Morgunblaðið - 07.01.2011, Qupperneq 12

Morgunblaðið - 07.01.2011, Qupperneq 12
12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2011 Um helmingur þjóðarinnar hefur orðið fyrir höfuðáverka, heila- hristingi eða alvarlegri áverkum, ef marka má nýlega rannsókn sem Jónas G. Halldórsson, sér- fræðingur í klínískri taugasál- fræði, vann. Jónas fylgdi eftir öllum nítján ára og yngri einstaklingum sem leituðu á slysadeild vegna höfuð- áverka á eins árs tímabili, 1992- 1993. Um var að ræða 550 ein- staklinga, sem gefur góða mynd af því hversu margir það eru í heild sem leita á slysadeild vegna höfuðáverka á ársgrundvelli. Í hópnum voru bæði þeir sem út- skrifaðir voru strax eftir skoðun og eins þeir sem lagðir voru inn á sjúkrahús. Sextán árum síðar sendi hann þeim spurningalista til að athuga með afleiðingar áverk- anna, og eru niðurstöðurnar hluti af doktorsverkefni hans. Jónas sendi einnig spurninga- lista til samanburðarhóps, fólks á sama aldri sem valið var af handahófi úr þjóðskrá. Niðurstöðurnar úr samanburð- arhópnum þykja ansi áhugaverðar en helmingur svarenda sagðist hafa orðið fyrir heilahristingi eða alvarlegri höfuðáverka. „Það sýn- ir bara hversu alvarlegt heilsu- farsspursmál þetta er í þjóðfélag- inu,“ segir Jónas og bætir við að sjö prósent þeirra segjast enn glíma við afleiðingar sem há þeim í daglegu lífi, s.s. þrálátan höf- uðverk, minnisskort og einbeiting- arleysi. Jónas segir tölurnar hafa komið sér mikið á óvart. „Þegar við vor- um að spá í fjölda þeirra í sam- anburðarhópnum sem hlotið hefðu höfuðáverka hljóðaði spáin upp á milli tíu og tuttugu prósent. En að það væri fimmtíu prósent, það kom okkur ekki til hugar.“ Margir glíma við afleiðingar Í rannsóknarhópnum voru tólf prósent sem sögðust enn glíma við afleiðingar áverkanna sem þeir hlutu 1992-1993. „Og þeir sem verða fyrir vægum höfuðáverka, þ.e. sem taldir eru vægir í byrjun, geta einnig þurft að glíma við af- leiðingar. Þannig glímdu 7% þeirra sem sögðust hafa orðið fyr- ir vægum höfuðáverka enn við af- leiðingar, en hins vegar um 30% þeirra sem sögðust hafa fengið al- varlegri höfuðáverka.“ Jónas hefur einnig rannsakað tíðni höfuðáverka hjá íslenskum börnum og ungmennum og hefur komist að þeirri niðurstöðu að hún sé svipuð og kynnt hefur ver- ið erlendis. Helmingur orðið fyrir höfuðáverka  Tíðni höfuðáverka meðal barna og unglinga hér svipuð og í öðrum löndum VIÐTAL Andri Karl andri@mbl.is Vitundarvakningu þarf í samfélaginu um höfuðáverka. Yfirlæknir á Grens- ásdeild hefur áhyggjur af því hversu lítil þekking virðist vera um hættuna sem fylgir höfuðhöggi, eða ofbeldi gegn höfðinu. Því jafnvel þó að aðeins sé um minniháttar áverka að ræða geta afleiðingarnar verið skelfilegar. Það sýna dæmin, þau eru ófá og leiða má að því líkum að enn fleiri gangi um ógreindir. Gera má ráð fyrir að á milli sex og níu hundruð á hverja hundrað þús- und verði fyrir höfuðáverka á ári hverju, leiti aðhlynningar á slysa- deild eða séu lagðir inn á sjúkrahús. Höfuðáverka þar sem heilahristingur er vægasta birtingarmynd en heila- skaði sú alvarlegasta. Oft eru áverk- arnir tiltölulega litlir, kannski augna- bliks meðvitundarleysi og engar skemmdir sjást á röntgenmyndum. Eru menn því útskrifaðir fljótlega. „Þá gerist eiginlega ekkert sem að okkur snýr fyrr en löngu síðar. Fólk kemur kannski eftir hálft ár, eitt ár og jafnvel síðar. Þá er allt í fári,“ seg- ir Gísli Einarsson, yfirlæknir í end- urhæfingarlækningum á Grensás- deild. „Einkennin geta verið lítil og enginn tekur beinlínis eftir þeim en allt getur verið komið í óefni í skóla, vinnu eða fjölskyldulífinu.