t.d. gerst að menn sem eru alla jafna hressir fara kannski að kenna eymsla á þriðju holu og hvorki njóta leiksins né ná til- settum árangri. Ef stoðkerfisvanda- mál er til staðar er mikilvægt að fá sjúkraþjálfara til að meta stöðuna og oft þarf sérstakrar meðhöndlunar við til að hjálpa líkamanum að ná bata.“ Þá segir Gísli að markviss þjálfun með aðstoð sjúkraþjálfara geti hjálp- að þeim sem þegar eru liðtækir og sprækir í hvívetna að standa enn bet- ur að vígi. „Það er áhugavert að skoða þann möguleika hvort ekki er hægt að ná t.d. meiru út úr golfsveiflunni með MTT-æfingum. Ekki er að ástæðulausu að þeir allrabestu í íþróttum, hvort sem um er að ræða golf, handbolta, knattspyrnu eða aðr- ar íþróttir, hafa á bak við sig hóp að- stoðarmanna og er þar iðulega að finna sjúkraþjálfara sem hjálpar við að halda líkamanum í toppformi.“ ai@mbl.is Morgunblaðið/Ernir Hreyfing Gísli Sigurðsson brúkar trissuna sem er í aðalhlutverki í MTT meðerð. Betri frammi- staða með MTT Æfingameðferð undir leiðsögn sjúkraþjálfara getur verið góður kostur. MTT meðferð getur sérstaklega gagnast íþróttamönnum, t.d. þeim sem stunda golf. Hjá Klinik sjúkraþjálfun er hægt að fá ástandsskoðun á stoðkerf- inu, og bendir Gísli á að allir ættu að láta framkvæma slíka skoðun árlega. „Fólki þykir sjálfsagt að fara til tannlæknis árlega til að fyrirbyggja skemmdir, og fer með bílinn reglulega í ástandsskoðun, en leitar sér oft ekki aðstoðar með stoðkerfið fyrr en vart verð- ur við verki og vandamál hafa náð að þróast,“ segir hann og minnir um leið á hversu miklu máli skipt- ir fyrir lífsgæði fólks og virkni að stoðkerfið sé í lagi. Hægt er að leita beint til sjúkraþjálfara til að fá slíka skoð- un. „Hún fer þá þannig fram að farið er yfir liðferla líkamans og hreyfigetu, vöðvastyrkur er mældur og framkvæmt jafnvæg- ispróf. Ef í ljós kemur að eitthvað er ekki eins og best verður á kos- ið má vinna með heildrænum hætti að lausn og forvörnum.“ Fylgjast þarf vel með stoð- kerfinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.