Morgunblaðið - 07.01.2011, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 07.01.2011, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Ómar Lífleg Eygló Hilmarsdóttir fer með hlutverk Höllu í myndinni Gauragangur. Gauragangur Eygló t.v í hlutverki Höllu ásamt Hildi Arndal í hlutverki Lindu í kvikmyndinni. segir Eygló og hlær. „Halla er hrifin af Ormi, besta vini sínum og hann sér hana ekki. Sú hrifning er aldrei sögð með orðum eða gjörð- um í myndinni en kemur samt sterkt fram. Ég held að margar stelpur geti samsamað sig við Höllu.“ Myndin gerist 1979-’80 og telur Eygló að ungt fólk í dag ætti að eiga auðvelt með að samsama sig unga fólkinu í myndinni. „Þetta er sama unglingadæmið ár eftir ár; skóli, leið- inlegir kennarar, ástin og sambandið við for- eldrana, ég held að þetta breytist ekkert með árunum. Þessar týpur sem koma þarna fram hafa líka alltaf verið til, metró-típan, hipparnir og listamennirnir.“ Syngur djasslög, les og skíðar Eygló hefur aðeins séð Gauragang einu sinni og segir það undarlega tilfinningu að sjá sjálfan sig á hvíta tjaldinu. „Þegar ég sá mig fyrst í mynd þoldi ég mig ekki, langaði mest til að sparka í mig. Ég held að það séu eðlileg við- brögð við að sjá sig í fyrsta skipti í kvikmynd, en mér leið betur eftir hlé, náði aðeins að slaka á þá,“ segir Eygló sem finnur aðeins fyrir auk- inni athygli eftir að myndin var frumsýnd. „Athyglin jókst aðeins þegar skólinn byrj- aði aftur eftir jólafrí en það eru allir ánægðir með myndina svo ég fæ bara hrós. Ég er ekk- ert kvíðin fyrir slíku, enda elska ég athygli. Mér finnst gaman að afreka eitthvað þannig að aðrir taki eftir,“ segir hún og hlær. Það þarf ekkert að koma á óvart að Eygló stefnir á leik- listarnám eftir menntaskóla. En hvað með önnur áhugamál? „Ég hef mikinn áhuga á tónlist, er í hljóm- sveitinni Frænkur og fylgisveinar, við erum þar þrjár söngkonur með hljóðfæraleikara og syngjum djassaðar útgáfur af gömlum lögum. Ég hef aldrei lært söng en er í kór MR og finnst mjög gaman að syngja. Ég kann ekki al- mennilega á neitt hljóðfæri en stefni á að læra á gítar eða píanó í vetur, það er eiginlega ára- mótaheitið,“ segir Eygló og bætir við eftir smá umhugsun; „Mér finnst líka gaman að fara á skíði og lesa.“ DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. JANÚAR 2011 Útsalan hefst í dag Hæðasmára 4 - Í sama húsi og Bílaapótek fyrir ofan Smáralind Símar 555 7355 - www.selena.is Opið virka daga kl. 11-18, lau. kl. 11-15 UNDIRFÖT • SUNDFÖT Skálastærðir A-FF Kvenfatnaður Stærðir 36-46 30-60% afsláttur af völdum vörum

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.