“ Tveir menn liggja enn á Landspít- alanum vegna höfuðáverka sem þeir hlutu vegna líkamsárása. Gísli segir alvarlega höfuðáverka að sjálfsögðu mikið vandamál en „svo er það þetta dulda vandamál í samfélaginu. Það er fullt af fólki sem sem hefur fengið höfuðáverka, kannski í slysi en einnig eru mörg ofbeldismál, sem greinist ekki. Við höfum ekki greiningartæki sem eru nægilega næm til að greina þá í bráðafasanum. Svo kemur það ekki í greiningu fyrr en of seint. Það þarf ekki mikið höfuðhögg til að vera mjög hættulegt.“ Algengara en menn grunar Þegar ekki er hægt að greina áverka strax er nær ómögulegt að segja til um hvort höfuðhögg hafi al- varlegar afleiðingar til lengri tíma. Slíkar afleiðingar eru hins vegar mun algengari en menn grunar. „Þetta er oft viðkvæmt mál, því um er að ræða andlega getu og fólk leitar sér því ekki hjálpar strax. Oft kemur það eft- ir langan tíma og þá er mikið að, lífið bara á hvolfi. Þá þarf mikla vinnu til að snúa því við.“ Einkennin eru helst skortur á and- legri getu, minnistruflanir auk þess sem úrvinnsla á áreitum versnar. Persónuleikinn breytist einnig vegna þess að andlegt úthald minnkar og kveikiþráðurinn styttist. „Þetta eru einkenni sem menn kannski skamm- ast sín fyrir. En það eru inni í þessu hjónaskilnaðir og almennur sam- skiptavandi innan fjölskyldna. Auk þess dæmi um að menn hafi dottið út af vinnumarkaði eftir að hafa, hægt og bítandi, versnað og ekki náð að klára þau verkefni sem þeim eru sett fyrir. Einnig er til fólk sem flosnað hefur upp úr námi, og er það þá skrif- að á leti; að viðkomandi nenni ekki að læra. En kannski er það einfaldlega alrangt og viðkomandi að berjast en ekkert gengur, og hann hefur ekkert skipulag á því hvernig á að takast á við þetta.“ Gísli segir fullt af ungu fólki sem misst hefur heilu árin úr skóla, eða vinnuna og illa gengið að fá aðra. „Þetta er voðalega dapurlegt því fólk fer allt í einu að standa sig verr, að mati annarra, og ekki einu sinni grunur leikur á að gamall höfuð- áverki liggi þar að baki.“ Nauðsyn- legt sé því að efla eftirfylgni með höf- uðáverkum og hvetja fólk til að koma til skoðunar eftir þrjá mánuði eða hálft ár. Hægt að ná árangri Mikilvægast er að fólk sé greint, en það er gert með sérstöku tauga- sálfræðimati. Þá eru lögð fyrir all- mörg próf og getur tekið margar klukkustundir að fara í gegnum þau. Raunar getur það í einhverjum til- vikum tekið svo langan tíma þar sem sjúklingar hafa ekki fulla getu og þreytast því mikið við andlegt álag. Lagðar eru fyrir þrautir og mældur hugarhraði, þ.e. hvernig fólk nýtir gamla þekkingu og hvernig það hleð- ur upp nýrri þekkingu við að leysa vandamál. Þau eru þannig gerð að hægt sé að kortleggja samskiptin milli ýmissa stöðva í heilanum, sjón og heyrn og hvernig þau tengjast úr- vinnslu verkefna. Lítið þýðir að leggja prófin fyrir skömmu eftir höfuðhöggið og margir taugasálfræðingar eru á því að vafa- samt sé að gera það innan þriggja mánaða. Þá eru æ fleiri að komast á þá skoðun að skipulegar eigi að ganga til verks og framkvæma slík möt á fleirum sem hlotið hafa höf- uðáverka sem metinn hefur verið minniháttar. Eftir að viðkomandi hefur verið metinn tekur við þjálfun, sem segja má að sé sambærileg líkamsþjálfun. Þá er meðal annars unnið bæði með taugasálfræðingum og iðjuþjálfum. Gísli segir að oftar en ekki sé hægt að vinna með slíka áverka og ná góðum árangri „en það er afleitt að láta þetta eiga sig og gera ekki neitt. Það endar oft mjög illa.