Skátablaðið - 01.05.1940, Page 3
Vor
æ§ka
„Vor og sólskin og' landið ljómar,
og lífið spriklar í kviknm leik'.“
.4. S.
Vorið er komið með birtn og yl. Ur lofti
heyrisf fuglakliður. Landið klæðist nýju
skrúði. Fannir og ísspangir bráðna og mynda
tæki, er renna til sjávar. Hinn leysandi mátt-
ur lætur til sín taka og leysir úr læðingi
öfl þau, sem „vetur konungur" hefir lialdið
i böndum. Nýtt líf skapast. Menn fytlast
þrótti og lífsgleði. Þá langar út í vor og ver-
öld, út í hina óbyggðu mörk, þar sem ennþá
ríkir hin grafþögla helgi náttúrunnar, þar
sem mannshöndin hefir ekki ennþá sett svip
sinn á.
Sérhvern æskumann dreymir um dáð og
dyggðir framtíðarinnar. í honum býr þrótt-
ur vorsins, bjartsýni og eldmóður. Hann
þráir verkefni og vandamál, fyrir hug sinn
og hönd. Þessi verkefni finnur hann, ef
hann lifir í nánu samneyti við hina villtu
náttúru landsins, inni á milli hinna íslenzku
fjalla, við lækjanið og fuglasöng. Þar lærir
hann að þekkja sjálfan sig'. Þar lærist hon-
um bezt að meta kosti sína og ókosti. Líkam-
inn styrkist og hugurinn bætist.
Hvað heillar hugan meir en útilífið, fjall-
göngur, fagurt útsýni, varðeldasöngur og vin-
átta ferðafélaganna? Allt þetta gefur verk-
efni, kraft og gleði. Hin íslenzka þjóð hefir
um aldaraðir varðveitt þrek sitt og' lífsham-
ingju í nánu samneyti við náttúru landsins.
Látið nútíma borgarmenningu ekki glepja
svo, að þið týnið þessari arfleifð. Gerist ekki
áhorfendur að viltum eltingaleik eftir met-
um á kappmótum, né dýrkendur „súkkulaði-
sætra“ kvikmyndaleikara, sem malla „cok-
tail“, með vindling' milli vara sér. Takið þátt
í starfi sumarsins. Lifið í samneyti með nátt-
úru landsins. Kynnist fugla- og gróðurlífi
l>ess. Gefið gaum, hvernig fuglarnir kvaka,
hvernig þeir eru litir, hvað eru einkenni
þeirra í byggingu og lifnaðarháttum, safnið
myndum af þeim. Safnið plöntum, lærið að
þekkjá nöfn þeirra, og greina þær í sundur.
Kynnið ykkur hraunið, sem þið gangið á.
Hvaðan hefir það komið? Hvað heitir áin,
sem rennur eftir dalnum? Hvar eru upptök
hennar? Ekkert, sem þið sjáið í kring um
ykkur, er ykkur óviðkomandi. Allt verðið þið
að þekkja og vita. Þá opnast ykkur nýir
heimar. Þá verðið þið „voldug og sterk“,
eins og náttúra landsins. Þá hafið þið lifað
skátalífi.
Takið tjald og bakpoka. Farið út i sól og
sumar.
(itleðik^í siaiii:n !
SKÁTABl.Af) H)
3