Morgunblaðið - 13.01.2011, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 13.01.2011, Qupperneq 4
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Óvenjuleg samkoma var í dómsal Hæstaréttar í gær þegar haldinn var svokallaður „opinn fundur“ um kær- ur sem Hæstarétti hafa borist vegna framkvæmdar á kosningunum til stjórnlagaþings. Í sókn voru tveir kærendur en tíu manna vörn var skipuð fulltrúum úr landskjörstjórn, innanríkisráðuneyti og tveimur kjörnum fulltrúum á stjórnlagaþingi. Að loknum þessum munnlega mál- flutningi lýsti formaður dómsins því yfir að málið væri tekið til ákvörð- unar. Reiknað er með niðurstöðu fljótlega, þó væntanlega ekki fyrr en í næstu viku. Ávarpaður í kjörklefa Eftir að þrjár kærur bárust Hæstarétti vegna stjórnlagaþings- kosninganna hefur stjórnvöldum og kjörnum fulltrúum gefist kostur á að tjá sig um efni þeirra og kærendum síðan gefist kostur að segja álit sitt á greinargerðum stjórnvalda. Þannig hefur farið fram skriflegur málflutn- ingur í nokkrum umferðum. Mál- flutningi lauk með opna fundinum sem fram fór að viðstöddum þeim sex dómurum sem úrskurða um gildi kosninganna. Óðinn Sigþórsson og Skafti Harðarson töluðu í byrjun fundarins en þriðji kærandinn kom ekki til fundarins. Óðinn lagði áherslu á að kosningaleynd hefði ekki verið tryggð við kosninguna. Nefndi hann í því sambandi meðal annars að ekki hefði verið kosið í kjörklefum eins og hann taldi að lög kvæðu á um og kjósendum ekki verið gefinn kostur á að brjóta saman kjörseðla. Sem dæmi þessu til stuðnings nefndi hann að kjósandi hefði verið ávarp- aður við kosningaathöfnina og kjós- andi sem brotið hafði kjörseðil sinn saman, eins og lög gerðu ráð fyrir, hefði verið beðinn um að slétta úr honum fyrir framan kjörstjórn og leggja þannig í kassann. Skafti sagði að kosning væri ekki leynileg nema tryggt væri að enginn gæti séð á atkvæðaseðil kjósandans. Það væri viðurkennt allstaðar í heiminum. Framkvæmd stjórnlaga- þingskosninganna hefði verið ótrú- lega losaraleg og það yrði að hafa af- leiðingar. Auðvelt væri og tiltölulega ódýrt úr þessu að endurtaka kosn- inguna. Þurftu að bregðast við Fulltrúar landskjörstjórnar og innanríkisráðuneytis komu meðal annars þeim sjónarmiðum á fram- færi að kosningin hefði verið ólík al- þingiskosningum. Til dæmis tæki mun lengri tíma að skrifa númer frambjóðenda en að krossa við lista- bókstaf. Stjórnvöld hefðu þurft að grípa til ráðstafana. Annars hefði verið hætta á að miklar biðraðir mynduðust og kjósendur gætu ekki nýtt kosningarétt sinn. Fulltrúarnir sem töluðu fyrir ráðunneyti og landskjörstjórn sögðu að við undir- búninginn hefði ávallt verið lagt til grundvallar að kosningaleynd væri virt og töldu að ekki hefði verið sýnt fram á nein tilvik um misbrest á því. Kærendur og fulltrúar stjórnvalda hafa mismunandi sýn á lögmæti breytingar sem gerð var á fram- kvæmd kosninganna, frá því sem tíðkast hefur. Kærendur telja kveðið á um að lög um kosningar til Alþingis gildi um annað en það sem lögin um stjórnlagaþing kveða beinlínis á um. Dómendur spurðu Ástráð Har- aldsson, formann landskjörstjórnar, margra spurninga um ýmis fram- kvæmdaratriði, ekki síst varðandi öryggi hinnar rafrænu kosningar og talningar. Aðeins tveir af þeim 25 fulltrúum sem kosnir voru á stjórnlagaþing í hinni umdeildu kosningu nýttu sér