“ Ofbeldið fer harðnandi Höfuðáverkarnir koma til af ýms- um ástæðum, t.d. af völdum slysa en einnig ofbeldis. Og það er ofbeldið sem veldur Gísla nokkrum áhyggj- um, enda margir sem komið hafa á Grensásdeild eftir slagsmál, s.s. í miðborg Reykjavíkur um helgar. Gísli telur að því miður fari ofbeldið harðnandi og að sama skapi fari virð- ing fyrir höfðinu minnkandi. Í hverri viku er greint frá því hversu margir urðu fyrir líkamsárás þá og þá helgi. Gísli bendir á að fjöl- miðlar fylgist grannt með líðan manna sem hafa verið lagðir inn á gjörgæslu en svo þegar þeir eru út- skrifaðir þaðan er jafnan litið svo á að þeir hafi náð heilsu á ný. Þannig er veruleikinn hins vegar ekki og þó svo að menn séu útskrifaðir af sjúkrahús- inu og komnir til vinnu þá virka menn kannski ekki alveg eins og þeir gerðu áður. Hann segir að efla þurfi um- ræðuna um höfuðáverka, enda þekk- ing lítil á hættunum sem þeim fylgja. Við höfum jú aðeins einn heila og huga þurfi að hugrænni heilsu rétt eins og líkamlegri. Minniháttar höfuðáverkar en alvarlegar afleiðingar  Yfirlæknir á Grensásdeild hefur áhyggjur af þekkingarleysi þegar kemur að höfuðáverkum  Þó ekki séu merki um áverka í fyrstu getur höfuðhögg valdið slæmum afleiðingum þegar frá líður Morgunblaðið/Sverrir Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2-4 Sími 551 3360 og 892 9603 fjolskylduhjalpin.net | fjolskylduhjalp@simnet.is Fjölskylduhjálp Íslands er fyrir fólkið í landinu, og rækir skyldur sínar eins og reglur samtakanna segja til um. Bókhald samtakanna hefur frá stofnun verið opið öllum. Þeir sem þunga og kaunum eru hlaðnir eru velkomnir til okkar. Við störfum meðan fólkið hefur þörf fyrir okkur Félag fólks með heilaskaða, aðstandenda þess og áhugafólks um málefnið var stofn- að fyrir fjórum árum. Félagið sem nefnist Hugarfar heldur úti vefsvæðinu hugar- far.is. Þar má finna ýmsan fróðleik um heilaskaða, hvernig þekkja má einkennin, reynslusögur og góð ráð til að lifa með heilaskaða. Þar er meðal annars bent á að engin heildstæð stefna sé til um málefni fólks með heilaskaða á Íslandi, en til að mynda í Danmörku, Bretlandi og Bandaríkjunum séu stefnumótandi leið- beiningar til að styrkja stöðu fólks með heilaskaða. Þá segir að vegna þess hve heilinn er margbrotinn sé sérhver heilaskaði ólíkur öðrum. „Heilaskaði er sú fötlun sem fengið hefur litla umfjöllun í samfélaginu og þar af leiðandi vantar einnig mikið upp á skilning almennings og stjórnvalda á málefninu. Fagfólk og stuðningsaðilar þekkja oft ekki einkenni vitrænnar skerðingar og þá tekst ekki að greina orsök vandans. Ein- staklingur með heilaskaða leitar sjaldnast sjálfur eftir aðstoð sem er trúlega vegna þess að ein- kenni eru skert innsæi í eigin vandamál, framtaksleysi og minnisskerðing.“ Engin heildstæð stefna á Íslandi FÉLAG FÓLKS MEÐ HEILASKAÐA HELDUR ÚTI VEFSVÆÐI Endurhæfing á Grensásdeild.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.