Skátablaðið


Skátablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 10

Skátablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 10
Skátar, lærið að hnýta ykkur net. Þeir skátar, er > séð hafa sjómenn hnýta net sín, munu án efa hafa löngun til að læra þessa „hnútaþraut“. Sjómenn og netagerðar- menn viðhafa aðferð, sem er dálítið marg- brotin. Við skulum þvi gera tilraun til að hnýta net lianda okkur á einfaldari hátt, en sem getur gagnað okkur á ýmsa lund i ferða- lögum og útilegum. Við skulum t. d. fyrst búa okkur til hengirúm. Efni: 3—4 hespur netagarn (venjulegt gróft sel- garn má einnig nota); kaðall um 8 m. langur. þykkt hans sé á við litlafingur manns. 1 neta- nál úr tré eða kopar. Aðferðin: Við byrjum með því að strengja sterkt seglgarn á milli tveggja fastra staða, t. d. á milli tveggja yztu, lóðréftu stólpanna á stólbaki. Við verðum að biðja einhvern þung- an mann um að sitja á stólnum á meðan, en ef enginn fæst til þess, verðum við að finna önnur ráð til þess að festa stólinn. Þegar við höfum fest seglgarnið, tökum við netanálina, sem netagarni hefir verið undið á, og hnýtum lykkjubragði utan um segl- garnið (A á mynd 1). Þvi næst losum við ca. 3—4 cm. úr netanálinni, B. Hnýtum ann- að lykkjubragð utan um seglgarnið A. Höld- um þannig áfram þar til við höfum hnýtt ca. 15 möskva. Þá er 1. umferðin búin. Þá byrjum við á 2. umferð (2. mynd). Við hnýtum flagghnút i möskva þann, sem auð- kenndur er með A á myndinni. Hér verðum við að gæta þess, að möskvarnir í 1. og 2. umferð verði jafnlangir. Síðan hnýtum við flagghnút í næsta möskva B og svo koll af kolli. 3. mynd sýnir hvernig við hnýtum næstu umferð. Þannig höldum við áfram, þar til við höfum hnýtt 2,5 metra langt net. Þegar garnið af netanálinni er uppnotað, förum við eins að og á mynd 3. Nú höfum við hnýtt rétthyrning, sem er 2,5 metra langur. Við losum hann frá stól- bakinu og lærum að gera það, sem næst þarf að gera, en það er: Umgjörðin: Við byrjum á langhliðinni A (4. mynd), og þræðuin kaðlinum gegnum yztu möskva langhliðarinnar, á þann hátt, sem sýnt er á 5. mynd. Þegar komið er að hornmöskvan- um, hnýtum við lykkju á kaðalinn. Lengd hennar skal vera um 10 cm. Þá byrjum við á stuttliliðinni (endanum). Hér megum við ekki fara eins að og við gerð- um á langhliðinni, því að þá myndi netið auðvitað renna inn að miðjunni, strax og lagst væri upp í það. Við verðum þess vegna að þræða möskvunum á milli kað- 10 SKÁTABLAÐIÍ)

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.