Morgunblaðið - 03.01.2011, Qupperneq 33
Lífshlaupið er fræðslu- og hvatningar-
verkefni ÍSÍ fyrir alla aldurshópa.
Markmið þess er að hvetja landsmenn
til þess að fara eftir ráðleggingum
Lýðheilsustöðvar um hreyfingu og gera
hreyfingu að föstum lið í lífsstíl sínum.
Lífshlaupið
byrjar 2. febrúar!
ÍS
L
E
N
S
K
A
/S
IA
.I
S
/I
S
I
52
84
0
12
/1
0
• Vinnustaðakeppni
• Hvatningarleikur í skólum
• Einstaklingskeppni
Lífshlaupið Þín heilsa – þín skemmtun
Samstarfsaðilar
Ólympíufjölskyldan
Skráning og nánari upplýsingar á:
www.lifshlaupid.is
Fersk sending
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir:
MORGUNBLAÐIÐ | 33
B
ragð í baráttunni – matur
sem vinnur gegn krabba-
meini er ný bók sem hefur
vakið athygli víða um heim.
Bókin heitir á frummálinu Cooking
with foods that fight cancer og er
eftir þá Richard Béliveau, prófessor
í lífefnafræði við Quebec-háskóla í
Montreal í Kanada og leiðandi aðila
í krabbameinsransóknum þar í
landi, og Denis Gingras, sérfræðing
í sameindalíffræði við sama skóla.
Bókin hefur að geyma ítarlega
umfjöllun um ýmis hráefni í mat-
argerð sem talið er að geti unnið
gegn myndun krabbameina. Þar er
einnig að finna yfir 160 gómsætar
uppskriftir sem auðvelt er að fara
eftir. Með hjálp þessarar bókar get-
ur fólk breytt mataræði sínu og lífs-
stíl á áhrifaríkan hátt, en slíkt er af
mörgum talið afar mikilvægur þátt-
ur í baráttunni gegn krabbameini.
„Rannsóknir áætla að hægt sé að
koma í veg fyrir um þriðjung
krabbameinstilvika með réttu mat-
aræði, hreyfingu og með því að
halda sér nærri kjörþyngd-
armörkum,“ segir Oddur Bene-
diktsson, formaður Krabbameins-
félagsins Framfarar, í formála
bókarinnar. Bókin er gefin út af
Vöku-Helgafelli að frumkvæði
Framfarar. Auk Krabbameins-
félagsins Framfarar styrkti heil-
brigðisráðuneytið, undir stjórn
Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, útgáf-
una. Aukinheldur styrkti Helga
Hjörvar verkefnið til minningar um
Úlf Hjörvar. Aðrir styrktaraðilar
eru Krabbameinsfélag Íslands,
Krabbameinsfélag Reykjavíkur og
Ljósið. Þýðandi bókarinnar er Þór-
unn Hjartardóttir.
Sítrusmaríneraður silungur
Tími: 20 mín. Biðtími: 6 klst.
Nokkuð auðvelt
Kaupið helst appelsínur og greipaldin með þykk-
um berki.
Notið mjög beittan hníf til að fjarlægja börkinn og
hvítu himnuna af ávöxtunum. Haldið þeim svo í
öðrum lófanum og skerið varlega lóðrétt niður
eftir ávextinum, á milli himna sem skipta honum í
báta. Hafið skál undir fyrir safann, skerið svo ald-
inkjötið í bita.
250 g hrár silungur, skorinn í bita
2 appelsínur, himnuhreinsaðar og skornar í bita
1 bleikt greipaldin, himnuhreinsað og skorið í
bita
80 ml (? b.) sítrónusafi, nýkreistur
½ tsk. límónubörkur, ysta lagið, fínrifið
10 g (? b.) fersk steinselja, söxuð
30 g (¼ b.) paprika, blandaðir litir, í teningum
1 msk. laukur, mjög þunnt sneiddur
80 ml (? b.) ólífuolía
salt og nýmalaður pipar
3 msk. ferskt kóríander (skraut)
Blandið öllu saman í stórri glerskál og
bragðbætið með salti og pipar.
Setjið lok eða plastfilmu yfir og látið þetta
marínerast í 6 klst. í ísskáp.
Berið fram í skrautlegum bollum eða skál-
um og skreytið með kóríander.
(Heiðurinn af uppskriftinni á Benoit Dus-
sault, matreiðslukennari við École hôtelière
de la Capitale í Quebec)
Matur sem
vinnur gegn
krabbameini
Upplýsingar og uppskriftir í nýrri bók geta hjálpað fólki
að breyta mataræði sínu og lífsstíl til hins betra.
’Með hjálp þessarar bókar getur fólkbreytt mataræði sínu og lífsstíl ááhrifaríkan hátt, en slíkt er af mörgum taliðafar mikilvægur þáttur í baráttunni gegnkrabbameini.