Skátablaðið - 01.05.1940, Blaðsíða 11
alþáttanna. Vi8 vindum ofan af kaðlinum
og drögum möskvana i geg'n. Þræðum síð-
an kaðalendanum í gegnum ytri hluta
möskvans, á þann hátt, sem sýnt er á 5.
mynd. Þannig förum við að við alla enda-
inöskvana. Þegar við höfum lokið við stutt-
hliðina, hnýtum við lykkju á hornið, eins
og áður, Þegar við höfum þríltt kaðlinum
í kring um allt netið og erum komin að
kaðalendanum, þar sem við byrjuðum, tengj-
um við kaðalendana saman með „lang-
splæsÞ*. Og þá er hengiriimið tilbúið.
Notkun. v
Nú skulum við hengja rúmið upp. Við velj-
um tvo staura, eða tré, sem eru í ca. 4 metra
Ijarlægð hvor frá öðrum. Tökum björgun-
arlínu og festum henni í hornlykkjurnar, en
hnýtum línunni síðan utan um staurana. Ef
við leggjumst hú upp í rúmið, myndi þannig
fara, að það herptist saman yfir okkur, eða
klemmdi okkur niður í einskonar „neta-
poka“. Við verðum þvi að stinga stöngum
eða stöfum i gegnum hornalykkjurnar, fyrir
endana og mun netið þá halda sér opnu,
þegar lagst er í það. í fyrstunni myndi að
visu allt iáta undan, á meðan hnútarnir eru
að herðast, en þegar frá líður lieldur netið
og við munum fá fyrirhöfnina endurgoldna.
Við getum einnig spennt tjald yfir netið,
eins og sýnt er á A mynd, (tjaldið táknað
ineð punktalínum).
Netið getur einnig orðið okkur þægilegt
sem stóll (B mynd).
Ef legið er í fastatjaldbúðum, má vel út-
búa rúm eins og mynd F sýnir. Eða nota
netið við tennisleik( mynd D), og þá held
ég nú að börurnar (E) væru bærilegar við
hitt og' þetta, er bera þarf til og frá tjald-
stað.
Ef þið hugsið ykkur vel um, muimð þið
fljótlega sjá,- að netið getur orðið ykkur
reglulegt þarfaþing við starf sumarsins.
Nýtekin próf.
Skátablaðið mun nú taka upp þann sið
að birta nöfn þeirra skáta er taka 1. fl.
próf, auk þess nöfn þeirra, er fá skjald-
sveina óg riddaramerki.
Skátar úr Skátafélagi Reykjavíkur hafa
nýlega tekið þessi próf:
1. fl. próf:
Garðar Guðjónsson 1. deild.
Páll H. Pálsson 2. —
Eyjólfur Jónsson 2. R.S.
Skjaldsveinar:
Pétur Nikulásspn, 3 deild.
Kristinn Einarsson, 3
Bjarni Ingvarsson, 2 —
Friðjón Ástráðsson, 2 —
Einar Jóhannesson, 2 —
Sigurgeir Guðm.s. 2 —
Agnar Kristinsson, 2 .
11
SKÁTABLAÐlí)