Skátablaðið


Skátablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 9

Skátablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 9
kveikja elcl undir berum hinini of< byggja og elda á hlóðum. Útbúnað á hlífðarfötum og hvernig bezt er að hafast við á víða- vangi. Þekkja nokkrar helztu nytjajurtir ná- grennisins. Að kunna að nota kort og átta- vita og að átta sig. Þekkja hin leynilegu merki skáta. Þekkja nágrenni bæjarins. Skátar skulu, ef slys eða annað það, er hér hefir verið talið, ber að höndum, muna eftir, að fyrsta skilyrði til þess að geta^ stjórnað í slysatilfellum er: Að vera rólegur og ákveðinn og að vita nákvæmlega hvað gera skal. Að framkvæma eða láta fram- kvæma nauðsynlegar ráðstafanir án þess að hika. Ennfremur að reyna að sjá um að sefa fólk, sem nýtur leiðbeiningar skátans eða skátanna, og einkum að sjá um að fólkið fari sér ekki að voða í hugsunarleysi og fáti, sem oft grípur fólk, er eitthvað óvænt ber að höndum. Útiæfing. Sjálfsagt er, þegar hinni bóklegu kennslu er lokið að halda að minnsta kosti eina úti- æfingu mánaðarlega, með vei'kefnum úr því, sem tekið liefir verið fyrir. Hér á eftir eru talin upp ýms verkefni, er taka mætti tM æfinga i útilegum og æf- ingum úti innanbæjar. 1. Björgun úr eldsvoða. 2. Notkun skátaklúta o. fl. við gasárás. 3. Að loka fyrir.gas vatn og rafmagn. 4. Ganga frá lofthæðum húsa og taka til þau tæki, sem nota mætti, ef loftárás væri yfirvofandi. 5. Hjálp í viðlögum, binda um sár, flutn- ingur sjúkra, beinbrot, brunasár, lifgun úr dauðadái, köfnun og taugaáfall. Útilega. 1. Taka má aftur flest af því sanni og i innanbæjaræfingu. 2. Tjöldun og meðferð tjalda. að byggja hlóðir og elda á hlóðum. 3. Flag'gastafrófið, leynileg skátamerki. Að fara með skilaboð. 4. Að átta sig eftir korti, áttavita og öðru. 5. Taka upp tjaldbúðirnar og flytja þær í flýti á sem minnst áberandi stað. (i. Hylja sem bezt tjaldbúðir og ferðast sein minnst um áberandi svæði. B. í. S. tilkynnir: Dagskrá aðalfundar B.Í.S. í Reykjavík 1.—2. júní 1940. a) Kosning fundarstjóra og fundarritara, úrskurður um réttmæti fulltrúa. b) Skýrslur stjórnarinnar og endurskoð- enda, umræður til úrskurðar. c) Kosning 5 manna í stjórn, og 5 vara- manna. Kosning 2ja endurskoðenda og varamanna þeirra. d) Fjárhagsáætlun næstu 2ja ára, og i sambandi við hana tekin ákvörðun um skattgreiðslu félaganna. e) Mál, sem stjórn og starfsmenn B.Í.S. bera fram. f) Mál, sem fulltrúar kunna að bera fram. Endurskoðun prófa. Stjórnin vill vekja athygli á því, að þann 1. júní n.k. er útrunninn frestur til þess að bera fram breytingartillögu við frumvarp stjórnarinnar um breytingu á nýliða-, fyrsta- og annarsflokksprófi. Sérprófssamkeppni. Ný sérprófssamkeppni hefst 1. sumar- dag í ár eftir sömu reglum og áður. Skil- yrði fyrir þátttöku eru: í. að i flokknum séu eigi færri en 5 skátar að meðtöldum foringja. 2. að prófað sé samkvæmt reglugerð um skátapróf (Skátahókin bls. 62). 3. að nöfn skáta og einkenni séu færð á eyðublöð þau, er stjórnin leggur til 4. að eyðublöðin séu komin í hendur stjórnar B.Í.S. fyrir 1. júní 1941. Allar nánari upplýsingar um keppnina gefur stjórn B.Í.S. (innanlandsritari). Stjórn B.Í.S. vill minna á tilboð bústjór- ans á Iíorpúlfsstöðum, sem getið var um í seinasta blaði. SKÁTABLAÐH) 9

x

Skátablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skátablaðið
https://timarit.is/publication/801

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.