tækifærið til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Það voru þeir Gísli Tryggvason og Þorkell Helgason. Kærur teknar til ákvörðunar  Málflutningi lokið í kærumálum vegna stjórnlagaþingskosninganna 4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 13. JANÚAR 2011 VIÐTAL Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is „Hér hafa engar sprengjur sprungið síðan árið 2007 og að því leyti til höf- um við vinninginn á Stokkhólm,“ segir Hörður Arilíusson, flugum- ferðarstjóri í Bagdad í Írak, um stöð- una á flugvellinum í borginni. Tveir íslenskir flugumferðarstjór- ar starfa í Bagdad, Hörður og Sig- mar Ólafsson, og fleiri eru á leiðinni þangað. Segullinn felst í um tveggja milljóna króna launum á mánuði. „Það voru gríðarleg viðbrigði að koma hingað,“ segir Hörður, en hann flaug til Bagdad á annan dag jóla og mætti í vinnuna daginn eftir. Sigmar fylgdi síðan í kjölfarið. Hon- um bauðst vinnan 12. desember sl., tók boðinu 14. desember og fór út 26. desember. „Þetta gerðist allt mjög hratt. Ég skrifaði undir samning til eins árs en hann er uppsegjanlegur með tveggja mánaða fyrirvara.“ Hörður segir að launin hafi gert út- slagið. „Eins og hjá öllum hafa laun- in [í flugumferðarstjórn á Íslandi] dregist saman og það eru forréttindi að geta farið svona á vertíð.“ Hann bætir við að fái hann ekki aftur vinnu á Íslandi geti hann bjargað sér í Írak. „Ég þyrfti ekki nema þrjú ár hérna til að ná ævitekjunum.“ Smakkaði ekki á réttunum Flugumferðarstjórarnir búa í tví- skiptum hjólhýsum án hjóla á flug- vellinum í Bagdad, vinnubúðum sem Hörður líkir við búðirnar sem voru á Kárahnjúkum. „Hver og einn hefur hálfan skúr með salernisaðstöðu og steypilaug,“ segir Hörður sem deilir skúr með Sigmari. Hann segir að völlurinn sé lokaður óviðkomandi með víggirðingu og vopnuðum vörð- um. Um 60 skúrar séu á svæðinu fyr- ir utan mötuneyti, en ekkert annað. Reyndar sé aðstaða til að hlaupa úti í björtu og þeir geti spilað billjarð inni. „Við erum lokaðir inni á svæð- inu eins og í fangelsi en getum verið á netinu í frítímanum. Á gamlárs- kvöld „sat“ ég til borðs með fjöl- skyldunni heima, fartölva var sett á einn endann og þótt ég gæti ekki bragðað á matnum gat ég séð hvað allir voru að gera og tók þátt í sam- ræðunum.“ Hörður segir að hann fái tveggja vikna frí eftir níu vikna törn og hann komi heim í mars til að ferma mið- soninn. „Þetta er vertíð en mér finnst ég vera mjög öruggur hérna.“ Bagdad Hörður Arilíusson framan við höfuðstöðvar flugmálastjórnar Íraks. Flugturninn lengst til vinstri. Öruggir í Bagdad  „Hér hafa engar sprengjur sprungið síðan árið 2007,“ segir Hörður Arilíusson, flugumferðarstjóri í höfuðborginni í Írak Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Míla hefur kært til Eftirlitsstofn- unar EFTA (ESA) samning sem gerður var við Vodafone fyrir tæpu ári um leigu á ljósleiðara hér á landi í eigu Atlantshafsbandalagsins, NATO. Um er að ræða 1.800 km langan ljósleiðara sem liggur hring- inn í kringum landið og Vestfirði meðtalda. Samið var um leigu upp á 19 milljónir króna á ári til næstu tíu ára. Varnarmálastofnun gerði samn- inginn en ljósleiðarinn kom í hlut ríkisins við brotthvarf bandaríska hersins frá Íslandi. Míla telur að leigan sé langt undir eðlilegu markaðsverði og með samningnum sé ríkissjóður að færa Vodafone verulega ríkisstyrkt sam- keppnisforskot á fjarskiptamark- aðnum. Verulegar líkur séu á að samningurinn brjóti í bága við EES- samninginn og muni leiða til skertr- ar þjónustu við neytendur í fámenn- ari jaðarbyggðum landsins, þrátt fyrir gagnstæð markmið stjórn- valda. Bendir Míla á að Vodafone þurfi eingöngu að greiða hluta af rekstr- arkostnaði og sé laust við kostnað af lagningu, endurnýjun og afskriftir. Fyrirtækið þurfi ekki að greiða það gjald sem einkaaðili, sem fjárfest hefði í slíku kerfi, yrði að krefjast. Utanríkisráðuneytið ákvað í apríl árið 2008 að bjóða út notkun á tveimur ljósleiðaraþráðum af þrem- ur í eigu NATO en Varnarmála- stofnun, sem nú hefur verið lögð nið- ur, fór með forræði þeirra hér á landi. Var Rík- iskaupum falið að bjóða út rekst- urinn. Bendir Míla á að í út- boðsgögnum sé beinlínis tekið fram að leiguverð yrði eingöngu að standa undir kostnaðarverði. Í útboðs- gögnum segir m.a. að leigugjald þurfti að lágmarki að standa undir kostnaði við rekstur og viðhald á ljósleiðurunum svo að grundvöllur sé fyrir verkefninu. Sá kostnaður er áætlaður um 38 milljónir á ári fyrir tvo strengi eða um 19 milljónir fyrir hvorn streng. „Tillögum, sem bjóða lægra leigugjald en fyrrnefnda upp- hæð, verður hafnað af rekstr- arforsendum,“ segir í útboðs- gögnum. Milljarðafjárfesting Páll Á. Jónsson, fram- kvæmdastjóri Mílu, segir við Morg- unblaðið að þessi samningur geti dregið úr áhuga Mílu á fjárfest- ingum í þessu kerfi en samkvæmt samningi við utanríkisráðuneytið annast Míla viðhald á ljósleið- urunum sem eru í eigu NATO. Um er að ræða átta ljósleiðara í einum kapli eða streng, þar af eru fimm í eigu Mílu. Heildarfjárfesting í strengnum er metin á um 4,3 millj- arða króna, eða um 540 milljónir við hvern ljósleiðara og 1,6 milljarða vegna þriggja ljósleiðara NATO. Samningur við Vodafone kærð- ur til ESA  Ríkisstyrkt leiga á ljósleiðara NATO Páll Á. Jónsson Til að geta leigt ljósleiðara NATO á almennum fjarskiptamarkaði varð að skrá Varnarmálastofnun sem fjarskiptafyrirtæki á almennum markaði. Varnar- málastofnun var lögð niður um áramót og tók utanríkisráðuneytið við þess- um skyldum frá þeim tíma. Var ráðuneytið þá skráð á almennum fjarskiptamarkaði og heyrir því m.a. undir lögsögu Póst- og fjarskiptastofnunar. Starf- semi á almennum fjarskiptamarkaði er tilkynn- ingaskyld samkvæmt fjarskiptalögum. Starfsemin fellur m.a. undir ákvæði um greiðslur í jöfnunarsjóð til að standa straum af alþjónustu. Samkvæmt þessu mun utanríkisráðuneytið, með Össur Skarp- héðinsson í broddi fylkingar, þurfa að greiða gjöld er tengjast tekjum af leigu ljósleiðara NATO. Skráð á fjarskiptamarkaði RÁÐUNEYTIÐ TÓK VIÐ SKYLDUM VARNARMÁLASTOFNUNAR Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra. Hörður Ari- líusson er 46 ára. Hann varð stúdent frá MS 1984 og hefur starfað sem flugum- ferðarstjóri síðan 1986. Hann var kennari í flugumferðarstjórn hjá Bail- brook College í Bath á Englandi 1999-2002, skipaður varamað- ur Rannsóknarnefndar flugslysa 1. september 2004 og aðalvarð- stjóri í Flugstjórnarmiðstöðinni á Reykjavíkurflugvelli frá maí 2004. Hann á eiginkonu á Ís- landi og eiga þau þrjá syni, 22 ára háskólanema, 13 ára og 5 ára. Fjölskyldan bíður heima HÖRÐUR ARILÍUSSON Hörður Arilíusson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.